Morgunblaðið - 13.04.2002, Blaðsíða 20
LIONSKLÚBBURINN Agla gaf ný-
verið þrekhjól á Sambýlið Kveldúlfs-
götu 2 í Borgarnesi. Þrekhjólið er
keypt fyrir peninga úr líknarsjóði
klúbbsins en verkefnanefndin
ákveður hvaða málefni eru styrkt. Að
þessu sinni kom upp hugmyndin að
gefa strákunum á sambýlinu þrekhjól
til þess að æfa sig á og bæta heilsuna.
Það var Árni Ásbjörn Jónsson sem
fyrstur prófaði hjólið og má sjá hann
ásamt öðrum heimilismönnum og
fulltrúum Öglu á meðfylgjandi mynd,
sem var tekin við afhendinguna.
Lions gefur
þrekhjól á
sambýli
Borgarnes
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Árni Ásbjörn Jónsson prófaði hjólið fyrstur.
Í ÞÍÐVIÐRINU að undanförnu hafa
orðið til krapablár víða, sumar stór-
ar og hættulegar mönnum og
skepnum, aðrar smáar og mein-
lausar.
Á myndinni er líkast því að ís-
skænið hafi brotnað upp og reist sig
til að mótmæla ótímabærri vorkom-
unni en storknað jafnharðan.
Myndin er tekin á Hlíðardal nærri
Skarðsseli, en um þann stað orkti
skáldkonan Bína Björns um 1896,
þá heimilismaður í Reykjahlíð, fag-
urt kvæði sem endar á vísunni:
Ég elska hér bæði hraun og hól
og himin sem yfir öllu hvílir,
hlíðanna gula og græna kjól
gnípu ljósa sem dalnum skýlir,
ég sakna einskis og óska mér
með ástvinum stöðugt að búa hér.
Undarlegar ísnálar
Morgunblaðið/BFH
Mývatnssveit
LANDIÐ
20 LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MIKIÐ var um dýrðir í Höllinni í
Vestmannaeyjum á laugardags-
kvöld. Þá fór þar fram fegurðar-
keppni Suðurlands og tóku stúlkur
hvaðanæva af Suðurlandi þátt í
keppninni.
Það var Eyjastúlkan Sigurlaug
Aðalsteinsdóttir sem að lokum stóð
uppi sem sigurvegari, en áður
hafði hún hampað titlinum besta
ljósmyndafyrirsætan. Í öðru sæti
hafnaði Berglind Rós Gunnars-
dóttir Hveragerði og í þriðja sæti
Margrét Grétarsdóttir Vestmanna-
eyjum. Oroblou-stúlkan var kjörin
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Vestmannaeyjum. Þessar stúlkur
verða fulltrúar Suðurlands í
keppninni Ungfrú Ísland síðar í
vor.
Vinsælasta stúlkan í hópnum var
kjörin Margrét Grétarsdóttir og
sportstúlkan var kjörin Eva Harð-
ardóttir Hveragerði.
Ungfrú Suður-
land kjörin
Vestmannaeyjar
VORIÐ er að koma og fýllinn far-
inn að huga að varpi og byrjaður
að para sig. Víða má sjá fýlana
sitja tvo og tvo saman í berginu
austan í Reynisfjalli í Mýrdal eins
og sést á myndinni sem fréttarit-
ari Morgunblaðsins tók. Þurfa
fýlarnir að hafa töluvert fyrir því
að halda í maka sinn því að aðrir
fuglar reyna stöðugt að stinga
undan þeim. Í Reynisfjalli er
einnig ritu- og lundavarp.
Vorhugur
í fýlnum
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Fagridalur
„ÞAÐ er gefið, sagt spil og pass, svo er spilunum
hent og hlegið og borgað,“ sagði Þórunn Ragnars-
dóttir á Kornsá en hún var ein af 40 húnvetnskum
lomberspilurum sem komu saman í Félagsheimilinu
á Blönduósi nýlega. Undir þessi orð tóku flestir og
bættu við að grundvallartilgangurinn með lombern-
um væri að hafa gaman af spilinu og ekki skemmdi
fyrir að vera réttum megin við strikið.
Ævar Þorsteinsson í Enni sagði að spil þetta væri
ættað frá Spáni og hefði komið til landsins með
dönskum kaupmönnum um 1850 og hefði þá þegar
orðið vinsælt. Ævar sagði að áhugi fyrir lombernum
hefði dvínað mjög hin síðari ár nema í Húnavatns-
sýslum og þar væri áhuginn vaxandi ef eitthvað
væri.
Hlegið og borgað í lomber
Glaðbeittir húnvetnskir lomberspilarar, frá vinstri: Magn-
ús R. Sigurðsson, Hnjúki, Jón Böðvarsson, Syðsta-Ósi,
Birgir Gestsson, Kornsá, og Birgir Árnason, Skagaströnd.
Blönduós
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson