Morgunblaðið - 04.04.2002, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 04.04.2002, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga VAXTALÆKKUN Seðlabankans hinn 26. mars síðastliðinn var mis- ráðin að mati sendinefndar Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins. Sendinefndin tel- ur að peningamálaaðhald sé ónógt og gæti stuðlað að of miklu lausafé og meiri raunverulegri og væntri verð- bólgu. Geir H. Haarde fjármálaráð- herra segist ósammála þessu áliti sendinefndarinnar. Gengisþróunin frá því Seðlabankinn lækkaði vexti staðfesti að það hafi verið rétt ákvörðun. Birgir Ísleifur Gunnarsson seðla- bankastjóri segir hins vegar að gagnrýni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins staðfesti að það sé alltaf álitamál hvenær taka eigi ákvarðanir um vaxtalækkun, eins og hann hafi bent á í ræðu á ársfundi bankans er vaxta- lækkunin var tilkynnt. Sendinefndin kynnti sér íslensk efnahagsmál á fundum með fulltrú- um stjórnvalda dagana 18.-27. mars síðastliðinn. Í áliti sendinefndarinn- ar segir að hún hvetji stjórnvöld pen- ingamála til þess að hika ekki við að hækka vexti sjáist þess merki að verðbólga sé ekki á undanhaldi eða ef verðbólga virðist ekki ætla að nást undir 4% þolmörkin snemma árs 2003. Sendinefndin segir að á síðasta áratug hafi orðið mjög eftirtektar- verður hagvöxtur í íslenska hagkerf- inu. Landsframleiðsla á mann hafi verið með því hæsta sem þekkist í OECD-ríkjunum. Þessa frammi- stöðu megi að miklu leyti þakka stefnu stjórnvalda í eflingu markaðs- búskapar, hagræðingu í opinberum rekstri, einkavæðingu og öðrum um- bótum sem hafi stuðlað að auknu frumkvæði einstaklinga, fjárfest- ingu og hagvexti. „Góður árangur í að vinna bug á verðbólgu á fyrri hluta síðasta ára- tugar og hagstjórn sem miðaði að stöðugleika og festu lögðu grunn að hagvaxtarskeiðinu,“ segir í áliti sendinefndarinnar. „Mikilvæg í því sambandi var sú framsýni stjórn- valda og staðfesta við að ná tökum á fjármálum hins opinbera og snúa fjárlagahalla fyrri ára í afgang, lækkun á nettóskuldum ríkisins og greiðslur til þess að mæta framtíð- arskuldbindingum opinbera lífeyris- kerfisins. Hins vegar segir sendinefndin að hinn mikli vöxtur á seinni hluta síð- asta áratugar hafi þó leitt til of- þenslu og innra sem ytra ójafnvægis í hagkerfinu. Seðlabankinn nýti sér nýfengið sjálfstæði sitt Sendinefndin styður markmið Seðlabankans um að ná 12 mánaða verðbólgu undir efri þolmörk verð- bólgumarkmiðsins, þ.e. undir 4%, í ársbyrjun 2003 og nálægt 2½% markmiðinu í lok þess árs. Sendi- nefndin telur hins vegar hætt við að verðbólga verði ofan við þennan fer- il. Þá segir nefndin mikilvægt að Seðlabankinn sé frjáls að því að nýta nýfengið sjálfstæði í beitingu stjórn- tækja sinna til þess að fylgja að- haldssamri peningastefnu án þrýst- ings frá öðrum stofnunum hins opin- bera. Viðleitni til að styrkja ríkisfjár- málin segir nefndin að hafi skilað sterkri stöðu ríkissjóðs og hún telur það skynsamlegt langtímamarkmið hjá stjórnvöldum að stefna að sveiflujöfnuðum afgangi sem nemur að meðaltali 1% af vergri landsfram- leiðslu (VLF). Þetta myndi stuðla að meiri þjóðhagslegum sparnaði og tryggja hinu litla opna íslenska hag- kerfi nauðsynlegt borð fyrir báru gegn ytri áföllum. Hagvöxtur á síðasta áratug eftirtektarverður að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Vaxtalækkun Seðla- bankans var misráðin  Hvatt/32 FJÖGURRA daga opinber heim- sókn Davíðs Oddssonar, forsætis- ráðherra Íslands, til Víetnam hófst í gær. Phan Van Khai, for- sætisráðherra Víetnam, tók á móti hinum íslenska starfsbróður sínum við hátíðlega athöfn við forsetahöllina en þetta er í fyrsta skipti sem íslenskur forsætisráð- herra heimsækir landið. Með í för Davíðs er eiginkona hans, Ástríð- ur Thorarensen, auk Ólafs Egils- sonar sendiherra og embættis- manna úr forsætisráðuneytinu og utanríkisráðuneytinu. Þá er og með í för íslensk viðskipta- sendinefnd, skipuð á annan tug fulltrúa frá fjórtán íslenskum fyr- irtækjum. