Morgunblaðið - 29.06.2002, Síða 24

Morgunblaðið - 29.06.2002, Síða 24
NEYTENDUR 24 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HEILSA H ÚÐKRABBAMEIN er algengast allra krabbameina á Ís- landi. Á hverju ári greinast rúmlega 200 tilfelli og hefur tíðnin marg- faldast á síðustu 20 árum. Slík þró- un hefur átt sér stað víðast hvar í heiminum og er talað um „far- aldur“ í þessu sambandi. Forvarnir snúast fyrst og fremst um að verja húðina fyrir þekktum áhættuþáttum. Þar sem sólin og út- fjólubláir geislar hennar eru helsti orsakavaldurinn skiptir mestu að hlífa húðinni og forðast óhóflega geislun. Óhófleg geislun á húðina getur valdið m.a. freknum, litabreytingum, öldrunarbreytingum, hrukkum, útvíkkuðum æðum, frumubreytingum og húðkrabbameinum. Hér eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga:  Forðist hádegissólina. Þá eru sólargeislarnir sterkastir. U.þ.b. 60% af sól- arhrings-geisluninni verður milli kl. 11 og 15.  Hlífið húðinni. Notið hatt eða derhúfu og verið í bol ef þið eruð lengi úti.  Gerið að vana: Notið sólvörn með sólvarnarstuðli (SPF) 15 eða hærri. Best er að bera sólvörnina á 15–30 mínútum áður en farið er í sólina. Munið að bera aftur á húðina (á u.þ.b. 2 klst. fresti) ef þið eruð lengi úti, einkanlega ef verið er í íþróttum þar sem húðin svitnar, t.d. á göngu, í leikjum, golfi eða sundi. Jafnvel þótt sólvörn sé með vatnsvörn getur hún nuddast af húðinni.  Skugginn. Erlendis er mikilvægt að hlífa húðinni líka með því að leita í skuggann, t.d. undir sólhlíf eða tré.  Breyting á blettum. Verið vakandi fyrir húðblettum sem eru stækkandi, hreistraðir, blæðandi eða taka að breytast í lögun eða lit.  Lærið að þekkja húðina. Skoðið húðina reglulega, helst mánaðarlega, með tilliti til bletta og breytinga á þeim.  Munið! Sólin á Íslandi er ekki síður sterk en á suðlægari slóðum. Hér er loftið tært og ómengað svo skaðlegu útfjólubláu geislarnir komast auð- veldlega að húðinni. Vaxandi vinsældir útivistar í frítíma, t.d. göngur, skíðaiðkun og golf, jafnt innanlands sem utan, auka verulega á heild- armagn þeirrar geislunar sem við verðum fyrir. Íslendingar eru flestir ljósir yfirlitum og því í mesta áhættuhópnum.  Börnin. Kennum þeim frá fyrstu tíð að verja húðina vel og forðast óhóflega sól og ljósabekkjanotkun. Þannig getum við vonast til þess að lækka tíðni banvænna sjúkdóma eins og sortuæxlis síðar meir.  Húðkrabbamein eru auðlæknanleg ef þau uppgötvast snemma. Þar sem æxlin eru sýnileg berum augum á að vera auðvelt að greina þau í tæka tíð, haldi fólk vöku sinni. Leitið læknis ef þið sjáið grunsamlega bletti og gerið allt sem þið getið til þess að verja húðina fyrir sólargeislunum. Allir vilja geta notið sumars og sólar. Með því að nota skynsemina og fara eftir ráðleggingum til þess að verja húðina geta allir unnið og leikið sér úti við án þess að þurfa að hafa of miklar áhyggjur af húðkrabba eða hrukkum.  Upplýsingar í samantekt Kristínar Þórisdóttur, sérfræðings í húðsjúkdómum. – Landlæknisembættið Heilsan í brennidepli Húðin og sólin HEYRNIN er hverjum manni mik- ilvæg. Ýmsar varnir eru fáanlegar til þess að vernda heyrnina fyrir óþarfa áreiti eða of miklum hávaða. Þeir Friðrik Rúnar Guðmundsson heyrnar- og talmeinafræðingur og Einar Sindrason yfirlæknir á Heyrnar- og talmeinastöð Íslands rannsökuðu heyrn vélstjóra í sam- vinnu við Vélstjórafélag Íslands og komust að athyglisverðum niður- stöðum. Morgunblaðið ræddi við Friðrik um rannsóknina. Stétt sem vinnur í hávaða „Einar Sindrason yfirlæknir hafði í langan tíma haft brennandi áhuga á að rannsaka heyrn vél- stjóra, því það er sú stétt sem hef- ur unnið í mestum hávaða hér á landi. Einar hafði samband við Vél- stjórafélagið í þeim tilgangi að afla okkur gagna um málið. Helgi Lax- dal, formaður þess, brást ljúflega við beiðni okkar, og bauð Vélstjóra- félag Íslands styrk til verkefnisins og þökkum við félaginu fyrir góða samvinnu,“ segir Friðrik þegar rætt er um tilurð rannsóknarinnar. „Vitað er að fyrir um 1965 not- uðu menn almennt ekki heyrnar- hlífar, þær þekktust einfaldlega ekki,“ útskýrir Friðrik. „Mörgum þótti þetta pjatt í fyrstu og töldu sig ekki fylgjast nógu vel með vél- unum ef þeir væru með hlífar.