Morgunblaðið - 04.04.2002, Side 1

Morgunblaðið - 04.04.2002, Side 1
77. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 4. APRÍL 2002 aelska hermenn í bænum. Á annan tug manna hefur fallið í átökum síðan ísraelski herinn hélt inn í Betlehem á þriðjudagsmorgun. Yfirmaður pal- estínsku heimastjórnarinnar í Betle- hem sagði að Ísraelar hefðu synjað um leyfi fyrir því, að farið yrði með mat og lyf inn í kirkjuna, þar sem um 200 manns – þ. á m. prestar, nunnur og óbreyttir palestínskir borgarar – hefðust við. Uppiskroppa með kúlur Palestínskur lögreglumaður vísaði til föðurhúsanna fullyrðingum Ísr- aela um að skotið hefði verið á her- menn úr kirkjunni. „Strákarnir eru flestir orðnir uppiskroppa með byssukúlur og í öðru lagi erum við al- gerlega umkringd,“ sagði lögreglu- maðurinn. Talsmaður ísraelska hers- ins sagði að Ísraelar myndu ekki ÍSRAELSKI herinn greindi frá því í gær að hann sæti um palestínska vígamenn í Fæðingarkirkjunni í Betlehem, sem reist var á þeim stað þar sem talið er að Kristur hafi fæðst. Yfirmaður rómversk-kaþólsku kirkj- unnar í Jerúsalem sagði að Palest- ínumennirnir hefðu leitað skjóls í kirkjunni, lagt niður vopn sín og skyldu njóta friðhelgi. Ísraelar sögðu aftur á móti að Palestínumennirnir hefðu skotið á ísraelsku hermennina sem hafa tekið sér stöðu við kirkjuna. Verið væri að reyna að semja um uppgjöf. „Kirkjan er griðastaður fyrir alla, jafnvel vígamenn,“ sagði Michel Sabbah, sem fór fyrir hópi 200 klerka er var meinað að fara inn í Betlehem. Vígamennirnir ruddu sér leið inn í kirkjuna sl. þriðjudag eftir að hafa barist klukkustundum saman við ísr- beita valdi til að ná vígamönnunum út úr kirkjunni, en þeim yrði heldur ekki leyft að fara frjálsum ferða sinna. Ísraelar héldu í gær áfram víðtæk- um aðgerðum sínum á heimastjórn- arsvæðum Palestínumanna. Fóru Ísraelar með skriðdreka inn í Nablus, stærstu borgina á Vesturbakkanum, og bæina Salfit og Jenin, en þeir höfðu þegar lagt undir sig Ramallah, Tulkarem, Beit Jala og fleiri bæi. Í gærkvöldi voru aðeins tveir bæir á Vesturbakkanum, Hebron og Jeríkó, enn undir stjórn Palestínumanna. Yasser Arafat, forseti heima- stjórnar Palestínumanna, er enn í herkví á skrifstofum sínum í Ramall- ah. Ísraelar segjast vilja einangra Arafat og uppræta þau hryðjuverka- öfl sem séu samtvinnuð heimastjórn- inni er hann veiti forsæti. Palestínu- menn segja aftur á móti, að Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, vilji steypa Arafat eða ráða hann af dögum og uppræta heimastjórnina. Ísraelski herinn birti á þriðjudag- inn skjal, þýtt á ensku, sem hann sagði að hefði fundist í skrifstofum Arafats og sýndi fram á bein tengsl á milli heimastjórnarinnar og Al-Aqsa- hryðjuverkasamtakanna, er lýst hafa yfir ábyrgð á nokkrum sprengjutil- ræðanna í Ísrael og á Vesturbakk- anum undanfarið. Svo virtist sem skjalið væri beiðni frá samtökunum til fjármálaráðgjafa Arafats þar sem farið var fram á peninga. Segði í skjalinu, að hver sjálfsmorðs- sprengjuárás kostaði um 15 þúsund krónur og væri farið fram á fjármagn fyrir níu tilræðum vikulega. AP Ísraelskir hermenn fara um götur miðbæjarins í Betlehem í gær. Hópur erlendra fréttamanna og ferðamanna var fluttur frá bænum í gærkvöldi. Ísraelar leggja undir sig Betlehem og fleiri bæi á Vesturbakkanum Setið um vígamenn á fæðingarstað Krists Betlehem. AFP, AP.  