Morgunblaðið - 15.01.2002, Síða 23

Morgunblaðið - 15.01.2002, Síða 23
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 23 KOSTNAÐUR vegna samanlagðra færslna upp á um það bil 54.300 krón- ur á milli banka á Norðurlöndunum er hærri en hin millifærða upphæð, eða um 56.300 krónur, samkvæmt könnun Norrænu félaganna á gjaldi fyrir millfærslu í norrænum bönkum 10.–13. desember síðastliðinn. Niður- stöðurnar eru settar fram í skýrslu frá Sambandi norrænu félaganna og þar kemur fram að kostnaðurinn við millifærslur á milli Norðurlandanna sé um það bil tíu sinnum meiri en inn- an hvers lands. Könnunin fór fram á Álandseyjum, í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Nor- egi og Svíþjóð og tók til 32 útibúa 16 banka. Fulltrúar norrænu félaganna í hverju landi fóru í valda banka og óskuðu eftir ódýrustu leið til að senda ákveðna peningaupphæð til annars norræns lands. Upphæðirnar sem um ræðir voru 100 danskar, norskar og sænskar krónur, 100 finnsk mörk og 1.000 íslenskar krónur. Tekið var tillit til þess hversu langan tíma sendingin tæki og væri hraðsending mun dýrari var ódýrasta leiðin valin. Fulltrúarnir báðu jafnframt um verðlista sem ómögulegt reyndist að fá nema í Nor- egi þar sem bönkum er skylt að láta verðlista liggja frammi. Í fréttatil- kynningu frá Sambandi norrænu fé- laganna kemur fram að verðlistar séu til hjá meirihluta bankanna, en að starfsfólk hafi ekki leyfi til þess að láta þá af hendi. Einnig segir að erfitt hafi reynst að fá nægilegar skýringar á því fyrir hvað viðskiptavinurinn væri nákvæmlega að borga. Auk þess að leiða í ljós mikinn kostnað við millifærslur sýndu niður- stöðurnar að millifærslur taka langan tíma, allt upp í átta daga. Hjá helm- ingi bankanna sem könnunin tók til var gjald fyrir millifærslu hærra en upphæðin sem var millifærð. Að mati Sambands norrænu félag- anna vekja niðurstöðurnar áhyggjur og sýna að bankarnir bjóða viðskipta- vinum sínum ekki góða þjónustu. Um 200 þúsund íbúar á Norðurlöndunum fá lífeyri eða laun frá öðru landi en þeir búa í og sýnir könnunin fram á að hagnaður bankanna af millifærslum af því tagi sé mikill. Að sama skapi eru þær dýrar fyrir neytendur. Næstdýrast hjá Landsbankanum Samkvæmt könnuninni var kostn- aður við millifærslur næstmestur hjá Landsbanka Íslands eða að meðaltali 1.363,84 krónur fyrir færslu. Norski bankinn Gjensidige NOR var dýrast- ur eða 1.548,30 krónur á hverja færslu að meðaltali. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis bauð lægst verð fyrir millifærslur samkvæmt könnuninni eða 261,05 krónur. Spari- sjóður Hafnarfjarðar var í 15. sæti og Búnaðarbankinn í því fjórtánda. Ástæðan fyrir lágu verði hjá þessum þremur íslensku bankastofnunum er sú að þar gerði starfsfólk að tillögu sinni að viðkomandi sendi tilgreinda peningaupphæð sem ávísun í pósti. Sú leið er mun ódýrari en aðrar milli- færsluleiðir og svokölluð SWIFT- greiðsla sem Landsbanki Íslands not- aði, einn banka. Í skýrslu Sambands norrænu félaganna kemur fram að líta má á þessa tillögu starfsfólks ís- lensku bankanna sem staðfestingu á að fyrirkomulag á millifærslum á milli banka á Norðurlöndunum henti ein- staklingum ekki nógu vel. Norrænir bankar taki sig á Það vakti athygli Terje Tveito, for- manns Sambands norrænu félag- anna, að millifærslur á milli banka sem nú eru orðnir hluti af sömu heild vegna sameiningar, eru einnig dýrar. Í fréttatilkynningu frá Sambandi nor- rænu félaganna bendir Tveito á að norrænu bankarnir verði að taka sig á í þessu tilliti. „Það er ástæða til þess að bankarnir og ekki síst stjórnvöld