Morgunblaðið - 02.03.2002, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2002 59
DAGBÓK
NÝTT • VOR • SUMAR 2002
Rauðagerði 26, sími 588 1259
Verið velkomin
VISA - EURO
Opið í dag - laugardag
frá kl. 10-18
í Rauðagerði 26
Dömufatnaður í stærðum 36-48
Eldri vörur seldar með
góðum afslætti
buxur, bolir, pils frá kr. 1.800
Guðrún Arnalds, símar 896 2396 og 551 8439
Líföndun
Guðrún Arnalds verður með helgarnámskeið
í líföndun helgina 16. og 17. mars.
Djúp öndun hreinsar líkama og sál, eykur bjartsýni og lífsorku og
blæs burtu kvíða og kvillum. Gefur þú þér tíma til að lifa?
„Tíminn er líf og lífið býr í hjartanu“
EINKATÍMAR: HÓMÓPATÍA - NUDD - LÍFÖNDUN
ASHTANGA YOGA
Frír kynningartími á þriðjudag!
Kraftmikið og áhrifaríkt yoga sem notið hefur mikilla
vinsælda á vesturlöndum (Power yoga). Eykur styrk,
léttir á spennu og nærir andann. Hentar jafnt byrjendum
og reyndum. Þri. og fim. kl. 17:20 á Háaleitisbraut.
Einar B. Ísleifsson, yogakennari. Sími 896 6005
Guðrún Arnalds, símar 896 2396 og 551 8439 gud.run@mmedia.is
Andartak
í erli dagsins
Tími til að vera, hlaða batteríin, styrkja líkamann, auka
sveigjanleikann og úthaldið og létta á hjartanu.
Mánudaga og miðvikudaga kl. 17.30-18.40 á Háaleitisbraut 11.
Morguntímar þri. og fös. kl. 9.30-10.30, hádegistímar mán. og
fim. kl. 12.00-13.00 í Sundlaug Seltjarnarness.
Jóga - hreyfing - líföndun - hugleiðsla
Árnað heilla
Í ÚRSLITALEIK Englands
og Kanada um NEC-bikar-
inn í Japan varð norður sagn-
hafi í fjórum hjörtum á báð-
um borðum og fór einn niður
eftir spaðaútspil:
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ ÁG96
♥ 108642
♦ K
♣KD7
Vestur Austur
♠ D8754 ♠ 10
♥ K7 ♥ Á5
♦ ÁD2 ♦ G1076543
♣953 ♣1082
Suður
♠ K32
♥ DG93
♦ 98
♣ÁG64
Vörnin er tiltölulega ein-
föld: Austur spilar út spaða-
tíu, sem norður tekur og
trompar út. Austur hoppar
upp með ásinn, spilar makk-
er inn á tígulás og fær stungu
í spaða. Höfundar mótsblaðs-
ins sáu ekkert athugavert við
þessa þróun í fyrstu umfjöll-
un, en daginn eftir var fjallað
um spilið eins og það hafði
spilast í leiknum um bronsið
milli e-bridge og Hackett-
fjölskyldunnar. Á öðru borð-
inu varð Pólverjinn Jassem
sagnhafi í fjórum hjörtum í
suður gegn tvíburunum Jas-
on og Justin:
Vestur Norður Austur Suður
Justin Gawrys Jason Jassem
1 spaði Pass 1 grand Pass
Pass Dobl * 2 tíglar 2 hjörtu
Pass 3 hjörtu Pass 4 hjörtu
Pass Pass Dobl Allir pass
Justin kom út með spaða
frá fimmlitnum og Jassem sá
fyrir sér stunguna. En hann
gafst ekki upp og frekar en
að fara beint í trompið spilaði
hann laufi fjórum sinnum og
henti tígulkóng úr borði í það
fjórða! Þetta óvenjulega
skærabragð tekur allan
brodd úr vörninni. Í reynd
trompaði vestur með hundi
og fékk að eiga slaginn. Hann
spilaði spaða, sem austur
stakk, en síðan féllu ás og
kóngur í trompi saman þegar
Jassem komst inn til að
trompa út. Glæsilegt.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
95 ÁRA afmæli. Nk.þriðjudag, 5. mars,
verður 95 ára Guðrún Krist-
ín Ingvarsdóttir. Hún og
fjölskylda hennar taka á
móti ættingjum og vinum
sunnudaginn 3. mars kl. 15 í
sal Meistarafélaga iðnaðar-
manna í Skipholti 70, 2. hæð.
100 ÁRA afmæli. Ídag, laugardag-
inn 2. mars, er 100 ára Guð-
mundur Jónsson, fv. skóla-
stjóri á Hvanneyri, nú til
heimilis á Hrafnistu í Hafn-
arfirði. Í tilefni dagsins
sendir Guðmundur innilegar
kveðjur til vina og vanda-
manna, nemenda sinna og
samstarfsmanna, og þakkar
samverustundir liðinna ára.
Guðmundur dvelur í dag á
Hrafnistu með fjölskyldu
sinni. Sjá bls. 50.
LJÓÐABROT
STÖKUR
Dregur úr víði drungaský,
dröfn á fjöru yrðir;
verzlun hríðar eru í
ærnar vörubirgðir.
Guðmundur Friðjónsson
Löðrið dikar land upp á
lýra kvikar stofan,
aldan þykir heldur há,
hún rís mikið skerjum á.
