Morgunblaðið - 13.04.2002, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 13.04.2002, Qupperneq 14
AKUREYRI 14 LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sælkera kaffi og te. sími 462 2900 Blómin í bænum Enskuskóli á Suður-Englandi Gist hjá enskum fjölskyldum, unglingar 14-18 ára. 2-4 vikna ferðir, enska, fótbolti - íþróttir. Viðskiptaenska, 18 ára og eldri, allt árið. 50 ára og eldri, 2 vikna ferðir, gott verð, góður skóli. Uppl. eftir kl. 17 í síma 862 6825 Jóna María. Vöru- og þjónustusýning Nú gefst fyrirtækjum, stofnun- um, félagasamtökum og öðr- um sem áhuga hafa kostur á að kynna starfsemi sína á fjöl- breyttri sýningu. Vinsæl og vel sótt sýning Sýnendur eiga þess kost að kaupa sýningarpláss í aðalsal íþróttahallarinnar, anddyri eða á malbikuðu útisvæði. Tryggðu fyrirtæki þínu pláss á sýningunni Allar nánari upplýsingar: Fremri kynningarþjónusta símar 461 3666 og 461 3668. Bréfasími 461 3667. Netfang: fremri@nett.is í Íþróttahöllinni á Akureyri 10.–12. maí 2002 Frá fyrri sýningu DALVÍSKIR iðnaðarmenn verða fyrirferðarmiklir á Akureyri næstu mánuði, í tengslum við tvö af stærstu byggingaverkum í bænum. Stjórn Lundar samþykkti í gær að ganga að tilboði fyrirtækjanna Ár- fells á Dalvík og Viðars í Reykjavík í byggingu nýrra nemendagarða við Menntaskólann á Akureyri. Þá hef- ur Tréverk á Dalvík samið við Ís- lenska aðalverktaka um að sjá um uppsteypu á undirstöðum í nýju fjöl- nota íþróttahúsi á félagssvæði Þórs við Hamar. Sameiginlegt byggingafélag Ár- fells og Viðars átti lægsta tilboð í byggingu nemendagarða MA og hljóðaði það upp á um 590 milljónir króna, eða 85% af kostnaðaráætlun. Hjá Árfelli starfa um 10 manns og um 40 hjá Viðari. Daníel Hilm- arsson framkvæmdastjóri Árfells sagði ljóst að fyrirtækið þyrfti að fjölga iðnaðarmönnum vegna bygg- ingu nemendagarðanna og yrði leit- að eftir þeim á Akureyri. Hann sagði stefnt að því hefja fram- kvæmdir sem fyrst en áætluð verk- lok eru 20. ágúst á næsta ári. Bæjaryfirvöld á Akureyri sömdu við Íslenska aðalverktaka um bygg- ingu fjölnota hússins. Kostnaður við bygginguna er rúmar 400 milljónir króna en heildarkostnaður verksins er áætlaður um 450–500 milljónir króna. Jarðvegsframkvæmdir fóru fram í sl. haust en næstu daga mæta 6–8 smiðir frá Tréverki til vinnu á svæðið í rúma þrjá mánuði. Björn Friðþjófsson framkvæmdastjóri sagði að uppsteypu á undirstöð- unum ætti að vera lokið 10. ágúst. Hann sagði að ekki þyrfti að fjölga starfsmönnum vegna þessa verk- efnis en hjá fyrirtækinu starfa 17 manns. „Það er ekki mikið fram- undan í byggingamálum á Dalvík og ef við ætlum að halda svipaðri starf- semi áfram þurfum við að sækja verkefni annað. Hvort það er á Ak- ureyri eða annars staðar ræðst af því hvar menn geta náð sér í verk- efni en allt er þetta byggt á útboð- um í dag,“ sagði Björn en fyrirtæki hans hefur unnið að stórum verk- efnum á Akureyri undanfarin ár. Norðurstál í Reykjavík mun sjá um að reisa stálgrindina í fjölnota húsinu og verður hafist handa við það verk í byrjun júní. Húsið verður 9.400 fermetar að stærð og er stefnt að því að taka það í notkun í byrjun desember nk. Nemendagarðar MA munu rísa austan við núverandi heimvistarhús skólans. Það verður 4.800 fermetr- ar að stærð, að mestu á fimm hæð- um en að hluta á sex hæðum. Dalvíkingar