Morgunblaðið - 16.03.2002, Qupperneq 33
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2002 33
Handverksmarkaður
í dag laugardag kl. 11-16 Líttu við !
NEYTENDASAMTÖKIN gerðu í
síðasta mánuði stutta úttekt á
nokkrum skíðasvæðum á landinu
sem greint er frá á heimasíðu sam-
takanna. „Skíðasvæðin eru um
margt ólík og bjóða upp á mismun-
andi þjónustu og því ekki einhlítt að
bera aðeins saman verð,“ segir í
könnuninni. Fram kemur að árskort
séu í mörgum tilvikum á „mjög góðu
verði“ og ekki þurfi að renna sér
margar ferðir til þess að borga það
upp.
„Um páskana verður mikið um að
vera á öllum skíðasvæðum landsins.
Einnig er algengt að boðið sé upp á
hópafslætti og margvísleg tilboð eru
fyrir hendi sem vert er að athuga
nánar,“ segir ennfremur.
Ódýrara virka daga
í Hlíðarfjalli
Fram kemur að dagskort sé ódýr-
ara á virkum dögum á skíðasvæðinu í
Hlíðarfjalli á Akureyri, eða á 800
krónur fyrir fullorðna og 400 krónur
fyrir börn. Dagskort í barnalyfturn-
ar kostar kostar 500 krónur fyrir
fullorðna og 200 krónur fyrir börn og
gildir það verð jafnt um helgar sem
virka daga. Afsláttur er veittur af
árskorti ef fjórir kaupa saman. Kost-
ar þá árskort fyrir fullorðna 8.000
krónur og 5.000 krónur fyrir börn,“
segja Neytendasamtökin.
Á skíðasvæðin á Ólafsfirði, Dalvík
og í Hlíðarfjalli gildir sérstakur
Eyjafjarðarpassi, segir ennfremur.
Passinn gildir í þrjá daga og kostar
3.400 krónur fyrir fullorðna og 2.000
krónur fyrir börn. „Sérstakt „ung-
lingagjald“ er fyrir 13 til 17 ára, 370
krónur fyrir dagskort og 4.800 krón-
ur fyrir árskort. Einnig er boðið upp
á fjölskylduafslátt. Heimasíða skíða-
félags Ólafsfirðinga er mjög ítarleg
og er þar að finna allar helstu upp-
lýsingar um skíðasvæðið og starf-
semi félagsins. Slóðin er www.sim-
net.is/skiol.“
Á skíðasvæðinu á Siglufirði er ver-
ið að setja upp þriðju skíðalyftuna.
Með tilkomu hennar verður fallhæð-
in 450 metrar eða álíka og í Hlíð-
arfjalli. Mánaðarkort kosta 4.000
krónur fyrir fullorðna og 2.000 krón-
ur fyrir börn. Líkt og á Ólafsfirði
hefur skíðafélagið á Siglufirði sett ít-
arlega heimasíðu og er slóðin
www.simnet.is/skisigl, segir jafn-
framt í könnun Neytendasamtak-
anna.
„Skíðasvæðið í Bláfjöllum er
stærsta skíðasvæði landsins, með
langflestar lyftur og flutningsgetu
upp á 8.000 manns á klukkustund.
Hægt er að nota sama skíðakort í
Skálafelli, Bláfjöllum og á Heng-
ilssvæðinu. Hægt er að nota sama
skíðakort í Skálafelli, Bláfjöllum og á
Hengilssvæðinu og einnig er hægt
að kaupa mánaðarkort á þessa skíða-
staði.
Mánaðarkort fyrir fullorðna kost-
ar 5.000 krónur og 2.500 krónur fyrir
börn.“
Loks er fjallað um skíðasvæðið í
Oddsskarði, eða „austfirsku Alpana“
eins og heimamenn kalla svæðið.
Skíðasvæðið liggur í 890 metra hæð
yfir sjávarmáli og er fallhæðin nokk-
ur, eða 325 metrar. Því hentar svæð-
ið vel til stórsvigsmóta.
Húsavík er eini skíðastaður lands-
ins þar sem boðið er upp á fría þjón-
ustu, þar eru tvær toglyftur og troð-
in göngubraut, segir að síðustu í
könnun NS.
<) *'' ()='' >'' ?>' *'' ()''' +'' +'' ()''' < ?'' A'' =A' &>' ?'' A'' A'' A'' A'' < ; <) (()'''
*)A''
B)?''
(')'''
>)'''
(&)'''
(&)'''
(&)'''
< A)A''
A)A''
=)?''
A)'''
=)A''
B)'''
B)'''
A)A''
< ,!
!
5
!
(
&
(
=
&
(
&
=
((
=
=
&
5 #
:
2%
2%
2%
2%
2%
2%
2%
2%
2%
2%
.
2%
2%C 2%
2%
.
