Morgunblaðið - 04.04.2002, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Eitt magnaðasta ævintýri
samtímans eftir sögu H G Wells
Sýnd kl. 8 og 10.10.
B.i.12. Vit nr. 353Sýnd kl. 4 og 6. Vit 349.
Hin léttleikandi Britney Spears í sinni fyrstu bíómynd sem
kemur öllum í gott skap. Hin frábæru lög „I’m Not A Girl, Not
Yet A Woman“, „Over protected“ ofl. eru m.a. í myndinni.
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 8. Vit 348. B.i. 16.
„Splunkunýtt framhald af
ævintýri Péturs Pan!“
4 ÓSKARSVERÐLAUN...
M.A Besta mynd, besti leikstjóri (Ron Howard), besta aukahlutverk kvenna
(Jennifer Connelly)og besta handrit (Akiva Goldman)
½SG DV
kvikmyndir.com
½kvikmyndir.is
ÓHT Rás 2
HJ Mbl
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. Vit nr. 357
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Vit nr. 363
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i.12. Vit nr. 356
Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal. Vit nr. 358.
Sýnd í Lúxus VIP kl. 5.30, 8 og 10.40. B.i. 16. Vit 335.
kvikmyndir.is
R íkey s ýn i r v e r k s í n í a nddy r i b í ó s i n s
Sýnd kl. 4, 7 og 10. B. i. 12. Sýnd kl. 5 og 10.30. Miðaverð kr. 800.
kvikmyndir.is
SG DV kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
Gleymdu því
sem þú heldur
að þú vitir.
Sýnd kl. 7 og 9.30. B.i. 12.
kvikmyndir.com
SV Mbl
„Splunkunýtt framhald af
ævintýri Péturs Pan!“
Sýnd kl. 5. Ísl. tal.
tilnefningar til Óskarsverðlauna5
Sýnd kl. 5.45. Síðustu sýningar.
Ó.H.T Rás2
Strik.is
SG. DV
Sýnd kl. 10. B.i.12 ára.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 8.
Hverjar eru líkurnar á
því að hið fullkomna
par kynnist í 8 milljón
manna borg?
! "
#$%
Símar: 515 1735 og 515 1731
Bréfasími: 515 1739
Farsími: 898 1720
Netfang: oskar@xd.is
Utankjörfundaratkvæ›agrei›sla vegna
sveitarstjórnarkosninganna 25. maí nk. er hafin.
Kosi› er hjá s‡slumönnum og hreppstjórum um land allt.
Í Reykjavík er kosi› í Skógarhlí› 6 virka daga kl. 9.30 – 15.30.
Utankjörsta›askrifstofan veitir allar uppl‡singar
og a›sto› vi› kosningu utan kjörfundar.
Utankjörsta›askrifstofa
Sjálfstæ›isflokksins
Sjálfstæ›isfólk!
Láti› okkur vita um stu›ningsmenn
sem ekki ver›a heima á kjördag,
t.d. námsfólk erlendis.
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæ›, 105 Reykjavík
ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem
hér á landi bjóðast tónleikar með eins
sjóðandi heitu liði og The Strokes. Að
fá slíka rokksveit til landsins er ekk-
ert minna en hvalreki á fjörur ís-
lenskra tónlistaráhugamanna og eiga
aðstandendur tónleikanna þakkir
skildar fyrir. Það gaf síðan annars lof-
andi tónleikum ennþá meiri vigt að fá
að sjá Leaves á sviði – sveitina sem
búin er að gera samning við erlent út-
gáfufyrirtæki og búist er við miklu af.
