Morgunblaðið - 15.01.2002, Side 61

Morgunblaðið - 15.01.2002, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 61 DAGBÓK Smáskór sérverslun með barnaskó í bláu húsi við Fákafen - Sími 568 3919 opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 Ótrúlegt úrval 20-50% afsláttur ALEXANDERTÆKNI fyrir alla Fjárfestu í sjálfum þér Jónína Ólafsdóttir, sími 552 2175. Einkatímar í Alexandertækni. Losað um spennu í líkama. Bætir svefn og almennt andlega líðan. Leiðréttir slæma ávana og vekur líkamlega meðvitund. Kringlunni, sími 553 2888 Útsalan í fullum gangi Mikil verðlækkun Útsala — Útsala Jakkar 13.900 — Nú 8.900 Pils 5.900 — Nú 2.900                Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545. Rýmum fyrir vörum - allt á að seljast 20-50% afsláttur Sigurstjarnan - Stórútsala Opið virka daga frá kl. 11-18, laugard. 11-15 Árnað heilla REYKJAVÍKURMÓTIÐ í sveitakeppni hófst á laugar- daginn í Hreyfilshúsinu við Grensásveg. Nítján sveitir keppa um titilinn og spila allar innbyrðis 16 spila leiki. Sjö umferðir voru spilaðar um helgina og er staðan á toppnum býsna þétt, en efst- ar og jafnar eru sveitir Páls Valdimarssonar og Spron með 138 stig. Rétt á eftir eru Þrír frakkar, Strengur, Sím- on Símonarson, Subaru og Skeljungur, en aðeins níu stig skilja að fyrsta og sjö- unda sætið. Mótinu verður fram haldið í kvöld. Lítum á athyglisvert spil úr þriðju umferð: Austur gefur; enginn á hættu. Norður ♠ 86 ♥ KDG109732 ♦ 52 ♣3 Vestur Austur ♠ KDG94 ♠ 52 ♥ – ♥ 854 ♦ KD6 ♦ 9873 ♣ÁD984 ♣G762 Suður ♠ Á1073 ♥ Á6 ♦ ÁG104 ♣K105 Fjögur hjörtu er auðunn- inn samningur í NS, en sums staðar tókst AV að ýta mótherjunum upp á fimmta þrep. Á einu borði gengu sagnir þannig: Vestur Norður Austur Suður – – Pass 1 grand 2 lauf * 3 tíglar ** Pass 3 hjörtu 3 spaðar 4 hjörtu Pass Pass Dobl Pass 5 lauf Pass Pass 5 hjörtu Allir pass Innákoma vesturs á tveimur laufum sýndi lauf og hálit, en þriggja tígla sögn norðurs var yfirfærsla í hjarta. Baráttuvilji vesturs skilaði sér vel, því NS fóru einn niður á fimm hjörtum – útspilið var spaðakóngur og vörnin fékk slag á spaða, tíg- ul og lauf. Við nánari skoðun á eftir kom hins vegar í ljós að hægt er að taka 11 slagi í hjörtum og vinningsleiðin er alls ekki fráleit eftir sagn- irnar að ofan. Sagnhafi tek- ur spaðakónginn með ás og síðan öll trompin átta. Stað- an er þá væntanlega orðin þessi: Norður ♠ 8 ♥ – ♦ 52 ♣3 Vestur Austur ♠ D ♠ 5 ♥ – ♥ – ♦ KD ♦ 9 ♣Á ♣G7 Suður ♠ – ♥ – ♦ ÁG ♣K10 Vestur þarf að valda þrjá liti og neyðist því til að fara niður á stakan laufásinn. Lauf er þá dúkkað til vest- urs, sem getur tekið slag á spaða, en verður að gefa suðri tvo síðustu slagina á tígulás og laufkóng. Þvingun í þremur litum, þar sem spaðaáttan gegnir mikil- vægu hlutverki. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 15. jan- úar, er fimmtugur Einar Kjartansson jarðeðlisfræð- ingur, Steinagerði 13, Reykjavík. Eiginkona hans er Marcia J. Maren Vil- hjálmsdóttir. 60 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 15. jan- úar, er sextugur Gylfi Magnússon, verkstjóri, Breiðuvík 18, Reykjavík. Eiginkona hans er Guðrún Blöndal. Þau dveljast á Kanaríeyjum. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake STEINGEIT Afmælisbörn dagsins: Þú ert lífsglaður hug- sjónamaður sem tekur alltaf svari þeirra sem minna mega sín. Nánasta samband þitt krefst athygli þinnar á árinu. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Vinur þinn gæti gengið fram af þér í dag. Þér verður ljóst að það er auðveldara að halda virðingu sinni en end- urheimta hana. Naut (20. apríl - 20. maí)  Vertu viðbúinn einhverju óvæntu í samskiptum þínum við yfirmenn þína í dag. Þú sérð að þeir geta einnig misst stjórn á tilfinningum sínum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú færð fréttir langt að, sem koma þér á óvart. Ekki láta slá þig út af laginu. Mundu að það þarf bæði regn og sól- skin til að mynda regnboga. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Gildismat náins vinar eða ættingja kemur þér í opna skjöldu. Þú vilt fara varlega í hlutina í stað þess að hella þér út í þá. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Skapsveiflur og fljótfærni vinar eða maka koma þér á óvart. Það er mikil tilfinn- ingaleg spenna í loftinu í dag. