Morgunblaðið - 15.01.2002, Side 26
ERLENT
26 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Nú er rétti tíminn
til að læra að fljúga!!!
Innritun er hafin:
Bóklegt JAA einkaflugmannsnámskeið*
Umsóknarfrestur er til 17. janúar 2002
Skólasetning 22. janúar 2002
Kennt verður á kvöldin á virkum dögum
Bóklegt JAA atvinnuflugmannsnám*
Umsóknarfrestur er til 25. janúar 2002
Skólasetning 4. febrúar 2002
Kennt verður alla virka daga vikunnar frá 8:10 til 14:40
Flugkennaranámskeið FI(A)0201
Námskeið hefst um leið og lágmarksfjöldi umsókna hefur borist
Kennt verður á kvöldin á virkum dögum frá 19:00 til 22:00
Flugumsjónarnámskeið*
Umsóknarfrestur er til 20. febrúar 2002
Skólasetning 1. mars 2002
Kennt verður á kvöldin í 11-12 vikur
*Allar nánari upplýsingar um inntökukröfur,
verð o.fl. er að finna á flugskoli.is og/eða í síma 530 5100
E f t i r t a l d i r s t a n d a a ð F l u g s k ó l a Í s l a n d s
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
CYRUS Vance, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, lést
síðastliðinn laugardag 84 ára að
aldri.
„Við Bandaríkjamenn höfum
misst góðan þegn,“ sagði Colin
Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, er hann minntist Vance á
sunnudag. „Hann var fulltrúi þeirr-
ar kynslóðar, sem leit á starf í þágu
lands og þjóðar sem æðsta takmark
hvers manns. Hans verður sárt
saknað.“
Vance var fæddur í Clarksburg í
Vestur-Virginíu og útskrifaðist sem
lögfræðingur frá Yale. Hóf hann
störf fyrir hið opinbera 1957 er
hann varð lögfræðilegur ráðunaut-
ur hermálanefndar öldungadeild-
arinnar en síðar starfaði hann fyrir
ríkisstjórn Johns F. Kennedys og
hann var aðstoðarvarnarmálaráð-
herra í forsetatíð Lyndons B. John-
sons. Gat hann sér fljótt orð sem
góður samningamaður en hann
lagði ávallt áherslu á viðræður og
málamiðlun en var frábitinn vald-
beitingu.
Cyrus Vance varð utanrík-
isráðherra í ríkisstjórn Jimmys
Carters 1977 og hann átti ekki
minnstan þátt í Camp David-
samkomulaginu milli Ísraela og
Egypta auk þess sem kom mjög við
sögu í SALT-samningunum við Sov-
étríkin.
Ágreiningur við Carter
Vance sagði af sér sem utanrík-
isráðherra er Carter ákvað gegn
áköfum mótmælum hans að freista
þess að frelsa bandarísku gíslana,
sem voru í haldi í Íran. Sú tilraun
endaði síðan með ósköpum og kost-
aði átta Bandaríkjamenn lífið.
Vance sneri sér aftur að lög-
fræðistörfum er hann hætti í op-
inberri þjónustu og var um hríð yf-
irmaður bandaríska seðlabankans.
Hann hélt áfram sáttastarfi sínu, til
dæmis í Suður-Afríku og síðar í
Bosníu.
Cyrus Vance, fyrrv. utanríkisráðherra Bandaríkjanna, látinn
Minnst sem mik-
ils mannasættis
Washington. AFP.
Cyrus Vance
BRESKA lögreglan
útilokar ekki, að grip-
ið verði til einhverra
aðgerða gegn Harry
prins en á sunnudag
skýrðu breskir fjöl-
miðlar frá því, að hann
hefði verið staðinn að
því í fyrra að reykja
hass og drekka sig
fullan. Hann er 17 ára
en var 16 ára er þetta
gerðist.
Mandy Evely, lög-
reglufulltrúi í Wilt-
shire, sagði, að tekið
yrði á máli Harrys
„eins og allra ann-
arra“ og benti á, að eitt af dag-
blöðunum segðist hafa nægar
sannanir gegn honum.
„Við munum líta á þær og gefist
ástæða til, munum við grípa til
einhverra aðgerða,“ sagði Evely.
Síðdegisblaðið News of the
World skýrði frá því,
að Harry, yngri sonur
Karls prins og Díönu,
hefði viðurkennt að
hafa drukkið sig full-
an á krá skammt frá
sveitasetri föður síns
og reykt hass með
kunningjum sínum.
Gerði talsmaður föð-
ur hans hvorki að
játa né neita fréttinni
og sagði aðeins, að
málinu væri „lokið“.
Í fræðslu hjá fíkni-
efnaneytendum
Karl frétti af fram-
ferði sonar síns síðasta sumar og
brást þá við með því að senda
hann til dagsvistar á endurhæfing-
arstöð fyrir fíkniefnaneytendur í
London.
