Morgunblaðið - 29.06.2002, Page 38

Morgunblaðið - 29.06.2002, Page 38
UMRÆÐAN 38 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ M ARGIR Íslend- ingar eru ennþá reiðir. Það er ekki allt gleymt og grafið. Stjórn- völd sýndu fádæma léleg vinnu- brögð og hafa ekki enn leiðrétt eða gefið skýringar á því sem gerðist við heimsókn Kínaforseta hingað til lands á dögunum. Þá er átt við tilurð svörtu listanna og meðferð á friðsömu mótmæla- fólki. Allsherjarnefnd Alþingis hefur fundað, en þar fengust ekki full- nægjandi skýringar. Ríkisstjórn- inni finnst þetta tilhlýðilegt en ekki stendur öll þjóðin á bak við hana í því máli. Mótmæli í nokkra daga er ekki nóg ef ekkert fylgir á eftir. Almenningur á ekki að gleyma svo glatt og eyða atkvæðum eftir því. At- kvæðin eru okkar tæki til að hafa áhrif. Við eigum að stuðla að umræðu nú fremur en nokkru sinni en ekki láta málið deyja út eins og fleiri á undan. Meiri umræða þarf að fara fram á Íslandi um tjáning- arfrelsið, framkomu stjórnvalda í Kínaforsetamálinu, lýðræðið, mótmælarétt og atkvæðisréttinn. Margir íbúar Íslands mót- mæltu um daginn sem betur fer. Þetta er eitthvað nýtt á Íslandi, hér hafa jú mótmælt framhalds- skólanemendur og herstöðva- andstæðingar en lítið umfram það síðustu árin. Enda hélt for- sætisráðherra því fram að mót- mælendur við stjórnarráðið hefðu verið unglingar og fjöl- miðlamenn að búa til fréttir og þeir sem rituðu nafn sitt undir auglýsingu þar sem beðist var af- sökunar á framferði íslenskra yf- irvalda væru áskrifendur að mót- mælalistum! „En það er auðvitað umhugs- unarefni að 500 til 600 manna vel skipulagður hópur útlendinga geti ákveðið að sækja landið heim í þeim eina tilgangi að breyta eða skaða verulega ákvarðanir sem rétt kjörin stjórnvöld hafa tekið og sett hér allt á annan endann,“ sagði for- sætisráðherra Íslands í viðtali í þessu blaði fyrir viku. Hann hef- ur ekki alla þjóðina á bak við sig þegar hann segir þetta. Og forsætisráðherra ræddi um fleira í viðtalinu, t.d. Evrópu- málin: „Ég hef enga trú á að þjóðin muni hafa áhuga á að gera Evrópumálin að kosningamáli. Það munu sjálfsagt einhverjir reyna það en ég tel að það séu mörg brýnni mál sem ræða þarf í kosningum en þetta.“ Og litlu síðar: „Það vita það allir í dag að næsta ríkisstjórn verður ekki mynduð um Evrópusamstarfið.“ Og einnig: „Evrópusambandið er eitthvert ólýðræðislegasta skrif- finnskubákn, sem menn hafa fundið upp...“ Evrópumálin verða að vera á dagskrá og verða kosningamál í alþingiskosningunum eftir ár, ef kjósendur óska þess. Þeir ákveða það en ekki forsætisráðherra. Annað er vanvirðing við lýðræð- ið, en það er svosem ekkert nýtt þessa dagana. Forsætisráðherra hélt því fram í viðtalinu að Evrópu- umræðan þyldi ekki dagsins ljós, hann reyndi að hvetja til hennar en aðrir brygðust ókvæða við. Margir aðrir en forsætisráðherra hafa hvatt til Evrópuumræð- unnar og hún hefur þrátt fyrir allt farið fram í vetur en betur má ef duga skal. Gerhard Sabathil, sendiherra ESB á Íslandi og í Noregi, segist ekki líta á ummæli forsætisráð- herra þess efnis að Evrópusam- bandið væri eitthvert ólýðræð- islegasta