Morgunblaðið - 13.04.2002, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 37
Í GREIN í Morg-
unblaðinu 9. apríl sl.
fjallar Gísli S. Ein-
arsson alþingismaður
um setningarræðu
mína á Búnaðarþingi
2002 og fer þar ekki
alveg rétt með. Þar
var ekki fjallað um
Þórshöfn en hins veg-
ar leiddar líkur að því
að íbúar Raufar-
hafnar hefðu tak-
markaða möguleika til
áhrifa í landsmálum
okkar.
Ræðuna í heild má
skoða á vef íslensks
landbúnaðar, www.-
landbunadur.is.
Í ljósi umfjöllunar
Gísla væri fróðlegt að
vita hvað hann telur
eðlilegan mismun í
vægi atkvæða við
kosningar til Alþingis,
annars vegar í Norð-
austurkjördæmi (kjör-
dæmi Raufarhafnar)
og hins vegar í
Reykjavíkurkjör-
dæmunum. (Nánar til-
tekið, hve mörg at-
kvæði á bak við hvern
þingmann á hvoru svæði.)
Í ljósi svaranna mætti Gísli síð-
an velta fyrir sér hve marga þing-
menn Íslendingar, sem eru nálægt
285 þúsund, ættu að eiga á Evr-
ópuþingi framtíðarinnar, verði íbú-
ar innan stækkaðs Evrópusam-
bands um 500 miljónir eins og ráð
er fyrir gert og þingmenn Evrópu-
þingsins um 500.
Um vægi minnihlutahópa
Ari Teitsson
Höfundur er formaður Bænda-
samtaka Íslands.
Fyrirspurn
Hve marga þingmenn,
spyr Ari Teitsson, ættu
Íslendingar að eiga á
Evrópuþingi framtíðar-
innar?
hafa sent Arafat reikninga út af
fólki sem sent hefur verið til sjálfs-
morðsárása. Árásarmennirnir voru
reiknaðir út á fimmtán þúsund ís-
lenskar krónur stykkið, og Arafat
var beðinn um að fjármagna níu
stykki á viku. Bush lítur því á Ara-
fat sem hryðjuverkamann og
ómerkilegan lygara.
Á síðasta ári skrifuðu arabískar
mæður Arafat bréf, þar sem þær
báðu hann um að láta menn sína
hætta að safna saman börnum og
unglingum, til þess að ráðast á
varðstöðvar ísraelska hersins. Þær
sögðu í bréfi sínu að útsendarar
palestínsku heimastjórnarinnar
væru jafnvel mættir með rútur,
þegar skólum lyki, til þess að flytja
börnin í fremstu víglínu.
Höfum einnig í huga að Palest-
ínumenn (Arabar) geta bundið
enda á þetta stríð, hvenær sem er.
Það er sífellt talað um árásir Ísr-
aela á Palestínumenn. Það er ekki
alveg rétt. Það væri að æra óstöð-
ugan að reyna að átta sig á því
hvor aðilinn er að hefna fyrir
hvaða ódæðisverk, úr því sem kom-
ið er. Báðir hafa framið þau mörg
og ljót. Hinsvegar er enginn vafi á
því að ef sjálfsmorðsárásum yrði
hætt, á morgun, þá væri um leið
lokið innrásum Ísraela í þorp Pal-
estínumanna. Og þá væri kannski
hægt að byrja að tala saman.
Saudi-Arabar hafa lagt fram
merkilega friðartillögu. Hún felst í
því að öll arabaríkin viðurkenni til-
verurétt Ísraels, og taki upp
stjórnmálasamband við landið.
Gegn því að Ísraelar veiti Palest-
ínumönnum þau sjálfsögðu réttindi
að stofna sjálfstætt ríki sitt, í
þessu landi sem þeir hafa byggt
um þúsundir ára, ásamt gyðingum.
Nokkur arabaríki hafa hinsvegar
stutt þær öfgahreyfingar Palest-
ínumanna, sem hafa mest unnið að
því að eyðileggja friðarferlið, með
hryðjuverkum. Ef ríkjum Araba er
alvara, ætti það ekki að vera of-
verk þeirra að láta þetta fólk hafa
hægt um sig.
