Morgunblaðið - 29.06.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KAJAKRÆÐARI á fertugsaldri
sem mikil leit var gerð að í gær og
fyrrinótt fannst látinn í sjónum
skammt suður af Flateyjardal um
tvöleytið í gær. Maðurinn er talinn
hafa lagt upp frá dalnum síðdegis á
fimmtudag. Hann var einn á ferð.
Umfangsmikil leit hófst að honum
um miðnætti á fimmtudag.
Skv. upplýsingum frá lögreglunni
á Húsavík hafði maðurinn sagst ætla
að fara á Flateyjardal og róa kaj-
aknum þar fyrir utan. Ætlunin var
að hann kæmi til Akureyrar um
klukkan 20 um kvöldið en þegar ekk-
ert spurðist til hans á tilgreindum
tíma var farið að grennslast fyrir um
hann. Eftir að bíll hans fannst í
mynni Flateyjardals var lögreglu
gert viðvart.
Lögreglan á Akureyri fékk til-
kynningu um að mannsins væri
saknað um klukkan 23.40 á fimmtu-
dagskvöld og lét lögregluna á Húsa-
vík þegar vita enda er leitarsvæðið í
umdæmi lögreglunnar þar. Björgun-
arsveitir frá Slysavarnafélaginu
Landsbjörgu voru kallaðar út um
miðnætti og fór björgunarhraðbátur
björgunarsveitarinnar Garðars á
Húsavík strax til leitar. Fljótlega
bættist við björgunarhraðbátur frá
Árskógsströnd auk björgunarskips
frá Siglufirði og síðar frá Raufar-
höfn. Í fyrstu beindist leitin að Flat-
eyjarsundi og nágrenni en leitar-
svæðið var fljótlega stækkað og náði
það allt frá Grenivík til Tjörness. Um
nóttina bættust þrjár trillur frá
Húsavík í hópinn en alls tóku um 12
bátar og skip þátt í leitinni. Haft var
samband við Landhelgisgæsluna til
að kanna hvort mögulegt væri að fá
þyrlu til leitar en þar sem flugáhafn-
ir gæslunnar voru uppteknar í öðr-
um verkefnum var ákveðið að Flug-
málastjórn sendi flugvél sína til
leitar. Allar fjörur á svæðinu voru
leitaðar af sjó og úr lofti.
Um klukkan 6.30 sást til kajaksins
úr flugvél Flugmálastjórnar. Hann
hafði þá rekið undan vestanvindi og
var kominn um 2 km vestur af Lund-
ey á Skjálfanda. Kajakinn var mann-
laus en á réttum kili. Í framhaldinu
hófu um 20 björgunarsveitarmenn
leit í fjörum við Flateyjardal, í botni
Skjálfanda og á Tjörnesi. Fjörur
voru einnig leitaðar af sjó og leit-
arskip og -bátar mynduðu leitarlínu
frá Lundey og stefndu í átt að Flat-
eyjardal. Flugvél frá Mýflugi var
einnig við leit og undir hádegi kom
þyrla frá danska varðskipinu
Vædderen á svæðið. Staðkunnugur
björgunarsveitarmaður var í þyrl-
unni til að aðstoða áhöfnina.
Um tvöleytið fannst maðurinn lát-
inn í sjónum fyrir utan Bríkursker,
um 4 km frá landi. Sigurður Brynj-
úlfsson, yfirlögregluþjónn, segir
ekkert vitað um orsakir slyssins.
Ekki er hægt að greina frá nafni
mannsins að svo stöddu.
Umfangsmikil leit úr lofti, á sjó og landi við Skjálfandaflóa
Kajakræðari
fannst látinn
í sjónum
Ljósmynd/Skarpur/AGGI
Björgunarsveitarmenn halda frá Húsavík til leitar á Skjálfanda.
!
"
#
! "#
$ $
$ %
!
&!'( )$ $ * $
$+
, -
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isOliver Kahn bjartsýnn fyrir
hönd Þjóðverja/B4
Ívar búinn að semja
við Úlfana/B1
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r29.
MAÐUR, kona og fjögurra ára son-
ur þeirra sluppu ómeidd þegar efri
hæð íbúðarhúss þeirra á Vopnafirði
eyðilagðist í eldsvoða í fyrrinótt.
Þau vöknuðu við sprengingar í
sjónvarpinu og þegar húsbóndinn
kom að tækinu stóð eldtunga upp
úr því og svartan reyk lagði frá því.
Slökkviliðið var komið á staðinn um
5–8 mínútum eftir að útkall barst.
„Þetta var frekar óskemmtileg
lífsreynsla,“ sagði Steinunn Lund í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Hún hafði lagst til svefns um klukk-
an eitt eftir miðnætti en um klukku-
stund síðar heyrði hún litla spreng-
ingu. „Ég var ekki viss um hvað
þetta væri, enda erfitt að átta sig á
slíku þegar maður er milli svefns
og vöku. Ég var ekki viss hvort
þetta væri hljóð frá bíl eða inn-
brotsþjófi,“ segir hún. Eftir að hafa
heyrt aðra sprengingu fór mað-
urinn hennar, Valdimar Sveinsson,
til að kanna hverju þetta sætti.
