Morgunblaðið - 16.03.2002, Page 55

Morgunblaðið - 16.03.2002, Page 55
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2002 55 fuglalífinu eða veiðinni, þegar við hittumst. Og svo skeggræddum við pólitík. Ég mun sárt sakna Kristjáns af þeim vettvangi og hlýt nú í þessum fáu orðum að þakka honum stuðning- inn og vináttuna alla tíð. Ég hefði kosið að fylgja honum síðasta spölinn en á þess ekki kost. Þessar línur bera þér Anna og þínu fólki og Einari og öllu fólkinu í Vog- um samúðarkveðjur okkar Kristrún- ar. Guð blessi minningu Kristjáns Þórhallssonar. Halldór Blöndal. Látinn er í Mývatnssveit aldraður höfðingi, Kristján Þórhallsson í Björk. Fyrir réttum fimm árum flutti ég í Mývatnssveit. Einn hinna fyrstu til að bjóða mig velkominn var Krist- ján í Björk. Handtak hans var inni- legt og bros hans einlægt og fölskva- laust. Af Kristjáni hafði ég ekki haft kynni fyrr en vissi þó af honum enda hafði verið kunningsskapur með hon- um og föður mínum. Kristján Þór- hallsson var afar áhugasamur um við- gang Mývatnssveitar og vildi vöxt og veg sveitarinnar sem mestan. Hann var framsýnn talsmaður víðtæks at- vinnulífs og menningar í Mývatns- sveit. Honum var ekki síður hugleikið að hinu sérstæða náttúrufari sveitar- innar væri fullur sómi sýndur. Mörg- um sinnum kom Kristján á minn fund til að ræða þessi mál og oftar en ekki var Einar Gunnar bróðir hans með í för. Þar fóru eldhugar. Þeir voru óþreytandi að fræða mig um gamla tíma í Mývatnssveit. Í þeim efnum var ekki að tómum kofum komið. Þeim var fulljóst að Mývatnssveit mundi hnigna verulega ef atvinna væri ekki fyrir hendi og fólk til staðar til að hlúa að hinu sérstæða náttúru- fari. Þeim bræðrum fannst hin mesta fásinna að leggja af öfluga atvinnu- starfsemi sem enginn hefði sýnt fram á að ylli tjóni. Þar deildum við skoð- unum sem víðar. Fundum okkar Kristjáns í Björk fækkar um stund. Okkur hafði á skömmum tíma orðið vel til vina. Ég geymi með mér góðar minningar um stóran, myndarlegan og glaðsinna mann sem sýndi mér mikla velvild við upphaf kynna okkar og æ síðan. Blessuð sé minning Kristjáns Þór- hallssonar. Sigbjörn Gunnarsson. Hressilegur samferðamaður, Kristján „kóngur“, er genginn. Við- urnefnið sem hann hafði í daglegu tali samferðamanna gefur nokkra lýs- ingu á manninum. Með allra hæstu mönnum og hnarreistur fram á síð- asta dag fór hann allra sinna ferða þrátt fyrir háan aldur. Hann neitaði að gefast upp fyrir elli kerlingu. Mér verður hann einkum minnisstæður fyrir brennandi áhuga sem hann sýndi öllu því sem hann taldi til fram- fara horfa í sveitinni okkar. Ekki fannst þar á nokkur bilbugur þó árin væru orðin mörg. Sama var hvar og hvenær leiðir okkar lágu saman, alltaf var Kristján glaðlegur og brennandi í áhuga á málefnum dagsins, að leita frétta og skiptast á skoðunum. Hvort þar voru efst á baugi framkvæmdir við Kröflu eða kísilgúrvinnsla. Almenn sveita- mál eða landsmálin á víðum velli. Ekki þurftu skoðanir okkar þess vegna að fara saman, engu breytti það, málin skyldu rædd. Hann var ekki óvanur því að vera í minnihluta með sína skoðun á heimavelli. Það mundi hafa vera nefndur lítilfjörleg- ur stjórnmálafundur í Mývatnssveit ef Kristján lét sig vanta. Fyrir rúm- um áratug þegar ráðist var í fram- kvæmdir til stækkunar Reykjahlíð- arkirkju vann hann að byggingunni af áhuga og dugnaði með Þorláki frænda sínum. Sást þar ekki á að þar færu menn á áttræðisaldri. Í nær tvo áratugi annaðist