Strax í fyrsta lagi Leaves varð ljóst
hvers vegna erlendir risar bitu á agn-
ið. Greinilegir hæfileikar, þétt spila-
mennska, góður söngur, frambæri-
legar lagasmíðar („Race“ og
„Breathe“ eru klassalög og skotheld-
ar smáskífur í réttlátum heimi) og
rétta útlitið. Þeir hafa einfaldlega allt
til að bera til að geta gert rósir í rokk-
inu – hvar sem er í heiminum – ef
vindarnir blása þeim í hag. Gaman, en
þó alveg sorglega sjaldgæft, að sjá ís-
lenska sveit skjóta svo óvænt upp
kollinum, bráðþroska og með fast-
mótaðar hugmyndir. Einu áþreifan-
legu gallana, svolítið óörugga sviðs-
framkomu og full greinilega áhrifa-
valda, má síðan skrifa á ungan aldur
sveitarinnar en ætti að lagast með
eðlilegum þroska.
The Strokes hafa einmitt legið und-
ir þeim ámælum að sækja ótæpilega
mikið í brunn sér eldri samlanda;
Velvet Underground, The Stooges,
Television og viðlíka pönkrokkara.
Það sem bjargar þeim algjörlega fyrir
horn er rétta fasið. Þeir kæra sig koll-
ótta, eru bara í stuði og söngvarinn
Julian Casablanca dælir út hverri
rokkflugunni á fætur annarri. Þrátt
fyrir endurunna tónlistarstefnu hefur
The Strokes leyst úr læðingi ferskari
vinda en leikið hafa um rokkið í lengri
tíma. Tími tveggja mínútna hressi-
legra stuðrokklaga er upp runninn.
Talsmenn þess að sagan, tíska og þar
með straumar og stefnur í rokkinu
endurtaki sig hrósa enda sigri þegar
þeir heyra í The Strokes, White Strip-
es, The Hives o.fl. Loksins, eftir
óþarflega langt skeið yfirgengilegrar
tilfinninganæmni, þunglyndis og
svartnættis, virðist vera að birta til og
að koma til skjalanna töffarar sem
upplýstir eru um að rokkið var upp-
haflega ærslafullt og skemmtilegt og
getur vel verið enn.
Tónleikar The Strokes voru einmitt
vitnisburður um það fyrst og fremst.
Engin hálftíma sóló, engar djúpar og
ofur mínímalískar þagnir heldur
hreint og beint, hávaðasamt og
hressilegt rokk og ról. Fimmmenn-
ingarnir leðurklæddir í réttu stelling-
unum og Julian muldrandi milli laga
rétt eins og nýstiginn úr Scorsese-
mynd. Áður en maður vissi var sveitin
búin að renna sér í gegnum snilldina
sem Is this it? er og einum þremur
öðrum lögum betur, þar á meðal hið
magnaða „Meet Me In The Bath-
room“. Snaggaraleg en skotheld efn-
isskrá frá einnar plötu sveit. Ég hjó
eftir að áhorfendur voru á skemmti-
lega breiðu aldursskeiði, allt frá 15
upp í 45, og allir með á nótunum.
Eini stóri mínusinn við annars stór-
skemmtilega tónleika var húsnæðið
en þar er hvorki við eigendur þess né
tónleikahaldara að sakast heldur er
það fyrst og fremst enn eitt merkið
um skortinn að boðlegri tónleikaað-
stöðu fyrir viðburði af svipaðri stærð-
argráðu. Og hvað voru glerflöskur og
glerglös að gera á rokktónleikum?
Hélt að það væri liðin tíð.
„Hvað er á seyði Ísland?“ Háfleyg
upphafsorð Julians sem ég treysti
mér til að svara en tek um leið sénsinn
á að hljóma eins og gamall pönkrokk-
durgur. Það sem er á seyði er að síð-,
sveim- og seiðrokkið er dautt því
rokkið er orðið skemmtilegt aftur!
Hvað er
á seyði,
Ísland?
Tónlist
Broadway
The Strokes og Leaves
Tónleikar með bandarísku hljómsveitinni
The Strokes þriðjudaginn 2. apríl. Ís-
lenska hljómsveitin Leaves hitaði upp.
Skarphéðinn Guðmundsson
Morgunblaðið/Jim Smart
Julian Casablanca og félagar voru ofursvalir í réttu stellingunum á
sviði Broadways og sönnuðu að rokkið er aftur komið í tísku.