.
.
<
?>*
=''
(+'
=A'
&BA
&=&
&>=
=&A
(=+
< ! #% ?)&A'
*A'
AA'
()&B'
&)A''
*)'''
=)'''
&)'''
+A'
@ #%# %@ %D@&''&
8@! C
@
3!! #
! #
D! #
%! #
%!
/ 8E @
Frítt á skíði á Húsavík
Morgunblaðið/Kristinn
Skíðað af innlifun í Oddsskarði.
Neytenda-
samtökin gera
könnun á níu
skíðasvæðum
LISTIR
ENGIR fleiri tollar verða lagðir á
innflutt grænmeti, segir Ólafur
Friðriksson, deildarstjóri í landbún-
aðarráðuneytinu, en reglugerðir um
magn- og verðtolla á tómata, agúrk-
ur, papriku og salöt hafa jafnan ver-
ið settar 15. mars. Segir hann mega
„horfa fram á verðlækkanir á græn-
meti á næstunni“.
Landbúnaðarráðuneytið gaf ný-
verið út reglugerðir þar sem lagður
er magntollur á þrjár tegundir af
innfluttu grænmeti, það er kart-
öflur, hvítkál og sveppi og segir
Ólafur að verðtollur á grænmeti hafi
verið afnuminn að fullu 12. febrúar
síðastliðinn.
Á sama tíma í fyrra sköpuðust
talsverðar umræður í kjölfar reglu-
gerðar um 30% verðtoll og 199–298
króna magntoll á papriku, sem
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra setti 15. mars 2001. Landbún-
aðarráðherra kvaðst til dæmis hafa
upplýsingar um að 10% af smásölu-
verði papriku væru tollur og 84–85%
verðsins væru á ábyrgð innflutn-
ingsaðila og smásalans.
Kaupmenn mótmæltu þætti inn-
flytjenda og smásala í háu papriku-
verði og sagði Finnur Árnason,
framkvæmdastjóri Hagkaups, til
dæmis við þetta tækifæri að ís-
lenskri garðyrkju væri „enginn
greiði gerður með verndartollum“.
„Tollarnir hækka verð og draga
úr neyslu á þessum vörum. Því mið-
ur líta Íslendingar á grænmeti sem
munaðarvöru, þar sem verðið er of
hátt. Það skýrir að hluta þá stað-
reynd að Íslendingar eru eftirbátar
nágrannaþjóða í neyslu grænmetis.
Íslenskir garðyrkjubændur fram-
leiða góða vöru, sem íslenskir neyt-
endur kjósa fram yfir þá innfluttu.
Með lægra verði stækkar þessi
markaður fljótt, sem ætti að vera
meginhagsmunir garðyrkjubænda á
Íslandi,“ sagði Finnur.
Magntollar á kartöflur,
hvítkál og sveppi
Sem fyrr segir eru magntollar nú
einungis lagðir á kartöflur, hvítkál
og sveppi og aðrar tegundir græn-
metis eru án tolla. Hins vegar má
búast við að magntollur leggist á
innfluttar grænmetistegundir sem
eru útiræktaðar hér á landi er sú
framleiðsla kemur á markað síðar í
sumar, samkvæmt tillögum svokall-
aðrar grænmetisnefndar sem gerðar
voru opinberar í byrjun febrúar.
Dæmi um slíkar tegundir eru hvít-
kál, rauðkál, blómkál, spergilkál og
gulrætur.
Ólafur Friðriksson sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að grænmet-
istegundir, sem áður var settur
verðtollur á, hafi lækkað um 20%
viku eftir að hann var afnuminn 12.
febrúar síðastliðinn og að neytendur
ættu „að horfa fram á verðlækkanir
á grænmeti á næstunni“.
„Grænmeti verður alltaf sveiflu-
kennt í verði en næstu vikur og mán-
uði ætti það að ráðast af því verði
sem ríkir á erlendum mörkuðum,“
segir Ólafur.
Haft var eftir landbúnaðarráð-
herra þegar tillögur grænmetis-
nefndar voru kynntar í byrjun febr-
úar að grænmeti gæti lækkað að
meðaltali um 15% í verði og mun
meira í sumum tilvikum, tómatar og
gúrkur gætu til að mynda lækkað í
verði um 50%.
Horft fram á verðlækkanir
á grænmeti á næstunni
DAGNÝ Marinósdóttir
þverflautuleikari held-
ur burtfararprófstón-
leika í Salnum, Tónlist-
arhúsi Kópavogs, kl. 14
í dag. Dagný hefur
stundað nám við Tón-
listarskólann í Reykja-
vík og er ein fjögurra
nemenda sem ljúka
námi í hljóðfæraleik frá
skólanum nú í vor. Á
tónleikunum leikur hún
verk eftir C.P.E. Bach,
Ibert, Martinu, Gau-
bert, Varése og Takt-
akishvili.