hann endurskoðun kirkjureiknings og skilaði því ætíð fljótt og vel. Glaður og hress til hinstu stundar var Kristján Þórhallsson. Slíkra er gott að minnast. Birkir Fanndal. Við kölluðum hana ýmist Laugu frænku eða Laugu í Stóru-Mörk. Hún var sumarfóstra mín þegar ég var barn. Á þeim tíma höfðu margir borg- arbúar bein tengsl við bóndabýli og þeir nýttu sér það til að senda börn sín í sveit á sumrin. Það var gert til að börnin fengju tækifæri til að kynnast náttúrunni og blessuðum húsdýrun- um, til að anda að sér heilnæmu lofti og síðast en ekki síst til að læra að taka til hendinni. Móðir mín, Hanna Guðjónsdóttir, var ættuð frá Stóru- Mörk og þær Lauga voru systkina- dætur. Ásta, systir Laugu, bjó árum saman á heimili foreldra minna og var þannig einnig fóstra okkar systkin- anna. Hinar systurnar tvær, Sigur- björg og Helga, voru einnig í miklu uppáhaldi á heimilinu. Tengsl okkar við Stóru-Mörk voru því alltaf sterk og þau urðu til þess að ég og Fjölnir, bróðir minn, vorum flest bernsku- og unglingsárin í sveit á sumrin hjá frænku minni, Laugu í Stóru-Mörk, og Brynjólfi bónda hennar. Á bænum voru börn þeirra hjóna, Hanna Kristín, Úlfar og Ragnheiður. Þau tvö fyrstnefndu eru nokkru eldri en ég og naut ég til fulls ómældrar elskusemi þeirra, svo ekki sé talað um víðfræga kímnigáfu Úlfars frænda. Mér býður í grun að hann hafi kímni- gáfuna frá móður sinni því vandfund- in var skemmtilegri manneskja. Hélt hún kímninni og glettninni fram til hins síðasta. Ragnheiður var yngri en hin systkinin í Stóru-Mörk og var ekki laust við að ég reyndi – í fjarveru nöfnu minnar – að setja mig í spor stóru systur þegar þessi litli gleðigjafi var annars vegar. Auk systkina minna, sem öll fengu tækifæri til að dveljast hjá Laugu frænku, voru á bænum fleiri aðkomubörn. Börnin á hinum bæjunum, Vestur- og Austur- bænum, voru hluti af þessu samfélagi. Hóllinn á milli bæjanna, Ekran sem nú er horfin, endurómaði í kvöld- kyrrðinni af köllum og ærslum krakk- anna á öllum Stóru-Merkur-bæjun- um þremur. Auðvitað var Lauga sá fjölskyldu- meðlimur í Hábænum sem bar mesta ábyrgð á börnunum. Ég naut þess hve gott auga hún hafði fyrir því hverju krakkar höfðu gagn og gaman af. Hún kom víða við í uppeldisstarf- inu, jafnt á andlega sem líkamlega sviðinu. Hjá henni lærði ég m.a. að bera virðingu fyrir skepnunum, vaska upp og prjóna. En útreiðartúrarnir á sunnudögum bættu slíkt erfiði marg- faldlega upp; þeir voru, að ég held, oftast undan Laugu rifjum runnir en líklega hefði vagnhestunum Sokka og Jarpi ekkert veitt af sunnudagshvíld- inni eftir erfiði vikunnar! Ekki var minna um vert að fá að taka þátt í heyskap, reka kýrnar, mjólka (með höndunum!), sækja hestana og fara í réttir. Lauga kunni mikið af vísum og söng gjarnan, einkum fyrir yngri krakkana, með sinni björtu, fallegu rödd. Hún var listagóður sögumaður. Sögur hennar af huldumanninum Físíkusi og óvættinni í Bæjargilinu eru ógleymanlegar, svo ekki sé talað um ástarsögurnar sem smám saman tóku við af huldufólkssögum eftir því sem þroski og áhugi unglinganna bauð. Hún kunni vel að meta góðar bækur og tók snemma ástfóstri við bækur jafnaldra síns, Halldórs Lax- ness, þótt um hann stæði mikill styr, í sveitinni hennar sem annars staðar. Móðir mín sagði mér að þegar Hall- dór Laxness fékk Nóbelsverðlaunin 1955 hefði Laugu fundist hún vinna mikinn persónulegan sigur. Eftir að ég varð fullorðin hef ég löngum notið þess að tjalda í Rétt- arláginni