Húsið er steinsteypt og á tveimur
hæðum. Uppi er eldhús og stofa en
svefnherbergin eru öll á neðri hæð-
inni. Þegar Valdimar kom upp í
stofuna sá hann hvar eldtunga reis
upp úr sjónvarpinu og teygði sig til
lofts. Hann kallaði á Steinunni og
sagði henni að drífa sig út með son
þeirra en reyndi sjálfur að slökkva
eldinn með því að skvetta á hann
vatni. Það gekk ekki og svartur
reykur gaus upp frá sjónvarpinu.
Eldurinn náði fljótlega að læsa
sig í viðarklætt loftið og í sófa sem
stóð þar skammt frá. Valdimar sá
að honum myndi ekki takast að
slökkva eldinn og flýtti sér út. „Ég
held að þetta hafi allt brunnið á 15–
20 mínútum, þetta gerðist mjög
hratt,“ segir hann.
Það voru sprengingarnar frá
sjónvarpinu sem vöktu þau en ekki
reykskynjari sem þó er í húsinu.
Valdimar segir að hann hafi verið
tekinn úr sambandi í fyrradag en
gleymst hafði að setja hann aftur í
samband. Þetta sýni mikilvægi þess
að ganga úr skugga um að reyk-
skynjarinn sé örugglega virkur.
Steinunn hringdi þegar í Neyð-
arlínuna þegar ljóst var að eldur
hafði brotist út á efri hæðinni. Hún
tók síðan fjögurra ára gamlan son
sinn með sér og fór með hann til ná-
granna. Aðspurð segir hún að syn-
inum hafi brugðið en verið fljótur
að jafna sig en hann fékk að horfa á
teiknimyndir hjá nágrannanum.
Ætluðu að flytja í næstu viku
Eins og fyrr segir er efri hæð
hússins ónýt og miklar vatns-
skemmdir urðu á neðri hæðinni.
Það var lán í óláni að fjölskyldan
ætlaði að flytja frá Vopnafirði til
Egilsstaða í næstu viku og hafði
Steinunn pakkað talsverðu af per-
sónulegum munum ofan í kassa.
Þeir sluppu en innbúið og fatnaður
er ýmist ónýtur eða mikið skemmd-
ur. Eldurinn kviknaði frá nýlegu
sjónvarpstæki en þau Steinunn og
Valdimar höfðu slökkt á því með
fjarstýringu en ekki með því að ýta
á straumrofann. Steinunn segist
undrandi á því að ekki sé hægt að
framleiða öruggari sjónvarps-
viðtæki. Næst verði þau örugglega
með fjöltengi sem hægt er að rjúfa
strauminn af með því að ýta á
hnapp.
Björn Heiðar Sigurbjörnsson,
slökkviliðsstjóri á Vopnafirði, var
að vonum ánægður með viðbragðs-
tíma slökkviliðsmanna enda liðu
ekki nema 5–8 mínútur frá útkalli
þar til þeir voru komnir á staðinn. Í
þann mund sem þeir komu að hús-
inu sprungu tvær rúður á efri hæð-
inni og eldtungurnar teygðu sig út
um gluggana.
Björn segir að þetta hafi litið illa
út en sem betur fer hafi íbúarnir
verið komnir út úr húsinu. Slökkvi-
starf gekk vel.
Fjölskylda slapp ómeidd úr eldsvoða á Vopnafirði
Vöknuðu við spreng-
ingar í sjónvarpinu
Ljósmynd/Finnur Dýrfjörð
Steinunn Lund, Valdimar Sveinsson og sonur þeirra sluppu ómeidd úr
eldsvoðanum á Vopnafirði í fyrrinótt, en mikið tjón varð á húsinu.
Þyrla afturkölluð þegar
klukkustundarflug var
að rússneskum togara
Kannað
hvort
ástæða var
fyrir beiðni
ÞYRLUÁHÖFN Landhelgisgæsl-
unnar var í viðbragðsstöðu frá kl. 20
í fyrradag til kl. 4 um nóttina vegna
beiðni frá rússneskum togara um að
alvarlega veikur sjómaður yrði sótt-
ur.
Landhelgisgæslan kannar nú
hvort upphaflega hafi verið ástæða
til að óska eftir þyrlu.
Beiðni um aðstoð barst frá rúss-
neska togaranum Afanasiev þar sem
hann var staddur á úthafskarfamið-
unm á Reykjaneshrygg. Sigurður
Steinar Ketilsson, yfirmaður gæslu-
framkvæmda, segir að þyrluáhöfnin
hafi þegar verið kölluð út og und-
irbúningur hafinn að björgunarflugi.
Nokkru síðar upplýsti skipstjórinn
að svartaþoka væri á miðunum og
þar af leiðandi ómögulegt að fljúga
að togaranum
Undir hádegi létti þokunni en
vegna hvíldarákvæða flugmanna
Landhelgisgæslunnar var ákveðið að
þyrla varnarliðsins myndi sinna út-
kallinu. Sigurður tekur skýrt fram
að hvíldartímaákvæði komi aldrei í
veg fyrir að neyðarútköllum sé sinnt.
Þegar hún átti eftir um hálfrar
klukkustundar flug að togaranum
afturkallaði skipstjórinn beiðni um
aðstoð og óskaði þess í stað eftir því
að hafnsögubátur kæmi til móts við
skipið í Hafnarfirði og flytti skip-
verjann í land.