Morgunblaðið - 15.01.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Leikmannaskóli kirkjunnar
Fjölbreytt
námskeiðaval
Leikmannaskólikirkjunnar er aðhleypa af stokkun-
um fjölbreyttum nám-
skeiðum um þessar mund-
ir. Irma Sjöfn Óskars-
dóttir verkefnisstjóri hjá
Þjóðkirkjunni heldur utan
um starfsemi Leikmanna-
skólans og hún sat fúslega
fyrir svörum og sagði frá
skólanum og fyrir hvað
hann stendur.
Segðu okkur eitthvað
frá skólanum.
„Leikmannaskóli kirkj-
unnar sér um fullorðins-
fræðslu kirkjunnar og
sinnir bæði þeim sem
starfa að verkefnum innan
kirkjunnar og öðrum sem
vilja dýpka þekkingu sína
á kristinni trú. Saga skól-
ans nær aftur til 1991 og á upphaf
sitt í námskeiðum fyrir safnaðar-
starfsmenn á vegum fræðslu-
deildar kirkjunnar sem þá hét,
guðfræðideildar Háskóla Íslands
og Skálholtsskóla. Námskeið
þessi voru haldin undir yfirskrift-
inni Leikmannaskóli kirkjunnar
og voru ætluð til að mennta
starfsmenn kirkjunnar aðra en
presta, orgelleikara og djákna.
Kennsla hófst í september 1991.
Á kirkjuþingi 1992 flutti þáver-
andi fræðslustjóri kirkjunnar til-
lögu til þingsályktunar um að
beina formlegri skipan trú-
fræðslu fyrir fullorðna innan vé-
banda Leikmannaskóla Þjóð-
kirkjunnar. Með breytingum á
lögum á Kirkjuþingi 2000 heyrir
nú Leikmannaskólinn beint undir
Kirkjuráð og er sjálfstæð stofn-
un. Kirkjuþing skipar síðan
stjórn skólans og er hún skipuð
þeim dr. Arnfríði Guðmundsdótt-
ur lektor, Helgu Nínu Stefáns-
dóttur og Arthuri Farestveit.“
Hverjar eru helstu áherslur
skólans?
„Námskeið Leikmannaskólans
fjalla um fólk, um lífið og tilgang
þess. Þau taka á grundvallarat-
riðum kristinnar trúar, heim-
speki, trúarbrögðum, tilfinning-
um og táknum. Engar kröfur eru
gerðar um menntun, undirbún-
ing, heimavinnu eða próf. Síðan
má segja að fræðslan fari fram á
tvo vegu. Annars vegar námskeið
er fjalla um undirstöðuatriði
kristinnar trúar, námskeið fyrir
meðhjálpara og sóknarnefndar-
fólk, hringjara, hjónanámskeið,
námskeið um áföll í hópi nemenda
sem víða hafa verið kennd í
tengslum við kennara og skóla-
yfirvöld. Þessi námskeið eru ætl-
uð til að notast í söfnuðum um
land allt. Hins vegar er sá hluti
starfsins sem snýst um nám-
skeiðahald í samvinnu Leik-
mannaskólans og guðfræðideild-
ar og fara þau námskeið fram í
Háskóla Íslands að mestu.“
Nefndu okkur dæmi um nám-
skeið sem nú skal halda.
„Af þeim námskeiðum sem
kennd verða í Háskóla Íslands á
næstu mánuðum má
fyrst nefna námskeið
um siðferðileg álitamál
sem dr. Sólveig Anna
Bóasdóttir, guðfræð-
ingur, kennir. Þá verð-
ur fjallað um þær áleitnu spurn-
ingar er fylgja miklum fram-
förum í vísindum frá sjónarhóli
kristinnar siðfræði. Rannsóknir á
trúarstefjum í kvikmyndum er
námskeið sem er í umsjá hóps
guðfræðinga sem hafa sérstak-
lega lagt það fyrir sig að skoða
kvikmyndir út frá sjónarhóli
kristinnar trúar. Í febrúar er síð-
an námskeið sem fjallar um Guð-
ríði Símonardóttur. Þar mun
Steinunn Jóhannesdóttir rithöf-
undur skoða sögu hennar og
kanna með hvaða hætti áhrif Guð-
ríðar kunna að birtast í skáldskap
séra Hallgríms Péturssonar.
Einnig verður boðið upp á nám-
skeið um pílagrímsgöngur. Dr.
Hjalti Hugason og Ragnheiður
Sverrisdóttir djákni munu leiða
okkur inn í heim pílagrímsferða
og annarra leiða til tilbeiðslu, s.s.
kyrrðarstunda, kyrrðardaga og
fleira má nefna í þeim dúr. Sam-
vinnuverkefni Leikmannaskólans
og Reykjavíkurprófastsdæmis
eystra er síðan röð biblíulestra
sem eru í umsjá dr. Sigurjóns
Árna Eyjólfssonar héraðsprests.
Lestrarnir bera yfirskriftina
Áfangar og fjalla um þætti í sið-
fræðiboðskap Jesú og verða tekin
fyrir stef úr dæmisögum og fjall-
ræðunni. Biblíulestrarnir eru
haldnir í Breiðholtskirkju.“
Hverjum eru námskeiðin ætl-
uð?
„Öllu fólki sem hefur áhuga á
að kynna sér kristna trú, siðfræði
og kynna sér í hverju mannrækt
kirkjunnar felst.“
Hefur verið góð eftirspurn eftir
námskeiðunum til þessa?
„Í vetur hefur eftirspurn verið
góð eftir námskeiðum í Háskóla
Íslands. Haldin voru fjölmenn
námskeið, t.d. í sálgæslu, þar sem
fjallað var um efnið að hugga og
hlusta. Einnig voru 45 manns á
námskeiði um íslam.
