Morgunblaðið - 02.03.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.03.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 2. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ GEÐHJÁLP er félagsskapur sem stofnaður var formlega haustið 1979. Félagið hefur barist fyrir hags- munum geðsjúkra og aðstandenda þeirra og stuðlað að fræðslu um geð- raskanir. Geðhjálp hefur verið með aðstöðu á Túngötu 7 í Reykjavík frá vordögum 1999 þegar húsið var formlega tekið í notkun. Haustið áð- ur hafði félagið fengið húsnæðið af- hent frá ríkinu, sem hafði nokkru áð- ur fengið það að gjöf frá Önnu E.Ó. Johnsen, ekkju Gísla J. Johnsen, stórkaupmanns og konsúls, en Anna setti það sem skilyrði að húsið yrði notað undir líknarstarf. Húsið stóð ónotað í mörg ár og þurfti á miklum endurbótum að halda. Það hefur nú fengið fyrri glæsileika en húsið var byggt á árunum 1946–47 og teiknað af Einari Erlendssyni arkitekt. Þor- geir Jónsson arkitekt sá um að hanna endurbæturnar á húsnæðinu en reynt var eftir megni að líkja sem mest eftir upprunalegu útliti þannig að skapa mætti sem heimilislegastar aðstæður. Er okkur bar að garði í vikunni tóku á móti gestunum þau Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geð- hjálpar, og Auður Axelsdóttir iðju- þjálfi. Auk þeirra eru í launuðum störfum í húsinu forsvarsmaður fé- lagsmiðstöðvar, Ingibjörg Gunn- laugsdóttir, Jóhanna Guðlaug Er- lingsdóttir ritari, Jónína G. Kjartansdóttir matráðskona og Stef- anía M. Ágústsdóttir, starfsmaður við mötuneyti og ræstingar. Labradorhundurinn Varði, sem Sveinn á, var á vappi um húsið en hann er í raun orðinn sjöundi starfs- maðurinn sem tryggur vinur margra fastagesta hússins. Þau Sveinn og Auður kynntu starfsemina sem fram fer innan dyra fyrir Morgunblaðs- mönnum en að þeirra sögn koma 60– 70 manns að jafnaði á dag í Túngötu 7 og hátt á fjórða tug fólks þiggur heitar og heimilislegar máltíðir í mötuneytinu á niðurgreiddu verði alla daga ársins, jafnt virka daga sem um hátíðir. Er við vorum á ferðinni var einmitt farin að liðast um húsið girnileg matarangan og eftir því sem nær dró hádeginu fjölgaði þeim sem komu til að setjast að snæðingi. Endurbætur fyrir söfnunarfé frá Kiwanis-hreyfingunni Fyrir 15,5 milljóna króna söfn- unarfé frá Kiwanis-hreyfingunni, með sölu K-lykilsins, var ráðist í end- urbætur á húsinu og ríkið kom með 20 milljóna kr. mótframlag. Húsið er 540 fermetrar að stærð á fjórum hæðum ef kjallari og ris eru með- talin. Túngata 7 er um leið fé- lagsmiðstöð Geðhjálpar ásamt því að vera afdrep stjórnar félagsins og starfsmanna sem alls eru sex í fimm og hálfu stöðugildi. Einnig eru þar tvær litlar íbúðir og tveir starfsmenn verkefnisins Geðrækt hafa aðstöðu í húsinu. Áður hefur verið minnst á mötuneytið og nýlega var tölvuver sett upp í kjallaranum. Ýmis önnur aðstaða er þar til húsa ásamt smíða- verkstæði í áföstum bílskúr. Félagsmiðstöð Geðhjálpar er opin frá kl. 9–17 yfir veturinn og frá kl. 8– 16 á sumrin, alla virka daga. Þar er heitt á könnunni alla daga og fjöl- breytt dagskrá í gangi fyrir þá sem hana vilja nýta. Boðið er upp á að- gang að tölvuveri, ýmsa virkni og fé- lagsskap. Fastir húsfundir eru einu sinni í viku og unnið er að því að efla hópastarf. Sveinn sagði að Geðhjálp velti um 30 milljónum króna á ári og þar af væri framlag ríkis og borgar um 35%. Afgangurinn væri sjálfsaflafé félagsins. Til langs tíma nam op- inbert fjármagn um 20% af rekstr- inum. Sveinn benti á að hjá