Morgunblaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Opið
17. – 18. janúar kl. 14:00–20:00
19. – 20. janúar kl. 10:00–20:00
Velkomin á vörusýninguna Kínverskir dagar í Laugardals-
höll. Tólf kínversk fyrirtæki kynna hágæða iðnaðarvöru.
Forsvarsmenn fyrirtækjanna eru til viðtals á staðnum.
Sýningin er opin almenningi.
Heimilistæki Ferðaþjónusta Kínverskur bjór
Iðnaðarvörur Listiðnaður Fatnaður
Gjafavörur Verkfæri Kínverskir listmunir
Smíði fiskiskipa Viðhald fiskiskipa Veiðarfæri
Aðgangur 500 krónur fyrir 12 ára og eldri.
Aðgöngumiði gildir sem happdrættismiði.
Aðalvinningur er ferð fyrir tvo til Kína.
Skipulagt af China Council for the Promotion of International Trade og China
Chamber of International Commerce. Samstarfsaðilar: Íslensk – kínverska
viðskiptaráðið, Kínversk – íslenska menningarfélagið, Viðskiptaþjónusta
utanríkisráðuneytisins og Útflutningsráð Íslands.
Kínverskir dagar
í Laugardalshöll 17. – 20. janúar
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
3
8
6
0
UNDIR lok síðasta árs keyptu tíu af
stjórnendum Kaupþings hf. hluta-
bréf í fyrirtækinu fyrir um 480 millj-
ónir króna. Þessi viðskipti þykja
orka tvímælis vegna þess að talið er
að stjórnendurnir hafi búið yfir trún-
aðarupplýsingum sem gætu haft
áhrif á markaðsverð hlutabréfa
Kaupþings, en tæpum þremur vikum
eftir að tilkynnt var um viðskiptin,
tilkynnti Kaupþing að viljayfirlýsing
um kaup á sænska verðbréfa-
fyrirtækinu Aragon hefði verið und-
irrituð.
Skiptar skoðanir eru um hvort inn-
herjaviðskiptin hafi farið fram á
grundvelli trúnaðarupplýsinga sem
fruminnherjarnir bjuggu e.t.v. yfir.
Forsvarsmenn Kaupþings telja við-
skiptin í samræmi við lög og reglur
og að um tvö ótengd mál sé að ræða.
Hins vegar hefur verið látið í veðri
vaka að óhugsandi sé að fruminn-
herjarnir hafi ekki búið yfir trúnað-
arupplýsingunum þegar viðskiptin
áttu sér stað, 2–3 vikum fyrir til-
kynninguna um viljayfirlýsinguna.
Málavextir eru þeir að 27. desem-
ber sl. var tilkynning birt á vef Verð-
bréfaþings Íslands þess efnis að 21.
desember hefðu tíu stjórnendur hjá
Kaupþingi keypt hlutabréf í félaginu
að nafnvirði 3–8 milljónir króna hver
á genginu 12,2. Alls er um 488 millj-
ónir að söluvirði að ræða. Um stórar
upphæðir er að ræða og starfsmenn-
irnir juku eignarhlut sinn verulega
frá því sem var.
Lokagengi hlutabréfa Kaupþings í
gær var 12,9 og hefur gengið hækkað
um 5,7% frá 27. desember sl. þegar
það var 12,2. Daginn eftir, síðasta
viðskiptadag ársins, fór það í 12,5 og
fór aftur niður í 12,2 fyrsta viðskipta-
dag eftir áramót. Gengið hefur síðan
farið hækkandi en ekki er hægt að
rekja það til tilkynningarinnar um
Aragon þar sem verðþróun annarra
fjármálafyrirtækja hefur verið svip-
uð.