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fyrsta heimsókn íslensks forsætisráðherra til Víetnam  Bjóða íslenska/4 FULLTRÚI frá rannsóknarnefnd flugslysa í Noregi, sem stjórnar yf- irstandandi rannsókn á alvarlega flugatvikinu við Gardermoen-flug- völl við Ósló 22. janúar sl., þegar Boeing 757-200 vél Flugleiða hætti við lendingu, kom til landsins í gær ásamt áheyrnarfulltrúa frá banda- rísku Boeing-verksmiðjunum til að fara yfir málsatvik með hluta áhafn- ar vélarinnar. Rætt verður við flugmennina tvo og yfirflugfreyju í fluginu og einnig við forsvarsmenn flugdeildar Flug- leiða. Í samvinnu við rannsóknar- nefnd flugslysa á Íslandi verður síð- an farið yfir gögn málsins til að kortleggja framhald rannsóknarinn- ar. Gert er ráð fyrir að vinnan hér- lendis standi yfir fram að helgi. Að sögn Þormóðs Þormóðssonar, formanns rannsóknarnefndar flug- slysa, miðar rannsóknin einungis að því að komast að því hvað gerðist yfir Gardermoen-flugvelli og að því að reyna að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Flugatvikið við Gardermoen Stjórnandi rannsóknar hérlendis LYFJAÞRÓUN hf. og breska fyr- irtækið Bespak plc. hafa nýlega und- irritað samstarfssamning um rann- sóknir og þróun á nýjum lyfja- formum sem hægt er að gefa með nefúða. Lyfjaþróun mun leggja til þá þekkingu sem þarf til að þróa ný lyfjaform og sjá um lyfjarannsóknir en Bespak þá tækni sem til þarf við sjálfa lyfjagjöfina sem og markaðs- setningu. Sveinbjörn Gizurarson, prófessor og framkvæmdastjóri Lyfjaþróunar, segir að samstarfssamningurinn sé gífurlega mikilvægur fyrir fyrirtæk- ið og geri því kleift að verða leiðandi í þróun nefúðalyfja í heiminum. Með tilkomu þessa samnings breytist áherslurnar hjá Lyfjaþróun töluvert, eða úr því að vinna aðallega að rann- sóknum yfir í þróun lyfja. Greint var frá samningi fyrirtækj- anna á hlutabréfamarkaðnum í Lundúnum, London Stock Ex- change, í gær. Einnig var sagt frá samningnum í vefútgáfu Financial Times. Mun betri staða en áður Að sögn Sveinbjörns hefur Besp- ak leitað lengi að samstarfsaðila til að færa út starfsemi fyrirtækisins. Hann segir að samningur fyrirtækj- anna geri það að verkum að Lyfjaþróun sé nú komið í mun betri stöðu til að þróa lyfjaform en áður. Til viðbótar við þá þekkingu sem var fyrir í fyrirtækinu bætist nú aðgang- ur að tækni við lyfjagjöf og greiðari aðgangur að mörkuðum. Bespak greiði kostnað og fái afnotarétt af hluta þeirrar þekkingar sem verði til í samstarfinu en Lyfjaþróun verði eigandi einkaleyfa. Lyfjaþróun hf. hefur samstarf við breskt fyrirtæki um þróun nefúðalyfja Gert kleift að verða leiðandi í heiminum  Frá rannsóknum/C4 VERÐMUNUR á lausasölulyfjum í apótekum á höfuðborgarsvæðinu er allt að 40%, samkvæmt niðurstöðum könnunar ASÍ á lyfjaverði sem greint var frá í gær. Segir ASÍ verð- mun milli lyfjaverslana mikinn, bæði á lausasölulyfjum og lyfseðilsskyld- um lyfjum. „Meiri tilhneiging hefur verið til hækkunar hjá elli- og ör- orkulífeyrisþegum,“ segir ASÍ jafn- framt í niðurstöðum könnunarinnar. Fram kemur í samanburði á hækkunum á lyfjaverði milli nóvem- ber 2001 og mars 2002, að afsláttur apóteka til sjúklinga hafi minnkað í kjölfar reglugerðar um þátttöku al- mannatrygginga í lyfjakostnaði sem tók gildi um síðustu áramót. Hafi hún leitt til hærra lyfjaverðs til sjúk- linga, að sögn ASÍ. Mikill munur á lyfja- verði í apótekunum  Rimaapótek lægst/18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.