Morgunblaðið - 15.01.2002, Qupperneq 29
Ungar og afskiptar
ÞRJÁR, ungar og ófyrirleitnar
stúlkur eru aðalpersónurnar í Voy-
ous Voyalles, dökkleitri mynd, sem
þrátt fyrir allt, flokkast helst und-
ir gamanmynd. Systurnar Lea
(Olivia Bonamy) og Aurelie (Axell
Ade-Padeloup), eru 19 og 13 ára,
búa hjá einstæðri móður, eftir að
faðirinn lést af slysförum. Mamma
þeirra er farin að eiga vingott við
lögregluþjón (Didier Bezace),
stúlkunum til mikillar armæðu.
Það er frekar þröngt í búi og
stunda systurnar smáþjófnaði og
hafa þróað með sér hæpna fjáröfl-
unarleið sem felst í einfaldri fjár-
kúgun. Aurelie, sú yngri tælir
eldri menn með sér á afvikna
staði, þá kemur Lea aðvífandi með
lagabókstafinn á hraðbergi og
einsgott að menn borgi áður en
þeir lenda í klóm réttvísinnar.
Dag nokkurn verður Anna Soph-
ie (Audrey Tautou), stúlka á svip-
uðu reki og Lea, á vegi þeirra.
Segist vera komin til Parísar að
hitta föður sinn, sem býr í ná-
grenni við stúlkurnar. Í samein-
ingu reyna þær að nálgast hann en
það gengur brösuglega. Hinsvegar
reynist Anna Sophie liðtækur fé-
lagi í peningaharkinu.
Allar þjást stúlkurnar af af-
skiptaleysi öðru fremur. Glæpina
fremja þær engu síður til að fá út-
rás fyrir lífsleiða í heimi þar sem
þær hafa takmarkað rúm og at-
hygli. Móðirin hefur lítinn tíma
fyrir þær og nýi maðurinn í lífi
hennar er ógnun við minningu föð-
ur þeirra. Veröld Önnu Sophie er
hinsvegar flóknari. Maðurinn sem
hún segir föður sinn er hinsvegar
fyrrverandi elskhugi hennar, sem
gamnaði sér með henni um stund
en vill ekkert meira með hana
hafa.
Aðalkostur Voyous Voyalles, er
mögnuð frammistaða leik-
kvennanna ungu. Það má mikið
vera ef þær eiga ekki eftir að gera
garðinn frægan á hvíta tjaldinu,
reyndar er Tautou að slá í gegn
um þessar mundir í Amélie, hér
sem annsrsstaðar í Evrópu. Ade-
Padeloup, sú yngsta, er bráðefni-
leg og sýnir mikinn þroska í erf-
iðasta hlutverkinu. Sú eftirtektar-
verðasta er hinsvegar hin glæsi-
lega Bonamy, sem gæðir hlutverk
stóru systur kaldrifjaðri yfirvegun.
Virkar full veraldarvön af 19 ára
stúlku, það stafar í og með af því
að Bonamy er orðin nokkuð eldri
en Lea myndarinnar. Nokkuð mis-
kunnarlaus mynd en í aðra rönd-
ina meinfyndin og endirinn er á já-
kvæðu nótunum, þessar stúlkur
eiga eftir að bjarga sér á heið-
arlegan hátt.
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 29
Breiðholtskirkja Jörg E. Sonder-
mann heldur áfram að flytja org-
elverk Bachs í Breiðholtskirkju og
verða 20. tónleikarnir í kvöld kl.
20:30, en alls verða tónleikarnir 26,
60 – 65 mínútna langir hverjir um
sig.
Að þessu sinni verður flutt Fantas-
ía í C-dúr, Fantasía og fúga í c-moll,
Pedalæfing í g-moll, Tríó í G-dúr,
Tveir sálmforleikir: Herr Jesu Christ,
dich zu uns wend og Herr Christ, der
einig Gottes Sohn, Þrír sálmforleikir:
Ach Gott vom Himmel, sieh darein,
Ach Gott, ach Herr og O Vater, all-
mächtiger Gott; Tveir forleikir um
sálmalagið Jesus Christus, unser
Heiland og Prelúdía og fúga í D-dúr.
Aðgangseyrir 900 kr. rennur sem
fyrr til Hjálparstarfs kirkjunnar.
Í dag
GUGGENHEIM-safn-
ið í New York hefur til-
kynnt hvaða sex lista-
menn hafa verið
tilnefndir til Hugo
Boss-verðlaunanna sem
veitt eru annað hvert ár
þeim listamanni sem
þykir hafa stuðlað að
framþróun í samtíma-
list. Íslenski listamað-
urinn Ólafur Elíasson,
sem býr og starfar í
Berlín, hlaut tilnefningu
í ár en hann hefur unnið
með ljósmyndir, högg-
myndir og innsetningar.
Hugo Boss-verðlaunin
nema 50.000 dölum,
jafnvirði liðlega 5,1
milljónar íslenskra
króna.
Listamennirnir sem
voru tilnefndir nú vinna
allir með kvikmyndir,
myndbönd eða innsetn-
ingar. Tilkynnt verður
um úrslitin á hausti
komanda en sérstök bók
verður gefin út með
verkum listamannanna
sem tilnefndir voru.
Ólafur tilnefndur
Ólafur Elíasson
Verðlaun Guggenheim-safnsins
NICHOLAS (Clément van den
Bergh) er ungur skólapiltur, past-
urslítill og ofverndaður af föður
sínum (Francois Roy). Þegar
bekkurinn heldur í skíðaferð til
frönsku alpanna er langferðabíll-
inn engan veginn öruggur ferða-
máti að áliti föðursins, sem ekur
drengnum sjálfur á áfangastað á
einkabílnum.
Fljótlega kemur í ljós að karlinn
hefur ekið á braut með farangur
Nicholas, sem löngum flýr leið-
inlegt hversdagslíf undir vökulum
augum pabba síns með því að
hverfa á vit dagdrauma. Nú gerast
þeir hrikalegri en nokkru sinni en
fyrr.
Hvað er draumur og hvað er
raunveruleiki? Línurnar eru ekki
alltaf skýrar í lífi Nicholas. Sagan
er sögð að nokkru leyti í aftur-
hvörfum sem eru fimlega fléttuð í
framvinduna ásamt órum piltsins,
sem stundum lýsa bágu sálar-
ástandi, í annan stað stórkarlaleg-
ur gálgahúmor, líkt og ævintýrið
um óskirnar fjórar. Vel leikin og
gerð en skilur við mann, hálf-von-
svikinn, úti á þjóðveginum.
Háskólabíó
Leikstjóri: Claude Miller. Handritshöf-
undur: Claude Miller, Emmanuel Carrére.
Aðalleikendur: Clément van den Bergh,
Lokman Nalcakan, Emanuelle Bercot,
Francois Roy. Sýningartími 96 mín.
Frakkland 1998.
LE CLASSE DE NEIGE (SKÍÐAFERÐIN) KVIKMYNDIR
Háskólabíó
Filmundur/Frönsk
kvikmyndahátíð
Leikstjóri og handritshöfundur: Serge
Maynard. Tónskáld: Roland Romanelli.
Kvikmyndatökustjóri: Bruno Privat. Aðal-
leikendur: Olivia Bonamy, Audrey Tautou,
Axell Ade-Pasdeloup, Didier Bezace,
Serge Hazanavicius. Frakkland. 1999.
VOYOUS VOYALLES (PRAKKARARNIR)
1⁄2
Sæbjörn Valdimarsson
Sæbjörn Valdimarsson