Allir kaupendurnir
fruminnherjar
Fyrirhuguð kaup á Aragon má
telja upplýsingar þess eðlis að þær
hafi áhrif á markaðsverð verðbréfa
Kaupþings þegar þær verða opinber-
ar. Sú er m.a. skilgreining á trúnað-
arupplýsingum í 2. grein laga um
verðbréfaviðskipti: „Upplýsingar um
útgefanda verðbréfa, verðbréfin sjálf
eða önnur atriði sem ekki hafa verið
gerð opinber en eru líkleg til að hafa
áhrif á markaðsverð verðbréfanna ef
opinber væru.“
Þess ber að geta að stjórnendurnir
tíu sem keyptu bréf í Kaupþingi 21.
desember sl. eru allir fruminnherjar
í Kaupþingi, þ.e. „aðilar sem búa yfir
eða hafa að jafnaði aðgang að trún-
aðarupplýsingum vegna eignaraðild-
ar, aðildar að stjórn, rekstri eða eft-
irliti eða vegna annarra starfa á
vegum útgefanda verðbréfa sem
skráð hafa verið eða óskað hefur ver-
ið eftir að verði skráð í kauphöll eða á
skipulegum tilboðsmarkaði sem
fengið hefur starfsleyfi hér á landi,“
eins og segir í lögum um verðbréfa-
viðskipti.
Flóknir samningar
Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings, segir í samtali við Morg-
unblaðið að það sem undanfarið hef-
ur verið tengt saman í fjölmiðlum,
þ.e. kaup starfsmanna á hlutabréfum
í Kaupþingi annars vegar og viljayf-
irlýsing um kaup á Aragon hins veg-
ar, séu ótengd mál. „Í nokkra mánuði
hafa verið í undirbúningi samningar
við tiltekna starfsmenn Kaupþings.
Þessir samningar snúa að kaupum
nokkurra af lykilstarfsmönnum fyr-
irtækisins á hlutabréfum í Kaup-
þingi. Það hefur lengi þótt æskilegt
hér innanhúss að starfsmenn hefðu
sömu hagsmuni og fyrirtækið. Þessir
samningar eru bundnir ákveðnum
skilmálum, m.a. eru ákvæði um lág-
markseignarhaldstíma. Þar með er-
um við að reyna að tryggja að þessir
starfsmenn haldist innan fyrirtækis-
ins um fyrirsjáanlega framtíð. Þetta
eru töluvert flóknir samningar og
hafa verið til lögfræðilegrar með-
ferðar hér innanhúss sem og utan
Kaupþings.“
Aðspurður segir Sigurður að
Kaupþing hafi aðstoðað starfsmenn-
ina við fjármögnun hlutabréfakaup-
anna. Hann segir að samningarnir
hafi ekki verið frágengnir fyrr en
rétt um 20. desember og þá hafi verið
keypt inn það magn bréfa sem þurfti
til efnda á þessum samningum.
„Þetta tengist því ekki á nokkurn
hátt öðrum ákvörðunarferlum innan
Kaupþings. Hvorki kaupunum á Sofi,
afkomu félagsins, Aragon eða öðru.
Þetta varðar trúnaðarsamband fyr-
irtækisins og starfsmanna. En vegna
þess írafárs sem hefur skapast í
kringum þetta mál er kannski nauð-
synlegt að það komi fram,“ segir Sig-
urður.
Á ekki að koma á óvart
„Hin hliðin á málinu er auðvitað sú
að það hefur um langt skeið verið yf-
irlýst markmið og stefna Kaupþings
að líta á Norðurlöndin sem heima-
markað. Í því skyni höfum við komið
á legg starfsstöðvum á ýmsu formi, í
Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Hels-
inki og Þórshöfn. Við keyptum Sofi á
síðasta ári og lýstum því um leið yfir
að við myndum skoða alla möguleika
í stöðunni til áframhaldandi upp-
byggingar á Norðurlöndunum, til
dæmis í Svíþjóð eða Noregi. Því segi
ég að það getur ekki komið neinum á
óvart að Kaupþing styrki stöðu sína á
Norðurlöndunum í samræmi við
fyrri yfirlýsingar.“
Sigurður lýsir ferlinu hvað varðar
ákvörðun um viðræður við Aragon og
undirritun viljayfirlýsingarinnar: „Á
stjórnarfundi að loknum hluthafa-
fundi 28. desember síðastliðinn var
Aragon-málið ekki á áður ákveðinni
dagskrá en það var hins vegar tekið
upp undir liðnum önnur mál. Í kjölfar
þess samþykkti stjórnin að ég fengi
heimild til að ræða við hluthafa Arag-
on og kanna þeirra hug til samein-
ingar. Á fundi 7. janúar hittumst við
þrjú frá Kaupþingi og þrjú frá Arag-
on þar sem við freistuðum þess að ná
saman um viljayfirlýsingu og það
tókst. Tilkynnt var um viljayfirlýs-
inguna 9. janúar sl. og í kjölfarið er
hafin vinna við kostgæfnisathugun.“
Á fundi stjórnar Kaupþings í gær
var samþykkt viljayfirlýsingin um
kaup á Aragon og að halda kostgæfn-
isathugun áfram.
