Morgunblaðið - 04.04.2002, Side 20
ERLENT
20 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
meistar inn. is
GULL ER GJÖFIN
BARA ÞAÐ BESTA!
bjalkabustadir.is
sími 581 4070
Sumarhús - íbúðarhús
alls konar hús
STJÓRNVÖLD í Ísrael leggja
áherslu á að þau geti ekki sætt sig
við að Palestínumönnum verði
leyft að sprengja sig að samn-
ingaborðinu – ekki megi verð-
launa hryðjuverk. Á hinn bóginn
virðist ljóst að Yasser Arafat,
leiðtogi Palestínumanna, getur
ekki bundið enda á uppreisn
þeirra, intifatah, án þess að sýna
þjóð sinni fram á einhvern árang-
ur af þeim fórnum sem færðar
hafa verið undanfarna átján mán-
uði.
Fréttaskýrendur segja þetta í
hnotskurn vera þann vanda sem
nú steðjar að í Miðausturlöndum.
Sömuleiðis sé þetta ástæða þess
að Anthony Zinni, sáttasemjara
Bandaríkjastjórnar, hefur ekki
tekist að fá deilendur til að sætt-
ast á vopnahlé eða telja Arafat á
að verða við kröfu Ísraela um að
hann láti handtaka hóp manna,
sem grunaðir eru um tengsl við
ýmis öfgasamtök Palestínu-
manna.
Í kjölfar sjálfsmorðsárása um
páskana er beindust gegn ísr-
aelskum borgurum ákvað Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
að úr því að Arafat vill ekki láta
til skarar skríða gegn öfgamönn-
unum þá muni ísraelsk stjórnvöld
sinna verkinu sjálf. Hermenn
hafa haldið inn á heimastjórnar-
svæði Palestínumanna gráir fyrir
járnum og sýna fyllstu hörku;
þúsundir manna hafa verið yfir-
heyrðar og hundruð handtekin en
yfirlýst markmið er að uppræta
hryðjuverkastarfsemi. Aðgerð-
irnar gætu tekið margar vikur, að
því er talið er.
Fráfall Arafats hefði
alvarlegar afleiðingar
Ákvörðun Sharons er áhættu-
söm og gæti reynst afdrifarík.
„Það skiptir engu máli hversu
marga skriðdreka þú sendir inn á
svæðið, það munu samt finnast
menn sem eru tilbúnir að gera
sjálfsmorðsárásir,“ sagði Colin
Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, á þriðjudag. Hann lýsti
nokkrum skilningi á ákvörðun
Sharons en hvatti hann til að
„ljúka verkinu eins fljótt og hugs-
anlegt væri“.
Sérfræðingar segja ummæli
Powells réttmæt. Útilokað sé að
koma alveg í veg fyrir sjálfs-
morðsárásir ef menn eru stað-
ráðnir í að efna til þeirra og hætt-
an sé sú að harkalegar aðgerðir
Ísraela undanfarna daga magni
reiði Palestínumanna til muna og
ali þ.a.l. af sér marga hryðju-
verkamenn til viðbótar.
Sömuleiðis er hætta á miklu
mannfalli þegar búið er að senda
þúsundir hermanna inn á afar
þéttbýl svæði eins og heima-
stjórnarsvæði Palestínumanna
óneitanlega eru. Ekki yrði endi-
lega aðeins um mannfall í röðum
Palestínumanna að ræða – í miklu
návígi væru ísraelskir hermenn,
sem sumir hverjir eru lítt þjálf-
aðir liðsmenn varaliðssveita,
sjálfir auðveld skotmörk.
Þá gætu hernaðaraðgerðirnar í
nágrenni höfuðstöðva Arafats í
Ramallah auðveldlega farið úr
böndunum og Arafat sjálfur jafn-
vel fallið – sem hefði án efa alvar-
legar afleiðingar fyrir stöðu mála.
Myndu leiðtogar arabaríkjanna
t.a.m. verða undir miklum þrýst-
ingi heimafyrir að láta Ísraela
finna til tevatnsins, hefna fyrir
dauða Arafats og svara kalli Pal-
estínumanna um vernd.
Zinni bíður átekta
Sumir bera hins vegar þá von í
brjósti að Ísraelum takist að
handsama þá öfgamenn sem þeir
vilja klófesta. Þannig dragi til
muna úr hættunni á sjálfsmorðs-
árásum í Ísrael og um leið væri
krafan á hendur Palestínumönn-
um, að þeir grípi til aðgerða gegn
öfgamönnunum, orðin óþörf.
Eru uppi getgátur um að Anth-
ony Zinni vonist einmitt til að
þetta verði niðurstaðan, og að
þess vegna hafi hann ílengst í
Miðausturlöndum þrátt fyrir að
ofbeldið hafi farið algerlega úr
böndunum, enda telji hann að í
kjölfarið yrði hægt að hefja samn-
ingaviðræður milli stríðandi fylk-
inga. Ljóst er hins vegar að algert
vantraust ríkir milli deilenda nú
um stundir og því þykir í meira
lagi ólíklegt að björtustu vonir
manna rætist alveg á næstunni.
Reuters
Arabískir Ísraelar á flótta frá ísraelskum hermönnum sem beittu táragasi til að dreifa friðarsinnum er
efndu til mótmæla í gær við varðstöð á vegi frá Jerúsalem til Ramallah á Vesturbakkanum.
Ákvörðun Sharons
gæti reynst afdrifarík
Jerúsalem. AP.
Reuters
Ariel Sharon, forsætisráð-
herra Ísraels.