skriffinnskubákn sem menn hefðu fundið upp sem stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands, heldur prívatskoðun for- sætisráðherrans. Að mati Sabat- hil er yfirlýsing forsætisráðherra mjög hörð í ljósi þess að aðild- arríki ESB eru rótgróin lýðræð- isríki, eins og fram kom í viðtali Ríkisútvarpsins við hann. Sabathil segir það furðu sæta í ljósi þessara ummæla að Ísland geri samning við svo ólýðræð- islega stofnun. Ísland er nefni- lega aðili að samningnum um evrópska efnahagssvæðið og þannig í nánum tengslum við „skriffinnskubáknið“. Ólýðræðislegt skriffinnsku- bákn væri fremur hægt að kalla Kína sem forsætisráðherra og aðrir yfirmenn Íslands hafa við- urkennt með heimsókn Jiang Zemin hingað til lands. Kalla hefði mátt Ísland ólýðræðislegt skriffinnskubákn nokkra daga í júní þegar Falun Gong-fólki var meinuð landvist og hindrað á för sinni hingað til lands. Í Osló voru mikil mótmæli í vikunni, friðsamleg en fjölmenn þar sem um 10 þúsund manns gengu um götur borgarinnar með mótmælaspjöld. Þar var mótmælt alþjóðavæðingu og starfsemi Alþjóðabankans. Full- an rétt höfðu mótmælendur á því. Hvað gerist ef Alþjóðabankinn fundar hér? Hvað hefði gerst ef mótmælendur hefðu komið hing- að í tengslum við NATO- fundinn? Íslendingar þurfa að líta í eigin barm og bera sig saman við aðr- ar lýðræðisþjóðir. Stöndum við okkur? Eða stöndum við öðrum að baki? Grein Svanfríðar Jónasdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, í Morgunblaðinu á fimmtudag eru orð í tíma töluð og ég geri loka- orð hennar að mínum: „Við hljótum að taka tillit til þeirra breytinga sem eru að verða og skoða stöðu okkar í Evrópu og íhuga hvernig við stöndum best vörð um félags- kerfi okkar og menningu, íhuga með hverjum við eigum helst samleið. Og þótt einhverjum þyki öryggi í því að hafa asklok fyrir himin getum við ekki einungis tekið þátt í alþjóðasamstarfi til að verja efnahagslega hagsmuni okkar gagnvart öðrum þjóðum. Við hljótum líka að vilja vera virkir þátttakendur í lýðræðis- þróun Vesturlanda. Það er háttur fullvalda þjóða.“ Gleymt og grafið? Kalla hefði mátt Ísland ólýðræðislegt skriffinnskubákn nokkra daga í júní þegar Falun Gong-fólki var meinuð landvist og hindrað á för sinni hingað til lands. VIÐHORF Eftir Steingerði Ólafsdóttur steingerdur- @mbl.is ÞAÐ var eitt sinn maður sem varð fyrir því óláni að það sprakk dekk hjá honum á ferðalagi eftir sveita- vegi. Hann var nú ekki í sem bestu skapi eftir þetta og ekki skánaði nú viðhorfið þegar hann komst að því að hann var ekki með neinn felgulykil. Álengdar sá hann sveitabæ einn og afréð að ganga þangað og sjá hvort hann fengi ekki lánaðan felgulykil. Á leiðinni þangað fór hann að tuða með sjálf- um sér að bóndinn ætti örugglega ekki til felgulykil og síðar að bóndinn vildi örugglega ekki lána honum felgulykil þó hann ætti einn slíkan. Svo vel hafði honum tekist að koma sér í þessa neikvæðu afstöðu að þegar hann hafði kveðið dyra og bóndinn opnaði tjáði hann felmtri slegnum bóndanum fyrirfram ná- kvæmlega hvað hann gæti gert við þennan felgulykil sem hann vildi ekki lána honum. Svolítið á