Dagný segir þessa
fyrstu stóru tónleika
leggjast ágætlega í sig. „Ég vona að
ég sé búin að taka út mesta stressið,
þannig að þetta verður áreiðanlega
mjög gaman,“ segir Dagný. Hún hef-
ur valið saman efnisskrá af kost-
gæfni, sem samanstendur af verkum
sem verið hafa í uppáhaldi hjá henni í
gegnum tíðina. „Ég reyni að hafa
efnisskrána sem fjölbreytilegasta og
er þar talsvert af nýrri verkum.“
Tónleikarnir hefjast á Hamborg-
arsónötu fyrir flautu og píanó eftir
Emanúel Bach og leikur Hrefna
Eggertsdóttir þar með á píanó. „Á
efnisskránni eru síðan tvær aðrar
sónötur fyrir flautu og píanó, sem við
Hrefna flytjum í lok tónleikadag-
skrárinnar, þ.e. fantasía eftir Gau-
bert og sónata eftir georgíska tón-
skáldið Taktakishvili. Annað verkið
á efnisskránni er tríó fyrir flautu,
selló og píanó eftir Martinu og leika
Gréta Rún Snorradóttir og Dagný
Arnalds með mér í því verki. Þá flyt
ég tvö einleiksverk, Piece eftir Ibert
og Density 21.5 eftir Varése,“ segir
Dagný.Við flutninginn á síðarnefnda
einleiksverkinu hefur Dagný fengið
Hjördísi Lilju Örnólfs-
dóttur dansara með
sér. „Mig langaði til að
brjóta dagskrána dálít-
ið upp og fékk Hjördísi
Lilju til að dansa við
verkið, en hún er langt
komin í ballettnámi við
Listdansskólann.“
Dagný Marinósdótt-
ir fæddist í Reykjavík
árið 1979 og er uppalin
á Seltjarnarnesi. Sex
ára gömul hóf hún tón-
listarnám við Tónlist-
arskóla Seltjarnar-
ness. Þar lærði hún
fyrst á blokkflautu og
síðan píanó, en þver-
flautunám hóf hún 10 ára gömul og
það hefur verið hennar aðalhljóðfæri
síðan. Í Tónlistarskóla Seltjarnar-
ness lærði hún m.a. hjá Önnu Ben-
assi og Hallfríði Ólafsdóttur. Eftir
grunnskólanám á Seltjarnarnesi fór
hún í Menntaskólann við Hamrahlíð
og útskrifaðist þaðan árið 1998.
Sama ár og hún hóf menntaskóla-
nám byrjaði hún í Tónlistarskólan-
um í Reykjavík og aðalkennarar
hennar hafa verið Bernhaður Wilk-
inson og Hallfríður Ólafsdóttir.
Haustið 1999 byrjaði hún í blásara-
kennaradeild Tónlistarskólans og út-
skrifast nú í vor með kennarapróf og
burtfararpróf.
Í haust liggur leiðin til Kaup-
mannahafnar þar sem Dagný mun
leggja stund á framhaldsnám við
Konunglega tónlistarháskólann.
„Ég hlakka til að geta einbeitt mér
að flautuleiknum en ég fæ allt bók-
lega námið metið héðan. Kennslu-
þættinum ætla ég líka halda við enda
býst ég við að fást nokkuð við
kennslu í framtíðinni,“ segir Dagný
Marinósdóttir að lokum.
„Búin að taka út
mesta stressið“
Dagný
Marinósdóttir
ÓLI G. Jóhannsson og Guðmundur
Ármann opna myndlistarsýningu í
Húsi málaranna á Eiðistorgi, Sel-
tjarnarnesi, í dag kl. 14. Á sýning-
unni eru þrjátíu verk unnin í olíu
og akrýl, auk nokkurra teikninga.
Guðmundur Ármann er mynd-
listarkennari á Akureyri, menntað-
ur í Reykjavík og í Gautaborg.
Hann hefur sýnt víða, jafnt á Norð-
urlöndum sem á Íslandi. Myndir
Guðmundar eru afstrakt og leitast
hann þar við að fanga hið óáþreif-
anlega í umhverfinu, s.s. birtu og
veðrabrigði. Óli G. Jóhannsson er
sjálfmenntaður myndlistarmaður
og hefur að undanförnu einbeitt
sér að vinnu og sýningarhaldi í
Danmörku. Málverk Óla eru einnig
afstrakt og hefur þeim verið lýst
sem samfelldum óði til lífsorkunn-
ar og hins síbreytilega sköpunar-
verks.
Sýningin stendur til 30. mars og
er opin frá fimmtudegi til sunnu-
dags milli kl. 14 og 18.
Morgunblaðið/Kristinn
Afstrakt verk í
Húsi málaranna