Morgunblaðið - 13.04.2002, Page 1

Morgunblaðið - 13.04.2002, Page 1
SEX Ísraelar biðu bana og meira en áttatíu særðust þegar ung palestínsk kona sprengdi sjálfa sig í loft upp í miðborg Jerúsalem í gær. Atburður- inn olli því að Colin Powell, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, sem staddur er í Ísrael, hætti við að hitta Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu- manna, að máli í dag eins og fyrirhug- að hafði verið og munu Bandaríkja- menn hafa gefið Arafat sólarhring til að fordæma árásina. Powell sagði við fréttamenn að árásin í gær sýndi hversu eldfimt ástandið væri í Mið-Austurlöndum en þangað kom hann á fimmtudag í því skyni að reyna að koma á vopnahléi. Sprengjutilræðið átti sér stað á strætisvagnastöð á Jaffa-götu í Jerúsalem en þar hafa fjölmargar fyrri árásir Palestínumanna einnig átt sér stað. Voru aðstæður á vett- vangi afar ljótar, að sögn vitna, lík hinna látnu voru illa brunnin og margir hinna særðu voru alvarlega slasaðir. Al-Aqsa, vopnuð samtök sem tengsl hafa við Fatah-hreyfingu Yass- ers Arafat, leiðtoga Palestínumanna, lýstu tilræðinu á hendur sér. Sharon gefur sig ekki Powell fordæmdi sprengjutilræðið en hann hafði fyrr um daginn rætt við Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísr- aels, í því skyni að reyna að telja Ísr- aelsstjórn á að hætta hernaðarað- gerðum sínum á svæðum Palest- ínumanna. Hann viðurkenndi á fréttamannafundi eftir viðræður hans og Sharons að sér hefði mistekist að fá Sharon til að sættast á áætlun um hvenær aðgerðunum yrði hætt. „Ég vona að við getum náð samkomulagi um það,“ sagði Powell aðeins. Sharon ítrekaði hins vegar að Ísr- ael ætti í stríði og að markmiðið væri að uppræta þá ógn sem stafaði af pal- estínskum hryðjuverkamönnum. Því markmiði hefði enn ekki verið náð. Ísraelar brugðust hart við sprengjutilræðinu í gær. Sagði Daniel Seaman, talsmaður stjórnvalda, að árásin sýndi að sú ákvörðun Ísraela að halda áfram hernaðaraðgerðum sínum þrátt fyrir mótmæli Banda- ríkjastjórnar, væri fyllilega réttmæt. „Hvað annað getum við gert?“ spurði hann. „Heimurinn getur séð að við eigum engra annarra kosta völ.“ Mohammad Dahlan, yfirmaður palestínsku öryggislögreglunnar á Gazasvæðinu, sagði Sharon hins veg- ar bera ábyrgð á sprengjutilræðinu vegna áframhaldandi aðgerða Ísr- aelshers. „Þetta er afleiðing þeirrar andúðar sem Ariel Sharon hefur skapað með blóðbaðinu og glæpunum sem framdir hafa verið gegn palest- ínsku þjóðinni í Jenín, Nablus og ann- ars staðar,“ sagði hann og vísaði þar til staðhæfinga um að Ísraelsher hafi framið fjöldamorð á Palestínumönn- um á undanliðnum dögum. Powell frestar fundi sínum með Arafat Jerúsalem. AFP, AP.  Við upplifum/26 Reuters Frá vettvangi sjálfsmorðsárásarinnar í Jerúsalem í gær. Auk ódæðismannsins biðu a.m.k. sex bana. Sex Ísraelar féllu í sjálfsmorðsárás ungrar palestínskrar konu í Jerúsalem 85. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 13. APRÍL 2002 ÞRJÁTÍU og níu ára gömul áströlsk kona, sem missti mann sinn af slysförum fyrir tólf ár- um, hefur áfrýjað til hæstarétt- ar Ástralíu úrskurði undirrétt- ar þess efnis að bætur, sem konan fékk vegna fráfalls eig- inmannsins, skuli lækkaðar sökum þess hversu hugguleg hún er. Undirréttur í Perth úrskurð- aði í desember 2000 að bætur konunnar, Teresu de Sales, skyldu lækkaðar um 20% – nið- ur í um 30 milljónir ísl. króna – sökum fegurðar de Sales en gömul áströlsk lög kveða á um að hafa beri í huga möguleika konu til að finna sér nýjan eig- inmann þegar dánarbætur eru ákvarðaðar. Löggjöfin endurskoðuð De Sales er allt annað en ánægð með úrskurðinn og segir lögin sem stuðst var við úrelt. „Maður á ekki að giftast til fjár heldur vegna þess að maður elskar einhvern,“ segir hún. Vill hún fá fullar