Margir urðu frá að
hverfa þegar námskeið
um sjálfsstyrkingu
kvenna, konur eru kon-
um bestar, var haldið í
nóvember og verður því annað
námskeið haldið dagana 22. og 29.
janúar.“
Hvað hafa margir sótt þessi
námskeið ykkar?
„Það má lauslega áætla að um
þrjú þúsund manns hafi sótt þessi
námskeið, fólk á öllum aldri.
Margir koma á fleiri en eitt nám-
skeið og þátttakendur eru alls
staðar að af landinu.“
Irma Sjöfn Óskarsdóttir
Irma Sjöfn Óskarsdóttir er
fædd á Akranesi 12. nóvember
1961. Lauk guðfræðiprófi frá HÍ
1988. M.th.-prófi í Theology and
Ethics og Media and Comm-
unication frá guðfræðideild Ed-
inborgarháskóla 1993. Vígður
prestur í Seljakirkju 1988 og
starfaði þar nær samfleytt til
2001, en tók þá við verkefnis-
stjórn í Leikmannaskólanum auk
fleiri verkefna á Biskupsstofu.
Ritstjóri Víðförla 1997-98. Maki
er Hrólfur Ölvisson fjármála-
stjóri og dætur þeirra tvær eru
Kristbjörg Fjóla og Elka Ósk.
…eru ætluð
til að notast
í söfnuðum
Gætirðu ekki tekið hann Gunnar með þér einn rúnt, Harry minn?
Hann er eitthvað hræddur við þetta kukl.
Eingöngu
fyrir Far-,
Gull- og In
finite-
korthafa V
ISA
22. - 28. febrúar 2002.
Fararstjórar: Paolo Turchi,
Gu›mundur Vi›ar Karlsson og fl.
Ver› frá 76.800 kr.*
*) Ver› á mann í tvíb‡li.
Innifali›: Flug, akstur til og
frá hóteli erlendis, gisting
me› morgunver›i í 6 nætur
og íslensk fararstjórn.
Ekki innfali›:
Flugvallaskattar og föst
aukagjöld, 4.500 kr. og
sko›unarfer›ir.
Skemmtilegar sko›unarfer›ir:
• Úts‡nisfer› um Rómarborg.
• Vatikansafni›, Sixtinska
kapellan og St. Péturskirkjan.
• Dagsfer› til Pompei.
• Dagsfer› til Flórens.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
1
64
83
01
/2
00
2
STÚDENTAR við Háskóla Ís-
lands stunda, auk bóknáms, marg-
víslegt verknám auk verklegra
rannsókna en hafa til þessa ekki
verið tryggðir við vinnu sína og
njóta ekki sama réttar og iðnnem-
ar sem eru sérstaklega slysa-
tryggðir samkvæmt almanna-
tryggingalögum. Formaður og
framkvæmdastjóri Stúdentaráðs
funduðu með Jón Kristjánssyni,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, vegna málsins síðasta
haust, og fékk ráðherra samþykki
fyrir því í ríkisstjórn að stúdentar
við Háskóla íslands í heilbrigðis-
og raunvísindagreinum yrðu
tryggðir samkvæmt almanna-
tryggingalögum.
Í máli ráðherra á opnum fundi
Röskvu í gær kom fram að allt út-
lit er fyrir að takast muni að af-
greiða málið nú á vorþingi. „Mér
eru vel ljósar þær hættur sem
fylgja vinnuumhverfi á heilbrigð-
isstofnunum þar sem starfsmenn
meðhöndla hættuleg lyf og önnur
efni. Svo er því heldur ekki að
neita að í sumum tilvikum geta
skjólstæðingar heilbrigðisstofnana
verið hættulegir sjálfum sér og
öðrum. Þótt menn geri allt til þess
að fyrirbyggja slys er aldrei hægt
að útiloka að stúdentar í klínísku
námi verði fyrir tjóni. Ég mat það
svo að það væri þörf á aðgerðum
til þess að tryggja öryggi þessara
stúdenta og lagði því fram tillögu
til lagabreytinga á almannatrygg-
ingum þar sem sérstaklega væri
kveðið á um tryggingar háskóla-
stúdenta í heilbrigðisgreinum og
raunvísindum. Frumvarpið bíður
nú fyrstu umræðu og ég stefni að
því að fá frumvarpið samþykkt á
vorþinginu. Ég á ekki von á öðru
en að frá þessu máli verði gengið á
komandi þingi.“
Dagný Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Stúdentaráðs, sagði að þetta
væri mikill sigur í réttindabaráttu
stúdenta. „Ólíkt því sem við höfum
oft upplifað „í kerfinu“ þar sem
málum er einfaldlega stungið ofan
í skúffu tók heilbrigðisráðherra
það fyrir og lagði fyrir ríkisstjórn í
desember. Þar var erindið sam-
þykkt og bíður nú afgreiðslu Al-
þingis. Það er afar ánægjulegt að
ráðherra skuli hafa brugðist svo
skjótt við og fyrir það eru stúd-
entar þakklátir.“
Stúdentar í heilbrigðis- og
raunvísindagreinum tryggðir
♦ ♦ ♦
Styrktarsjóð-
ur vegna
eldsvoða
STOFNAÐUR hefur verið styrktar-
sjóður fyrir Anton Lína Hreiðarsson
en foreldrar hans og yngri bróðir
fórust í eldsvoða á Þingeyri 4. janúar
sl.
Tekið er við framlögum á reikning
nr. 4500 í Sparisjóði Vestfirðinga.