“ Þeir Einar og Friðrik veltu fyrir sér hvort yngri menn notuðu al- mennt hlífarnar. „Einar taldi, mið- að við þá vélstjóra sem hann hafði skoðað, að yngri menn vissu nauð- syn þess að nota hlífarnar í hávaða- sömum aðstæðum. Ég hafði hins vegar hitt fyrir yngri menn úr þessari stétt með óvenju slæma heyrn, og okkur langaði að komast að hinu sanna.“ Rannsóknarefnið varð til, eins og sjá má, af einlægri forvitni sérfræðinganna á málefn- inu. „Við vissum eðlilega að hér væri um mikinn áhættuhóp í heyrnartapi að ræða, og vegna erf- iðra vinnuaðstæðna var líklegt að finna marga með slæma heyrn.“ Nákvæmar rannsóknir gerðar Sem fyrr segir leituðu Friðrik og Einar til Vélstjórafélagsins um fé- lagaskrá með lágmarks upplýsing- um til þess að geta fundið góðan rannsóknarhóp. „Við gerðum tilvilj- unarúrtak eftir að við höfðum skipt vélstjórunum eftir vinnustað og bú- setu. Fundum við fyrst út jafna hópa þeirra sem unnið höfðu á sjó og í landi. Næst völdum við ein- göngu úr hópi félagsmanna á svæð- inu frá Sandgerði til Akraness, svo að þeir ættu auðvelt með að heim- sækja okkur til rannsóknarinnar. Loks var þess gætt að aldurshópar væru jafnir svo hægt væri að sjá dreifingu heyrnarskaða miðað við aldur félagsmanna.“ Viðbrögð við beiðni um rannsókn voru mjög góð. „85,7% nýtilegs úr- taks komu í mælingu, sem er ótrú- Nauðsynlegt að nota heyrnar- hlífar í hávaða SVEINN Kjartansson hefur sent Halldóri J. Kristjánssyni banka- stjóra Landsbankans greinargerð vegna skírnargjafa til sona sinna sem lagðar voru inn á sparisjóðs- bækur í bankanum, annars vegar fyrir 37 árum og 35 árum hins vegar. „Sá eldri fékk sína sparisjóðsbók með 500 króna innleggi 4. desember 1965 en hinn 28. mars 1967, einnig með 500 króna innleggi og var það bók með 10 ára bindingu enda nátt- úrlega á miklu betri vöxtum. Báðar bækurnar í Landsbanka Íslands, Austurbæjarútibúi,“ segir Sveinn. Hann segir ennfremur að þegar hann var lítill hafi faðir sinn reynt að kenna sér að spara og hvatt til þess að leggja peningana sína á vexti á sparisjóðsbók, í stað þess að eyða þeim í karamellur, eins og hann tek- ur til orða. „Hann sagði mér ef Páll postuli hefði lagt eina krónu í Landsbank- ann áður en hann dó, þyrfti enginn að vinna í heiminum, allir gætu lifað af vöxtunum. Fram eftir aldri hafði ég horn í síðu karlsins fyrir athug- unarleysið.“ Auðævi með páskasteikinni Eftir að hafa geymt skírnargjafir sona sinna í öll þessi ár segir Sveinn síðan að sér hafi komið til hugar að „kanna auðæfi sona sinna og færa þeim með páskasteikinni“. „Hinn 18. mars síðastliðinn lagði ég leið mína í nýja fína Landsbank- ann í Hafnarfirði, hitti þar þjónustu- fulltrúa, indæla konu, og bað hana að gefa mér upp innstæðu þessara bóka. Nú var ekki gaman lengur því þær fundust ekki í tölvunni, svo hún hringdi í sparisjóðsdeildina hjá LÍ á Laugavegi 77 því þar hafði afi strák- anna lagt inn. Þar fannst ekkert heldur og var henni vísað á upplýs- ingadeild en þar komum við líka að tómum kofunum. Bað hún mig að skilja bækurnar eftir hjá sér og sagði að hún myndi hringja strax og hún frétti eitthvað. Daginn eftir hringdi hún og sagði að á eldri bókinni væru 193 krónur en af bindibókinni væri ekkert að frétta. Sjö rúmhelgum dögum síðar, hinn 26. mars, heim- sótti ég hana og eftir nokkrar hring- ingar fékk ég skriflegt svar hjá henni að Landsbanki Íslands væri ekki enn fær um að upplýsa um innstæðu bók- arinnar. Hvað myndi Englandsbanki segja? Daginn eftir hringdi hún þó og gaf mér upp innstæðu, 248 krón- ur,“ segir hann. Sveinn hefur borið saman hvað fékkst fyrir 500 krónur fyrir 35 árum og innstæður bókanna í dag eftir að hafa verið geymdar