Morgunblaðið - 13.04.2002, Blaðsíða 63
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 63
BIODROGA
Bankastræti 3, sími 551 3635.Snyrtist. Lilju, Stillholti 16, Akranesi.
Hjá Laufeyju, Hjarðarlundi 1, Akureyri.
Jurta - snyrtivörur
Nýr farði
Silkimjúk,
semi-mött áferð.
4 litir.
Póstkröfusendum
Til sölu fallegur og vandaður heilsársbústaður
með þremur svefnherbergjum, ásamt gestahúsi, alls 67
fm. 90 fm verönd er við bústaðinn, að hluta yfirbyggð.
Lóð vaxin birkiskógi. Ca 90 km akstur frá Reykjavík.
Nánari upplýsingar hjá Fasteignamiðlun Vesturlands í
síma 431 4144 og hjá eiganda í síma 690 2510.
Fasteignamiðlun Vesturlands - sími 431 4144
HEILSÁRSBÚSTAÐUR Í SKORRADAL
Höfum til sölu fallegt og
skemmtilega staðsett einbýl-
ishús 17 km frá Egilsstöðum
og aðeins 10 km frá Hall-
ormsstað. Húsið er byggt
árið 1973 og í því eru 4
svefnherb.
Húsinu fylgir 1 ha eignarland.
Tilboð óskast.
Nánari upplýsingar á skrifstofu og á heimasíðu
www.simnet.is/logmannsstofa .
AUSTUR-HÉRAÐ - Strönd II
Lögmannsstofa Gísla M. Auðbergssonar,
Strandgötu 53, Eskifirði, sími 476 1616.
Vönduð og vel skipulögð 190 fm raðhús á einni hæð
í Víkurhverfi, Grafarvogi. 4 svefnherb. Bílskúr.
Tvö af raðhúsunum eru með tvöfaldan bílskúr.
Upplýsingar í símum 896 1606 og 557 7060.
Raðhús - Víkurhverfi
SÝNISHORN af verkefnum sem unnin hafa verið í fé-
lagsstarfi eldra fólks á Selfossi eru kynnt á hand-
verkssýningu Félags eldri borgara sem haldin er í
austurenda eldra húss Hótels Selfoss við Ölfusárbrú.
Sýningin stendur yfir 13. til 21. apríl og er opin
klukkan 14–18.
Í fréttatilkynningu segir að markmið sýningarinnar
sé að birta áhorfendum sýnishorn af verkefnum vetr-
arins og fjölbreytni handverks meðal eldri borgara. Á
sýningunni eru verkefni tengd tréskurði, leðuriðju,
glerlist, bókbandi, myndlist og almennu handverki.
Í lok fréttatilkynningar er vísa eftir Hjört Þórar-
insson: Hugljúf vist við okkar íð, / oft var hist í vetur.
/ Handbragð list og hugarsmíð, / hér er rist í letur.
Morgunblaðið/Sig. Jónss.
Halldóra Ármannsdóttir, Snorri Snorrason með mynd af Móse og Blaka Gísladóttir með útskorna öskju.
Eldri borgarar sýna handverk
Selfossi. Morgunblaðið.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN í
Reykjavík opnar kosningamiðstöð
að Skaftahlíð 24 (gegnt Ísaksskóla)
laugardaginn 13. apríl kl. 14.
Björn Bjarnason borgarstjóraefni
D-listans ávarpar gesti kl. 14.30.
Í tilefni dagsins munu meðal ann-
ars Egill Ólafsson og Selma Björns-
dóttir ásamt fleirum skemmta gest-
um. Boðið verður upp á kaffi-
veitingar, pylsur og ýmislegt góð-
gæti fyrir börnin. Allir velkomnir,
segir í fréttatilkynningu.
Kosningamiðstöðin verður opin
alla virka daga frá kl. 13–21, laug-
ardaga og sunnudaga frá k. 12–18,
segir í fréttatilkynningu.
D-listinn
opnar kosn-
ingamiðstöð
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi tilkynning frá stjórn
Samtökum sykursjúkra:
„Að gefnu tilefni vill stjórn Sam-
taka sykursjúkra taka það fram að
engin fjársöfnun stendur yfir á okk-
ar vegum um þessar mundir.
Félaginu hafa borist nokkrar fyr-
irspurnir varðandi símasöfnun sem
við könnumst ekkert við. Við hjá
Samtökum syskursjúkra viljum vara
fólk við þessari fjársöfnun og ítrek-
um að hún er ekki á okkar vegum.“
Engin fjársöfn-
un stendur yfir
hjá Samtökum
sykursjúkra
FUGLAVERNDARFÉLAGIÐ
stendur fyrir fuglaskoðun í Graf-
arvogi sunnudaginn 14. apríl kl. 14–
16. Hist verður við fuglaskoðunar-
húsið við Stórhöfða, sunnan megin í
voginum.
Á þessum árstíma eru jafnan í
Grafarvogi hópar af rauðhöfðum og
urtöndum, svo og tjöldum, send-
lingum, máfum og fleiri fjörufugl-
um. Reyndir fuglaskoðarar verða til
leiðsagnar, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Fuglaskoðun
í Grafarvogi
VERSLUNARRÁÐ Íslands heldur
hádegisverðarfund mánudaginn 15.
apríl kl. 12 í Ársal á Hótel Sögu um
ríkisábyrgð og uppbyggingu nýrrar
atvinnustarfsemi.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
flytur framsögu ásamt Boga Páls-
syni formanni Verslunarráðs og
Kára Stefánssyni forstjóra Íslenskr-
ar erfðagreiningar ehf. Að loknum
erindum frummælenda verður orðið
gefið laust. Fundurinn er öllum op-
inn. Skráning er á skrifstofu ráðsins í
síma eða með tölvupósti í mottaka@-
chamber.is, segir í fréttatilkynningu.