í stórverk- efnum á Akureyri Útlitsteikning af nýjum nemendagörðum MA. Harpa Sigurðardóttir formaður, Böðvar Pétursson, Guðrún María Valgeirsdóttir, Jóhanna Kristjáns- dóttir, Hrafnhildur Geirsdóttir, Sól- veig Erla Hinriksdóttir og Sigurður Böðvarsson. Tilgangur félagsins er að halda uppi íþróttastarfsemi og annarri heilbrigðri félagsstarfsemi. Umf. Mývetningur var gamalt og gróið félag, stofnað 1909, en Íf. Ei- lífur hafði starfað í rúm 30 ár eftir að þéttbýlismyndun varð í Reykja- hlíð. Í sameinuðu félagi eru um 200 félagar. Íbúar Mývatnssveitar eru 450. AÐ undanförnu hafa stjórnir Umf. Mývetnings og Íf. Eilífs kannað hug félagsmanna til sameiningar þeirra. Þetta hefur leitt til þess að nýlega var á fundum í hvoru félagi um sig samþykkt að sameina félögin. Nú nýlega var síðan stofnfundur nýs félags haldinn í Skjólbrekku. Þar var sameining endanlega sam- þykkt einróma. Hið nýja félag heitir Mývetningur Íþrótta- og ungmennafélag. Í stjórn félagsins voru kjörin: Jóhanna Morgunblaðið/BFH Stjórn Mývetnings: Guðrún M. Valgeirsdóttir, Böðvar Pétursson, Jóhanna H. Sigurðardóttir, Sigurður Böðvarsson og Sólveig Erla Hinriksdóttir. Mývatnssveit Íþróttafélög sameinast LÁRUS H. List opnar málverka- og ljósmyndasýningu í Deiglunni í dag, laugardaginn 13. apríl, kl. 18. Lárus H. List hefur haldið fjöl- margar einkasýningar, bæði á Ís- landi og í útlöndum og tekið þátt í mörgum samsýningum. Nú sýnir Lárus H. List í fyrsta skipti úrval listrænna ljósmynda sem hann hefur tekið á undanförnum árum og stillir upp með nýlegum málverkum. Sýn- ingin stendur til 29. apríl og er opin daglega frá kl. 14-16. Ekki hafa verið send út boðskort en allir eru vel- komnir. Sýningin A-396 KAMMERTÓNLEIKAR verða í Laugaborg á morgun, sunnudaginn 14. apríl, kl. 16. Flytjendur á tónleikunum eru þau Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleik- ari og Kristinn Örn Kristinsson pí- anóleikari. Flytjendurnir eiga það sameiginlegt að hafa slitið barns- skónum á Eyjafjarðarsvæðinu og stundað grunnnám sitt í tónlist við Tónlistarskólann á Akureyri. Efnis- skrá tónleikanna er fjölbreytt og er þar að finna verk eftir Robert Schu- mann, Dimitri Shostakovich, Max Bruch og Paul Hindemith. Kammertónleikar í Laugaborg UNGUR drengur varð fyrir bifreið sem ekið var eftir Þórunnarstræti skammt ofan við Lögreglustöðina á Akureyri síðdegis í gær. Drengurinn kom að sögn lögreglu hlaupandi út úr runna við hús og út á götu. Hann var fluttur á slysadeild, en meiðsl hans voru ekki talin alvarleg. Barn fyrir bíl GRÓFARGIL ehf. á Akureyri og matvöruverslanakeðjan Samkaup hf. hafa gengið frá samningi um að Gróf- argil annist bókhaldsþjónustu fyrir Samkaup ásamt miðlægri skráningu vörukaupa og launaútreikningi. Samningurinn er til þriggja ára. Grófargil var stofnað á grunni þeirrar bókhalds- og fjármálastarf- semi sem Kaupfélag Eyfirðinga hafði innan sinna vébanda og er stærst fyr- irtækja utan höfuðborgarsvæðisins á sínu sviði með um 30 starfsmenn. Fé- lagið er í eigu Kaldbaks, eignarhalds- félags KEA. Samkaup er þriðja stærsta matvöruverslunarkeðja landsins með á níunda milljarð króna í veltu á liðnu ári. Starfsmenn eru um 500 talsins, en félagið rekur 24 versl- anir um allt land. Samkaup semja við Grófargil ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.