hjá Landsbanka Íslands á vöxtum í rúm 35 ár, sem sjá má í stærri töflunni hér á síðunni. Hann segir kannski „yfirgrips- mikið þekkingarleysi“ að trúa því fornkveðna að græddur sé geymdur eyrir en afréð að snúa dæminu við og fá að vita hvað sonur hans þyrfti að borga í dag hefði hann tekið 500 króna skuldabréfalán í desember 1965. „Ég talaði við þjónustufulltrúann og spurði hvort bankinn vildi reikna þetta út fyrir mig. Hún sagði að það myndi kosta eitthvað og bað ég hana að finna þetta út. Eftir símtöl af og til í þrjár vikur taldi ég að bankinn vildi greinilega ekki sinna þessu. Sneri ég mér því til Fjármálaeftirlitsins, en þar var sama upp á teningnum. Fór ég því til frænda míns, reiknimeist- ara hins mesta, og reiknaði hann þetta út fyrir mig,“ segir Sveinn enn- fremur í greinargerð í fyrrgreindu bréfi til bankastjóra Landsbankans. Útreikninga á hugsanlegri skuld við bankann fylgja hér fyrir neðan textann. Bréf til banka vegna 35 ára gamalla skírnargjafa Bankinn skilar: Bankinn mundi vilja fá: (nálgunarreikningur) 500 kr. skuldabréf 80.000 kr. Mjólk 2,44 lítrum 1.000 lítra eða eitt tonn Kótilettur 0,2 kg 82 kg Brennivín 0,07 flöskum 28 flöskur Á Sögu 1,73 sjússum 700 sjússa Innlagt 4. desember 1965 Verðmæti þá Verðmæti í dag 500 kr. 193 kr. Mjólk, verð á lítra 7,50 67 ltr Verð á ltr 79 2,44 ltr Lambakótilettur Verð á kg 86,95 5,75 kg Verð á kg 930 0,20 kg Brennivín 0,70 ltr Verð á flösku 252 1,98 fl. Verð á flösku 2.590 0,07 fl. Verð á milliltr. 0,36 1.388 ml Verð á milliltr. 3,70 52 ml 30 milliltr. í sjússi á Sögu 46,26 sjússar 1,73 sjússar Innlagt 28. mars 1967 Verðmæti þá Verðmæti nú 500 kr. 248 kr. Mjólk, verð á lítra 8,70 57,47 ltr Verð á ltr 79 3,17 ltr Lambakótilettur Verð á kg 99,55 5,02 kg Verð á kg 930 0,26 kg Brennivín 0,70 ltr 294 1,70 fl. Verð á fl. 2.590 0,09 fl. Verð á milliltr. 0,42 1.190 ml Verð á ml 3,70 67 ml 30 milliltr. í sjússi á Sögu 39,66 sjússar 2,23 sjússar OPNUÐ verður mánudaginn 1. júlí klukkan 14 heimasíða hjá Árvekni, átaksverkefni um slysavarnir barna og unglinga, þar sem for- eldrar og aðrir uppalendur geta nálgast upplýsingar um slys á börnum og unglingum. Á síðunni eru til að mynda ítarlegar upplýs- ingar um þroska og getu barna, slys, heimilið og umhverfi þess, ör- yggi barna í bílum, ferðalög með börn og útivist, íþróttir og tóm- stundir, daggæslu í heimahúsi og aðra barnagæslu og leikskóla og grunnskóla. Einnig eru á síðunni gátlistar um slysagildrur á heim- ilum, fyrir unga hjólreiðamenn, um nýbyggingar, knapa og hest og barnabílstóla. Þá er bent á áhuga- verðar heimasíður, ýmsa bæklinga og rit og fréttir sem og hvernig þeir sem vilja senda Árvekni al- mennan tölvupóst eða til- kynna um slysagildru eða slys eiga að bera sig að. Herdís Storgaard, framkvæmdastjóri Ár- vekni, segir að við gerð síðunnar hafi verið byrjað á því að sinna foreldrum, öfum og ömmum, því sá hópur hringi mest í leit að upplýsingum. „Við ein- beitum okkur að heim- ilinu og nánasta umhverfi nú í sumar. Í haust þegar skólarnir byrja og yfir vetr- armánuðina verðum við með efni sem því tengist. Markmiðið er að draga út tiltekið umfjöllunarefni á hverjum árstíma, um þessar mundir er það til að mynda heitir pottar og hjól, þannig að þeir sem nota síðuna fái ítarlegri upplýsingar en þessar stöðluðu sem alltaf eru fyrir hendi á síðunni,“ segir hún. Þá stendur til að forsíðan verði fréttasíða með nýjustu upplýsingum um tiltekið efni, svo sem öryggismál. Slóðin er www.arvekni.is. Heimasíða fyrir upp- alendur komin í gagnið Morgunblaðið/Kristján Árvekni opnar heimasíðu á mánudag þar sem er að finna ýmsar upplýs- ingar um slys, þroska barna og unglinga og margt fleira. Sveinn ber saman hvað fékkst fyrir 500 krónur fyrir 35 árum og hvað fengist fyrir innstæður bókanna í dag. Dæmi um hvað lántaki gæti þurft að greiða bankanum hefði hann tekið 500 krónur að láni fyrir 37 árum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.