Morgunblaðið - 13.04.2002, Blaðsíða 23
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 23
ÁRNI M. Mathisen sjávarútvegs-
ráðherra segir að ekki hafi verið
ástæða til að umbuna sérstaklega
þeim íslensku skipum sem fyrst hófu
veiðar á kolmunna, með því að beita
svonefndri frumherjaheimild við út-
hlutun kolmunnakvótans. Slíkt sé
alltaf mikið matsatriði og heimildin
hafi ekki átt við í þessu tilfelli.
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, sagði á aðalfundi fé-
lagsins í vikunni að það væru mikil
vonbrigði að sjávarútvegsráðherra
skyldi ekki nýta frumherjaheimild
við bráðabirgðaúthlutun kolmunna-
kvótans fyrr á þessu ári. Sagði Þor-
steinn Már að ef ekki kæmi til frum-
herjaréttar við endanlega úthlutun,
muni hlutdeild Samherja í veiðunum
minnka og úthlutun félagsins verði
ekki eins mikil og ráð var fyrir gert.
Frumherjaákvæðið svokallaða er
að finna í lögum um fiskveiðar utan
lögsögu Íslands. Samkvæmt því get-
ur ráðherra ákveðið að allt að 5%
heildarafla verði sérstaklega úthlut-
að til þeirra skipa sem fyrst hófu
veiðar úr viðkomandi stofni.
Ekki heldur beitt ákvæði um
afsal kvóta innan lögsögu
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra bendir á að í lögum um
fiskveiðar utan lögsögu Íslands sé
einnig að finna ákvæði sem heimili
ráðherra að binda úthlutun úr fiski-
stofni utan lögsögu því skilyrði að
skip afsali sér aflaheimildum innan
lögsögu Íslands, sem nemi allt að
15% af þeim aflaheimildum sem skip
fær úthlutað úr viðkomandi stofni í
úthafinu, í þorskígildum talið. Þessu
ákvæði hafi m.a. verið beitt við út-
hlutun úthafskarfakvótans. Hann
segir að ekki megi gagnrýna það að
frumherjaákvæðinu skuli ekki beitt,
án þess að taka einnig tillit til þessa
ákvæðis. „Báðar þessar lagaheimild-
ir eru mikið matsatriði og ég hef kos-
ið að beita þeim ekki, hvorki við út-
hlutun kolmunnakvótans né við
úthlutun kvóta í Barentshafi. Að
mínu mati hefur ekki þurft að umb-
una þeim skipum sem voru fyrst
hófu veiðar, umfram það sem þau fá
samkvæmt almennum úthlutunar-
reglum. Ég hef heldur ekki talið
ástæðu til þess að draga frá heim-
ildum þeirra innan lögsögunnar í
staðinn fyrir það sem þeir fá úthlut-
að í úthafinu. Ég hef hinsvegar ekki
heyrt Þorstein Má, né nokkurn ann-
an sem fengu úthlutað kolmunna-
kvóta, gagnrýna það,“ segir Árni.
Samkvæmt reglugerð sjávarút-
vegsráðherra frá því í mars sl. er Ís-
lendingum heimilt að veiða samtals
282 þúsund tonn af kolmunna á árinu
2002. Fiskistofa hefur þegar úthlut-
að 80% af leyfilegum heildarafla en
samkvæmt reglugerð skal endan-
legri úthlutun aflahlutdeilda og afla-
marks lokið fyrir 1. maí nk. Árni seg-
ir að frumherjaréttinum verði ekki
beitt við endanlega úthlutun kvót-
ans.
Ekki ástæða
til að umbuna
frumherjum
Gengi dollars 97,70
Krónan
ekki
hærri í 11
mánuði
GENGI krónunnar hækkaði
um 0,7% í gær og stendur
vísitala krónunnar í 134,15.
Hefur gengi krónunnar ekki
verið hærra síðan um miðjan
maí árið 2001. Gengi dollars
var við lokun markaða í gær
97,70, evran stóð í 85,9 krón-
um og breskt pund í 140,4
krónum.
Mjög lífleg viðskipti voru á
millibankamarkaði í gær og
námu þau 6,3 milljörðum
króna, samkvæmt upplýsing-
um frá Halldóri Hildimund-
arsyni á millibankaborði Ís-
landsbanka.
Gengishækkun rakin til
væntanlegra verðbólgutalna
Ástæðu gengishækkunar-
innar má líklega rekja til
verðbólgutalna sem Hagstof-
an birtir á mánudaginn og
virðist því nokkur bjartsýni
ríkja í garð talnanna.
Markaðsaðilar búast við
0,2% hækkun vísitölu neyslu-
verðs en hún hækkaði um
0,4% í síðustu mælingu. Lík-
legt er að gengishækkunin í
gær gangi að einhverju leyti
til baka í næstu viku ef verð-
bólgutölurnar verða túlkaðar
neikvætt, samkvæmt upplýs-
ingum frá Íslandsbanka. Alltaf á þriðjudögum