þar sem blasa við reisulegir Stóru-Merkur-bæirnir, „silfurblár Eyjafjallatindur“, sólroðnir toppar Dagmálafjalls, Hádegishnúks og Fagrafells, og svo Vestmannaeyjar mót suðri. Síðast en ekki síst sjálfur Stóri-Dímon sem unir sér á köldum Markarfljótssöndum. Þegar gengið er upp á barðið blasa við vinalegar Hlíðar brekkur og „blásvörtum feldi búin Tindafjöll“ í norðri. Lauga í Stóru-Mörk tengdi mig sterkum böndum við þetta magnaða umhverfi. Þótt sterkasti strengurinn sé nú brostinn með fráfalli hennar munu þau bönd sem hún batt aldrei rofna. Hanna Kristín Stefánsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Ólafíu Guðlaugu Guðjónsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Sólveig Jóns-dóttir fæddist á Sæbóli í Aðalvík 18. ágúst 1932. Hún lést á heimili sínu á Ak- ureyri 9. mars síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Elinóra Guðbjarts- dóttir, f. á Hesteyri í Sléttuhreppi 1. sept. 1898, og Jón Sigfús Her- mannsson, bóndi og sjómaður, f. á Læk í Aðalvík 29. júní 1894. Börn þeirra eru: Hermann, f. 14.7. 1919, d. 1989, Ásgeir f. 7.12. 1920, Ásta, f. 4.10. 1922, Bæring, f. 16.2. 1924, Sigurður, f. 23.1. 1927, Guðrún, f. 18.6. 1929, Jóhannes Páll, f. 9.12. 1930, Inga Jóhanna, f. 26.5. 1934. Hinn 19.8. 1952 giftist Sól- veig eftirlifandi eiginmanni sín- um Ingva Rafni Jóhannssyni raf- virkjameistara, f. 1.1. 1930. Foreldrar hans voru hjónin Þor- björg Stefánsdóttir f. á Refstöð- um í Húnavatnssýslu 11.7. 1899, d. 11.12. 1931, og Jóhann Ó. Har- aldsson tónskáld, f. á Dagverð- areyri við Eyjafjörð 19.8. 1902, d. 7.2. 1966. Stjúpmóðir Ingva Rafns var María Kristjánsdóttir, f. 24.3. 1913, d. 5.10. 1991. Börn Sólveigar og Ingva Rafns eru átta, barnabörnin sextán og langömmubarnið er eitt: 1) Þor- 2.12. 1985. 6) Eyrún Svava tal- meinafræðingur, f. 26.4. 1964, gift Hólmari Svanssyni fram- kvæmdastjóra, f. 14.11. 1965, börn þeirra eru: Darri Rafn, f. 2.7. 1991, Hildur María, f. 29.7. 1994, og Agnes Erla, f. 18.11. 1996. 7) Jóhann Ólafur tónlist- armaður, f. 18.12. 1966, kvæntur Gunnhildi Arnarsdóttur flug- freyju, f. 18.12. 1966. Börn þeirra eru Katrín Ásta, f. 2.3. 1995, og Eyþór Trausti, f. 28.1. 1997. 8) Ingvi Rafn tónlist- armaður BA, f. 9.10. 1970, sam- býliskona Valdís Eyja Pálsdóttir MA námsráðgjafi, f. 25.10. 1968. Sonur þeirra er Páll Veigar, f. 24.8. 2001. Sólveig ólst upp í foreldrahús- um að Læk í Aðalvík til 15 ára aldurs er fjölskyldan flutti til Reykjavíkur. Jón, faðir hennar, vann í Trésmiðjunni Víði. Eftir nám í kvöldskóla KFUM og K fór Sólveig að vinna á prjónastof- unni Hólminum þar til hún flutti til Akureyrar sumarið 1950. Þar starfaði hún á prjónastofunni Heklu uns hún fór til Kaup- mannahafnar en hélt svo áfram vinnu þar eftir að heim kom eða til haustsins 1952 . Eftir að hún giftist Ingva Rafni helgaði hún sig heimili og börnum allt sitt líf. Þau stofnuðu fyrirtækið Raf- tækni 1954 sem þau ráku í um 40 ár. Hún starfaði með kvenfélög- um Karlakóranna á Akureyri og gekk í Oddfellowstúkuna Auði 1986 og starfaði þar til dauða- dags. Útför Sólveigar fer fram frá Möðruvöllum í Hörgárdal í dag og hefst athöfnin klukkan 14. björg framkvæmda- stjóri, f. 18.1. 1953, maki Ólafur Tr. Kjartansson rafverk- taki, f. 16.6. 1950. Börn þeirra eru: a) Kjartan félagsfræð- ingur, f. 2.6. 1974, maki Una Björg Hjartardóttir tónlist- arkennari, f. 22.5. 1975, dóttir þeirra er Sólrún Svava, f. 26.6. 2000. b) Ólafur Tryggvi lögreglu- maður, f. 11.10. 