sambæri- legum félögum erlendis væri þessum hlutföllum öfugt farið. Þar til að Túngata 7 kom til sög- unnar hafði Geðhjálp verið í hálf- gerðum húsnæðishrakningum alveg frá stofnun félagsins en fyrsta fé- lagsmiðstöðin var tekin í notkun við Bárugötu árið 1982. Til ársins 1999 var félagið í leiguhúsnæði víða um borgina, auk Bárugötu var það m.a. við Öldugötu og í Hafnarbúðum. Efla á starfsemina í húsinu Auður Axelsdóttir hefur ekki verið lengi að störfum sem iðjuþjálfi hjá Geðhjálp, eða síðan í desember sl. Áður hafði hún starfað á geðdeild Landspítalans til nokkurra ára og hefur því mikla reynslu af því að starfa með geðfötluðum. Hún sagði sitt helsta verkefni að efla starfsemi félagsins í húsinu og fá neytendur til að hafa áhrif á þjónustuna sem væri í boði, jafnt innan húss sem utan. Mætti í því sambandi nefna neyt- endahóp sem væri nýlega kominn í gang. Auður sagði að þetta starf væri í mótun hjá Geðhjálp, byrjunin lofaði góðu og félagið mætti velvild allra. Hún hefur einnig unnið að því að efla hópastarf þannig að það hentaði breiðum hópi fólks og gæti nýst til endurhæfingar, allt eftir færni hvers og eins. Að sögn Auðar hefur starf aðstandenda sömuleiðis verið aukið, en meðal fjögurra sjálfshjálparhópa, sem koma reglulega saman til funda í húsinu, er aðstandendahópur. Hún vildi líka koma þeim skilaboðum á framfæri frá aðstandendum um að hvetja fleiri til að vera í sambandi við hópinn. Til viðbótar eru starfandi eineltishópur, geðhvarfahópur og fælni- og kvíðahópur. Þeim er ætlað að deila reynslu sinni með öðrum og hlusta á hvað aðrir hafa að segja. Auður sagði góða reynslu vera af þessu hópastarfi. „Húsið er öllum opið, jafnt sjúk- lingum sem aðstandendum þeirra, en við viljum efla starfsemi Geðhjálpar enn frekar og koma fleiri verkefnum af stað. Við reynum að hafa aðstæður allar sem heimilislegastar og lítum heldur ekki á húsið sem einhverja stofnun. Það er af og frá. Miklu skiptir að gestirnir upplifi hér þægi- legt viðmót og virðingu,“ sagði Auð- ur og Sveinn tók undir þetta. Sagði það vera eitt meginmarkmið félags- ins í dag að virkja sem flesta til að hjálpa bæði sér og öðrum. Þau sögðu að auk mikils gesta- gangs væri mikið hringt í Geðhjálp, símalínurnar væru á stundum rauðglóandi, og reynt væri eftir megni að sinna öllum erindum sem mest og best. Þetta sannaðist vel þá rúmu klukkustund sem heimsókn blaðamanns og ljósmyndara stóð yfir en það var rétt svo að Sveinn og Auð- ur gætu gefið gestum sínum tíma, svo mikill var erillinn. Höggva þarf á hnút milli félagsmálakerfisins og heilbrigðisgeirans Sveinn sagði að eitt mikilvægasta verkefni Geðhjálpar í dag væri að koma á virkara samstarfi þeirra aðila sem á einn eða annan hátt ynnu að málefnum geðsjúkra. Hann sagði að töluvert vantaði upp á að þetta sam- starf gengi sem best, samskiptin væru á stundum frekar stíf. Höggva þyrfti á hnút milli félagslega kerf- isins og heilbrigðisgeirans. „Við höfum verið í góðu samstarfi við landlækni og viðræður standa yf- ir meðal annars um stöðu þeirra 60 einstaklinga sem haldnir eru alvar- legum geðröskunum og eru heim- ilislausir. Geðhjálp er einnig í sam- starfshópi fagaðila er koma að málefnum geðsjúkra um bætta þjón- ustu við þennan hóp. Þessir ein- staklingar hafa brennt allar brýr að baki sér, sjúkdómsins vegna, og þeim er ekki sinnt. Einnig er fjöldi geðsjúkra einstaklinga í eigin hús- næði sem standa frammi fyrir því að vegna kvartana frá nágrönnum, sem hafa misst alla þolinmæði, eru þeir bornir út án þess að varanleg lausn finnst. Þeir fara bara í annað hús- næði og vandinn endurtekur sig. Úr- ræðaleysið er algjört en sem fyrr hefur málið strandað á fjármagns- skorti. Landlæknir hefur tekið vel í okkar erindi og lofað að taka á mál- inu,“ sagði Sveinn. Hann benti meðal annars á að eitt meginmarkmið landssöfnunarinnar væri að afla fjár til að koma á fót nýj- um meðferðarúrræðum og atvinnu- tækifærum í formi starfsendurhæf- ingar fyrir geðsjúka. Auður tók undir með Sveini um mikilvægi þess að efla samstarf Geð- hjálpar við aðra aðila innan heil- brigðiskerfisins, einkum þá sem geð- sjúkum er vísað á þegar aðstoðar er þörf. Hún sagði frá því að í norrænu samstarfi fyrir tveimur árum hefði verið unnið að því að kortleggja þá þjónustu sem geðsjúkum væri boðið upp á í samfélaginu. Geðhjálp hefði komið að því starfi ásamt öðrum fag- aðilum. Þá hefði berlega komið í ljós að tengingu vantaði milli þessara að- ila og koma þyrfti á einhvers konar teymishópi eða upplýsingamiðstöð sem samhæfði allar aðgerðir varð- andi meðferð og annað því tengt, og væri starfandi allan sólarhringinn. „Menn eru ekki bara geðsjúkir milli klukkan níu og fimm,“ skaut Sveinn inn í og tók sem dæmi um að- kallandi verkefni að koma á símalínu sem hægt væri að hringja í allan sól- arhringinn. Fá þyrfti fagfólk og fólk með persónulega reynslu til að sinna því verkefni og sagði Sveinn vel hægt að koma upp aðstöðu í Túngötunni fyrir þjónustu sem þessa. Þarna mætti t.d. koma á samstarfi við geð- deild Landspítalans. Eyða þarf fordómum Geðhjálp er í samstarfi við ýmis innlend samtök eins og Ör- yrkjabandalagið og Rauða krossinn vegna athvarfa sem þau starfrækja. Þá er gott samstarf við Geðvernd- arfélagið og klúbbinn Geysi. Geð- hjálp er einnig í samstarfi við sam- bærileg félög erlendis, einkum á Norðurlöndunum og í Evrópu, og er aðili að alþjóðasamtökum geðfatl- aðra. Sveinn sagði að þar á milli skiptust menn á upplýsingum og fróðleik sem kæmi að gagni í barátt- unni við geðsjúkdóma og ekki síst þá fordóma sem ríkja í öllum sam- félögum gagnvart fólki með geðrask- anir. Eyða þyrfti einnig fordómum meðal geðsjúkra sjálfra. Með þessum orðum kvöddum við Svein og Auði og þökkuðum fyrir fróðleikinn og móttökurnar. Það var líka kominn tími fyrir þau að komast í mötuneytið áður en maturinn klár- aðist. Valdimar Viðar Leifsson, fjær, og Gísli Óskarsson nýta sér tölvuverið í húsi Geðhjálpar. Mötuneytið hjá Geðhjálp sækja daglega 30 til 40 manns, en boðið er upp á heitar máltíðir. Morgunblaðið/Golli Sveinn Magnússon og Auður Axelsdóttir fyrir framan húsnæði Geðhjálpar að Túngötu 7. Ekki stofnun heldur hús sem er öllum opið Í tilefni landssöfnunar Geðhjálpar í dag heimsóttu Björn Jóhann Björnsson og Kjartan Þorbjörnsson höfuðstöðvar félagsins á Túngötu 7 í Reykjavík og kynntu sér fjölbreytta starfsemi sem þar fer fram. bjb@mbl.is Á HEIMASÍÐU Geðhjálpar, www.gedhjalp.is, má nálgast upp- lýsingar um landssöfnunina en há- punktur hennar verður í kvöld í Sjónvarpinu í þætti Steinunnar Ólínu Þorsteinsdóttur, Milli himins og jarðar. Einnig munu Kiwanis- menn ganga í hús um land allt með söfnunarbauka. Minnt er á söfnunarnúmerin, 590-7070 fyrir frjáls framlög og 907-2070 fyrir 1.000 kr. fast fram- lag sem skuldfærist sjálfkrafa af símreikningnum. Þá er Geðhjálp með reikning í SPRON þar sem leggja má inn framlög. Númerið er 1158-26-65000. Landssöfnun Geðhjálpar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.