Ákvörðun Sharons/20 NORÐUR-Kóreumenn sögðust í gær ætla að hefja viðræður að nýju við Bandaríkjastjórn en vöruðu við því að ekkert yrði af viðræðunum ef hún endurtæki „róg“ um Norð- ur-Kóreu. Talsmaður norður-kóreska utanríkisráðu- neytisins sagði að bandarískir emb- ættismenn hefðu lagt til á fundi með fulltrúum Norður-Kóreu hjá Sameinuðu þjóðunum nýlega að rík- in hæfu viðræður að nýju. Stjórnin í Pyongyang hefði samþykkt tillög- una eftir að hafa íhugað hana vand- lega. „Á fundinum útskýrðu fulltrúar Norður-Kóreustjórnar þá afstöðu hennar að ef tilhæfulaus rógur um Norður-Kóreu yrði endurtekinn myndi hún líta á tillögu Bandaríkja- stjórnar sem blekkingu,“ sagði tals- maðurinn. George W. Bush Bandaríkjafor- seti sagði í stefnuræðu sinni í jan- úar að Norður-Kórea og tvö önnur ríki, Íran og Írak, mynduðu „öxul hins illa“ og væru að reyna að koma sér upp gereyðingarvopnum. Ræðir við Kim Jong Il Sendimaður Suður-Kóreustjórn- ar, Lom Dong-won, hóf þriggja daga viðræður við ráðamenn í Pyongyang í gær og hvatti þá til að ganga til samninga við Bandaríkja- stjórn. Búist er við að hann ræði við Kim Jong Il, leiðtoga norður-kór- esku kommúnistastjórnarinnar. Lom kvaðst ætla að flytja norður- kóresku ráðamönnunum skilaboð frá Bandaríkjastjórn, meðal annars tillögu um samningaviðræður. Bandaríkjastjórn telur að Norð- ur-Kóreumenn eigi nóg plúton í eina eða tvær kjarnorkusprengjur og hafi þegar framleitt sýkla- og efnavopn. Norður-Kóreumenn eru einnig sagðir vera að þróa lang- drægar eldflaugar sem hægt væri að nota til árása á Alaska, Hawaii og hluta meginlands Bandaríkj- anna. Norður-Kórea Vilja við- ræður við Banda- ríkjamenn Seoul. AP. Kim Jong Il ÍSRAELSKIR hermenn og líbanskir skæruliðar í Hezbollah-samtökunum skiptust á skotum í gær, annan dag- inn í röð, á umdeildu landamæra- svæði í Suður-Líbanon, og var mikil spenna á svæðinu. Bæði Ísraelar og Hezbollah-liðar hótuðu hefndum. Líbanskir öryggismálafulltrúar sögðu að enginn hefði fallið í átökun- um, er urðu skömmu fyrir dagrenn- ingu í gær. Hezbollah-liðarnir, sem voru Líbanon-megin landamæranna, skutu sprengikúlum á ísraelsku her- mennina, er voru á hinu umdeilda svæði Chebaa og svöruðu í sömu mynt. Timur Goksel, talsmaður friðar- gæsluliða Sameinuðu þjóðanna í Suð- ur-Líbanon, sagði átökin hafa verið „mjög afmörkuð og takmörkuð“, en harðnandi rimmur undanfarna viku þykja hafa aukið líkur á átökum Ísr- aela og araba utan heimastjórnar- svæða Palestínumanna. Á þriðjudag- inn skutu ísraelskar herþotur eldflaugum á meintar stöðvar Hezb- ollah-liða eftir að skæruliðar skutu sprengikúlum og eldflaugum á stöðv- ar Ísraela á Chebaa. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur varað Hezbollah-samtökin og Sýrlendinga, sem Ísraelar segja að stjórni skæru- liðunum, við því, að þeir gætu orðið fyrir hefndaraðgerðum Ísraela. Skipst á skotum í Líbanon Beirút. AP.FYRRVERANDI efnahagsráð- herra Argentínu, Domingo Cav- allo, var handtekinn í gær eftir yf- irheyrslu hjá dómara er rann- sakar ólöglega vopnaflutninga til Króatíu og Ekvador á síðasta ára- tug. Cavallo var þá efnahagsmála- ráðherra í ríkisstjórn Carlos Men- ems forseta. Cavallo sat í stjórn Menems 1991–1996 og var talinn hafa átt hvað stærstan þátt í því að efna- hagur Argentínu náði sér á strik. Hann var aftur gerður að efna- hagsráðherra í fyrra í stjórn Fernandos de la Ruas, en báðir sögðu af sér í desember í efnahagskreppu sem hefur síðan leitt til gengis- falls argent- ínska gjaldmiðilsins, pesóans, gjaldfellingar erlendra skulda rík- isins og víðtækra óeirða í landinu er kostað hafa fjölda mannslífa. Cavallo handtekinn Cavallo Buenos Aires. AP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.