Morgunblaðið - 13.04.2002, Blaðsíða 70
FÓLK Í FRÉTTUM
70 LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KL. 12.00 - 15.00
KL. 17.00 - 19.00
KL. 12.00 - 22.00
TÓNLISTARMAÐURINN Einar
Tönsberg, sem einhverjir muna eft-
ir í sveitinni stuttlífu Cigarette, hef-
ur búið í Lundúnum í fjögur ár, þar
sem hann var m.a. í hljóðupptök-
unámi. Hann hefur undanfarið
starfrækt þar popp/rokksveitina
Lorien ásamt þeim Fabio Ciarcell-
uti og Carlo Polli og á mánudaginn
kemur einmitt út fyrsta plata
þeirra félaga, sem kallast Under
The Waves og er gefin út af
merkinu Instant Karma. Það gleður
að sjálfsögðu íslenska hjartað að
geta sagt frá því að Lorien hafa
verið að fá glimrandi dóma fyrir
tónlist sína í bresku pressunni. Í
október síðastliðnum kom nefnilega
út fyrsta smáskífan, með laginu
„Shivering Sun“ og segja þeir sem
á hafa hlýtt að Lorien fangi anda
Coldplay fullkomlega; dimmleitt en
hlustendavænt popp, með hæfilegri
vigt og hæfilegum markaðsvæn-
leika.
Þannig hafa NME, Evening
Standard og Time Out mært sveit-
ina í bak og fyrir. The Big Issue
kallar sveitina „Nýju Coldplay“ og
hið virta blað Times segir breiðskíf-
una fullkomið dæmi um áðurnefnda
tónlistarnálgun og sveitin hafi alla
burði til að feta í fótspor Travis,
Coldplay og David Gray, hvað vin-
sældir varðar.
Strætóstöð
Einar var á gangi um stræti
Lundúna er Morgunblaðið bjallaði í
hann.
„Já, platan hefur verið að fá al-
vega svakalega fína dóma,“ stað-
festir hann. „En það er nú eitt.
Annað er að selja þetta (hlær).“
Eins og fram hefur komið er Ein-
ar nú búinn að vera í London í fjög-
ur ár. En segist nú þó ekki vera
orðinn ráðsettur.
„Ja...svoleiðis. Það á í raun eng-
inn heima hérna. Þetta er svolítil
strætóstöð. Fólk kemur og fer, það
er mikið af ungu fólki sem kemur
hingað og reynir fyrir sér í ein-
hverju. Svo þegar það eldist fer
það.“
Einar segir aðdragandann að
plötunni langan.
„Við gerðum „demó“ fyrir þrem-
ur árum síðan. Það er afskaplega
mikil pólitík í þessum útgáfubransa,
þannig að við erum búnir að vera
að bíða svolítið. En að vinna plöt-
una sem slíka gekk vel.“
Plötuna unnu þeir félagar með
Mike Hedges, virtum upptökustjóra
sem m.a. hefur unnið með U2, Cure
og Manic Street Preachers.
„Það var alger draumur að vinna
með honum,“ segir Einar. „Hann er
svona ljúfur risi. Ofsalega stór mað-
ur með ofsalega fallegt hjarta. Að
maður tali ekki um reynsluna sem
hann býr yfir.“
Þess má geta að Lorien fara í
hljómleikaferðalag um Bretland
sem byrjar 18. apríl og stendur til
30. apríl.
Morgunblaðið/Kristinn
Einar Tönsberg og félagar í Lorien hafa fengið góð viðbrögð við
væntanlegri plötu þeirra, Under the Waves.
Upp á öldukambinn
Breskir fjölmiðlar lofa íslensk-ítalsk-spænsku sveitina Lorien
TENGLAR
.....................................................
www.lorienmusic.com
arnart@mbl.is
Nöfnum eins og Cliff Robertson
(Charly) og Jack Nicholson (Gauks-
hreiðrið) hefur heyrst fleygt en einn-
ig þykja Dustin Hoffman (Rain Man),
Tom Hanks (Forrest Gump), Billy Bob
Thornton (Sling Blade), Russell
Crowe (A Beautiful Mind) og Sean
Penn (I Am Sam) fýsilegir kandídat-
ar.
Per Chr. Ellefsen sagðist aðspurður
hafa fulla trú á því að Bandaríkja-
menn færu vel með efniviðinn og það
yrði spennandi að sjá niðurstöðurnar.
Elling er ekki fyrsta norska myndin
sem fær „Hollywood“-yfirhalningu en
áður hefur verið gerð útgáfa af Hovet
over Vannet og í maí verður end-
urgerð myndarinnar Insomnia eftir
Erik Skjoldbjærg frumsýnd, en þar
fara Al Pacino, Robin Williams og Hil-
ary Swank með aðalhlutverk.
HIN lofi hlaðna mynd frá Noregi, Elling,
er nú á leið í víking til Ameríku. Það er
enginn annar en Sigurjón Sighvatsson,
sem keypt hefur réttinn á að búa til banda-
ríska útgáfu af þessari óskarstilnefndu
mynd sem Petter Næss leikstýrir.
Sigurjón er þegar farinn á stúfana í leit
að leikurum og leikstjóra en norsk blöð
eru hins vegar mikið að velta því fyrir sér
hver muni fara í föt þeirra Svens Nordins
og Pers Chr. Ellefsens, sem leika geðrösk-
uðu hetjurnar í upprunalegu myndinni.
Frændur okkar Norðmenn rýna nú í
kvikmyndasöguna og líta til frægra leik-
ara sem farið hafa með rullur manna sem
ekki hafa verið með allar skrúfur þéttbolt-
aðar. Atriði úr Elling.
Elling fer til Ameríku
Sigurjón Sighvatsson endurgerir norska metaðsóknarmynd