Fjármálafyrirtækjum er sam-
kvæmt verðbréfaviðskiptalögum
skylt að setja sér reglur um meðferð
trúnaðarupplýsinga og viðskipti inn-
herja og fá á þeim staðfestingu frá
Fjármálaeftirlitinu sem setti fram
leiðbeinandi tilmæli þessa efnis síð-
astliðið sumar. Innan Kaupþings er
farið eftir slíkum reglum en þær eiga
eftir að hljóta staðfestingu Fjármála-
eftirlitsins en það ferli stendur yfir. Í
reglunum segir m.a.: „Óheimilt er að
eiga nokkurs konar viðskipti eða
gera aðrar ráðstafanir með verðbréf
búi viðkomandi yfir trúnaðarupplýs-
ingum eða ef regluvörður, sbr. 7. gr.,
hefur synjað um viðskiptin.“ Í 7.
grein er hlutverk regluvarðar skil-
greint en hann hefur eftirlit með að
reglunum sé framfylgt.
Um viðskipti innherja segir m.a. í
reglunum: „Fruminnherji skal ganga
úr skugga um það, áður en hann á
viðskipti með verðbréf Kaupþings
hf., að ekki liggi fyrir trúnaðarupp-
lýsingar innan félagsins.“ Einnig er
kveðið á um að fruminnherji skuli
ávallt hafa samráð við regluvörð áður
en hann á viðskipti með verðbréf
Kaupþings hf.
Fjármálaeftirlitið
getur haft frumkvæði
Málið er enn á frumstigi af hálfu
Verðbréfaþings Íslands og hefur
þingið ekki óskað eftir frekari skýr-
ingum vegna málsins. Verðbréfaþing
tekur iðulega til skoðunar mál af
þessu tagi, þ.e.a.s. mögulegt sam-
hengi á milli stórtíðinda á borð við
fyrirhugaðan samruna við annað fé-
lag og hugsanlega undangenginna
innherjaviðskipta.
Meðferð mála af þessu tagi er oft-
ast á þann hátt að VÞÍ athugar hvort
viðskiptin hafi verið í samræmi við
reglur þingsins um upplýsinga-
skyldu og fleira og ef eitthvað þykir
athugavert eða þarfnast frekari
skoðunar, er málinu vísað til Fjár-
málaeftirlitsins.
Fjármálaeftirlitið getur einnig
tekið mál til athugunar að eigin
frumkvæði.
Innherjaviðskipti
og viljayfirlýsing
ótengd mál
Morgunblaðið/Ásdís
Í nokkra mánuði hafa verið í undirbúningi samningar við nokkra lykil-
starfsmenn Kaupþings um hlutabréfakaup.
Forsvarsmenn Kaupþings segja innherja-
viðskipti með bréf félagsins í desember sl.
og viljayfirlýsingu um kaup á sænska verð-
bréfafyrirtækinu Aragon tvö ótengd mál.
Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings
GUNNAR Jónsson hrl., sem
hefur starfað fyrir Orca-hópinn
vegna tilboðs erlends fjárfest-
ingarhóps, hefur sent gögn til
Fjármálaeftirlitsins í samræmi
við beiðni eftirlitsins varðandi
áhuga erlendra aðila á að kaupa
hlut Orca-hópsins í Íslands-
banka.
Gunnar sagðist í gær ekki
vilja tjá sig um þetta mál og að
það væri Fjármálaeftirlitsins að
segja til um hvort það hefði
fengið fullnægjandi skýringar á
því sem það vildi fá skýringar á.
Hann sagðist þó ekki vera í vafa
um að skýringarnar yrðu taldar
fullnægjandi.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, vildi í gær
ekki tjá sig um málið á þessu
stigi.
Gögn send til Fjár-
málaeftirlitsins