Þar fékk hann að heyra ýmislegt
um „saklaust fikt“, sem síðar
leiddi til þess, að fólk varð ofurselt
eiturlyfjanautninni. Hefur Karli al-
mennt verið hrósað fyrir viðbrögð-
in í þessu máli sonar síns.
Blaðamenn hvattir
til að sýna varfærni
Mandy Evely sagði, að lögreglan
myndi einnig kanna hvort eigend-
ur kráarinnar þar sem Harry
drakk sig fullan hefðu brotið lög
en bannað er að selja fólki yngra
en 18 ára áfengi.
Þá hafa blöðin farið fram á
rannsókn á því hvort þeir menn,
sem bera ábyrgð á öryggi Harrys
og eiga að fylgjast með honum,
hafi brugðist því hlutverki sínu.
Guy Black, formaður nefndar,
sem hefur eftirlit með fjölmiðlum,
hvatti í gær blaðamenn til að fara
varlega í umfjöllun sinni um Harry
og einkalíf hans og minnti á, að
hann væri í raun enn barn að
aldri.
Harry prins staðinn að því að drekka sig fullan og reykja hass
Lögreglan útilok-
ar ekki aðgerðir
London. AP, AFP.
Harry prins
ÁSTRALSKA sjónvarpið sýndi á
sunnudag myndband, sem tekið var í
þjálfunarbúðum al-Qaeda í Afganist-
an. Virðist það sýna áætlun um að
ráðast á og drepa vestræna þjóðar-
leiðtoga þegar þeir eru við golfiðkun.
Talsmenn ástralska sjónvarpsins
segja, að hermenn Norðurbandalags-
ins hafi komist yfir myndbandið eftir
einn sigur sinn á talibönum í nóvem-
ber sl. en það er alls sex klukkutíma
langt. Sýnir það liðsmenn al-Qaeda,
arabíska, pakistanska og afríska, við
þjálfun í búðum skammt fyrir norðan
Kabúl. Fólst hún meðal annars í því
að smygla vopnum í golfpoka inn á
æfingasvæði og „drepa“ síðan bráðina
með sprengjuvörpu.
Fangi skotinn
í æfingaskyni
Annar hluti sýnir er árás á bílalest
var æfð og enn annar gíslatöku þar
sem þátttakendurnir æptu fyrirskip-
anir sínar á ensku. Við það tækifæri
var augljóslega skotinn til bana fangi,
sem hryðjuverkamennirnir höfðu í
haldi. Annað atriði í þjálfuninni var að
æfa mannrán á götu og var þá notuð
bifreið merkt afganska varnarmála-
ráðuneytinu.
Ástralska sjónvarpið ætlar að af-
henda Bandaríkjamönnum eintak af
myndbandinu til athugunar.
Í Singapore hefur einnig verið sýnt
myndband, sem líka fannst í Afganist-
an, en það sýnir áætlanir al-Qaeda um
hryðjuverk þar. Skömmu fyrir ára-
mót voru 13 al-Qaeda-liðar handtekn-
ir í borgríkinu og hugsanlegt er, að
þeir hafi tekið myndbandið og sent til
Afganistans.
Á myndbandinu kemur fram mað-
ur, sem lýsir því hvernig fyrirhugað
sé að drepa bandaríska hermenn, sem
fluttir eru á milli flotastöðvar og járn-
brautarstöðvar, og einnig hvernig
best sé að standa að því að sprengja
upp bandarísk herskip á legunni við
flotastöðina. Þá eru einnig nefnd sem
skotmörk sendiráð Bandaríkjanna,
Bretlands, Ástralíu og Ísraels og
bandarísk fyrirtæki.
Vakti áhuga
í Afganistan
Yfirvöld í Singapore segja, að
myndbandið hafi verið sent æðstu
leiðtogum al-Qaeda í Afganistan, sem
hafi sýnt því „mikinn áhuga“, en ekki
sé vitað hvers vegna ekkert varð af
árásunum eða hafði ekki orðið þegar
mennirnir 13 voru handteknir.
Fréttaskýrendur segja, að eftir at-
löguna gegn al-Qaeda í Bandaríkjun-
um, Evrópu og Mið-Austurlöndum sé
mikil hætta á, að samtökin flytji meg-
instarfsemi sína til Austurlanda þar
sem múslímar eru víða fjölmennir.
Myndband sem tekið var í þjálfunarbúðum al-Qaeda
Hugðust myrða þjóðar-
leiðtoga á golfvellinum
AFGANAR eru að ljúka við-
gerðum á flugvellinum í Kabúl
með aðstoð breskra hermanna og
búist er við að hann verði opn-
aður á næstu dögum. Miklar
skemmdir urðu á flugvellinum í
loftárásum Bandaríkjamanna áð-
ur en stjórn talibana féll. Afg-
anskir verkamenn hreinsa hér
flugbraut vallarins.
Reuters
Flugvöllurinn í
Kabúl hreinsaður