Morgunblaðið - 04.04.2002, Blaðsíða 18
NEYTENDUR
18 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KL. 12.00 - 15.00
KL. 17.00 - 19.00
KL. 12.00 - 22.00
BÓNUS
Gildir frá 4.–7. apríl nú kr. áður kr. mælie.
Frosin ýsa með roði ............................... 499 599 499 kg
Frosið súpukjöt, 1. fl. ............................. 399 499 399 kg
Bónus frosið kjötfars .............................. 99 189 198 kg
Bónus bl. hakk ...................................... 499 599 499 kg
Óðals svínabjúgu, 4 st. í pk. ................... 299 449 299 kg
Pampers bleiur, tvöf. pakki ..................... 1.699 1.759 850 pk.
Ariel þvottaefni, 5,4 kg........................... 1.299 1.499 240 kg
HAGKAUP
Gildir 4.–10. apríl nú kr. áður kr. mælie.
Freschetta pítsur ................................... 299 529 Frá 786 kg
Óðals UN hakk ...................................... 699 999 699 kg
Íslandsfugl kjúklingalæri, hálfúrb. ........... 698 998 698 kg
Norðlenska gourmet lambalæri ............... 1.168 1.461 1.168 kg
Kjörís lúxuspinnar .................................. 345 459 345 pk.
Orville örbylgjupopp, 3 st. í pakka ........... 149 174 502 kg
Holger bruður, 400 g.............................. 129 179 323 kg
Frón mjólkurkex, 400 g .......................... 139 179 348 kg
SAMKAUP/ÚRVAL
Gildir 4.–8. apríl nú kr. áður kr. mælie.
Kellogg’s Special, 500 g ........................ 305 359 610 kg
Kellogg’s kornflögur, 750 g..................... 336 395 448 kg
Nói 100 g fyllt piparmyntusúkk. .............. 119 149 1.190 kg
Nói 100 g fyllt toffísúkkul. ...................... 119 149 1.190 kg
Nói 100 g fyllt kaffisúkkul....................... 119 149 1.190 kg
Nói 100 g fyllt rjómalíkjörsúkk. ............... 119 149 1.190 kg
O&S ostakaka heslihnetu, 600 g ............ 950 1056 1.583 kg
O&S piparostur, 150 g........................... 143 159 953 kg
O&S gráðaostur, 125 g, nýjar umbúðir..... 197 219 1.576 kg
SELECT-verslanir
Gildir til 24. apríl nú kr. áður mælie.
Twix king size......................................... 69 98
Maltesers, 175 g ................................... 229 310 1.308 kg
Stjörnu party mix, 170 g, 2 teg. .............. 219 275 1.288 kg
Grieson minis kex, 150 g........................ 139 169 920 kg
UPPGRIP-verslanir OLÍS
Apríl tilboð nú kr áður kr. mælie.
Hersheys Almond Joy, 50 g..................... 119 nýtt
Hersheys Crunchy Bar, 43 g.................... 89 nýtt
Sharps brjóstsykur, 40 g ........................ 45 60
Samloka Sóma ..................................... 209 235
ÞÍN VERSLUN
Gildir 4.–10. apríl nú kr. áður kr. mælie
Búrfells nautagúllas............................... 1.078 1.348 1.078 kg
Búrfells nautahakk ................................ 623 779 623 kg
Toro kjúklingagrýta ................................. 169 214 169 pk.
Toro ítölsk grýta ..................................... 199 265 199 pk.
Toro aspassúpa ..................................... 99 123 99 pk.
Hvítlauksbrauð, 2 st., 340 g ................... 199 248 199 pk.
Tilboðsverð á þvotta-
efni og bleium
Helgartilboð
Verðupplýsingar sendar frá verslunum
VERÐMUNUR á lausasöluyfjum í
apótekum á höfuðborgarsvæðinu er
allt að 40%, samkvæmt öðrum hluta
nýrrar verðkönnunar ASÍ. Í niður-
stöðum könnunarinnar segir að mik-
ill munur sé á lyfjaverði milli apóteka
á höfuðborgarsvæðinu, jafnt á lyfseð-
ilsskyldum lyfjum og lyfjum í lausa-
sölu. „Rimaapótek og Nesapótek eru
oftast með lægsta verðið á lyfseðils-
skyldum lyfjum til venjulegra sjúk-
linga. Rimaapótek er einnig oftast
með lægsta verðið á lyfseðilsskyldum
lyfjum til örorku- og ellilífeyrisþega.
Laugarnesapótek er oftast með
hæsta verðið á lyfseðilsskyldum lyfj-
um til venjulegra sjúklinga en Ár-
bæjarapótek til örorku- og ellilíf-
eyrisþega,“ segir ASÍ. Fram kemur
jafnframt í samanburði á hækkunum
milli nóvember 2001 og mars 2002 að
afsláttur apóteka til sjúklinga hefur
minnkað, sem leiðir til hærra lyfja-
verðs. „Meiri tilhneiging hefur þó
verið til hækkunar hjá elli- og ör-
orkulífeyrisþegum,“ segir ASÍ.
Verðkönnunin var gerð fimmtu-
daginn 14. mars síðastliðinn og var
kannað verð á 25 tegundum lyfseð-
ilsskyldra lyfja og 18 tegundum
lausasölulyfja.
Hæst verð í Laugarnes-
apóteki í 17 tilvikum
„Rimaapótek hefur lægsta verðið í
15 tilfellum og Nesapótek í 14, þegar
skoðað er venjulegt verð á 25 lyfseð-
ilsskyldum lyfjum í þeim 9 apótekum
á höfuðborgarsvæðinu sem tóku þátt.
