Morgunblaðið - 25.04.2002, Side 1
95. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 25. APRÍL 2002
Morgunblaðið/Ásdís
Gleðilegt sumar
„Ég hef ekki séð neinar sannanir
um fjöldagrafir [í Jenín], ég hef
engin gögn séð sem benda til að
framin hafi verið fjöldamorð,“ sagði
Powell fyrir þingnefnd Bandaríkja-
þings í gær. Hann lýsti þó jafnframt
þeirri skoðun sinni að hagsmunum
Ísraela væri best borgið með því að
þeir heimiluðu sendinefnd Samein-
uðu þjóðanna að rannsaka verks-
ummerki í borginni.
Mubarak var afar harðorður í
garð Ísraela. Sagði hann „villi-
mannslegar og skipulagðar árásir“
Ísraela sýna algeran skort á frið-
arvilja. „Í þetta skipti hefur Ísrael
gengið alltof langt; bæði með um-
sátri sínu um Fæðingarkirkjuna [í
Betlehem] og með því að brjóta
gróflega öll mannréttindi í bæjum
og borgum Palestínumanna,“ sagði
Mubarak.
Solana hitti Arafat
Palestínumenn lýstu óánægju
sinni með þær tafir sem hafa orðið á
för sendinefndar SÞ til Jenín og
sökuðu þeir Ísraela um að reyna að
draga úr trúverðugleika nefndar-
innar. Palestínumenn segja Ísraela
hafa myrt hundruð manna í flótta-
mannabúðunum í Jenín en Ísraelar
fullyrða að þar hafi fyrst og fremst
fallið liðsmenn öfgahópa, sem kosið
hafi að berjast til síðasta manns í
stað þess að gefast upp er þeir
fengu til þess tækifæri.
Javier Solana, yfirmaður utanrík-
ismála hjá Evrópusambandinu, fékk
að hitta Yasser Arafat, forseta
heimastjórnar Palestínumanna, í
Ramallah í gær. Solana ræddi ekk-
ert við fréttamenn en talsmaður
hans sagði fundinn hafa verið gagn-
legan. Var þar m.a. rætt um að-
stæður Arafats sjálfs, en Ísraelsher
hefur haldið honum í herkví um
margra mánaða skeið. Þá ræddu
þeir Arafat og Solana einnig umsát-
ur Ísraelshers við fæðingarkirkju
frelsarans í Betlehem.
Tilraunir til að binda enda á um-
sátrið í Betlehem báru ekki árangur
í gær en um tvö hundruð Palest-
ínumenn hafast við í kirkjunni, þar
af talsverður fjöldi vopnaðra
manna. Til skotbardaga kom og lést
palestínskur byssumaður í gær-
kvöld af sárum sem hann hlaut fyrr
um daginn og þrír til viðbótar særð-
ust.
Þá létust fjórir Palestínumenn
þegar Ísraelsher hélt áfram aðgerð-
um sínum á Vesturbakkanum í gær-
kvöld. Var fjórtán ára drengur
þeirra á meðal.
Colin Powell hvetur Ísraela til að heimila för sendinefndar SÞ til Jenín
Segir skorta sannanir
fyrir fjöldamorðum
Jerúsalem, Betlehem. AFP.
HOSNI Mubarak, forseti Egyptalands, sagði í gær að Ísraelar hefðu gengið
alltof langt með hernaðaraðgerðum sínum á Vesturbakkanum og hann sakaði
Ísraelsstjórn um að hafa reynt að eyða sönnunargögnum um „hroðalega
glæpi“ í flóttamannabúðum Palestínumanna í Jenín. Colin Powell, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, sagðist hins vegar ekki hafa séð neinar sannanir
um að fjöldamorð hefðu verið framin í Jenín.
EDUARDO Duhalde, forseti Argent-
ínu, reyndi í gær að afstýra stjórn-
arkreppu í landinu eftir afsögn efna-
hagsráðherra síns, Jorge Remes
Lenicovs, sem varð til þess að allir
aðrir ráðherrar stjórnarinnar buðust
til að segja af sér.
