Morgunblaðið - 15.01.2002, Síða 18
Hveragerði
ÞAÐ er mikið að gerast
í leikhúsi Hvergerð-
inga, Völundi, um þess-
ar mundir. Verið er að
breyta salnum þannig
að nú sjá allir leikhús-
gestir, stórir og smáir,
sýningarnar sama hvar
þeir sitja. Breytingin er
sú að smíðaðir hafa ver-
ið þrír pallar, á jafn-
mörgum hæðum, til að
hækka upp gólfið.
Hægt er að koma fyrir
þremur sætaröðum á
hverjum palli, eða setja
þar borð og stóla ef um
veislur eða kaffileikhús
er að ræða. Því að jafnhliða leikhús-
inu er húsið leigt út til einstaklinga
og hópa. Framkvæmdirnar hafa all-
ar verið unnar í sjálfboðavinnu og
hafa smiðir, pípari, dúkarar og
áhugasamt og handlagið fólk úr
bænum lagt leikfélaginu lið.
„Það eru allir svo góðir við okkur,“
segir Anna Jórunn Stefánsdóttir,
formaður leikfélagsins, og biður fyr-
ir þakklæti til alls fólksins, sem
margt er alls ekkert í leikfélaginu, en
kemur og leggur félaginu ómetan-
legt lið með því að leggja fram vinnu
sína. Þetta er ekki það eina sem fé-
lagið hefur verið að vinna í nýja leik-
húsinu, í haust var sviðið stækkað,
nýlega er búið að lagfæra sminkher-
bergið, nýtt búningaherbergi var
innréttað og fleira mætti telja.
Bjarni Guðmundsson, hirðsmiður leikfélags-
ins, og formaðurinn Anna Jórunn Stefáns-
dóttir á fullu að setja upp nýju pallana.
Líf og fjör í
leikhúsinu
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
LANDIÐ
18 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Beinn sími sölumanna 562 8501 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is
TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 274 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2002
BIC Atlantis penni
Verð 91 kr/stk
POST-IT minnismiðar í
flestum stærðum. Stærð 76*76
mm 106 kr/blokkin og 12
blokkir saman í pakka
Ljósritunarglærur. 100 stk í
pakka. Verð 1.867kr/pk
TRICOM reiknivél með
strimli
Verð 7.900 kr/stk
NOVUS MASTER
gatar 25 blöð.
Verð 382 kr
Ljósritunarpappír 400 kr/pakkningin
NOVUS HEFTARI
heftar 30 blöð.
Verð 674 kr Skilblöð númeruð, lituð,
stafróf eða eftir
mánuðum.Fuji geisladiskar þar sem gæðin skara framúr
UM og yfir 550 manns voru við útför
hjónanna Hreiðars Snæs Línasonar
og Ingibjargar Eddu Guðmunds-
dóttur og sonar þeirra Leons Arnar
sem var gerð frá Þingeyrarkirkju á
laugardag. Þau létust í eldsvoða á
Þingeyri aðfaranótt föstudagsins 4.
janúar sl. Þéttskipað var í kirkjunni
og í íþróttahúsinu fylgdust rúmlega
300 manns með athöfninni á breið-
tjaldi.
Á Þingeyri og í Dýrafirði búa um
340 manns og voru velflestir þeirra
við athöfnina. Brottfluttir Dýrfirð-
ingar fjölmenntu og margir komu úr
nærliggjandi byggðarlögum.
Samkenndin með ættingjum og
vinum hinna látnu var greinileg.
Ekki er langt síðan íbúar á Flateyri
og í Súðavík yrðu fyrir miklum áföll-
um þegar snjóflóð féllu á þorpin og
er líklegt að mörgum hafi orðið
hugsað til þeirra atburða þegar
fréttir bárust af eldsvoðanum.
Hinn hörmulegi eldsvoði hefur að
sönnu varpað skugga á mannlíf á
Þingeyri og í Dýrafirði. Stórar fjöl-
skyldur stóðu að hinum látnu og
varla er sú fjölskylda í firðinum sem
ekki var annaðhvort skyld þeim eða
þekkti þau vel.
Á Þingeyri gekk maður undir
manns hönd við að undirbúa sam-
verustund og útbúa kaffiveitingar í
íþróttahúsinu að athöfn lokinni. Þá
voru tæknimenn og fleiri að störfum
fram undir lok vikunnar við að koma
á sjónvarpssambandi úr kirkjunni
yfir í íþróttahúsið.
Reiðarslag
„Slysið 4. janúar kom yfir okkur
eins og reiðarslag. Það þarf ekki að
rifja þá atburði upp. Þar drýgði
Hreiðar Snær hetjudáð er hann
bjargaði syni sínum Antoni Lína og
braust síðan inn í eldinn til að freista
þess að bjarga konu sinni og yngra
syni. Við megum líka minnast þess
að með viðbrögðum sínum bjargaði
Hreiðar einnig lífi foreldra sinna og
systur. Í viðbrögðum hans sjáum við
vald kærleikans sem lætur líf sitt
fyrir vini sína. Þannig er og kærleik-
ur Jesú Krists. Hann dó fyrir okkur
til þess að við mættum lifa. Og við
okkur hvert og eitt segir Jesús nú:
„Ég er með þér alla daga,““ sagði sr.
