Morgunblaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 27
Með villisveppum og með skinku og beikoni.
Fyrir voru léttostar með grænmeti, með
sjávarréttum og hreinn léttostur.
Smurostarnir eru þægilegt, bragðgott álegg
og líka spennandi í ofnrétti, súpur og sósur.
Minni fita og færri hitaeiningar!
Tveir léttir!
Nýj
ung
Nýjung
Advanced Night Repair
Eye Recovery Complex
Nýjung í augnumhirðu: Vernd og viðgerð
Þekkt virkni og viðgerðarhæfni Advanced Night Repair
fyrir andlitið skilar sér nú í hinu háþróaða Eye Recovery Complex
fyrir augnsvæðið. Ný efnatækni vinnur gegn smáhrukkum, þurrki,
þrota og dökkum baugum.
Nótt sem dag flýtir hún endurnýjun húðarinnar,
styrkir varnir hennar og gæðir augun æskuljóma.
Við höfum aflað okkur einkaleyfis á þessari einstöku vöru.
Clara Kringlunni, Debenhams snyrtivörudeild, Hagkaup Kringlunni,
Hagkaup Smáralind, Hagkaup Spönginni, Lyfja Lágmúla,
Lyfja Laugavegi, Lyfja Smáratorgi, Lyfja Smáralind, Lyfja Garðatorgi, Lyfja
Setbergi, Lyf og Heilsa Austurstræti, Sara Bankastræti, Apótek Keflavíkur.
www.esteelauder.com
„Fyrirtæki koma og fara,“ sagði
hann. „Þetta er eitt af aðalsmerkj-
um kapítalismans, fólk tekur góðar
eða slæmar ákvarðanir, og það tek-
ur afleiðingunum eða nýtur ávaxt-
anna af þessum ákvörðunum. Þann-
ig starfar kerfið.“
Dómsmálaráðuneytið hefur hafið
glæparannsókn á gjaldþrotinu og
þingið hefur einnig ákveðið rann-
sókn á málinu. Þúsundir starfs-
manna Enron töpuðu samtals millj-
örðum dollara þegar hlutabréf í
fyrirtækinu féllu í verði eftir að
lánshæfiseinkunn þess hrundi.
Fólkinu var meinað að selja bréfin,
sem voru stór hluti af eftirlauna-
sjóðum þess. Yfirmenn fyrirtækis-
ins seldu hins vegar hlutabréf sín
þegar gengi þeirra var sem hæst.
Skömmu fyrir gjaldþrotið sagði
Kenneth Lay, forstjóri Enron,
starfsmönnum fyrirtækisins að
rekstrarhorfur þess hefðu aldrei
verið betri, samkvæmt upplýsing-
um rannsóknarmanna Bandaríkja-
þings.
„Gjaldþrot Enron var
ekki eðlilegt“
Öldungadeildarþingmaðurinn
Joseph Lieberman, sem var vara-
forsetaefni demókrata í síðustu
kosningum, sagði að ummæli
O’Neills væru „svívirðileg“. „Þannig
yfirlýsingar hefði fjármálaráðherra
á 18. öldinni getað látið frá sér fara,
en ekki á 21. öldinni,“ sagði hann.
„Gjaldþrot Enron var ekki eðlilegt,
svo mikið vitum við núna. Þetta er
ekki kapítalismi eins og við viljum
hafa hann.“
Enron veitti miklar fjárhæðir í
kosningasjóði bandarískra stjórn-
málamanna, jafnt demókrata sem
repúblikana. Bush forseti var á
meðal þeirra sem fengu mest fé frá
fyrirtækinu, eða 623.000 dali, and-
virði um 63 milljóna króna, frá
árinu 1993.
Forstjóri Enron hringdi í O’Neill
í október til að óska eftir aðstoð
Bandaríkjastjórnar vegna slæmrar
fjárhagsstöðu fyrirtækisins en ráð-
herrann kvaðst ekki hafa skýrt for-
setanum frá beiðninni.
Ummæli ráðherra
um Enron gagnrýnd
Segir gjaldþrot „eitt af aðals-
merkjum kapítalismans“
Washington. AFP.
NOKKRIR atkvæðamiklir þingmenn í Bandaríkjunum gagnrýndu Paul
O’Neill fjármálaráðherra á sunnudag vegna ummæla hans um gjaldþrot
orkufyrirtækisins Enron, mesta gjaldþrot í sögu Bandaríkjanna. Ráðherrann
lét þau orð falla að slík gjaldþrot væru „eitt af aðalsmerkjum kapítalismans“.
O’Neill sagði í sjónvarpsviðtali á sunnudag að George W. Bush Bandaríkja-
forseti hefði ekki vitað um beiðni forstjóra Enron um að Bandaríkjastjórn
kæmi fyrirtækinu til hjálpar áður en það varð gjaldþrota. Hann lýsti gjald-
þrotinu sem skólabókardæmi um eitt af megineinkennum kapítalismans.
UNGUR Norðmaður í skíðabænum
Geilo skaut á laugardagskvöld þrjá
til bana og særði hinn fjórða illa en
fyrirfór sér síðan, að sögn Aften-
posten. Hafði hann áður klæðst ein-
kennisbúningi sínum úr heimavarn-
arliðinu og vopnið var riffill af
gerðinni AG3, sem hann hafði fengið
í hendur hjá liðinu.
Maðurinn var 25 ára gamall og
báru nágrannar og kunningjar hon-
um vel söguna, hann hefði verið
prúðmenni í daglegri umgengni.
Hann hafði haldið teiti með nokkr-
um ungum kunningjum sínum
heima hjá sér. Er áfengið á staðnum
var búið mun maðurinn að sögn
vitna hafa orðið mjög reiður og að
lokum rekið alla út. Gestirnir fóru í
kjallaraíbúð skammt frá og héldu
þar áfram að skemmta sér.
Svo fór að hringt var á leigubíl til
að halda í miðbæinn. Maðurinn kom
nú á staðinn og skaut hann allt að
tíu skotum með fyrrgreindum af-
leiðingum. Einn hinna látnu var í
íbúðinni og mun maðurinn hafa
skotið hann utan frá í gegnum
gluggarúðuna en hinir höfðu farið
út, líklega til að gá að leigubílnum.
19 ára gamall maður sem særðist
illa er sagður verða yfirheyrður í
dag.
Almenningur í Geilo er sleginn
óhug eftir atburðinn enda bærinn
venjulega friðsæll. Miklar umræður
eru nú í Noregi um eftirlit með
vopnum heimavarnarliðsins og bent
á að í nefnd sem ákveði hver fái inn-
göngu í liðið sé ekki læknir. Hefur
einnig verið sagt að vegna laga um
þagnarskyldu og persónuvernd sé
ekki hægt að upplýsa nefndarmenn
um andlegt heilsufar liðsmanna.
Varnarmálaráðherrann, Kristin
Krohn Devold, hyggst endurskoða
stefnuna í þessum málum. Hún tel-
ur þó ekki ástæðu til að banna liðs-
mönnum að varðveita vopnin heima
hjá sér. Um 83.000 manns eru í
heimaliðinu. Frá 1986 hafa alls 18
manns týnt lífi vegna þess að rifflar
eða önnur vopn heimavarnarliðsins
hafa lent í röngum höndum.
Skaut þrjá til
bana í Geilo
Ungur heimavarnarliðsmaður
fyrirfór sér eftir morðin