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú hefur góðar hugmyndir um breytingar í vinnunni. Taktu af skarið og láttu álit þitt í ljós því aðrir munu taka hugmyndum þínum vel. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú hefur mikla frelsisþörf í dag og neitar að láta aðra ráða því hvernig þú lifir þínu lífi. Innst inni veistu að þið hafið ekki sama gildismat. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Taktu til hendinni og gerðu breytingar á heimilinu. Vertu óhræddur við að henda gömlum hlutum og því sem skiptir þig ekki lengur máli. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Einhver sem þú umgengst reglulega kemur með frá- bæra hugmynd. Þú sérð að maður þekkir aldrei neinn til hlítar jafnvel þótt maður telji sig gera það. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Farðu sérstaklega varlega í umferðinni í dag, hvort sem þú ert akandi, hjólandi eða gangandi. Þú verður að gera ráð fyrir því óvænta í um- ferðinni. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Sjálfstæði þitt gerir það að verkum að þú lætur engan ráðskast með þig í fjármál- um. Hvað sem hver segir þá ferðu með þína peninga eins og þér sýnist. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það eru líkur á að þú lendir í rifrildi og deilum í dag. Þótt þú sért sár ættirðu að reyna vinsemd áður en þú svarar í sömu mynt. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT BÆNARLJÓÐ Sæll, Jesú sæti, sól og föðurljómi, gestur ágæti, girndin manns og sómi. Mín önd er mjög tvist (magnið fer til rýrðar); þar nem þú þér vist, þýði kongur dýrðar. Harmþrungin hyggja hjálpar þinnar krefur. Þar beint að byggja bert þú lofað hefur. Kom, Jesú kæri, kosinn læknir trega. Náð þín mig næri nú og ævinlega. Synd mína svarta svæf þú djúps í bárum. Vef þú mitt hjarta veikt í þínum sárum. Þær bjargskorur beztu mig byrgi, hvað á dunar, frek á meðan flestu fram hjá reiðin brunar. – – – Magnús prestur Ólafsson 1. e4 c5 2. Rc3 Rc6 3. g3 g6 4. Bg2 Bg7 5. d3 d6 6. Be3 Bd7 7. f4 b5 8. a3 Rf6 9. Rf3 O-O 10. h3 Hb8 11. O-O a5 12. g4 Re8 13. Hb1 b4 14. axb4 axb4 15. Re2 Rc7 16. f5 Rb5 17. Dd2 Rbd4 18. Rexd4 Rxd4 19. Bh6 Rxf3+ 20. Hxf3 Ha8 21. Bxg7 Kxg7 22. d4 Db6 23. e5 dxe5 24. dxe5 Bc6 25. f6+ exf6 26. Hxf6 c4+ 27. Kh2 Hac8 28. Hbf1 Dc5 29. Df4 Be8 30. h4 Hd8 31. h5 Hd4 32. h6+ Kg8 33. De3 Hd5 34. Dxc5 Hxc5 35. e6 He5 Staðan kom upp í 5. skák einvígis Nigels Shorts (2663) og Hannesar Hlífars Stefánssonar (2604). Sá fyrr- nefndi sýndi heldur betur klærnar í seinni hluta einvíg- isins eftir ósann- færandi tafl- mennsku í upphafsskákunum en því lauk með sigri hans 4½ v. - 1½ v. GA smíðajárn og Kögun styrktu einvígið en það var haldið í tilefni af 10 ára af- mæli Taflfélagsins Hellis á síðasta ári. Framtak þetta er til mikillar fyrirmyndar og mun vega þungt í reynslu- sarp Hannesar. Englending- urinn veitti svörtum náðar- höggið með snaggaralegum hætti: 36. Bd5! Hxd5 37. e7 He5 38. Hxg6+! og svartur gafst upp enda fátt til varnar eftir 38... hxg6 39. h7+. Skák Umsjón Helgi Áss Grét- arsson Hvítur á leik.          FRÉTTIR BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 7. júlí sl. í Hallgrímskirkju af sr. Vigfúsi Þór Árnasyni Helma Rut Einarsdóttir og Gunnar Freyr Guð- mundsson.Ljósmyndastofa/Nína MIÐSTJÓRN Rafiðnaðarsam- bands Íslands samþykkti á fundi 11. janúar sl. eindregna stuðn- ingsyfirlýsingu við ákvörðun framkvæmdastjórna skólakerfis rafiðnaðarmanna um úttekt lög- giltra endurskoðenda á skólakerfi rafiðnaðarmanna. Hvatt er til þess að þeirri vinnu verði hraðað sem frekast er kostur. „Öflug starfsmenntun er og hefur verið stór þáttur í kjara- og starfsréttindabaráttu rafiðnaðar- manna. Rafiðnaðarsambandið mun því eindregið styðja áfram- haldandi rekstur starfsmennta- kerfis rafiðnaðarmanna. Mið- stjórn sambandsins telur nauð- synlegt að stjórnkerfi og skipulag skólanna verði að taka til gagn- gerrar endurskoðunnar, svo forð- ast megi áföll af því tagi sem við erum nú að upplifa,“ segir í álykt- un miðstjórnar RSÍ. Úttekt á skóla- kerfi rafiðnaðar- manna hraðað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.