taki þetta greiðslufyrirkomulag á Norðurlöndunum til nánari athugun- ar. Það er ekki neytendum í hag að stórir bankar verði til ef þeir geta ekki boðið neytendum betri og ódýr- ari þjónustu,“ segir í fréttatilkynning- unni. Gjald fyrir millifærslu oft hærra en upphæðin Könnun Sambands norrænu félaganna á kostnaði við millifærslur hjá norrænum bönkum Morgunblaðið/Ásdís Millifærslur eru dýrar, sam- kvæmt nýrri könnun. Ingibjörg Elín Sigurbjörnsdóttir hafði samband við neytendasíðu og vildi gera athugasemd við hýasintur sem hún keypti í Blómavali fyrir jólin og lítil sem engin lykt var af. „Tilbúnar hýasintuskreytingar eru dýrar en mað- ur leyfir sér að kaupa þær fyrir jólin til þess að njóta lyktarinnar. Það voru því mikil vonbrigði að þær skyldu ekki lykta neitt. Þegar ég fór í verslunina til þess að kvarta kom önnur kona að og sagðist hafa orðið vör við það sama,“ segir hún. Lára Jónsdóttir garðyrkjufræð- ingur hjá Blómavali, segist hafa heyrt af fyrirspurnum frá tveimur viðskiptavinum vegna lítillar lyktar af hýasintum en að engar aðrar at- hugasemdir hafi borist versluninni. „Hýasintur sem seldar eru á réttu stigi eiga að blómstra 2–3 dögum síð- ar og að byrja að ilma um leið, í allt að því viku. Þegar hýasintan fölnar hættir hún að ilma. Hýasintur koma bæði bleikar og bláar til okkar og ekki nema örlítill munur á því hvern- ig þær lykta. Ég hef satt að segja ekki lent í því að þær ilmi ekki og hef enga skýringu á þessu. Hýasintur komu ferskar úr ræktun til okkar fyrir jól og ef þær hafa ekki verið kældar of lengi á að vera allt í lagi með þær. Ég hef ekki fengið eina einustu fyrirspurn um þetta og er þó ýmist í vinnu að degi eða kvöldi,“ segir hún. Laukarnir eru fluttir inn frá Hol- landi og hafðir í mold í kæligeymslu í einar átta vikur áður en þeir eru „drifnir í blóm“ eins og Lára segir tekið til orða. „Þegar hýasinturnar koma í verslunina í byrjun desember eiga þær að vera á réttu stigi og blómstra 2–3 dögum síðar, svo ég hef enga skýringu á þessu. Það er að minnsta kosti ekki búið að kynbæta úr þeim lyktina, eins og gerst hefur með rósir þar sem fólk leggur meg- ináherslu á að þær standi sem lengst,“ segir hún loks. SPURT OG SVARAÐ UM NEYTENDAMÁL Lyktarlausar hýasintur valda vonbrigðum NÝR vörulisti frá Freemans er kominn út. Um er að ræða vor- og sumartískuna og sem fyrr er „leit- ast við að bjóða vönduð föt á sanngjörnu verði fyrir alla fjöl- skylduna“, eins og segir í tilkynn- ingu. Freemans rekur verslun í Hafnarfirði og þar má finna mikið af vörunum úr nýja listanum. Pöntun- arsími Freemans er opinn alla daga vikunnar frá 9 til 22. Ennfremur má fara á heimasíðu Freemans og panta vörurnar úr listanum, slóðin er www.freemans.is. Hægt er að nálgast vörulistann í verslun Freemans að Bæjarhrauni 14, Hafnarfirði (bakatil) eða í öllum helstu bókaverslunum landsins. NÝTT Vor- og sum- arlistinn frá Freemans KOMIN er á markað ný vara frá kjúklingafyr- irtækinu Íslands- fugli á Dalvík. „Um er að ræða frosna kjúklingabita sem hjúpaðir er í sér- stakri hveitikryddblöndu sem er sér- hönnuð fyrir kjúklingabita. Bitarnir eru settir frosnir í ofnskúffu og ekki þörf á að nota olíu við steikinguna. Einnig er hægt að djúpsteikja kjúk- lingabitana og verða þeir þá mjög stökkir að utan. Allar steikingarleið- beiningar eru vel merktar á umbúð- unum. Varan er seld í frystipokum og eru bitarnir lausfrystir. Frosnir kjúklingabitar Gjafavara – matar- og kaffistell . All ir verðflokkar. - Gæðavara Heimsfrægir hönnuðir m.a. Gianni Versace. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.