Morgunblaðið - 16.03.2002, Page 18
SUÐURNES
18 LAUGARDAGUR 16. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
UNNIÐ er af miklu kappi í loðnu-
hrognafrystingu á Suðurnesjum
um þessar mundir. Bátarnir moka
upp loðnunni og telja menn að enn
sé vika í hrygningu.
Loðnuverksmiðjur eru í Grinda-
vík, Sandgerði og Helguvík og þar
landa bátarnir stöðugt enda liggja
staðirnir vel við miðunum í lok
vertíðar. Flokkunarstöðvar eru í
Helguvík og Grindavík og fá nokk-
ur fiskvinnslufyrirtæki loðnu og
hrogn þaðan til frystingar.
„Loðnan sem við vorum að
frysta fyrir Japansmarkað er
óskaplega smá og þeir eiga miklar
birgðir og borga lágt verð. Áhug-
inn er því í lágmarki hjá báðum
aðilum,“ segir Þorsteinn Erlings-
son, framkvæmdastjóri Saltvers
ehf. í Keflavík sem frystir loðnu
og hrogn í fiskvinnslu sinni í
Njarðvík. Saltver frysti um 200
tonn af loðnu á þessari vertíð, þar
af aðeins um 60 tonn fyrir Jap-
ansmarkað en afganginn í beitu. Á
síðustu vertíð voru fryst um 250
tonn fyrir Japan.
Þorsteinn er jafnframt einn af
eigendum flokkunarstöðvarinnar í
Helguvík og framkvæmdastjóri
hennar. Nokkur fyrirtæki eiga að-
ild að flokkunarstöðinni og fá það-
an loðnu og hrogn þegar vel árar.
Í ár nota einungis Saltver, Þor-
björn-Fiskanes í Grindavík og
Haukur Guðmundsson í Njarðvík
þjónustu hennar.
„Loðnu- og hrognafrysting,
einkum hrognin, eru hluti af starf-
semi fyrirtækisins. Við erum búin
að koma okkur upp öllum búnaði
til vinnslunnar og verðum að
halda þessari starfsemi áfram þótt
verðið sé lágt, í von um að það lag-
ist,“ segir Þorsteinn.
Saltver hefur fryst 400–600 tonn
af hrognum á ári. Hann segir að
fyrirtækið hafi myndað traust við-
skiptasambönd í Japan og kaup-
endurnir haldi tryggð við það þótt
eftirspurn minnki. Býst hann við
að frysta um 400 tonn af hrognum
fyrir Japansmarkað í ár, auk þess
sem selt er til innlendra kavíar-
verksmiðja. Sá þáttur fer vaxandi
með auknum gæðum framleiðsl-
unnar. Fyrirtækin á suðvest-
urhorninu hafa aðgang að fersku
hráefni og er hrognafrystingin því
nokkuð stór þáttur í starfsemi
margra fyrirtækja á svæðinu, þau
árin sem verðið er gott.
Hrognavinnslan gengur vel hjá
Saltveri í ár. Unnið er á tveimur
vöktum, bæði í flokkun og fryst-
ingu, og segir Þorsteinn að hrogn-
in séu þokkaleg. Hann segir þó að
minna komi af hrognum en oft áð-
ur og getur sér þess til að hrognin
séu smærri.
Auk loðnu- og hrognafrystingar
er Saltver með saltfiskverkun,
rækjuvinnslu og gerir út vertíðar-
og rækjubátinn Erling KE til hrá-
efnisöflunar. Um 100 starfsmenn
eru hjá fyrirtækinu nú þegar
hrognavinnslan er í hámarki, við
frystingu, flokkun og aðra starf-
semi fyrirtækisins.
Bátarnir moka upp loðnu – hrognafrysting stendur sem hæst í frystihúsunum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Margar hendur vinna létt verk við hrognafrystinguna í fiskvinnslu Saltvers ehf. í Njarðvík.
Þorsteinn Erlingsson, framkvæmdastjóri Saltvers, athugar gæði hrogn-
anna sem koma út úr hreinsitækjum í flokkunarstöðinni í Helguvík.
Haldið
áfram í
von um
betra verð
Helguvík/Njarðvík
YFIRSTJÓRN Landsbankans hefur
ákveðið að lengja afgreiðslutíma úti-
bús bankans í Sandgerði á föstudög-
um, þannig að opið verði frá 10 til 16.
Ákvörðun um styttingu afgreiðslu-
tíma aðra daga stendur óbreytt.
Bankastjórinn vonast til að með þess-
ari breytingu á mesta annadegi vik-
unnar sé komið vel til móts við óskir
viðskiptavini bankans. Bæjarráð ræð-
ir bréfið á fundi nk. þriðjudag.