þennan veg finnst mér umræðan um aðild að Evrópusam- bandinu vera hér á landi. Forsætis- ráðherra pantar skoðanakannanir þar sem niðurstöður afskaplega leið- andi spurninga eru notaðar til að réttlæta að við ættum ekki einu sinni að íhuga aðild að Evr- ópusambandinu. Á sama tíma eru samtök hagsmunaaðila sem sjá hag sínum best borgið með aðild, að láta gera skoðanakannanir á svipuðum forsendum en með allt öðrum nið- urstöðum. Svo rammt kvað að einmitt þessum niðurstöðum að for- sætisráðherra þurfi að fara til Noregs til að róa þarlenda ráðamenn sem fannst einsýnt að við mundum skilja þá eina eftir með Lichten- stein í EES, nokkuð sem þeir gátu ekki hugsað sér. Mér finnst sem þetta sé ekki bein- línis uppbyggjandi umræða og reyndar móðgun við kjósendur. Það er svo greinlega verið að leiða kjós- endur eins og sauðfé, í fyrirfram ákveðin hólf, án þess að fyrir liggi neinar forsendur fyrir téð sauðfé að leita í slík hólf. Enginn veit hverjar niðurstöður aðildarviðræðna verða fyrirfram. Það má vel vera að þegar þær liggja fyrir verði þær felldar í þjóðarat- kvæðagreiðslu en það er eins og eigi að koma í veg fyrir þann möguleika með því að leiða umræðuna út í fyr- irfram gefnar niðurstöður. Það er al- veg ljóst að aðild að Evrópusamband- inu hefur mikla kosti og engu minni galla í för með sér en við þurfum að ákveða fyrst hvort við eigum að hefja aðildarviðræður eða ekki. Við getum ekki látið einstaka hagsmunaaðila neita okkur um þau sjálfsögðu rétt- indi að fá að meta það hvert fyrir sig, hvort endanlegur samningur sé við- unandi eða ekki. Ef við ákveðum að hefja aðildar- viðræður getur það tekið ár og jafn- vel áratug áður en við höfum samn- ing í höndunum sem við getum kosið um í þjóðaratkvæðagreiðslu. Að því leiðir að stjórnmálamenn og hags- munaaðilar hafa nógan tíma til að búa til fleiri leiðandi spurningar og fá „hlutlausa“ aðila til að spyrja þeirra í millitíðinni. Eigum við þá ekki bara að kjósa um aðildarviðræður í næstu kosning- um í stað þess að kjósa um ímynd- aðan aðildarsamning? Guðjón Viðar Valdimarsson Höfundur er framkv.stj. dulkodun.is ESB Ef við ákveðum að hefja aðildarviðræður, segir Guðjón Viðar Valdi- marsson, getur það tek- ið ár og jafnvel áratug. Evrópusambandið og felgulykillinn ÉG Á í baráttu við Stef af því ég kýs að flytja tónlist á sjón- varpsstöð minni eftir löngu látna höfunda. Bach, Beethoven, Moz- art, Schubert, Brahms og fleiri heiðursmenn. Heiðursmenn sem samkvæmt skilningi höfundalaga njóta ekki verndar á tónsmíðum sínum nema í 70 ár eftir dauða sinn. Þessir ein- stöku tónsmiðir voru flestir uppi á sautjándu og átjándu öld. En mat- arholumenningarvit- arnir hjá Stefi hafa nú sannfært fulltrúa sýslumannsins í Reykjavík um að þeir hafi tilefni til að setja lögbann á flutning meistar- anna. Á hvaða forsendu? Jú, annar heiðursmaður, Waldo De Los Rios, útsetti tónsmíðar þeirra og því telja tónfrömuðirnir á Laufásveginum að útfærsla hans njóti verndar. Kannski er það svo, en höfundalögin eru líka skýr hvað varðar útsetning- ar. Waldo gaf út plötu þá er um ræð- ir 1971 og telst verk hans þá birt í skilningi laganna. Ef