Morgunblaðið - 13.04.2002, Page 35

Morgunblaðið - 13.04.2002, Page 35
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 35 Smáskór sérverslun með barnaskó í bláu húsi við Fákafen - Sími 568 3919. Opið virka daga frá kl.10-18, laugardaga frá kl. 11-15 Lagersala næstu daga Eldri gerðir af sumar- vetrar-, og spariskóm með minnst 40% afslætti beint af lagernum - gengið inn að norðan - Nýkomnir yndislegir skór fyrir brúðarmeyjar og aðrar prinsessur 5 gerðir í stærðum 22-37 Verð frá kr. 3.790 Barnaskór Bíldshöfða OPNUM Í DAG KL. 12 bakhús inni í porti VÉLAR Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699 Plöstunar Vefsíða: www.oba.is TVEIR einstakling- ar úr íþróttahreyfing- unni hafa að undan- förnu skrifað greinar í Morgunblaðið til að endurtaka ásakanir í garð framkvæmda- stjórnar ÍSÍ, varðandi lyfjaeftirlit innan hreyf- ingarinnar. Ennfremur eru dómstólar hreyf- ingarinnar sakaðir um að hafa kveðið upp dóma samkvæmt pönt- un frá forseta ÍSÍ eða einhverjum öðrum. Fullyrt er að Íslands- meistaratitlar hafi unnist í krafti lyfjamisferlis. Þess er krafist að forysta ÍSÍ beri af sér sakir. Hér er með öðrum orðum verið að væna forystumenn ÍSÍ, fólk í dóm- stólum hreyfingarinnar, íþróttafólk og aðra sem að þessum málum koma, um óheiðarleika og undanbrögð. Að því tilefni skal vís- að til skýrslu fram- kvæmdastjórnar ÍSÍ dags. 21. ágúst 2001, sem send var mennta- málaráðherra og enn- fremur til yfirlýsingar starfsmanna lyfjaeftir- litsnefndar ÍSÍ, hvor- tveggja má lesa á heimasíðu ÍSÍ, isi- sport.is. Sömuleiðis er vísað til dóms lyfjadóm- stólsins, greinargerðar KKÍ (sem lesa má á heimasíðu sambandsins kki.is) og Morgunblaðsgreina forseta og varaforseta frá því í ágúst og sept- ember á síðasta ári. Þess skal getið að lagðar verða fram á íþróttaþingi, eftir hálfan mán- uð, endurskoðaðar og endurbættar tillögur um skipulag lyfjamála, eftir- lit og meðferð. Þær tillögur hafa verið sendar út í hreyfinguna til kynningar og engar athugasemdir hafa borist. Mál er að þessari umræðu linni og íþróttahreyfingin og forysta hennar liggi ekki undir röngum og tilhæfu- lausum sökum. Höggvið í sama knérunn Stefán Konráðsson ÍSÍ Mál er, segir Stefán Konráðsson, að þessari umræðu linni. Höfundur er framkvæmdastjóri ÍSÍ. ÞAÐ blása ferskir norrænir vindar hér á landi þessa dagana í aðdraganda fjöl- mennrar þemaráð- stefnu Norðurlanda- ráðs sem haldin verður á Grand Hótel í Reykjavík dagana 15. til 16. apríl nk. Þemaráðstefnan markar upphaf hátíð- arhalda vegna 50 ára afmælis Norðurlanda- ráðs. Á ráðstefnunni verður fjallað um nor- rænt lýðræði í víðu samhengi, undir yfir- skriftinni ,,Norrænt lýðræði 2020“. Rætt verður um þætti á borð við norræna velferð- arríkið og lýðræðið, virkni þegn- anna og áhrif innflutnings fólks frá öðrum menningarsvæðum á afstöð- una til lýðræðis á Norðurlöndum. Á ráðstefnunni verður einnig unnið út frá þeirri lykilspurningu hvort norrænar lýðræðishefðir geti haft áhrif á önnur stjórnkerfi í heim- inum í framtíðinni. Það er fengur fyrir okkur Ís- lendinga að fá jafn spennandi og viðamikla ráðstefnu hingað til lands, en gert er ráð fyrir allt að 300 þátttakendum ráðstefnudag- ana. Um leið hlýtur það að teljast viðeigandi, þar eð Alþingi var hér stofnað fyrir ríflega þúsund árum og löng hefð er fyrir rökræðu um lýðræði á eyjunni okkar í norðri. Hver kynslóð hefur sín einkenni Við Íslendingar byggjum á langri og djúpri lýðræðishefð og berum mikla virðingu fyrir rétt- inum til þess að tjá sig í ræðu og riti. Við erum einnig stolt af mikl- um áhuga landsmanna á stjórn- málum og hinum ríka vilja fólksins í landinu til þess að hafa bein áhrif á sitt nánasta umhverfi. Um þetta vitnar mikil kosningaþátttaka hér á landi, sem er mun meiri en í flestum öðrum löndum, og spenn- andi og frjó umræða um stjórnmál sem fjölmiðlar miðla til lands- manna hvern einasta dag. Lýðræði síðustu aldar þarf þó ekki að hafa sömu merkingu í hug- um fólks og sú tegund lýðræðis sem við nú miðum við. Hið sama má segja um lýðræði framtíðarinn- ar, t.d. norrænt lýð- ræði árið 2020. Hér hefur hver kynslóð sín einkenni. Eftirstríðs- kynslóðin, sem nú sit- ur að mestu við völd í landinu, hefur t.d. annað gildismat en hin s.k. „x-kynslóð“ eða „gleymda kyn- slóðin“ sem næst er í röðinni til áhrifa og enn aftar bíður „@-kynslóðin“ eða „raf-kynslóðin“. Tvær síðarnefndu kynslóð- irnar láta hvorki stjórnast af landa- mærum né átthaga- böndum heldur grípa fremur þau spennandi tækifæri sem bjóðast, hvort heldur er í heimahögunum á Íslandi eða í fjarlægum heims- hluta. Þessar kynslóðir binda sig ekki við átthaga, vinnustaði né stjórn- málaöfl, heldur taka frekar afstöðu út frá hverju máli fyrir sig. Þær eru leitandi fjöldahreyfing- ar sem munu hafa mjög vaxandi áhrif í samfélaginu í nánustu fram- tíð. X- og @-kynslóðirnar munu þurfa að stýra íslensku samfélagi á lýðræðislegan hátt til sóknar í sí- breytilegum heimi alþjóðavæðing- ar. Það hlutverk hlýtur að teljast mjög ögrandi. Fimm áhersluatriði Á fundi norrænu samstarfsráð- herranna í Finnlandi í fyrra komu nýjar áherslur í norrænu samstarfi og breytt uppbygging Norður- landaráðs m.a. til umræðu. Nor- rænt samstarf er í örri þróun til að mæta breyttu umhverfi í ljósi al- þjóðavæðingar og upplýsingabylt- ingarinnar. Nýju áhersluatriðin fimm sem norræna ráðherranefnd- in vinnur að eru: tækniþróun, sér í lagi málefni upplýsingasamfélags- ins, velferðarmál, innri markaður á Norðurlöndum og afnám landa- mærahindrana, samstarf við ná- grannalöndin og síðast en ekki síst umhverfismál og sjálfbær þróun. Vitaskuld er mikilvægt að Norð- urlöndin færi sér í nyt hversu lík þau eru að flestu leyti í allri upp- byggingu. Þetta hefur stundum verið orðað þannig að Norðurlönd- in hafi sama menningarbakgrunn, svipað tæknistig og sömu lýðræð- ishefðir. Þannig hafa löndin t.d. afar mikla hagsmuni af því að standa saman til að efla sig í þeirri al- þjóðavæðingu sem blasir við. Þau ná sameinuð meiru fram í Evrópu- samstarfinu og ekki síður gagnvart ýmsum alþjóðastofnunum. Um leið og við Íslendingar bjóðum vini okkar frá hinum Norðurlöndum velkomna hingað til lands á þem- aráðstefnu um lýðræði skulum við minnast sameiginlegrar arfleifðar okkar og sameiginlegra hagsmuna. Framundan eru nýir tímar; ókunnar lendur og spennandi tæki- færi sem við getum nýtt á lýðræð- islegum grunni. Norrænt lýðræði 2020 Siv Friðleifsdóttir Höfundur er samstarfsráðherra Norðurlanda. Lýðræðisráðstefna X- og @-kynslóðirnar munu þurfa að stýra ís- lensku samfélagi á lýð- ræðislegan hátt, segir Siv Friðleifsdóttir, til sóknar í síbreytilegum heimi alþjóðavæðingar. REYKJAVÍKURLISTINN er sammála þeirri skoðun ritstjóra Morgunblaðsins að „draugarit- un“ (ghostwriting) á greinum vegna kosninga hafi ekki bæt- andi áhrif á stjórnmálaumræðu í landinu. Við sjáum þegar í að- draganda borgar- og bæjar- stjórnarkosninga að talsvert er orðið um staglgreinar þar sem tönnlast er á sömu fullyrðing- unum nánast orðrétt í grein eft- ir grein. Við hjá Reykjavíkurlistanum höfum ákveðið með hvaða hætti verður staðið að kynningar- og auglýsingamálum hjá okkur. Í fyrsta lagi starfar kynning- ar- og áróðurshópur þar sem ýmsir fagmenn úr stuðnings- mannahópi Reykjavíkurlistans leggja á ráðin um framsetningu á stefnumiðum sem frambjóð- endur búa í hendur þeirra. Í öðru lagi tók auglýsingastof- an Tunglið að sér að hanna heildarútlit á merki Reykjavík- urlistans, vefsíðu, auglýsingum og myndstefnu. Í þriðja lagi er fitjað upp á þeirri nýbreytni að setja saman eigin kynningar- og auglýsinga- stofu í kosningamiðstöð Reykja- víkurlistans á Túngötu 6. Hún tekur til starfa á sunnudag þeg- ar kosningamiðstöðin verður opnuð og mun sjá um útfærslu og samsetningu á öllu kynning- arefni fram að kosningum. Stof- an hefur fengið nafnið Frjór ak- ur. Í fjórða lagi hefur Reykjavíkurlistinn ákveðið að af hans hálfu verður ekki höfð milliganga um sendingar á greinum, orðsendingum, frétta- tilkynningum eða bréfum til fjölmiðla nema frá framboðinu sjálfu, frambjóðendum Reykja- víkurlistans, kosningastarfs- mönnum og þeim sem hafa hlut- verki að gegna í starfshópum á vegum framboðsins. Með þessu teljum við að gengið sé til móts við það sjónarmið að hrein- skiptni þurfi að ríkja í samskipt- um framboða og fjölmiðla. Ingvar Sverrisson Tekið undir með Morgunblaðinu Höfundur er kosningastjóri R-listans. Listhúsinu Laugardal, sími 552 5540 Ódýrari orðabækur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.