Landsbankinn breytti afgreiðslu-
tíma útibús síns í Sandgerði í upphafi
vikunnar og hefur það síðan verið op-
ið frá klukkan 12 til 16. Er það einni
klukkustund og 45 mínútum styttri
afgreiðslutími á dag en verið hefur.
Bæjarstjórn Sandgerðis lýsti yfir
óánægju með breytinguna og í erindi
sem aukafundur bæjarstjórnar beindi
til bankaráðs kom fram að Sandgerð-
isbær myndi taka upp viðræður við
aðra banka eða sparisjóði um opnun
útibús á staðnum ef afgreiðslutíman-
um yrði ekki breytt til fyrra horfs.
Bankaráðið fjallaði um erindi Sand-
gerðisbæjar á fundi sínum í fyrradag
og fól bankastjóra að svara því.
Halldór J. Kristjánsson banka-
stjóri kveðst ekki birta svarbréfið en
segist vonast til að rýmkun á af-
greiðslutíma á föstudögum kæmi til
móts við óskir bæjarstjórnar og að ít-
arlegar skýringar á forsendum
ákvörðunarinnar yrðu teknar gildar.
Tekur hann fram að 72% viðskipta-
vina bankans komi í útibúið á nýja af-
greiðslutímanum og bætir því við að
stjórnendur Landsbankans séu reiðu-
búnir að fara yfir reynsluna af nýjum
afgreiðslutíma í lok ársins og hafa um
það samvinnu við bæjaryfirvöld.
Halldór segir að Landsbankinn
starfræki víðtækasta útibúanet
banka og sparisjóða hér á landi, veiti
einstaklingum og heimilum víðtæk-
asta þjónustuframboð allra fjármála-
fyrirtækja og hafi veitt daglega þjón-
ustu í Sandgerði um árabil. Hag
einstaklinga sé því best borgið með
viðskiptum við bankann. Hann full-
yrðir að hagsmunum fyrirtækja og
stærri aðila í Sandgerði sé einnig best
borgið með öflugu samstarfi við
Landsbankann. Getur þess í því sam-
bandi að útlán bankans á Suðurnesj-
um hafi numið 19 milljörðum kr. á síð-
asta ári á móti 8 milljarða innlánum.
Bankinn sé öflugur bakhjarl atvinnu-
lífsins, tengdur ýmsum af stærstu
fyrirtækjum svæðisins traustum
böndum og aðalviðskiptabanki ým-
issa stærri fyrirtækja og stofnana.
„Aðgangur að bankaþjónustu á
vegum Landsbankans hefur aldrei
verið betri. Aðgangur að netbanka
Landsbankans, sem nær helmingur
viðskiptavina bankans nýtir sér, er
opinn allan sólarhringinn. Símabanki
og þjónustuver eru opin frá kl. 8 til 19.
Minniháttar aðlögun afgreiðslutíma
útibúsins í Sandgerði er því eðlilegur
þáttur í aðlögun að breyttri tækni og
markaðsþróun,“ segir Halldór.
Óskar Gunnarsson, forseti bæjar-
stjórnar Sandgerðis, sagði í gær að
væntanlega yrði tekin afstaða til
svars Landsbankans á bæjarráðs-
fundi næstkomandi þriðjudag. Hann
bætti því við að mikil óánægja væri
með fyrri ákvörðun Landsbankans og
það væri fyrst og síðast íbúanna og
viðskiptavina bankans að svara því
hvort svar hans væri fullnægjandi.
Landsbankinn svarar bæjarstjórn
Lengja afgreiðslu-
tíma á föstudögum
Sandgerði
Gera at-
hugasemd
við kynn-
ingu á
frambjóð-
anda
Reykjanesbær
KYNNING á nýjum forystumanni
sjálfstæðismanna í bæjarmálum á
bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar
varð tilefni til umræðna utan dag-
skrár á bæjarráðsfundi í fyrradag.
Oddviti minnihlutans segir að allir
frambjóðendur eigi að sitja við sama
borð í þessu efni en bæjarstjóri segir
umræðuna upphlaup vegna taugatitr-
ings í aðdraganda kosninga.
Jóhann Geirdal Samfylkingunni
spurðist fyrir um það hvort bæjar-
stjóri væri að hætta fyrr en hann
hefði gefið til kynna. „Tilefnið var það
að ég frétti að hann væri farinn að
leiða oddvita sjálfstæðismanna inn á
lokaða fundi embættismanna bæjar-
ins, fundi sem öðrum bæjarfulltrúum
hefur ekki staðið til boða að sækja
fram til þessa. Ég tel smekklegra að
bíða kosningaúrslita, það er gert í lýð-
ræðisríkjum,“ sagði Jóhann í samtali.