’ Aðgerðirnargætu tekið margar
vikur ‘
RÓMVERSK-kaþólsku erkibiskups-
dæmin í Orange-sýslu og Los Angel-
es hafa greitt 1,2 milljónir dollara
(rúmar hundrað milljónir króna) í
dómsátt við 37 ára konu sem hélt því
fram í málshöfðun að vinsæll prestur
hefði gerst nærgöngull við sig er hún
var táningur, gert sér barn og síðan
greitt fyrir fóstureyðingu.
Dómsátt kirkjunnar við konuna,
Lori Haigh, er önnur dómsáttin sem
þessi erkibiskupsdæmi hafa gert, og
fjölmiðlar hafa fjallað mikið um, á
átta mánuðum við fórnarlömb
meintrar kynferðislegrar misnotkun-
ar presta. Er þetta eitt margra mála,
er komið hafa upp í Bandaríkjunum
undanfarið, sem beint hafa athyglinni
að umburðarlyndi kirkjunnar gagn-
vart föntum í prestastéttinni.
Haigh hélt fréttamannafund á
skrifstofu lögmanns síns í San Franc-
isco sl. mánudag, áður en hún höfðaði
málið formlega gegn séra John Len-
ihan. Hún heldur því einnig fram, að
tveir aðrir prestar – sem nú eru
komnir til æðstu metorða í erkibisk-
upsdæminu í Orange-sýslu – hafi virt
að vettugi ítrekuð áköll hennar um
hjálp fyrir tuttugu árum. Hún segir
að sér hafi verið misþyrmt kynferð-
islega frá 14 til 17 ára aldurs.
Biskup biðst fyrirgefningar
Biskupinn í Orange sagði í skrif-
legri yfirlýsingu að hann harmaði
þann skaða sem Lenihan hefði valdið
Haigh og bæði hana og öll önnur
fórnarlömb misþyrmingar presta
fyrirgefningar. Talsmenn kirkjunnar
segja að hinir prestarnir tveir neiti
því að hafa nokkurn tíma hitt Haigh.
Hefur annar þeirra, Lawrence Baird,
hótað að höfða meiðyrðamál gegn
henni.
Haigh sagði á fréttamannafundin-
um að hún hefði kynnst Lenihan þeg-
ar hún spilaði á gítar í unglingahljóm-
sveit sem lék við kvöldmessu í Kirkju
heilags Norberts í Orange, þar sem
hann var prestur. Hún hefði tekið
þátt í félagsstarfi á vegum kirkjunnar
fimm daga í viku og því hefðu mis-
þyrmingarnar verið tíðar. Lenihan
hefði ekið henni til og frá ýmsum
unglingasamkomum en á leiðinni
hefði hann lagt bílnum á afviknum
stöðum og misþyrmt henni.
Reyndi að fyrirfara sér
„Foreldrar mínir töldu að mér
væri óhætt í kirkjuhópnum,“ sagði
Haigh, „og að það væri allt í lagi þótt
presturinn kæmi með mig heim
klukkan tvö að nóttu.“ Foreldrar
hennar hefðu ekki haft hugmynd um
misþyrmingarnar fyrr en mörgum
árum seinna. Þegar hún varð barns-
hafandi 16 ára sagði Lenihan henni
að hún yrði að fara í fóstureyðingu.
Hún segist hafa reynt að fyrirfara sér
með því að skera sig á púls með kjöt-
hníf. Samt sagði hún foreldrum sín-
um ekkert.
Séra Lenihan hefði ekið henni í
bankann til að ná í peninga fyrir fóst-
ureyðingunni. „Honum virtist ekki
sérlega umhugað um sálarástand
mitt. Hann lét mig hafa peningana og
sagði að auðvitað gæti hann ekki fylgt
mér í aðgerðina.“ Samkvæmt kaþ-
ólskum sið eru fóstureyðingar dauða-
synd.
Lenihan hefur viðurkennt, í öðru
máli, að hafa haft samræði við konu
undir lögaldri og hafa átt ástarsam-
bönd við margar aðrar konur. Í sept-
ember var honum vikið úr embætti
prests í Kirkju heilags Játvarðs í
Dana Point og í síðustu viku sam-
þykkti hann að láta af prestskap.
„Ég bið fyrir þér“
Haigh sagði ennfremur á frétta-
mannafundinum að þrem árum eftir
að misþyrmingarnar hófust hefði hún
farið á fund Bairds, sem hefði verið
uppáhaldsprestur fjölskyldunnar og
er nú opinber talsmaður erkibiskups-
dæmisins, og talað við hann um sam-
band sitt við Lenihan. Hún segir, að
þegar hún hafi lokið máli sínu hafi
Baird komið upp að henni, kysst hana
og nuddað sér upp við hana. Hún hafi
ýtt honum frá sér, ekki síst vegna
þess að það hafi verið gluggi á hurð-
inni og hún hafi óttast að lenda í
vandræðum. „Þegar ég fór lét Baird
mig hafa símanúmerið sitt og bað mig
að hringja í sig ef ég þyrfti að tala aft-
ur,“ sagði Haigh.
Baird sagði á sínum fréttamanna-
fundi að hann ræki ekki minni til þess
að hafa nokkurn tíma hitt Haigh, en
væri aftur á móti fullviss um að hann
hefði aldrei, á 33 ára prestsferli
sínum, snert nokkra manneskju á
óviðeigandi máta. „Þessar ásakanir
eru algerlega úr lausu lofti gripnar.“
Haigh var á fréttamannafundi
Bairds, og hann ávarpaði hana beint:
„Ég bið fyrir þér.“
Kirkjan greið-
ir 100 milljón-
ir í dómsátt
Irvine í Kaliforníu. Los Angeles Times.
’ Foreldrar mínirtöldu að það væri allt
í lagi þótt presturinn
kæmi með mig heim
klukkan tvö að
nóttu ‘
Kaþólskir prestar vændir um
kynferðislegar misþyrmingar