1975, sambýliskona Stein- unn Ásta Þórarinsdóttir kerfis- fræðingur, f. 15.5. 1977. c) Sól- veig María nemi, f. 14.10. 1983. 2) Sólveig Sigurrós, leikskóla- og grunnskólakennari, f. 27.5. 1954, sonur hennar er Smári Rafn Teitsson, BA, leiðbeinandi, f. 3.4. 1974. 3) Svanfríður danskennari, f. 4.12. 1955, börn hennar eru: Stefanía Tinna Ericson Warren nemi, f. 16.9. 1985, og Sindri Steinarsson, f. 26.9. 1990. 4) María Björk félagsráðgjafi, f. 20.12. 1959, maki Ómar Bragi Stefánsson framkvæmdastjóri, f. 2.6. 1957, börn þeirra eru: Stefán Arnar nemi, f. 13.8. 1982, Ingvi Hrannar nemi, f. 24.5. 1986, og Ásthildur, f. 24.5. 2000. 5) Katrín Elfa snyrtifræðingur, f. 5.2. 1961, dóttir hennar Jóhanna Tanía Haraldsdóttir nemi, f. Ég kynnist þessari heiðurskonu fyrir 20 árum, þá sextán ára slána- legur og broddaklipptur unglingur, sem var að stíga í vænginn við yngstu dóttur þeirra hjóna Sól- veigar og Ingva Rafns. Mér var strax vel tekið á þessu heimili og fann um leið til þeirrar einstöku hlýju sem ríkti á þessu stóra heim- ili. Skömmu síðar ræddi ég þetta við Eyrúnu, dóttur þeirra hjóna, og velti því upp hvort ást foreldra á börnunum sínum væri takmörkuð auðlind, þannig að ef börnin væru mörg fengju þau þá hlutfallslega minni ást frá sínum foreldrum? Þá benti hún mér á að ást eins og myndast í fjölskyldum er með þeim eiginleikum að hún vex og magnast og verður að sjálfbærri uppsprettu ástar. Þetta þótti mér athyglisvert og síðan þá hef ég lært að skilja þetta lögmál sem sannaðist svo á vel á þessu heimili. Sólveig var sterkur einstakling- ur sem hafði ótvíræða stöðu á þessu stóra heimili sem að um- svifum hefur oft verið á stærð við lítið fyrirtæki. Þessa stöðu og virð- ingu hafði hún áunnið sér með hlýju, umhyggju og því að vera alltaf hún sjálf. Við tengdasynirnir – frægir af stríðni og prakkara- skap – stofnuðum meira að segja sérstakt félag sem fékk nafnið Tengdasonafélag Guðmundu (sem var millinafn Sólveigar sem hún notaði aldrei). Þessu félagi var ætl- að að standa vörð um hagsmuni okkar gegn þessu mikla kvenna- veldi sem er í þessari fjölskyldu. Sólveig tók stríðni okkar og ályktunum vel, þó svo að við hefð- um jafnvel átt það til að hringja í hana úr tíkallasíma á öldurhúsi á ókristilegum tíma til að ráðfæra okkur við hana um skaplyndi dætr- anna. Sólveig varð veik fyrir örfáum mánuðum og það varð þessari sam- hentu fjölskyldu mikið áfall. Í erf- iðum veikindum sínum hélt hún hugrekki sínu og umhyggju allt til enda. Ég vil þakka fyrir það tækifæri að fá að kynnast þér og ég veit að verk þín munu lifa áfram um ókomnar kynslóðir í öllum þínum afkomendum. Ég vil biðja Guð að blessa minn- ingu þína og þakka þér fyrir allt sem þú gafst mér og minni fjöl- skyldu. Guð varðveiti líka Ingva Rafn sem nú stendur eftir án síns dygga lífsförunautar. Hólmar Svansson. Elsku Sollý amma. Ég vildi að ég gæti spólað tilbaka þegar þú varst ekki með krabbamein, þá væri ég alltaf hjá þér. Ég var alltaf svo stoltur af því að eiga tvær ömmur. En ég á ennþá tvær ömm- ur, önnur þeirra er bara á himnum þar sem henni líður betur. Ég veit að Guð tekur vel á móti þér þar sem þú ert svo góð. Viltu biðja Guð um að hjálpa okkur hin- um sem söknum þín svo ógurlega mikið, sérstaklega þarf að passa afa. Guð blessi þig og varðveiti þig. Ég elska þig. Þinn Darri Rafn. Látin er kær systir Sólveig, köll- uð Sollý. Er ég sat við dánarbeð systur minnar heima hjá henni sl. laug- ardag 