Morgunblaðið - 15.01.2002, Qupperneq 25
Kynningarfundur verður
í Sjálfboðamiðstöð, Hverfisgötu 105
fimmtudaginn 17. janúar kl. 20:00.
Fjölbreytt og áhugaverð
verkefni fyrir fólk á öllum aldri.
Viljum
bæta við
sjálfboða-
liðum!
Sjálfboðamiðstöð
Reykjavíkurdeildar
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 25
GEORGE W. Bush
Bandaríkjaforseti féll í
yfirlið í Hvíta húsinu á
sunnudagskvöld eftir að
saltkringla stóð í honum
þegar hann var að horfa á
ruðningsleik í sjónvarp-
inu. Læknir hans, Rich-
ard Tubb, sagði að forset-
inn hefði náð sér fljótt og
honum liði vel.
Læknirinn sagði að
hægt hefði á hjartslætt-
inum þegar saltkringlan
stóð í Bush og það hefði
valdið yfirliðinu. „Ég tel
enga ástæðu til að ætla að
þetta gerist aftur.“ Forsetinn skrám-
aðist lítillega á vinstri vanga og fékk
mar á neðri vörina þegar hann datt á
gólfið af sófa í einu herbergja for-
setabústaðarins. Hann var einn í her-
berginu að horfa á leik Baltimore og
Miami í ruðningi og eiginkona hans,
Laura, var í nálægu herbergi að tala í
símann.
Kallað var á hjúkrun-
arfræðing sem gerði
boð eftir lækni um átta
mínútum eftir atburð-
inn. Bush fór sjálfur í
lyftu niður í stofu lækn-
isins í Hvíta húsinu.
Tubb sagði að forset-
inn teldi sig aðeins hafa
misst meðvitund í
nokkrar sekúndur því
þegar hann hefði rankað
við sér hefðu hundar
hans, sem voru hjá hon-
um, verið í sömu stöðu
og þegar hann féll í yf-
irlið. „En þeir voru
skrýtnir á svipinn þegar þeir horfðu á
hann,“ sagði Ari Fleischer, talsmaður
forsetans.
Læknirinn sagði að Bush hefði ver-
ið illa fyrirkallaður síðustu daga, líkt
og hann væri að fá kvef. Hann hefði
þó stundað líkamsþjálfun um helgina.
Forsetinn gekkst undir læknis-
rannsókn eftir yfirliðið og hún leiddi í
ljós að hjartað starfaði eðlilega. Púls-
inn var hins vegar hægur og lækn-
irinn rakti það til strangrar líkams-
þjálfunar forsetans. Tubb sagði að
yfirlið forsetans virtist ekki tengjast
streitu eða mikilli vinnu vegna stríðs-
ins í Afganistan.
Eftir rannsóknina ákvað Bush að
hætta ekki við fyrirhugaða ferð sína
til miðvesturríkja Bandaríkjanna í
gær.
Bush hyggst fara í sína fyrstu As-
íuferð í næsta mánuði, til Suður-Kór-
eu og Japans, og hugsanlega einnig til
Kína.
Suður-kóreska forsetaskrifstofan
tilkynnti að Bush myndi eiga viðræð-
ur við Kim Dae-Jung, forseta Suður-
Kóreu, í Seoul seint í febrúar og yrði
umræðuefnið fyrst og fremst Norður-
Kórea. Þá var haft eftir japönskum
ráðuneytisstjóra að Bush kæmi einn-
ig til viðræðna við stjórnvöld í Tókýó.
Óstaðfestar fréttir eru um að hann
fari líka til fundar við kínverska ráða-
menn í Peking.
Bush Bandaríkjaforseti gengst undir læknisrannsókn
Féll í yfirlið eftir að salt-
kringla stóð í honum
George W. Bush
Washington. AP.