Morgunblaðið - 15.01.2002, Page 33

Morgunblaðið - 15.01.2002, Page 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 33 Skrifstofutækni 250 stundir! Markmið námsins er að þjálfa nemendur til starfa á skrifstofum og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu. Námið er mjög hagnýtt og byggist að verulegu leyti á verklegum æfingum. Námið eykur samkeppnishæfni nemenda og býr þá undir krefj- andi störf á vinnumarkaði. Helstu námsgreinar eru:  Handfært bókhald  Tölvugrunnur  Ritvinnsla  Töflureiknir  Verslunarreikningur  Glærugerð  Mannleg samskipti  Tölvubókhald  Internet STARFSMENNTUN fjárfesting til framtíðar Mig langaði að vera vel samkeppnisfær í öllum almennum skrifstofustörfum og eftir vandlega umhugsun valdi ég Tölvuskóla Íslands. Þar bætti ég kunnáttuna í Word- ritvinnslu og Excel-töflureikni og lærði hand- og tölvufært bókhald, glærugerð, verslunarreikning ásamt undirstöðuatriðum í mannlegum samskiptum og Interneti. Námið er vel skipulagt og kennsla frábær. Nú finnst mér ég vera fær í flestan sjó!. Steinunn Rósq, þjónustu- fulltrúi, Íslenska Útvarpsfélaginu Öll námsgögn innifalin Tölvuskóli Íslands B í l d s h ö f ð a 1 8 , s í m i 5 6 7 1 4 6 6 Opið til kl. 22.00 Sími 437 2323, fax 437 2321. Netfang travest@simnet.is Golfferðir okkar til Túnis njóta sífellt meiri vinsælda, því auk góðra golfvalla býður Túnis upp á margbrotna sögu og menningu og gott loftslag við Miðjarðarhafsströndina. Hvernig væri að framlengja golftímabilið við kjöraðstæður? Búa á fyrsta flokks strandhótelum í þægilegum hita, borða góðan mat og leika golf á góðum golfvöllum? Næsta vetur og vor býður Ferðaskrifstofa Vesturlands upp á þrjár 11 daga golfferðir til Túnis, þar sem ekkert er til sparað til að gera ánægjulega og eftirminnilega ferð.  Brottfarir eru 22. febrúar og 26. apríl.  Verð í brottför 22. febrúar er kr. 141.700 á mann í tvíbýli.*  Verð í brottför 26. apríl er kr. 145.800 á mann í tvíbýli.*  Aukagjald fyrir eins manns herbergi er kr. 15.000. Fararstjóri: Sigurður Pétursson, golfkennari. Innifalið í verði er flug, fararstjórn, akstur, gisting á fyrsta flokks hótelum, hálft fæði, 8 vallargjöld og skoðunarferð til Kariouan. *Að viðbættum flugvallarsköttum. Bókanir og nánari upplýsingar hjá Ferðaskrifstofu Vesturlands í síma 437 2323. G LF í Túnis FULLT hús áheyrenda var á fyrstu tónleikum Myrkra músík- daga í Listasafni Íslands á sunnu- dagskvöld. Hátíð þessi á vegum Tónskáldafélags Íslands, sem til- einkuð er nýrri íslenzkri listmúsík, stendur nú á tvítugu – og fram yfir miðjan febrúar með alls um níu tónleika. Opnun hátíðarinnar var helguð ugglaust kunnasta fram- sækna tónhöfundi þeirra Íslend- inga sem búsettir eru á erlendri grund, Hafliða Hallgrímssyni. Í forföllum Ragnhildar Heilands Sørensens, sem komst ekki til landsins að sinni, söng Þórunn Guðmundsdóttir í fyrsta verkinu, Ríma fyrir sópran og strengjasveit Op. 15. Verkið var á sínum tíma pantað af skipulagsnefnd vetraról- ympíuleikanna í Lillehammer 1994 fyrir Norsku kammersveitina og Ragnhild Heiland Sørensen. Söng- textinn var sonnetta úr „Rimi de Michelangelo Bouonarroti“, þ.e. „Rímum“ eftir ítalska endurreisn- arfjöllistamanninn fræga, og hófst í meðfylgjandi bragréttri þýðingu Þorsteins Gylfasonar á hendingun- um „Ó nótt, ó stundin sæt, í sorta þínum / Þú sæmir friði dagsverk hvert um síðir.“ Þar var m.a. talað um nóttina sem „skugga dauðans“, og minnti það ósjálfrátt undirritaðan á þýzkt sálmaskáld í lokakór- al kantötu Bachs, er líkti dauðanum við „bróður svefnsins“, eða, eins og Hafliði vitnaði til í tónleika- skrá, við „hinn mikla vin mannkynsins“ með orðalagi Moz- arts. Söngtextinn var vissulega framúr- skarandi kveðskapur, þótt val hans virtist í fljótu bragði nokkuð einkennilegt á gleðistundu sem Vetrarólympíuleikar eru venju- lega, nema komið hafi til sérstakar og mér ókunnar aðstæður. Allt um það var tónverk Hafliða skáldlegt í sér, líkt og flest sem hann tekur sér fyrir hendur í hljómandi mynd. Eins var um bæði þetta og seinni verkin, jafnt sem um önnur sem undirritaður hefur áður eftir hann heyrt, að heildin einkenndist af röð hljómrænt kyrrstæðra flata þar sem framvindan virtist meir ráðast af „handan-músíkölskum“ áhrifa- völdum en hefðbundinni stefrænni úrvinnslu, enda stefjaefnið ekki eftirminnilegt eitt sér. Hafi Einar Ben verið kallaður „skáld eignar- fallsins“, mætti, ef sett væri á odd- inn, e.t.v. kalla Hafliða „tónskáld orgelpunktsins“. Því meir var aftur á móti lagt í áferð og litbrigði, og þar tókst höfundi oft að heilla hlustendur, enda varla ofsagt að fáir íslenzkir nútíma- tónsmiðir hafi náð að laða nýstárlegri blæ- brigði fram úr strengjamiðlinum. Líkt og hjá Wagner útheimtu líðandi söng- línur sópransins frek- ar úthald, kraft og hæð en lipurð og hreyfanleika. Engu að síður var vel af sér vik- ið, svo ekki sé meira sagt, að stökkva inn í hlutverkið með litlum fyrirvara af slíkum glæsibrag og heyra mátti af framlagi Þór- unnar Guðmundsdótt- ur. Ombra [Skuggi] nefnir tón- skáldið víólukonsert sinn frá 1999, frumfluttan í Skotlandi en hér við opnun Menningarborgarárs Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu 29.1. 2000. Einleikarinn var hinn sami og fyrir tveim árum, Þórunn Ósk Marinósdóttir. Undirritaður var einnig viðstaddur þá, í „senni- lega slakasta tónlistarsal höfuð- borgarsvæðisins“, og versnaði verkið hvorki við að komast í betri ómvist (þótt hálffullur Listasafns- salur hefði hentað enn betur en al- fullur) né við tveggja ára viðbót- arreynslu hins unga einleikara. Jafnvel þótt íslenzka frumupp- færslan hafi tekizt dável, þá batnar flutningur nýrra verka oftar við ítrekun en hitt, og stóð það líka heima nú. Víóluleikur Þórunnar var, ef minni manns svíkur ekki, enn traustari en í fyrra skiptið, og hefði hún því að líkindum alveg mátt sleppa öryggisneti nótna- púltsins ef marka mátti innlifaðri túlkun hennar, sem vakti mikla hrifningu og funheitar undirtektir tónleikagesta. Herma nefndist síðasta verk kvöldsins. Það var fyrir selló og hljómsveit, samið 1994 og af ein- hverjum ástæðum ekki tilgreint sem sellókonsert. E.t.v. út af frek- ar samtvinnuðu hlutverki einleiks- raddar – þó að í skörulegum leik sænska sólistans Thorolfs Thed- éens mætti varla á milli sjá, auk þess sem bryddað var upp á ósviknum einleikskadenzum. Tímalengd verksins (um 32 mín.) var í drýgra lagi fyrir venjulega kyrrstæða vinnuaðferð Hafliða, en á móti vó hlutfallslega kröftugri tjáning en í fyrri verkunum, gædd fjölda andstæðuflata. Að auki fór ekki hjá því að eitilhvöss snerpa einleikarans hvetti bæði stjórn- anda og meðspilendur til vasklegr- ar framgöngu. Þá skiptu nokkrir púlsrytmískir staðir né heldur litlu til fjölbreytniauka fyrir athygli hlustenda. Í það heila tekið var eft- irtektarvert hvað háafstrakt en samt furðuespressíft tónmál verks- ins náði að bera mikla tímalengd, og nærri því allt til enda. Mátti það, auk skeleggrar stjórnar Bern- harðs Wilkinson og líflegrar spila- mennsku Kammersveitar Reykja- víkur, ekki sízt þakka af- burðatúlkun sænska sellistans, sem lék bókstaflega eins og lífið lægi við. Tónskáld orgelpunktsins TÓNLIST Listasafn Íslands Kammersveit Reykjavíkur. Hafliði Hall- grímsson: Ríma (1993), Ombra (1999) og Herma (1994). Þórunn Guðmunds- dóttir sópran; Þórunn Ósk Marinós- dóttir, víóla; Thorleif Thedéen, selló. Stjórnandi: Bernharður Wilkinson. Sunnudaginn 13. janúar kl. 20. MYRKIR MÚSÍKDAGAR Ríkarður Ö. Pálsson Hafliði Hallgrímsson GUÐBJÖRG Gissurardóttir flytur fyrirlestur í LHÍ, Skipholti 1, á morgun, miðvikudag, kl. 12.30. Fyr- irlesturinn nefnir hún Skapandi líf og flytjandi. Guðbjörg útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá MHÍ 1994 og með mastersgráðu í Comm- unication Design frá Pratt Institute, NY, 1977. Guðbjörg starfar nú sem kennari við Pratt Institute og Listaháskóla Íslands. Þessi fyrirlestur er tileinkaður sköpunargáfunni og verða ýmsar að- ferðir skoðaðar sem m.a. örva og losa um hugmyndaflæði og auka lífsgleð- ina. Námskeið Myndvinnsla I. Tölva sem verk- færi í myndlist nefnist grunnnám- skeið sem hefst 28. janúar og er ætl- að fólki sem starfar að listum og hefur hug á að kynnast myndvinnslu í tölvu. Kennari er Höskuldur Harri Gylfason myndlistarmaður og graf- ískur hönnuður. Fyrirlestur og námskeið í LHÍ KVEN- SÍÐBUXUR 3 SKÁLMALENGDIR Bláu húsin við Fákafen. Sími 553 0100. Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.