Morgunblaðið - 04.04.2002, Page 14
AKUREYRI
14 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KONUR ATHUGIÐ!
Áslaug Borg snyrti- og förðunarfræðingur
verður í Hagkaup, snyrtideild á morgun
5. apríl frá kl. 13-18. Hún veitir ráðgjöf
og kynningu á MONSOON förðunarvörum
og Karin Herzog súrefnisvörum.
Verið hjartanlega velkomnar!
AÐALFUNDUR Knattspyrnu-
félags Akureyrar, KA, fer fram í
KA-heimilinu á Akureyri í kvöld,
fimmtudagskvöld, kl. 20.00.
Venjuleg aðalfundarstörf. Fé-
lagsmenn eru hvattir til að mæta á
fundinn.
Aðalfundur
KA í kvöld
VERSLUNIN Ynja var nýlega
opnuð í Hafnarstræti 98 á Akur-
eyri og hafa nýir eigendur tekið
við rekstrinum, þær Elva Sigurð-
ardóttir og Sigríður Gunnars-
dóttir. Verslunin var áður í
Sunnuhlíð og síðan í Brekkugötu
1, en deilir nú húsnæði með versl-
uninni Toto. Ynja selur fjölbreytt
úrval undirfata á konur og þar er
einnig að finna veski af ýmsu
tagi sem og töskur og eins snyrti-
vörur, baðsölt og sápur svo eitt-
hvað sé nefnt.
Morgunblaðið/Kristján
Sigríður Gunnarsdóttir og Elva Sigurðardóttir í versluninni Ynju.
Verslunin Ynja opnuð
FULLTRÚI frá tölvudeild í Háskól-
anum í Skövde í Svíþjóð heldur
kynningarfund í Menntaskólanum á
Akureyri á föstudag, 5. apríl kl.
14.30.
Tölvudeild Háskólans í Skövde
býður upp á BS-nám á breiðu sviði
tölvufræða auk þess sem kostur
gefst á meistaranámi í tölvunarfræð-
um við deildina sem er vel tækjum
búin og í húsnæði sem sérstaklega er
byggt með kennslu og rannsóknir í
tölvuvísindum í huga. Um 600 manns
stunda nám við tölvudeildina.
Í vetur hafa um 25 íslenskir náms-
menn verið við nám í Skövde í tölvu-
og líftölvunarfræði. Frá og með
næsta hausti býður tölvudeildin
einnig upp á nám í hönnun tölvu-
leikja í samvinnu við hugvísindadeild
skólans.
Umsóknarfrestur til náms í tölvu-
deild Háskólans í Skövde rennur út
15. maí fyrir íslenska umsækjendur
ef notað er sérstakt umsóknareyðu-
blað. Almennar forkröfur eru stúd-
entspróf. Umsóknarblöð og upp-
lýsingaefni má finna á slóðinni
www.his.se/ida/island/.
Tölvunám við
Háskólann í Skövde
Kynning-
arfundur
í MA
„ÞAÐ er alveg ljóst að bæjaryfirvöld
verða að gera eitthvað fyrir miðbæ-
inn, ekki bara verslunarinnar vegna,
heldur til þess að auka umferð fólks
þar um, sem einnig kæmi verslun-
inni til góða.
Bæjaryfirvöld eiga að setja hálfan
milljarð króna í miðbæinn á næstu
10 árum eða 50 milljónir króna á
ári,“ sagði Ragnar Sverrisson, kaup-
maður í JMJ og formaður Kaup-
mannafélags Akureyrar, í samtali
við Morgunblaðið.
Miklar breytingar hafa orðið í
verslunarrekstri í miðbænum og þá
aðallega í göngugötunni, frá því að
verslunarmiðstöðin Glerártorg var
opnuð fyrir tæpu einu og hálfu ári.
Frá þeim tíma hafa um 15 verslanir
hætt starfsemi í miðbænum og þær
annaðhvort flutt starfsemi sína og
þá í flestum tilfellum á Glerártorg
eða verið lokað. Aðeins í örfáum til-
fellum hafa aðrar verslanir komið í
miðbæinn í staðinn. Í Amaróhúsinu
hafa t.d. þrjár verslanir hætt starf-
semi.