Laugarnesapótek hefur hæsta verð í
17 tilfellum af þeim 19 lyfseðilskyld-
um lyfjum sem það gaf upp. Mun-
urinn milli hæsta og lægsta verðs er
frá 16% á þunglyndislyfinu Zolofti og
upp í 107% á bólulyfinu Roaccutan.
Rimaapótek var einnig oftast með
lægsta verð til elli- og örorkulífeyr-
isþega, eða í 17 tilfellum. Árbæjar-
apótek var með hæsta verðið í 15 til-
fellum. Munur á hæsta og lægsta
verði er mjög mikill,“ segir í niður-
stöðum.
Þegar þessi könnun og könnunin í
nóvember eru bornar saman, kemur í
ljós að almennt hafa apótekin hækk-
að verð á fleiri tegundum lausasölu-
lyfja en þau hafa lækkað verð á, segir
ASÍ ennfremur.
Lægst verð í Árbæjarapóteki
fyrir elli- og örorkulífeyrisþega
Í flokki lausasölulyfja voru 18 lyf
skoðuð. „Þegar skoðað er venjulegt
verð þá eru Rimaapótek og Apótekið
Iðufelli með lægsta verðið í 7 tilfell-
um hvort. Laugarnesapótek er með
hæsta verðið í 11 tilfellum. Munur á
hæsta og lægsta verði er minnstur
30% á ofnæmistöflunum Loritín og
mestur á verkjastillandi töflunum
Treo eða 83%. Yfirleitt er munurinn í
kringum 40% á hæsta og lægsta verði
sem venjulegur sjúklingur þarf að
greiða og því getur borgað sig að leita
að lægsta verðinu. Verð til elli- og ör-
orkulífeyrisþega var oftast lægst í
Árbæjarapóteki eða í 12 tilfellum.
Hæsta verðið í flestum tilfellum var í
Laugarnesapóteki eða 9 tilvikum og í
8 tilvikum í Grafarvogs apóteki.
Munur á lægsta og hæsta verði, til
elli- og örorkulífeyrisþega, var
minnstur á Nicorette tyggigúmmíi,
27%, en mestur á Ibufen-töflum eða
91%.“
„Erfitt getur verið að gera verð-
könnun í lyfjaverslunum, en nokkrir
lyfsalar neituðu að gefa upp verð,
aðrir gáfu aðeins upp verð á lausa-
sölulyfjum og enn aðrir gáfu aðeins
upp verð á hluta af þeim lyfjum sem
spurt var um.
Nokkrir neituðu að taka
þátt í könnuninni
Í Reykjavík tóku níu apótek þátt í
könnuninni; Apótekið, Árbæjarapó-
tek, Grafarvogsapótek, Laugarnes-
apótek að hluta til, Lyf og heilsa,
Lyfja, Nesapótek, Rimaapótek og
Skipholtsapótek.
Borgarapótek og Hringbrautar-
apótek eru rekin af sama aðilanum og
neituðu bæði að taka þátt í könnun-
inni. Einnig neitaði Garðsapótek að
taka þátt í henni. Laugarnesapótek
gaf aðeins upp verð á hluta af lyfseð-
ilsskyldum lyfjum og bar við tíma-
skorti. Hins vegar gaf það upp verð á
lausasölulyfjum.
Ekki er lagt mat á þjónustu apó-
tekanna í þessari könnun, heldur er
aðeins um beinan verðsamanburð að
ræða. Í sumum tilvikum njóta við-
skiptavinir sérstaks afsláttar hjá
apótekunum en ekki er tekið tillit til
þess í könnuninni,“ segir loks í nið-
urstöðum lyfjaverðkönnunar ASÍ.
!"#
$
%& '(
)*+ ,, -
.& , -% ' ( /0
'() 1$
2) 3
2) 4$
" '56
* .
0 ,
*
,
)
.
) +
!, -
+* 7
) 7'' 0 6 '
8 ' -%.& ' 8
7.
) 3
,
3
* 6
*
9
%
9 1% "0:
6;
<
=>:
9
"
9
6 9
/
$
9
"0
4
7 9
?> $
%
"> $
%
>
> % $
%
Rimaapótek og Nesapótek
oftast með lægsta verðið
Allt að 40% verð-
munur á lausa-
sölulyfjum á höf-
uðborgarsvæðinu
FRÓN hóf nýverið sölu á þremur
gerðum af snúðum og segir í tilkynn-
ingu að „valinkunnar ömmur og
mömmur hafi lagt
blessun sína yfir
framleiðsluna“.
Um er að ræða
þrjár gerðir, það
er sultusnúða,
kanilsnúða og
súkkulaðisnúða í
400 gramma pok-
um. Einnig er vak-
in athygli á afmælispakka frá fyrir-
tækinu en Frón hefur starfað í 75 ár.
Í afmælispakkanum eru bæði mjólk-
ur- og kremkex sem „eru meðal allra
vinsælustu kextegunda á Íslandi“. Á
umbúðunum má lesa ágrip úr sögu
fyrirtækisins og í hverjum pakka er
skafmiði. Í boði eru 75 vinningar,
nánar tiltekið sex utanlandsferðir
fyrir tvo, 15 máltíðir fyrir tvo á TGI
Fridays og 54 sælkerakörfur frá
Fróni og BKI. Afmælispakkinn fæst
í næstu matvöruverslun.
NÝTT
Afmælispakki
og snúðar
frá Fróni