Morgunblaðið - 04.04.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.04.2002, Blaðsíða 26
MENNTUN 26 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Allar nánari upplýsingar og skráning á www.stjornendaskoli.is eða í síma 510 6200 Árangursríkari stjórnun Þriggja daga námskeið frá 10. til 12. apríl Stjórnendaskóli Háskólans í Reykjavík býður námskeið fyrir stjórnendur um árangursríkari stjórnun. Námskeiðið veitir stjórnendum góða þjálfun til þess að leiða starfsfólk á sem árangursríkastan hátt. Kenndar verða hagnýtar aðferðir við skilgreiningu og mælingu á frammistöðu og hvernig staðið skuli að endurgjöf og umbun. Lögð er áhersla á að þátttakendur læri að þekkja eigin stjórnunarstíl og þau áhrif sem hann hefur á samstarfsfólk og hvernig best er að virkja það til sameiginlegs árangurs. Innifalin er ítarleg TMS-sjálfsmatsskýrsla fyrir hvern þátttakanda. Leiðbeinendur: Dr. Finnur Oddsson, lektor við viðskiptadeild HR Loftur Ólafsson, lektor við viðskiptadeild HR Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, verkefnastjóri við Stjórnendaskóla HR Námskeiðið hefst miðvikudaginn 10. apríl og því lýkur 12. apríl Kennsla: 8:30 til 12:30 þann 10. apríl 8:30 til 17:00, 11. og 12. apríl Verð: 68.000 kr. S T J Ó R N E N D A S K Ó L I H Á S K Ó L A N S Í R E Y K J A V Í K „Napóleon sagði að áhugi eða ótti fengi fólk til framkvæmda. Hvora leiðina ferð þú?“ Dr. Finnur Oddsson, lektor við viðskiptadeild HR BRUCE JILK arkitektkynnti nýlega hönnunIngunnarskóla við Maríu-baug í Grafarholti. Hann hefur lagt drög (20%) að bygging- unni en VA arkitektar vinna verkið. Aðferðin sem notuð var við hönnun skólans var þróuð í Bandaríkjunum og kallast The Design Down Process. Bruce Jilk var ráðinn sem ráðgjafi vegna nýju skólabyggingarinnar í Grafarholti og stýrði hann 25 manna hópi sem m.a. hélt samtals sex daga fundasyrpu um það hvernig skóli á nýrri öld ætti að líta út. Kennarar í hópnum könnuðu einnig viðhorf og væntingar 11 og 12 ára nemenda til skóla og námsumhverfis. Tilgangur- inn var að fá fram góðar hugmyndir um skólann í Þúsaldarhverfinu, og tengsl hans við umhverfið. Unnið var eftir fyrirfram skilgreindum þrepum og gengið út frá því að skólum megi breyta á alla vegu. Hlúð að sköpun Þessi aðferð var fyrst þróuð af skólamönnum og arkitektum í Minnesota í Bandaríkjunum fyrir u.þ.b. 10 árum, og kynntist Gerður G. Óskarsdóttir, fræðslustjóri Reykja- víkur, frumkvöðlum þessara hug- mynda þar vorið 1997. George Cuba, prófessor í menntunarfræðum var þar í forystu ásamt Bruce Jilk. Að- ferðin er skilgreind í 12 þrepum og hefur hún verið kynnt á rúmlega 200 faglegum ráðstefnum, námskeiðum og í skólum í Banda- ríkjunum og nokkr- um öðrum löndum. Lykilorðin eru sköpun, frelsi og lýð- ræði, og ásetningin að missa aldrei sjón- ar af barninu við hönnun byggingar- innar: Barnið er kjarni málsins, það sem allt snýst um. Skólabyggingin á að vera litrík, að mati Bruce og henta nokkrum ólíkum kennsluaðferðum. „Sköpun- argáfa barnsins á að eflast, en ekki að dofna á skólagöngunni eins og al- gengast er,“ sagði hann. Bruce gerði grein fyrir hinum 12 þrepum sem skólabygging í þessum anda þarf að stíga, en Gerður G. Ósk- arsdóttir fræðslustjóri hefur sagt frá þessum þrepum í bæklingi sem Fræðslumiðstöð gaf út. Hér verður gerð tilraun til að endursegja nokkra þætti í þessu þrepakerfi, en kennsla í Ingunnarskóla hófst í bráðabirgða- húsnæði sl. haust og starfað er í anda þessara hugmynda. Hönnun/Fræðslumiðstöð Reykjavíkur réð arkitektinn Bruce Jilk til að leggja drög að Ingunnarskóla í Graf- arholti út frá ákveðinni aðferð. Gunnar Hersveinn kynnti sér aðferðina sem hvílir á 12 þrepum og setur barnið í brennidepil. Lykilorðin eru sköpun, frelsi og lýðræði. Aðferðin er upprunnin í Bandaríkjunum. Þegar skóla skal byggja…  Hópur fólks mótaði skólann eftir 12 þrepum Bruce Jilk. The Design Down Process. Nýr grunnskóli í Grafarholti. • Gerður G. Óskarsdóttir. Lýsing á undirbúningsferli hönnunar. 2001. Reykjavík. Bruce Jilk er umhugað að börn glati ekki sköp- unargáfunni á skólagöngunni. Morgunblaðið/Kristinn Nýr skóli í Grafarholti, sem tók til starfa í haust, heitir Ingunn- arskóli (kennsla er hafin í bráðabirgðahúsnæði) . Hér er skýring Guðlaugar Sturlaugs- dóttur skólastjóra á nafni nýja skólans: „Ingunn sem skólinn heitir eftir var nemi og fræði- maður í Hólaskóla á 12. öld og er Ingunn kynnt í bisk- upasögum. Hugmyndina að nafninu á prófessor Þórhallur Vilmundarson, sem einnig fann nöfn á göturnar í hverfinu. Um Ingunni er fjallað í Jóns sögu helga. Ingunn er kynnt til sögu um leið og margir þekktir fræðimenn og biskupar sem stundað höfðu nám við Hóla- skóla.  Margir váru ok þar aðrir í skóla, þeir er síðan urðu mek- tugir kennimenn, Ísleifr Grímsson, frændi byskups, Jón svarti, Bjarni Bergþórsson, Björn er síðar var inn þriði byskup at Hólum, ok margir aðrir, þeir er langt er frá at segja. Þar var ok í fræðinæmi hreinferðug jungfrú, er Ing- unn hét. Engum þessum var hon lægri í sögðum bóklistum. Kenndi hon mörgum gram- maticam og fræddi hvern er nema vildi. Urðu því margir vel menntir undir hennar hendi. Hon rétti mjök latínubækr, svá at hon lét lesa fyrir sér, en hon sjálf saumaði, tefldi eða vann aðrar hannyrðir með heilagra manna sögum kynnandi mönn- um guðsdýrð eigi at eins með orðum munnnáms, heldur og með verkum handanna. (Byskupa sögur, Jóns saga helga, bls. 43–44) Einnig hefur verið ákveðið í fræðsluráði Reykjavíkur að annar grunnskóli í Grafarholti hljóti nafnið Sæmundarskóli, eftir Sæmundi fróða Sigfús- syni. Nafngiftin: Ingunnarskóli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.