9. þ.m. fór margt í gegnum huga minn. Hvers vegna, hvers vegna? Hægt er að spyrja slíkra spurninga endalaust. Þannig er líf- ið að sá sem fæðist, deyr, en bara hvenær. Þetta er víst engin speki frá mér. Söknuður kemur upp í hugann. Hvíld frá þrautum. Dagsverkinu, sem var mikið og gott, er lokið. Hugur minn leitar til Aðalvíkur þar sem við níu systkinin erum fædd. Nú eru sjö eftir. Henni var hlýtt til heimahaganna og hafði ráðgert að halda 70 ára afmælið sitt 18. ágúst nk. í Aðalvík. Við fluttum frá Sæbóli og að Læk vorið 1940. Þaðan gengum við yngri í barnaskólann. Það var oft erfitt að vetri í byl og frosti. Þetta er um 2ja km leið og mörg spor fyrir litla fætur, en Sollý var þá átta ára. Hún var hörð af sér, snör í snúningum og fljót að hlaupa. Á Læk voru unnin venjuleg sveita- störf á þess tíma mælikvarða. Sleg- ið var með orfi og ljá, tekinn upp mór, fært frá og lömb rekin á fjall, mjólkað í kvíum, farið til grasa, veiddur silungur. Þetta er nú sjálf- sagt torskilið yngri kynslóðinni. Allt tekur enda, en 1947 flyst fjölskyldan til Reykjavíkur og í skjól bróður okkar Ásgeirs og konu hans Guðríðar, til að byrja með. Sollý vann m.a. á prjónastofu og fór einnig til Danmerkur í vinnu um tíma. Er heim kom fór hún til Akureyrar, en elsta systir okkar Ásta var þá búsett þar og gift þeim trausta og góða Sigurði Svan- bergssyni. Ég veit ekki betur en mjög kært hafi verið með þeim systrum í nábýlinu á Akureyri. Sollý kynntist svo sínum góða manni, Ingva Rafni Jóhannssyni rafvirkjameistara, músíkant og söngmanni. Þau giftu sig svo 1952 og hafa búið allan sinn búskap á Akureyri, lengst af á Löngumýri 22. Þau eignuðust átta mannvænleg og góð börn. Ekki ætla ég hér að telja þau öll upp en það gera aðrir. Það segir þig sjálft að móðir átta barna þarf í mörg og misjöfn horn að líta. Vinna í þeim vandamálum sem upp koma. Veita öllum skjól og mismuna ekki. Taka þátt í sorg- um, en einnig gleðjast með er góð- ur árangur vinnst. Að halda utan um þennan stóra hóp, barna, tengda- og barnabarna fórst henni einkar vel úr hendi, en hún var ekki ein að verki. Þar var Ingvi Rafn, hinn trausti förunautur einn- ig, sem klettur. Mikið þurfti til að framfleyta tíu manna fjölskyldu á þessum árum. Samheldnin og dugnaðurinn var þeim í blóð bor- inn. Það hefur sýnt sig í þeim erf- iðu veikindum undanfarið. Ég minnist ferða okkar hjóna með dætur okkar til Akureyrar nokkrum sinnum og gistingu hjá þeim Sollý og Ingva. Alltaf var nóg pláss þótt húsnæði væri stundum lítið, en hjartarýmið ómælt hjá þeim báðum og ekki síður hjá Ingva. Fyrir allt þetta vil ég þakka nú er ég kveð kæra systur. Ég vil minnast þess að í maí sl. lenti ég í nokkuð erfiðum veikind- um og nokkrum sinnum á sjúkra- húsi. Þá var það Sollý sem hingdi oft í mig til þess að stappa í mig stálinu og auka hjá mér bjartsýni, sem ég þakka nú. Það bar árangur, allavega í bili. Þegar hún svo greindist með sitt krabbamein í sumar reyndi ég að hafa sama lag- ið á en því miður bar það ekki ár- angur. Það er svo margt sem hægt væri að skrifa um, en ég læt hér staðar numið. Ég, kona mín Sólveig, dætur okkar Björg, Signý og Sif og þeirra eiginmenn, sendum Ingva, börnum, tengda- og barnabörnum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning þeirrar góðu konu sem Sollý var. Jóhannes Páll. SÓLVEIG JÓNSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Sól- veigu Jónsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.