En nú er málið líklega að leys-
ast, því íslenska kirkjan hefur látið
það til sín taka. Hjálparstofnun
hennar hefur sent Arafat tvo
blaðafulltrúa, sem eru duglegir við
að segja að þetta sé allt Ísraelum
að kenna. Yfirmaður blaðafulltrú-
anna, herra biskupinn yfir Íslandi,
leggur línuna. Hann talaði, hinn
fimmta þessa mánaðar, um fréttir
þess efnis að ísraelskir hermenn
sætu um tvö hundruð palestínska
vígamenn í Fæðingarkirkjunni í
Betlehem. Þar voru margir sak-
leysingjar innan dyra, en palest-
ínskir vígamenn leita iðulega skjóls
á bakvið slíka. Enginn óvilhallur
aðili sá hvað þar gerðist, en Palest-
ínumenn héldu því fram að Ísrael-
ar létu skotin dynja á bakdyrum
kirkjunnar. Fréttamenn, í fjar-
lægð, sögðu að þeir hefðu heyrt
skothvelli í borginni. Biskupinn yf-
ir Íslandi sagði að það hitti kristna
menn í hjartað, þegar skotið væri á
þennan mesta helgidóm þeirra.
Það væri kannski ástæða til að
spyrja biskupinn að því hvar skotin
lenda, sem koma út úr kirkjunni.
Biskupinn sagði einnig að hryðju-
verkaárásir á óbreytta borgara, í
Ísrael, væru til komnar vegna þess
hve vondir Ísraelar væru við
Araba. Það sagði Osama bin Laden
líka um árásina á Bandaríkin ell-
efta september.
Eins og ég sagði í upphafi hlýtur
mönnum að hrjósa hugur við þeim
hrottaskap sem Palestínumönnum
er sýndur, í dag. Ariel Sharon á
sér fáa formælendur. Að leggja
alla sök á herðar annars deilenda,
mun hinsvegar ekki auka líkur á
sáttum.
Höfundur er fréttamaður.
Mið-Austurlönd
Umræðan um það sem
er að gerast í Mið-
Austurlöndum, segir Óli
Tynes, er dálítið um of
einfölduð.
STÓRÚTSALA
á nýjum bílum
Opið um helgina frá kl. 12-17
Vél: 2000 cc vél, 133 hestöfl, rafeindastýrð efi fjölinnsprautun.
2000 cc vél, 133 hestöfl, rafeindastýrð efi fjölinnsprautun.
Staðalbúnaður: Tveir loftpúðar, hraðanæmt vökvastýri, veltistýri, ABS-bremsur, diskabremsur á öllum hjólum, TCS spólvörn, útvarp, 6 hátalarar,
samlitir stuðarar, samlitir speglar, rafstillanlegir útispeglar, þokuljós að framan og aftan, litað gler, fjölstillanleg framsæti, niðurfellanleg aftursæti
60/40, fjarstýrð samlæsing, stafræn klukka, hástætt bremsuljós, hreyfiltengd þjófavörn, barnalæsingar, bílbeltastrekkjarar, hæðarstillanleg
öryggisbelti, rafmagn í rúðum.
Staðalbúnaður: Hraðanæmt stýri, vökva- og veltistýri, 70% tregðulæsing á afturdrifi, 6x15“ álfelgur og 205/75/15 dekk, útvarp og segulband, 6
hátalarar, rafmagnsloftnet, rafstýrðir útispeglar, hiti í speglum, rafmagnsrúður að framan og aftan, hiti í afturrúðu með tímarofa, samlæsingar,
afturrúðuþurrka, litað gler, 4 höfuðpúðar, hæðarstillanleg aðalljós, eldsneytistankur opnanlegur innanfrá, hreyfiltengd ræsivörn, ABS-bremsur,
hástætt bremsluljós, 2 öryggisloftpúðar aftempraðir og rafmagnsúrtak í farangursrými, toppgrindarbogar, glasahöldur, varadekksgrind, varadekkshlíf.
Bílabær — Bílaheildsala
Dugguvogi 10 • Sími 530 9500
Opið í dag og á morgun frá kl. 12—17 • Opið virka daga frá kl. 10-18.30
Stórútsala á nýjum bílum
Sölumenn: Sigurður B. Sigurðsson, Axel Bergmann og Jóhann Lövdal
Kia Sportage 2,0
Classic TDI Diesel
Verð áður kr. 2.150.000
Okkar verð kr. 1.890.000
Verð kr. 1.390.000
3ja ára verksmiðjuábyrgð
3ja ára verksmiðjuábyrgð
Kia Clarus GLX 2,0
Verðsamanburður:
Primera 2,0 kr. 2.350.000
Sonata 2,0 kr. 2.090.000
Mazda 626 2,0 kr. 2.390.000
Toyota Avenis 2,0 kr. 2.439.000
Kia Clarus 2,0 okkar verð kr. 1.390.000
Síðasta sending uppseld
Fengum nokkra viðbótarbíla á þessu frábæra tilboði!
Geisladiskahulstur
aðeins 500 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is