bætur frá hinu opinbera burtséð frá því hversu líklegt það er að hún finni sér annan eiginmann. Eiginmaður de Sales drukknaði árið 1990 þar sem hann vann að stífluviðgerðum og það varð því hlutskipti de Sales að ala ein upp tvö börn þeirra hjóna. Hæstiréttur Ástr- alíu fjallar um mál hennar í næstu viku en yfirvöld í Vestur- Ástralíuríki hafa hins vegar þegar ákveðið að láta endur- skoða umrædda löggjöf. Of huggu- leg til að hljóta full- ar bætur Perth. AFP. PEDRO Carmona, sem tekið hefur við embætti forseta Venesúela til bráðabirgða, sagði í gær að boðað yrði til nýrra forsetakosninga í landinu innan árs. Þá er fyrirhugað að efna til þingkosninga í desember nk. Hugo Chavez lét af forsetaembætti í gær- morgun vegna þrýstings frá hernum, í kjölfar götuóeirða í Caracas á fimmtudag þar sem að minnsta kosti ellefu létu lífið, og um hundrað særð- ust. Áhöld eru þó um hvort Chavez sagði af sér eða var steypt af stóli. Verð á olíu hélt áfram að lækka í gær þar eð brottför Chavez af for- setastóli var talin auka líkurnar á meira framboði á olíu frá Venesúela, sem er fjórða mesta olíuframleiðslu- ríki heimsins. Virtist sem allsherjar- verkfall, sem staðið hefur í Venesúela í fjóra daga, væri að leysast, en það hafði heft framleiðslu ríkisolíufélags- ins, PDVSA. Stjórnendur fyrirtækis- ins sneru aftur til vinnu sinnar í gær- dag og fullyrtu að framleiðsla yrði komin í eðlilegt horf innan örfárra daga. Ari Fleischer, talsmaður Banda- ríkjastjórnar, sagði að stjórn Venes- úela hefði með gjörðum sínum valdið því að for- setinn hraktist frá völdum. „Stjórnin bældi niður frið- samleg mótmæli fólksins,“ sagði hann. Hefðu stuðningsmenn forsetans „haft skipanir“ um að skjóta á óvopnaða mótmælendur, en her og lögregla hefðu neitað að styðja þátt stjórnvalda í slíkum mannrétt- indabrotum. Síðasti menntamálaráðherrann í stjórn Chavez, Aristobulo Isturiz, sagði að forsetinn hefði ekki sagt af sér, heldur hefði hann hreinlega verið tekinn til fanga. Isturiz var við hlið Chavez í forsetahöllinni uns forsetinn var fluttur til herstöðvar í Caracas, skömmu eftir að hópur herforingja kom á skrifstofu hans og krafðist þess að hann léti af völdum. „Chavez sagði herforingjunum að hann myndi ekki segja af sér, að þeir skyldu halda áfram með byltinguna og axla ábyrgð á henni,“ sagði Isturiz. „Þeir fluttu hann á brott sem fanga.“ Clodosvaldo Russian ríkisendur- skoðandi tók enn dýpra í árinni en hann sagði að Chavez hefði verið steypt af stóli, valdarán hefði átt sér stað í Venesúela. Boða forsetakosn- ingar innan árs Caracas, Washington, London. AFP. Pedro Carmona  Chavez segir af sér/24 XANANA Gusmao, frelsishetja Austur-Tímora, lofaði friði, lýð- ræði og vinsamlegum samskiptum við Indónesíu í gær á síðasta kosningafundi sínum fyrir for- setakosningarnar á morgun. Búist er við að hann sigri með miklum yfirburðum og verði forseti Aust- ur-Tímors sem fær fullt sjálfstæði 20. maí. Gusmao var leiðtogi skæruliða Fretelin-hreyfingarinnar, núver- andi stjórnarflokks landsins, í 24 ára baráttu hennar fyrir sjálf- stæði frá Indónesíu. Hann hefur sagt skilið við Fretelin og býður sig fram sem óháður. Eftirlitsmenn Evrópusambands- ins sögðu að andstæðingar Gusmaos hefðu hafið herferð fyrir því að kjósendur skiluðu ógildum atkvæðaseðlum. Stuðningsmenn Gusmaos segja að nokkrir menn í Fretelin standi fyrir þessu og markmiðið sé að minnka meiri- hlutastuðning hans og draga úr áhrifum hans eftir kosningarnar. Aðeins einn annar er í fram- boði, Francisco Xavier do Amaral, sem lýsti yfir sjálfstæði Austur- Tímors 1975 og var forseti lands- ins í níu daga fyrir innrás Indónesíuhers. Stuðningsmaður Amarals er hér á kosningafundi í Dili. Xanana Gusmao lofar friði Reuters

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.