Fundur um
ríkisábyrgð
FERÐAFÉLAG Íslands efnir til
ferðar sunnudaginn 14. apríl um
forna þjóðleið, Selvogsmannagötu
eða Grindaskarðaleið.
Lagt verður af stað frá kirkju-
garðinum í Hafnarfirði. Göngunni
lýkur á því að skoðaðar verða minj-
ar frá fyrri tíð. Gert er ráð fyrir 3-4
tíma göngu. Fararstjóri verður Jón-
atan Garðarsson. Verð kr. 800/
1.000.
Bakpokanámskeiðið verður hald-
ið mánudaginn 15. apríl í Risinu kl.
20, en þátttakendafjöldi er tak-
markaður. Námskeiðsgjald er ekk-
ert, segir í fréttatilkynningu.
Ganga og bak-
pokanám-
skeið hjá FÍ
Í 50. útdrætti Happdrættis
DAS, sem fram fór í gær,
kom aðalvinningurinn, íbúð að
eigin vali, á miða númer
33940.
Reyndust báðir miðarnir
seldir sama aðila og fær hann
í sinn hlut 4 milljónir króna.
Hinn heppni er 22 ára Reyk-
víkingur sem keypti miðann á
Netinu í júní á síðasta ári.
„Aðspurður sagðist hann
ætla að láta draum sinn ræt-
ast og kaupa sér íbúð en hann
býr með unnustu sinni og
fimm mánaða barni í foreldra-
húsum.
Reyndar ætlaði hann að
vera búinn að segja upp mið-
anum vegna blankheita en
hafði ekki komið því í verk,“
segir í fréttatilkynningu frá
DAS.
Hinn 26. apríl nk. verður
dregið um aðalvinning ársins,
10 milljónir til íbúðarkaupa
eða 20 milljónir króna á tvö-
faldan miða.
Vann 4
milljónir
í Happ-
drætti DAS
Ranglega ritað nafn
Nafn Maríu Önnu Eiríksdóttur,
frambjóðanda H-listans í Gerða-
hreppi, var ranglega ritað í mynda-
texta í frétt um framboðið á Suður-
nesjasíðu blaðsins í gær. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
Ekki 1,6 milljarðar í hagnað
Rangt var farið með í fyrirsögn á
baksíðu Morgunblaðsins í gær en
þar kom fram að hagnaður Sam-
herja væri 1,6 milljarðar króna. Hið
rétta er að hagnaður Samherja á síð-
asta ári nam 1.108 milljónum króna
en áætlanir fyrirtækisins gera ráð
fyrir því að hagnaður ársins í ár nemi
1,6 milljörðum króna. Beðist er vel-
virðingar á þessum leiðu mistökum.
Nafn fermingarbarns féll niður
Í tilkynningu um fermingu í
Snartarstaðakirkju hinn 30. mars sl.
féll niður nafn eins fermingarbarns-
ins sem er:
Þorbjörn Gísli Magnússon, Boða-
gerði 9, Kópaskeri.
LEIÐRÉTT
VINSTRIHREYFINGIN – grænt
framboð í Reykjavík verður með op-
ið hús á Torginu, Hafnarstræti 20,
frá kl. 11 í dag, laugardaginn 13. apr-
íl.
Árni Þór Sigurðsson, efsti maður
á Reykjavíkurlistanum, verður til
viðtals og skoðanaskipta.
Heitt verður á könnunni, segir í
frétt frá stjórn VG í Reykjavík.
Laugardags-
fundur VG
KOSNINGAMIÐSTÖÐ
Reykjavíkurlistans verður
opnuð á Túngötu 6 í Grjóta-
þorpinu á morgun sunnudag-
inn 14. apríl kl. 14–17. Af því
tilefni boðar Reykjavíkurlist-
inn til fagnaðar.
Lifandi tónlist, skemmtiat-
riði og léttar veitingar verða á
boðstólum. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir býður gesti vel-
komna og aðrir frambjóðendur
verða á staðnum. Skráning
liðsmanna mun fara fram og
vefsíðan www.xr.is verður
opnuð.
Allir velkomnir, segir í
fréttatilkynningu.
Reykjavíkur-
listinn opnar
kosninga-
miðstöð
FLOKKSSTJÓRNARFUNDUR
Samfylkingarinnar verður haldinn í
Alþýðuhúsinu á Akureyri í dag,
laugardaginn 13. apríl, kl. 13.
Össur Skarphéðinsson, formaður
flokksins, flytur ávarp.
Kynning á framboðum Samfylk-
ingarinnar og þeirra framboða sem
flokkurinn á aðild að, vinnufundir
og umræður, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Samfylkingin
fundar
á Akureyri
GUNNAR Gränz alþýðulistmálari
hefur opnað sýningu á myndverkum
sínum og skúlptúrum í Handverks-
húsi Smiðjunnar í Hveragerði. Hús-
næðið er í gamla mjólkurbúinu á
móti Þinghúskaffi.
Sýningin verður opin um óákveð-
inn tíma klukkan 13-17 alla daga
nema mánudaga og föstudaga.
Listamaðurinn býður alla velkomna.
Með sýningu
í Hveragerði