„Við tölum jafnan um að Akureyri
sé fallegsti bær á Íslandi og þótt víð-
ar væri leitað en það er ekki hægt að
segja um miðbæinn. Ég skil ekki þá
pólitík hér í bæ að setja aðeins smá-
peninga í uppbyggingu og fegrun
miðbæjarins, sem er þó hjarta bæj-
arins. Það er talað um að menn séu
að biðja um ölmusu þegar leitað er
eftir fjármagni í uppbyggingu mið-
bæjarins. Á síðustu átta árum hafa
bæjaryfirvöld sett tvo milljarða í
uppbyggingu íþróttamannvirkja í
bænum, sem ég tel hið besta mál, en
þegar kemur að miðbænum má ekki
tala um nema milljónir eða í mesta
lagi tugmilljónir króna.“
Kaffihús og sérverslanir með
persónulega þjónustu
Ragnar sagði það alveg ljóst að
bæði í Reykjavík og á Akureyri væri
verslun í miðbænum að dragast
saman. Hann sagði það þó sína skoð-
un að miðbærinn á Akureyri hefði
alla burði til að þrífast og það vel en
sér þó ekki fyrir sér að stórmarkaðir
flytji þangað. „Ég vil sjá miðbæinn á
Akureyri með kaffihúsum og sér-
hæfðum verslunum með persónlega
þjónustu. En það er alveg ljóst að
bæjaryfirvöld þurfa að koma þar að
málum og það kostar peninga að
gera miðbæinn aðlaðandi.“
Fyrir síðustu jól samþykkti bæj-
arstjórn að breyta göngugötunni í
vistgötu og opna hana fyrir bílaum-
ferð frá kl. 8-22 alla virka daga. Í
kjölfarið var ráðist í bráðabirgða-
framkvæmdir í götunni, línur mál-
aðar fyrir bílaumferð og bílastæði og
settir upp stöðumælar. Þótt umferð
hafi aukist í kjölfarið er þó enn verið
að loka verslunum við götuna.
Frá opnun Glerártorgs hafa 15 verslanir hætt starfsemi í miðbæ Akureyrar
Setja þarf hálfan milljarð í
uppbyggingu miðbæjarins
Morgunblaðið/Kristján
Miklar breytingar hafa átt sér stað í verslunarrekstri í miðbæ Akureyrar undanfarin misseri.
litlum endurbótum á skíðaútbún-
aðinum gat hún bætt tæknina og
náð enn betri árangri. Jafnframt
rann upp fyrir henni að fjölmargar
aðrar konur áttu við svipuð vanda-
mál að stríða í brekkunum og þar
með fór boltinn að rúlla.
Ennfremur kemur fram í frétta-
tilkynningunni að mjög algengt
vandamál hjá konum sé t.d. að
þeim hætti til að falla aftur fyrir
sig eða á mjöðmina, framendi
skíðanna leitist við að fara í kross
en að aftan leiti skíðin út á við án
þess að við neitt verði ráðið. Fyrir
þessu séu fullkom-lega eðlilegar
skýringar en úrbætur séu einfald-
ar.
Ólík líkamsbygging
kynjanna
Máli sínu til stuðnings nefnir
Jeannie Thoren dæmi um ólíka lík-
amsbyggingu kynjanna. Fyrir það
fyrsta liggi þyngdarpunktur
kvenna lægra og aftar en hjá körl-
um. Meginþunginn hjá körlum er
ofan við mitti en því er að jafnaði
öfugt farið hjá konum. Þegar kona
EINN þekktasti skíðakennari
heims, Jeannie Thoren, kemur til
Akureyrar í lok apríl og heldur
skíðanámskeið fyrir konur í Hlíð-
arfjalli.
Thoren hefur undanfarna ára-
tugi aflað sér mikillar virðingar í
skíðaheiminum fyrir rannsóknir
sínar á líkamsbeitingu kvenna í
skíðabrekkunum og hvernig konur
geta tekið stórstígum framförum
með einföldum og ódýrum breyt-
ingum á skíðabúnaði sínum.
Kenning Thoren gengur út á að
líkamsbygging karla og kvenna er
ólík og skíðabúnað þarf að laga að
þeirri staðreynd.
Hún hefur ferðast víða um heim,
haldið fyrirlestra og námskeið, auk
þess að þróa búnað sem hentar
konum. Tímaritið Skiing hefur
m.a. útnefnt hana sem einn af 25
áhrifamestu einstaklingum skíða-
íþróttarinnar á síðustu 50 árum,
segir í fréttatilkynningu frá Hlíð-
arfjalli.
Jeannie Thoren var sjálf keppn-
ismanneskja á skíðum á árum áður
og komst að því að með tiltölulega
beygir sig fram er aðalþunginn yf-
ir hælunum en hann er á tánum
hjá körlum. Þetta leiðir til þess að
þungi kvenna er aftar á skíðunum,
framendinn er lausari frá snjónum
og erfiðara að hafa stjórn á skíð-
unum. Lausnin er ekki flókin:
Bindingar á skíðum kvenna á ein-
faldlega að færa aðeins framar.
Þetta er þó engin allsherjar-
lausn því fleiri þættir í lík-
amsbyggingu kvenna, svo sem
breiðari mjaðmargrind og minni
styrkur í hnjám og ökklum, leiða
til þess að staða skíðanna er ekki
eins góð og hún getur verið. Lausn
á þessu er m.a. sérstök innlegg í
skíðaklossana og hækkun undir
hælinn.
Jeannie Thoren verður á Ak-
ureyri dagana 19.–21. apríl nk. og
hér er einstakt tækifæri fyrir kon-
ur á öllum aldri til að auka þekk-
ingu sína og færni á skíðum. Fjöldi
þátttakenda er takmarkaður við 20
og áhugasömum konum er því
bent á að hafa samband fyrr en
seinna. Skráning á námskeiðið er í
síma 462 2280.
Heimsþekktur skíðakennari til Akureyrar í lok apríl
Skíðanámskeið fyrir
konur í Hlíðarfjalli
♦ ♦ ♦