Morgunblaðið - 13.04.2002, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
FORSÆTISRÁÐHERRAR Íslands
og Noregs, Davíð Oddsson og Kjell
Magne Bondevik, hittust á fundi í
Ósló í gær þar sem þeir gerðu hvor
öðrum grein fyrir stöðunni í Evr-
ópuumræðum í heimalöndum sínum.
Þeir voru sammála um að aðild að
Evrópusambandinu, ESB, væri ekki
á dagskrá hjá löndunum tveimur.
Fram kom hjá Davíð að hann taldi
líklegt að Ísland færi fram á tvíhliða
viðræður við Evrópusambandið um
svokallaða jafnvirðissamninga
vegna stækkunar ESB og afleiðinga
hennar fyrir Ísland, þ.e. niðurfell-
ingar fríverslunarsamninga Íslands
við þau ríki sem þá bætast í sam-
bandið.
Á blaðamannafundi í Ósló sagði
Bondevik m.a. að enn hefði ekki ver-
ið farið fram á slíkar tvíhliða við-
ræður við ESB af hálfu Norðmanna,
en það yrði gert. Túlkun sín væri, af
samræðum við talsmenn ESB, að vel
yrði tekið í slíka ósk.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Davíð að þessi leið hlyti einnig að
verða farin af hálfu Íslands. „Á með-
an ekki fást viðurkenndar uppbætur
á fríverslunarsamningum, sem úr
gildi falla við stækkunina, er eðlilegt
að ræða við Evrópusambandið um
jafnvirðissamninga. Ég held að það
sé mjög hagstætt fyrir Ísland að at-
huga þetta líka þótt fyrsta krafan
hljóti auðvitað að vera sú, sem utan-
ríkisráðherra hefur verið að vinna
að fyrir okkar hönd, að tryggja það
að staða okkar eftir stækkun sam-
bandsins verði ekki lakari. Það er
reyndar einnig okkar mat að Evr-
ópusambandinu sé skylt samkvæmt
EES-samningnum að jafna þá stöðu
þótt þeir kunni reyndar að hafa aðra
skoðun á því. Ef þeim er það ekki
skylt samkvæmt EES-samningnum
er þeim það skylt á grundvelli sam-
þykkta Alþjóða viðskiptastofnunar-
innar, WTO,“ sagði Davíð.
Ráðstefna um EES-samninginn
Bryndís Hlöðversdóttir, þing-
flokksformaður Samfylkingarinnar,
var einnig stödd í Ósló í gær og átti
þar fund með Jens Stoltenberg, for-
manni þingflokks norska Verka-
mannaflokksins. Ræddu þau einkum
um Evrópumál. Var ákveðið að
flokkarnir stæðu sameiginlega að
ráðstefnu um framtíð EES-samn-
ingsins, sem verður líklega í haust.
Evrópumál rædd á fundi forsætisráðherra Íslands og Noregs í gær
Viðræðna
óskað við ESB
um jafnvirðis-
samninga
SCANPIX
Davíð Oddsson og Kjell Magne Bondevik fyrir fundinn í gær.
Evrópuaðild/4
Flokkarnir/6
ÁLAGNING lyfjaverslana hefur
hækkað um 4–5% frá áramótum,
segir Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ. „Hagstofan hef-
ur reiknað út 9,3% hækkun á lyfja-
verði frá áramótum. Sú hækkun
skýrist ekki að öllu leyti af breyt-
ingum á niðurgreiðslum Trygginga-
stofnunar ríkisins á lyfjaverði.
Krónan hefur styrkst verulega á
tímabilinu og því er ekki hægt að
draga aðra ályktun en þá, að álagn-
ing lyfjaverslana hafi hækkað um
4–5% það sem af er þessu ári,“ seg-
ir hann.
Gylfi segir ennfremur að borist
hafi ábendingar um að viðskipta-
hættir séu mismunandi í lyfjaversl-
unum, í kjölfar síðustu könnunar
ASÍ á lyfjaverði á höfuðborgar-
svæðinu sem birt var í Morgun-
blaðinu 4. apríl síðastliðinn.
