Morgunblaðið - 13.04.2002, Blaðsíða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 31
Missið ekki af tónleikum
píanóleikarans
JOHN LILL
á Sunnudags-matinée
14. apríl kl. 16.00.
Á efnisskrá eru verk eftir Mozart, Brahms,
Shostakovich og Beethoven.
Miðasala í símum 595 7999 og 800 6434 virka daga
á milli kl. 9.00 og 17.00 og á slóðinni www.midasala.is,
en einnig má leggja inn miðapantanir á símsvara í síma 551 5677.
Miðasala er í húsinu klukkutíma fyrir alla viðburði. John Lill
SMÁRALIND KÓPAVOGI – S. 569 1550
Sýningartæki
og lítið
útlitsgölluð
tæki
S t æ r s t a v e r s l u n a r k e ð j a m e ð r a f t æ k i í E v r ó p u !
Vi› erum a› r‡ma verslunina fyrir n‡jum
raftækjum og bjó›um s‡ningartæki á ótrúlegu
afsláttarver›i. Fjöldi glæsilegra hágæ›atækja af
ólíkustu stær›um og ger›um. fietta er einstakt
tækifæri sem stendur a›eins til sunnudags svo
nú er a› fl‡ta sér.
Fyrstur kemur fyrstur fær!
sala
tækjum á sýningar
Stendur a›eins til sunnudags
rýmingar
SÖNGTÓNLEIKAR til styrktar
Parkinson-samtökunum Sigurvon
verða haldnir í Salnum í Kópavogi í
kvöld kl. 20.
Tónlistarmennirnir, sem fram
koma, eru Elsa Waage kontraalt,
Katla Björk Rannversdóttir sópran,
Sigurður Skagfjörð baríton, Þor-
valdur Þorvaldsson baríton, Dagný
Marinósdóttir flautuleikari, Krist-
ján Matthíasson fiðluleikari og pí-
anóleikararnir Vilhelmína Ólafs-
dóttir, Jónas Sen og Jónas
Ingimundarson.
Frumflutt verður m.a. nýtt tón-
verk, Kantanta, eftir Eirík Árna
Sigtryggsson, við ljóðabálkinn
Sjúkdómssaga eftir Héðin Waage.
Héðinn greindist með parkinson-
sjúkdóm, yngstur Íslendinga, fyrir
15 árum, þá 26 ára að aldri. Ljóða-
bálkinn orti hann eftir að hafa farið
til Austurríkis í rafskautsaðgerð ár-
ið 1998.
Tónleikarnir eru hugsaðir til fjár-
öflunar, en einnig til að vekja at-
hygli á málefnum parkinson-veikra
og þeirra fjölskyldna. Tónlistarfólk-
ið og aðrir sem standa að þessum
tónleikum gefa vinnu sína.
Morgunblaðið/SverrirFrá æfingu tónlistarmannanna
sem koma fram á styrktartón-
leikunum í Salnum.
Styrktar-
tónleikar
í Salnum
Háteigskirkja Kvennakór Horna-
fjarðar heldur tónleika kl. 17. Á efn-
isskrá eru bæði íslensk og erlend lög
og eru hluti af tónleikaröð sem kór-
inn heldur nú á vordögum en hann
er á leið til Svíþjóðar.
Safnaðarheimili Háteigskirkju
Vorsýning Félags áhugamanna um
tréskurð verður opnuð kl. 14.
Heiðursgestur sýningarinnar er Eg-
ill Sveinsson, myndskurðarmeistari
og verða verk hans á sýningunni.
Auk sýningargripa félagsmanna
verða til sýnis sveinstykki eftir Örn-
Sigurðsson og Elsu Þóru Eggerts-
dóttur. Í tengslum við sýninguna
verða nokkrir félagsmenn með verk-
stæði sín opin þessa helgi frá kl. 15–
17, báða dagana. Þeir eru Jón Adolf
Steinólfsson, Matthías Andrésson, á
Kársnesbraut 110, Hannes Flosason
á Kársnesbraut 123 og Friðgeir
Guðmundsson á Melalind 12.
Digraneskirkja Kór aldraðra í
Kópavogi heldur vortónleika kl. 17.
Stjórnandi kórsins er Kjartan Sig-
urjónsson og undirleikari Sigrún
Magna Þórsteinsdóttir.
Bíóhöllin á Akranesi Þjóðlagasveit
Tónlistarskólans á Akranesi heldur
sína fyrstu tónleika kl. 16.
Grófarsalur, Tryggvagötu 15 Sýn-
ing á verkum nemenda Myndlista-
skólans í Reykjavík verður opnuð kl.
14. Sýningin stendur til 29. apríl og
er opin virka daga kl. 12–17, en kl.
13–17 um helgar.
Bakkastaðir 113, Reykjavík
Brynhildur Þorgeirsdóttir mynd-
höggvari hefur opnað vinnustofu og
verður hún opin frá kl. 14–18.
Víkurskóli, Grafarvogi Sýning Sig-
urðar Gústafssonar arkitekts er op-
in kl. 13–17. Á morgun verður Sig-
urður í skólanum.
Í DAG
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122