Hreggviður Eiríksson
FRÉTTIR
80 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag-
inn 3. mars, er áttræður
Gísli Þór Sigurðsson,
Hraunbæ 103, Reykjavík.
Hann tekur á móti gestum á
afmælisdaginn kl. 16–19 í
Félagsmiðstöð aldraðra,
Hraunbæ 105.
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, laugardaginn 2. mars eiga 50 ára
hjúskaparafmæli hjónin Guðrún Björg Emilsdóttir og Sig-
urjón Friðriksson, Ytri-Hlíð, Vopnafirði.
Ég kýs að þér lítið á
þetta sem vinargreiða
gegn gjaldi, en ekki
ósiðlegt tilboð.
Með morgunkaffinu
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be2
e6 7. a4 Rc6 8. O-O Be7 9.
Be3 O-O 10. f4 Dc7 11. Kh1
He8 12. Bf3 Bf8 13. Dd2 Ra5
14. b3 d5 15. e5 Rd7
16. Rce2 f6
Staðan kom upp í
lokuðu móti sem lauk
fyrir skömmu í Molso
í Danmörku. Annar
sigurvegari mótsins,
15 ára undrabarnið
David Navara
(2.531) frá Tékklandi
hafði hvítt gegn Stef-
fen Pedersen (2.440).
17. Rxe6! Hxe6 18.
Bxd5 Rc5 19. f5
Dxe5 20. Bxc5 Bxc5
21. fxe6 Rc6 22.
e7+ Be6 23. Bxc6!
og svartur gafst upp enda
fátt til varnar eftir 23...bxc6
24. Dd8+. 6. umferð Ís-
landsmóts skákfélaga hefst
kl. 10.00 í dag, 2. mars, og 7.
og síðasta umferð kl. 17.00.
Teflt er í Brimborgarhúsinu
á Bíldshöfða.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
GRÆNLENSKIR dagar verða í
Vestnorræna menningarhúsinu
við Fjörukrána í Hafnarfirði
frá 28. febrúar til og með 10.
mars.
Þar verður sýning með
grænlenskum frímerkjum þar
sem sum þeirra eru gefin út í
tengslum við landafundi árið
2000. Sýningin verður opin
daglega frá 13 til 20 alla daga.
Einnig verður sýning af
grænlenskum pelsum frá Esk-
imo Pels i Narsaq í Grænlandi.
Söngkonan Ida Heinrich
mun syngja grænlenska söngva
fyrir matargesti í Vestnorræna
veitingastaðnum Fjörunni
fimmtudaga til sunnudaga.
Hljómsveitin Sarsuasut, 4
ungmenni frá Grænlandi, kem-
ur og spilar fyrir matargesti.
Grímudansarinn Arnajaraq
Olsen mun einnig dansa fyrir
matargesti í Fjörunni.
Grænlenskur matseðill verð-
ur á boðstólum og þar skal sér-
staklega nefna steikur af sauð-
nauti, samkvæmt því sem fram
kemur í fréttatilkynningu.
Grænlenskir dagar
í Hafnarfirði
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert traustur vinur og líf-
legt ímyndarafl þitt stuðlar
að því að þú nærð árangri.
Árið býður upp á ýmsa
möguleika, til dæmis eru
margir sem leita á ný mið.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú getur uppgötvað spenn-
andi leyndarmál með aðstoð
vinar þíns. Vitanlega vilt þú
komast til botns í þessu
leyndarmáli.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú munt ræða málefni sem
snerta fjárhagslega afkomu
þína. Þú munt einnig fá hrós
fyrir frammistöðu þína í
starfi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú átt ánægjulega stund
með vini í dag. Það kemur
þér á óvart hve mikla þörf
þú hefur fyrir að sannleik-
urinn komi fram í dagsljós-
ið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú munt fá góða hugmynd
um hvernig hægt sé að bæta
ákveðna hluti á vinnustaðn-
um. Láttu í þér heyra svo
hægt sé að koma þessari
hugmynd á framfæri.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú átt eftir að sjá að þú átt
sitthvað eftir ólært í róm-
antískum málefnum. Þú
skalt undirbúa þig fyrir ný
viðhorf.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Starfið gengur vel í dag.
Nýttu tímann til þess að
leita eftir glötuðum hlutum
eða leysa vandamál, sem
hafa valdið mörgum erfið-
leikum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Flestir búa yfir einhverjum
leyndarmálum. Samræður
við skyldmenni eiga eftir að
verða vandræðalegar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú telur að einhver í fjöl-
skyldunni leyni þig hlutum
sem snúa að fjárhagsmálum.
Spurðu krefjandi spurninga
svo hægt sé að varpa ljósi á
málið.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það kemur í ljós að þú hafð-
ir á réttu að standa gagn-
vart einhverjum. Það verður
ekki hægt að breyta skoðun
þinni þegar nýjar upplýsing-
ar koma fram í dagsljósið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Dagurinn er tilvalinn til
þess að kaupa hluti sem eru
faldir fyrir flestum, eins og
til dæmis nærfatnað.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Ástríða þín fyrir leyndar-
málum verður þess valdandi
að þú munt ekki ræða um
dularfull mál við vini þína.
Eitthvað áhugavert og
óvenjulegt vekur áhuga
þinn.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Upplýsingar frá stjórnvöld-
um eða stórri stofnun geta
haft áhrif á feril þinn eða
breytt lífssýn þinni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.