Viðskiptamáti lyfjaverslana
þarf að vera sýnilegri
„Við höfum heyrt að sumstaðar
séu í boði afsláttarkjör af grunn-
verði fyrir trygga viðskiptavini. Við-
skiptamáti lyfjaverslana þarf að
vera sýnilegri í verðkönnunum ASÍ
og því munum við óska eftir fundi
með Samtökum verslunar og þjón-
ustu. Ástæða þykir til þess að fara
yfir aðferðafræðina sem notuð hef-
ur verið við verðupptöku og meta
hvort þurfi að taka upp skýrari
vinnureglur í þessu sambandi.“
Gylfi segir ASÍ „ekki vilja lýsa
því yfir að einhver fari með rangt
mál“. „En þar sem tveir stærstu að-
ilarnir í lyfsölu, Lyfja og Lyf og
heilsa, eru komnir í hár saman
vegna frétta af umræddri verðkönn-
un er ástæða til þess að fara yfir að-
ferðafræðina og ná meiri sátt um
verðlagseftirlit.“
Álagning lyfja hækkað
um 4–5% að mati ASÍ
ASÍ vill endurskoða/33
Í DAG mun Hringurinn afhenda Ás-
geiri Haraldssyni, forstöðulækni
Barnaspítala Hringsins, 50 milljónir
króna til kaupa á rúmum og öðrum
búnaði. Þá mun Hringurinn innan
skamms afhenda forsvarsmönnum
spítalans 100 milljónir til bygging-
arinnar sem lofað var árið 1994, þeg-
ar ríkið ákvað að reisa nýjan barna-
spítala Hringsins. Spítalinn á einnig
von á verulegri upphæð til tækja-
kaupa frá Hringskonum á næstunni.
„Markmið Hringsins var að hér
risi sérhannaður og fullkominn
barnaspítali sem væri ævinlega
útbúinn bestu fáanlegum tækjum
hverju sinni,“ segir Áslaug Björg
Viggósdóttir, formaður Hringsins,
en í dag eru liðin 60 ár frá því Hring-
urinn ákvað að beita sér fyrir bygg-
ingu barnaspítala og verður minning
fyrsta formannsins, Kristínar Vídal-
ín Jacobson, heiðruð af því tilefni.
Þá verður í dag kynnt bók um
sögu Hringsins en félagið fagnar
aldarafmæli eftir tvö ár. Björg Ein-
arsdóttir skráði söguna með aðstoð
Valgerðar Kristjónsdóttur.
Hringurinn afhendir Barna-
spítalanum nær 200 milljónir
„Ávöxtur af…“/38
Fékk
járnteina
í gegnum
lærið
MAÐUR sem var við vinnu í
nýbyggingu Lækjarskóla í
Hafnarfirði fékk tvö steypu-
styrktarjárn í gegnum annað
lærið þegar hann féll niður
stiga um hádegisbil í gær.
Að sögn Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins stóðu járnin
um 10–20 sentimetra út úr
læri mannsins. Vinnufélagar
hans höfðu skorið hann laus-
an með logsuðutæki þegar
slökkvilið kom á staðinn.
Maðurinn var fluttur á slysa-
deild en þar var óskað eftir
aðstoð tækjabíls slökkviliðs-
ins þar sem stytta þurfti
járnin í fætinum til að hægt
væri að taka röntgenmynd af
áverkanum.
Elling til
Hollywood
SIGURJÓN Sighvatsson hefur
keypt rétt til endurgerðar á
norsku kvikmyndinni Elling, sem
tilnefnd var til Óskarsverðlauna á
dögunum.
Sigurjón hefur þegar hafist
handa við að skipa leikara og leik-
stjóra. Norðmenn velta hins vegar
mikið vöngum yfir því hverjir skuli
leika hlutverk hins skrautlega
pars, Elling og Kjell Bjarne, og
sýnist sitt hverjum í þeim efnum.
Elling/70
MERKI þess að bráðum komi betri
tíð með blóm í haga sjást víða.
Strákarnir í Ólafsvík hafa dregið
fram hjólin og eru farnir að leika
sér úti á peysunni þó varla sé veðrið
nógu gott til að vera lengi úlpulaus.
Morgunblaðið/Sverrir
Vorboðar í Ólafsvík