hann nýtur verndar á útfærslu sinni gildir það einungis í 25 ár, af því hann samdi ekki tónverkin, heldur einungis breytti þeim. Hvernig þeir Stef- menn hyggjast sannfæra dómara fyrir héraðsdómi til að staðfesta þessa herferð gegn mér og fyrirtæki mínu verður fróðlegt að sjá. Ég segi herferð því öll meðul hafa verið not- uð í baráttu hagsmunaaðila til að berja niður Stöð 1 sem þessir herrar hræðast svo mjög. Það er ekki til- viljun að lögfræðingum stjórnarfor- manns Skjáseins skuli vera beitt í þessu Stef máli. Þar á bæ er öllum árum beitt til að selja sig dýrt inn í Norðurljós, enn eina ferðina, og því ekki verra að væntanlegum samkeppnisaðila sé fyrst rutt úr vegi. Og af hverju þessi læti hjá STEF eigin- lega? Það er nú ekki eins og við séum á fullu í samkeppni á ljósvaka- markaði ennþá, spil- andi daginn út og dag- inn inn einhver popplög. Við erum að setja upp búnað víða á landinu, við erum að komast í startholurnar, við erum ekkert farnir að láta til okkar taka ennþá. Við sendum út fasteignasjón- varp og tilkynningar og nú á næst- unni hefjast kynningar frá Skjá- markaðinum. Við leikum þarna tónlist sem nýtur ekki verndar, og því í ósköpunum eru þessir menn þá að eyða tíma, orku og fjármunum í þetta vesen. Af því það liggja ein- hverjir aðrir hagsmunir þarna að baki. Samkeppni á þessum markaði er eitur í beinum manna sem lagt hafa hundruð milljóna í þennan rekstur og telja sig eiga það á hættu að tapa því verði Stöð 1 vinsæl meðal almennings. Ég borga STEF ekki, af því ég þarf þess ekki. Ég sé enga ástæðu til að borga þessum mönnum mörg hundruð þúsund á mánuði fyr- ir það eitt að flytja verndaða tónlist, þegar ég get flutt tónlist sem ekki nýtur verndar og þarf því ekki að borga neitt. Þetta er bara eðlilegt í viðskiptum þar sem hver króna skiptir máli. Þetta hefði einhvern tímann verði kallað útsjónarsemi og gott og gilt mat að spara sínu fyr- irtæki fjármuni. Ég sem ekki við glæpamenn. Menn sem þiggja kons- ertmiða á stórtónleika Jose Carreras gegn loforði um niðurfellingu Stef- gjalda, en svíkja það svo eftirminni- lega og hlaupa með það í blöðin. Menn sem spila sjálfir í brúðkaupum og greiða ekki gjöld til síns eigin fé- lags. Menn sem með pólitískum áhrif- um þvinguðu í gegn álögur á fjöl- miðla þegar ríkið var eitt á ljósvaka- markaði. Menn sem taka ekkert tillit til raunhæfs áhorfs eða hlustunar. Menn sem beita fjárkúgunum á borð við þær sem við nú stöndum frammi fyrir til þess eins að þvinga mann að samningaborði og samþykkja ein- hliða kröfur þeirra. Menn sem eru ekki með neina verðskrá, og geta ekki fært rök fyrir gjaldtöku ljós- vakamiðla. Menn sem semja um eitt og annað við hinn og þennan, en framvísa ekki gjaldskrá til að styrkja rök sín fyrir gjaldtöku. Menn sem hafa ekkert nema þvinganir í farteskinu. Ég borga ekki og spila því Bach, Beethoven og Mozart, áhorfendum Stöðvar 1 vonandi til óblandinnar ánægju. Þrefað um Stefið Hólmgeir Baldursson Sjónvarp Samkeppni á þessum markaði, segir Hólm- geir Baldursson, er eitur í beinum manna. Höfundur er stjórnarformaður Stöðvar 1 hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.