Morgunblaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 39
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 39 Útsalan SUÐURLANDSBRAUT 54 (BLÁA HÚSIÐ Á MÓTI SUBWAY) SÍMI 533 3109 OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 12.00-18.00 LAUGARDAG FRÁ KL. 10.00-16.00 Nú er tækifæri til að gera góð kaup 50% afsláttur hefst í dag, kl. 12.00 þriðjudaginn 15. janúar af öllum skóm 4. flokki 1992 – 33. útdráttur 4. flokki 1994 – 26. útdráttur 2. flokki 1995 – 24. útdráttur Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: Koma þessi bréf til innlausnar 15. mars 2002. Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess liggja upplýsingar frammi hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum. Útdráttur húsbréfa NÚ hefur R-listinn verið við völd frá árinu 1994 eða í hart- nær átta ár. Fyrir kosningarnar 1994 gaf listinn út stefnuskrá þar sem tíunduð voru helstu kosningaloforð listans. Þar er sérstök áhersla lögð á leik- skólamál. Á bls. 20 í stefnuskránni voru loforð R-listans í þess- um málaflokki tíunduð í þremur liðum: 1. ,,Haustið 1995 hafi öll börn á leik- skólaaldri, þriggja ára og eldri, fengið þá vistun sem foreldrar þeirra vilja nýta sér. 2. Haustið 1996 hafi öll börn tveggja ára og eldri fengið þá vist- un sem foreldrar þeirra vilja nýta sér. 3. Fyrir lok kjörtímabilsins hafi öll börn eins árs og eldri fengið þá vistun sem foreldrar þeirra vilja nýta sér.“ Núna, í janúar 2002, eru 2.360 börn á biðlista Leikskóla Reykja- víkur. Þar af eru 477 börn, sem strangt til tekið mega ekki vera á biðlista þar sem þau eru fædd á árinu 2001, en R-listinn breytti reglunum í þá veru á síðasta ári. Fram að því voru þessi börn á hin- um formlega biðlista. Það er því nauðsynlegt að taka tillit til þeirra þegar þróun biðlista á valdatíma núverandi meirihluta er skoðuð. Aldursskipting biðlistans nú er þannig að 1.390 börn eru að verða tveggja ára, 416 eru að verða þriggja ára og 77 eru á fjórða ári og eldri. Samkvæmt þessu er R-listinn 77 börnum frá því að uppfylla markmið árs- ins 1995, um 500 börn- um frá því að uppfylla markmiðin sem áttu að hafa náðst í árslok 1996 og tæplega 2.000 börnum frá því að ná markmiðum sem þeir lofuðu borgarbúum að yrði náð árið 1998. Þetta er sérstaklega athyglisvert í ljósi þess að börn á leik- skólaaldri í Reykjavík eru nú 500 færri en þau voru árið 1994 þegar R-listinn tók við. Það má því gera ráð fyrir að á biðlistanum nú væru allt að 500 fleiri börn ef fjöldi barna á leikskólaaldri hefði haldist m.v. árið 1994. Ef biðlista skyldi kalla Borgarstjóri lagði sérstaklega út frá því við framlagningu fjárhags- áætlunar fyrir árið 2002 að stjórn- málamenn yrðu að vera samkvæm- ir sjálfum sér og orð þeirra skyldu standa. Orðrétt sagði borgarstjóri: „Okkur sveitarstjórnarmönnum er sýndur mikill trúnaður með um- boði til þess að ráðstafa skattpen- ingum borgaranna til samfélags- legra verkefna. Þar þurfum við að vera trú stefnu okkar og fyrirheit- um, jafnt þeim sem gefin eru í að- draganda kosninga og við önnur tilefni.“ Borgarstjóri hefur augljóslega fallið á því prófi sem hún hefur sett fram sjálf. Í þessum málaflokki sem öðrum hafa orð ekki staðist og loforð verið svikin. Í umræðum um leikskólamál hefur borgarstjóri ákveðið að fara þá leið, eins og í umræðum um aðra málaflokka, að gera lítið úr vandanum. Aðspurð um biðlistana svaraði borgarstjóri því til að vandamálið væri svo „léttvægt“ að hæpið væri að tala um biðlista, „ef biðlista skyldi kalla“ sagði borgarstjóri í um- ræðum í borgarstjórn. Það er ekki nýtt að borgarstjóri reyni að fela eigið getuleysi við stjórn borgar- innar með því að gera lítið úr vand- anum. Það er sú staða sem kemur upp í öllum málum; fjármálum borgarinnar, miðborgarmálum, lóðamálum, skipulagsmálum, mál- efnum hverfanna og svo mætti lengi telja. Staðreyndirnar eru samt sem áður þær að þegar R- listinn tók við árið 1994 voru 1.869 börn á biðlista en nú, nær átta ár- um síðar, eru 2.360 börn á listan- um. Biðlistinn sló met um áramótin 2000/2001 en þá voru rúmlega 2.800 börn á biðlista og hefur bið- listinn aldrei verið lengri. 2.360 börn á biðlista Guðlaugur Þór Þórðarson Leikskólar Það er ekki nýtt, segir Guðlaugur Þór Þórðarson, að borg- arstjóri reyni að fela eigið getuleysi við stjórn borgarinnar. Höfundur er borgarfulltrúi. MENNTAMÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.