Remes – fimmti efnahagsráðherra
Argentínu á jafnmörgum mánuðum –
ákvað að láta af embætti eftir að þing-
ið hafnaði tillögum hans um ráðstaf-
anir til að afstýra hruni bankakerf-
isins. Hann lagði meðal annars til að
ríkisbankar yrðu sameinaðir og að
þeir sem vildu taka út sparifé sitt
fengju það greitt í skuldabréfum en
ekki reiðufé.
Háttsettur embættismaður í Buen-
os Aires sagði að Duhalde hygðist
stokka upp í stjórninni og breyta
efnahagsstefnunni. Stjórnmálaskýr-
endur sögðu að afsögn Remes væri
mikið áfall fyrir Duhalde, sem stæði
nú frammi fyrir miklu pólitísku um-
róti, aðeins fjórum mánuðum eftir að
hann tók við forsetaembættinu af
Fernando De La Rua, sem neyddist
til að segja af sér eftir blóðugar götu-
óeirðir vegna efnahagsþrenginganna.
Hagfræðingar spáðu því að afsögn
Remes yrði til þess að Argentína
fengi ekki neyðaraðstoð frá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum, IMF, á næstunni.
Sjóðurinn hefur sett það skilyrði fyrir
aðstoðinni að komið verði á efnahags-
umbótum sem hafa mætt mikilli and-
stöðu á þinginu.
Reynt að
afstýra
stjórnar-
kreppu
Buenos Aires. AP.
FINNSKIR hægriöfgamenn til-
kynntu í gær að þeir hygðust
stofna flokk sem myndi reyna að
koma manni á þing í næstu kosn-
ingum, er verða á næsta ári.
Hefði góður árangur Jean-Marie
Le Pens í fyrri umferð forseta-
kosninganna í Frakklandi um
síðustu helgi orðið þeim hvatning
til að láta til skarar skríða.
„Það vantar svona flokk á
stjórnmálasviðið í Finnlandi, það
er ljóst,“ sagði Olavi Maeenpa-
eae, borgarfulltrúi í Turku,
þriðju stærstu borg Finnlands.
„Nú er síðasta tækifærið að
bjarga Finnlandi og finnsku sjálf-
stæði, sem er að hverfa í Evrópu-
sambandið, og finnskri menn-
ingu, sem er ógnað af straumi
innflytjenda og hnignun tungu-
málsins,“ sagði Maeenpaeae.
Í Finnlandi hefur hingað til
ekki verið nein stjórnmálahreyf-
ing á borð við Þjóðarfylkingu Le
Pens í Frakklandi, eða Frelsis-
flokk Jörgs Haiders í Austurríki.
Íhaldssamasti flokkurinn er Þjóð-
arbandalagsflokkurinn, hefð-
bundinn borgaraflokkur.
Finnland
Hægriöfga-
menn ætla
á þing
Helsinki. AFP.
FRANSKI hægriöfgamaðurinn
Jean-Marie Le Pen fékk
kuldalegar móttökur þegar
hann mætti á fund Evrópu-
þingsins í Brussel í gær til að
flytja ræðu um átök Ísraela og
Palestínumanna. Þegar hann
reis úr sæti sínu til að flytja
ávarpið stóðu tugir þing-
manna upp, héldu á spjöldum
með áletruninni „Non“, eða
„Nei“, og púuðu á hann.
Eftir ræðuna, sem tók mín-
útu, hugðist Le Pen halda
blaðamannafund en honum
var aflýst af öryggisástæðum
vegna mótmæla fyrir utan
þinghúsið. Um 1.000 manns,
aðallega námsmenn og félagar
í mannréttindahreyfingum,
tóku þátt í mótmælunum.
Le Pen fær kaldar
kveðjur í Brussel
Reuters Hægriöflin/30