Hann bætti því við að sjálfsagt og
eðlilegt væri að frambjóðendur hefðu
aðgang að öllum upplýsingum og
embættismönnum bæjarins en allir
ættu að sitja við sama borð í því efni.
Fundurinn sem Jóhann var að vísa
til er vikulegur fundur bæjarstjóra
með æðstu embættismönnum bæjar-
ins síðastliðinn mánudag. Einnig gat
hann um fund sem haldinn var með
Árna Sigfússyni eftir vinnu í einni
deild bæjarskrifstofanna.
Ellert Eiríksson bæjarstjóri segir
að málið sé á misskilningi byggt, í öll-
um kosningum hafi frambjóðendur
sem þess óskuðu fengið tækifæri til
að kynna sér málefni bæjarfélagsins.
Árni Sigfússon hafi óskað eftir því að
fá að koma á bæjarskrifstofurnar til
að hitta forstöðumenn málaflokka.
Því hafi verið hafnað þar sem Árni
hafi ekki verið orðinn formlegur
framjóðandi. Nú sé búið að ganga frá
listanum og þegar Árni hafi óskað eft-
ir því aftur hafi hann boðið honum að
hitta mennina í lok fundarins á mánu-
dag. Frambjóðandinn hafi komið þeg-
ar dagskrá var lokið og verið kynntur
fyrir viðstöddum en engar umræður
átt sér stað. Síðan hafi Árni kynnt sér
málin með viðræðum við forstöðu-
menn á skrifstofum þeirra hvers fyrir
sig. Segist Ellert hvetja aðra fram-
bjóðendur til að kynna sér bæjarmál-
in sem best, þeir hafi sama aðgang að
starfsmönnum bæjarins til þess.
Ellert tekur fram að fundurinn
með Árna á félagsmálaganginum hafi
verið að frumkvæði starfsfólks og vilji
hann ekki skipta sér af því hvað fólk
geri eftir vinnutíma. „Allt þetta upp-
hlaup ber vott um taugaveiklun vegna
komandi kosninga,“ sagði Ellert.
ÓLI BALDUR Bjarnason sigraði
í upplestrarkeppni Grunnskólans
í Grindavík. Þótti hann bestur í
annars jafnri keppni. Birgir Már
Elíasson varð í öðru sæti og Sara
Sigurðardóttir í því þriðja.
Þetta er þriðja árið sem Grunn-
skóli Grindavíkur tekur þátt í
upplestrarkeppninni og hófst
undirbúningur strax í haust. Hafa
krakkarnir í 7. bekk meðal annars
staðið fyrir skemmtilegum upp-
lestri í yngri bekkjum skólans.
Alls voru átta keppendur í úrslit-
um.
Á milli umferða var síðan boðið
upp á tónlistaratriði sem einnig
komu úr 7. bekk. Í upplestrinum
sjálfum var meðal annars horft til
líkamsstöðu, raddstyrks og fram-
burðar. Það var vel við hæfi að
lesa hluta úr verkum Nóbels-
skáldsins, Halldórs Laxness, sem
hefði orðið 100 ára á þessu ári.
Valdís Kristinsdóttir, umsjón-
armaður keppninnar í skólanum,
var að vonum ánægð með daginn.
„Þetta er mikil og góð reynsla sem
krakkarnir fá í lestri og því að
koma fram. Ég er mjög ánægð
með allt er snýr að keppninni en
þó ánægðust með frábæra
frammistöðu allra þátttakenda,“
sagði Valdís.
Sigraði í upp-
lestrarkeppni
Grindavík
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Þeir nemendur sjöunda bekkjar sem komust í úrslit upplestrar-
keppni Grunnskólans í Grindavík eru á fremsta bekk.
Fjölgar í
H-listanum
vegna próf-
kjörs
Vatnsleysuströnd
FJÖLDI fólks hefur gengið í Bæj-
armálafélag H-listans í Vatnsleysu-
strandarhreppi í aðdraganda próf-
kjörs listans sem fram fer í dag.
Hörð barátta er um þrjú af fimm
efstu sætunum, þannig býður Jón
Gunnarsson, fyrrverandi oddviti, sig
fram í fyrsta sætið, gegn Þóru
Bragadóttur oddvita.
Prófkjörið er í Lionshúsinu í Vog-
um í dag frá klukkan 15 til 19. Fólk
getur gengið í Bæjarmálafélagið á
kjörstað. Talið verður í kvöld og er
búist við að tilkynnt verði um úrslit
upp úr klukkan hálftíu.
♦ ♦ ♦