Morgunblaðið - 04.04.2002, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 04.04.2002, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2002 29 Núna beint dagflug til Rimini Heimsferðir bjóða í sumar dvöl á hinum geisivinsæla strandstað Rimini á Ítalíu og vegna mikillar eftirspurnar höfum við nú sett inn bein flug til Bologna flugvallar, rétt hjá Rimini. Rimini við Adríahafið er einn stærsti og vinsælasti sumarleyfisstaður í Evrópu enda sækja hingað ferðamenn allsstaðar að úr heiminum til að njóta þess sem staðurinn hefur að bjóða. Heimsferðir bjóða þér vinsælustu gististaðina á Rimini, frábærlega staðsetta við ströndina og örugga þjónustu fararstjóra Heimsferða, sem bjóða þér spennandi kynnisferðir á meðan á dvölinni stendur. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð frá kr. 43.263 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, í 7 nætur, Auriga, með 8.000 kr. afslætti, 18. júlí. 8.000 kr. afsl. á mann eingöngu 18. júlí. Beint flug til Rimini í sumar frá 43.263* Heimsferðir bjóða nú beint flug á fimmtudögum til Rimini. Heimsferðir stórlækka verðið til Rimini Yfir 20.000 kr. verðlækkun á mann frá því í fyrra Í DV hinn 7. febrúar sl. birtist grein eftir Jóhönnu Thorsteins- son leikskólastjóra um húsnæðismál alþýðu- fólks. Þótt grein Jó- hönnu sýni að hún hef- ur nokkra þekkingu á sögu húsnæðismála er málflutningur hennar og ekki síst niðurstöð- urnar þess eðlis að ekki er hægt að láta þeim ósvarað, en það hefur dregist vegna annríkis við annað. Ég hef að vísu margsinnis fjallað um þessi mál og kannski hefur mér stundum fundist skrif mín um þetta efni vera sönnun fyrir kenningu Nietzsche um „eilífa endurkomu hins sama,“ þótt það hafi ekki verið tilgangurinn. Efnið er hinsvegar svo mikilvægt að nauðsynlegt er að mínu mati að viðhalda umræðu um það. Kostnaðardæmin Jóhanna ræðir í upphafi áhrif verðtryggingar á húsnæðislán og aðdraganda Sigtúnshópsins svo- nefnda sem krafðist úrbóta, en því miður án þess að breytt yrði um stefnu. Það er þó varla mögulegt að reka sömu lánastefnu með verð- tryggðum lánum og óverðtryggðum. Síðan snýr hún sér að „Verkó“, sem hún kallar svo, og býr til tvö dæmi sem ekki geta átt við um „Verkó“ sérstaklega því fjarri fer að allir íbúar þar búi við sömu kjör. Nú er ekki hægt að skipta um íbúðir innan kerfis eins og var, því búið er að leggja það niður. Þetta er vandamál sem stjórnvöld hafa búið til og þarf að leysa. Dæmi Jóhönnu eru A: Jón og Gunna á neðri hæðinni og B: Siggi og Stína á efri hæðinni. Jón og Gunna eiga neðri hæðina og greiða í afborganir, vexti og verðbætur ásamt hússjóði um 82 þús. kr. á mánuði auk allskyns gjalda og þurfa auk þess að bera rekstrarábyrgð sem getur orðið baggi. Siggi og Stína leigja íbúðina á efri hæðinni og borga 50 þús. kr. á mánuði í leigu með hússjóði, en greiða engin þau gjöld til viðbótar sem eigandi þarf að greiða sérstaklega og eru laus við almenna rekstrarábyrgð ef þau geta greitt umsamda leigu. Hvor- ugu dæminu fylgja vaxta- eða húsa- leigubætur. Hvers vegna eignaríbúðir? Mismuninn segir Jóhanna felast í því að efri hæðin er leigð á kostn- aðarverði en söluverð íbúðarinnar er metið 8 milljónir króna. Fast- eignasali mat hinsvegar neðri hæð- ina á 12 milljónir króna. Íbúðirnar virðast þó jafnstórar. Þá kemur nið- urstaða Jóhönnu: „Auðvitað á fólk rétt á því að selja íbúðir sínar á frjálsum markaði“ og hún bætir við: „Sveitarfélögin eiga ekki að standa í íbúðarbyggingum. Ef fólk offjárfestir í fasteign þá ber það eitt ábyrgð á því.“ Þetta myndi þýða í fyrsta lagi að íbúðin sem nú kostar 8 milljónir kr. myndi kosta 12 millj- ónir kr. og í stað 50 þús kr. leigu yrði sá sem næst fer inní íbúðina að greiða 82 þús. kr. á mánuði plús hin ýmsu gjöld í stað 50 þúsund kr. í leigu og bera rekstrarábyrgð á hús- inu. Heldur Jóhanna að húsnæðis- laust fólk ráði við slíkt? Telur hún vænlegustu leiðina til úrbóta í hús- næðismálum að tvöfalda kostnað- inn? Mér ofbýður að leikskólastjóri skuli leggja til að samfélagsábyrgð á málefnum heimila og þar með barna skuli afnumin. Hvað myndi frú Jóhanna gera ef hún missti heilsuna, starfið og húsið í fram- haldi af því, ef hugsjón hennar yrði framkvæmd? Það eru til slík þjóð- félög og þar eru hin stóru ömurlegu fátækrahverfi sem stöku sinnum heyrist frá. Það er ömurlegt að umönnunarfólk skuli ánetjast því útópíska rugli sem kallað er frjáls- hyggja, en ég er vanur að nefna sjálfshyggju. Ég lagði margoft til að „Verkó“ yrði breytt í leiguíbúðir með eða án búseturéttar. Á það var ekki hlust- að. Hefði það verið gert og fleiri að- ilar byggt leiguíbúðir, bæði opinber- ir og einkaaðilar, væri ástandið annað en það er. Húsnæðismál eru heimilismál Jón Kjartansson Húsnæði Það er ömurlegt að umönnunarfólk skuli ánetjast því útópíska rugli sem kallað er frjálshyggja, segir Jón Kjartansson, en ég er vanur að nefna sjálfshyggju. Höfundur er formaður Leigjendasamtakanna og kennir sig við Pálmholt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.