Guðrún Edda Gunnarsdóttir í minn-
ingarorðum sínum.
Dýrfirðingum bárust margar sam-
úðarkveðjur, margar frá fólki sem
hefur misst mikið. „Við höfum mætt
ótrúlegum hlýhug og hjálpsemi frá
fjölda fólks um allt land,“ sagði sr.
Guðrún. Sænskur maður sem las um
slysið á Netinu var meðal þeirra sem
sendu kveðjur. Þá hafa gjafir borist
víða að, bæði föt og leikföng handa
Antoni Lína.
Sr. Guðrún Edda lýsti því að fjöl-
skyldur þeirra Hreiðars og Ingi-
bjargar hefðu verið samtaka um að
létta undir með þeim eftir föngum
enda voru þau ung, Hreiðar 19 ára
og Ingibjörg á 17. ári, þegar þau
eignuðust Anton Lína og tveimur ár-
um síðar fæddist Leon Örn.
Við athöfnina var sunginn sálmur
sem sr. Pétur Sigurgeirsson biskup
orti vegna eldsvoðans. Farið var með
ljóð sem móðurbróðir Hreiðars, Páll
S. Elíasson, hafði samið og lesin bæn
sem Kristjana Vagnsdóttir, amma
Hreiðars, samdi.
Hreiðar Snær, Ingibjörg Edda og
Leon Örn voru jarðsett í kirkjugarð-
inum á Þingeyri.
Hetjudáð sem sýnir
vald kærleikans
Morgunblaðið/RAX
Hreiðar Snær, Ingibjörg Edda og Leon Örn borin til grafar á laugardag.
Hjónin og sonur þeirra sem fórust í eldsvoðanum
á Þingeyri borin til grafar á laugardag
Þingeyri
EKKI viðraði til flugeldasýningar
á þrettándanum en mjög hvasst
var þá á landinu. Helgina eftir
var hins vegar stillt og fallegt
veður svo jólin voru kvödd með
litaglaðri skothríð flugelda í boði
Lionsklúbbsins Fonts. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Síðbúin
flugelda-
sýning
Þórshöfn
FRÉTTAVEFURINN bb.is á Ísa-
firði hefur tekið í notkun nýjan vef,
en hönnun og smíði hans hefur
staðið yfir í nokkra mánuði. Bæj-
arstjórinn í Ísafjarðarbæ, Halldór
Halldórsson, opnaði vefinn. Það var
gert í einu af elstu og fornfrægustu
húsum Ísafjarðar, Faktorshúsinu í
Hæstakaupstað, sem á það sameig-
inlegt með BB-vefnum, að hafa ver-
ið tekið í gegn frá grunni.Vefurinn
og húsið eiga það líka sameiginlegt,
að hið gamla fær að halda sér,
þrátt fyrir geysimiklar endurbæt-
ur.
Allt það efni sem safnast hefur
inn á bb.is á þeim tveimur árum
sem liðin eru frá opnun hans er þar
enn og öllum aðgengilegt. Fjöl-
margar nýjungar eru á hinum end-
urhannaða BB-vef.
Fréttavefurinn bb.is var opnaður
4. janúar árið 2000 hefur tíminn lið-
ið hratt. Aðsóknin hefur verið langt
umfram björtustu vonir þeirra sem
að honum standa. Vefurinn er les-
inn í tugum þjóðlanda um allan
heim, auk þess sem ljóst er að hann
er regluleg skyldulesning þúsunda
netverja hérlendis. Sá vefur sem nú
hefur þjónað svo vel í tvö ár var
þegar í upphafi mjög af vanefnum
ger hvað tæknilegu hliðina snerti.
Ekki hefur það skánað á hraðfleyg-
um tímum, þegar það sem er nýtt í
dag er orðið gamalt á morgun. Þess
vegna var um tvo kosti að velja: Að
byggja nýjan vef frá grunni, tækni-
lega miklu betri og fjölbreyttari,
með öllum þeim kostnaði og þeirri
gríðarlegu vinnu sem slíku fylgir –
eða að hætta rekstrinum og loka
vefnum. Fyrri kosturinn var tek-
inn. Hann var tekinn að vandlega
athuguðu máli og reynt hefur verið
að gæta þess að rasa ekki um ráð
fram. Áfram verður reynt að veita
lesendum upplýsingar og þjónustu.
Ekki er nú fremur en áður gert ráð
fyrir því að reksturinn standi undir
sér. Grundvöllur bb.is hefur alla tíð
verið áhugi og metnaður en ekki
gróðavon. Hvorki hafa verið til
sparaðir peningar H-prents ehf.,
eiganda vefjarins, né ómæld frí-
stundavinna einstakra starfsmanna,
eins og nokkur kostur hefur verið
að leggja fram.
BB með nýjan
fréttavef
Ísafjörður
Þrettándagleðin
var að venju fjöl-
sótt í Vestmanna-
eyjum. Fór hún
fram í þokkalegu
veðri þrátt fyrir
rysjótt tíðarfar.
Það voru félagar úr
ÍBVsem sáu um
þrettándann eins
og venjulega.
Vestmannaeyjar
Þrettándagleði
Morgunblaðið/Sigurgeir