Morgunblaðið - 29.06.2002, Page 44
MINNINGAR
44 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
lega fjörutíu ára aldursmun milli
okkar, þegar við vorum að spjalla
saman. Þessi kersknisfulli húmor
hans og napra grín gerði umræðurn-
ar svo óskaplega myndrænar að þær
standa manni ljóslifandi fyrir hug-
skotssjónum tímunum saman. Hann
var svo skemmtilegur að hann átti
fáa sína líka á því sviði, eða þrjóskan
maður. Aldrei hef ég vitað þrjóskari
mann. Þegar elli kerling var búinn
að taka Ellu hans frá honum og
beygja hann svo að fyrirséð var að
hann myndi ekki öllu lengur geta
verið einn á Votumýri og ekki geta
farið öllu lengur allra sinna ferða á
pikkuppnum og allt svona að hníga í
þá átt að ævin væri að renna sitt
skeið. Hvað gerði hann þá? Fór hann
að gráta örlög sín eða leggja árar í
bát? Nei nei. Hann keypti sér píanó.
Við sátum oft við gluggann á Vot-
umýri og ræddum lífið og tilveruna.
Stundum grínaktugir eins og gengur
og stundum alvarlegir. Deildum
gleði og sorgum eins og vinir gera og
fundum held ég báðir fyrir þessu
skilyrðisleysi vináttunnar. Svo fór-
um við niður í kjallarann, á smíða-
stofuna og skoðuðum nýjasta hand-
verkið hans eða ræddum hugmyndir
að nýjum verkefnum. Oftar en ekki
lentum við svo inni í orgelherberginu
og hann spilaði fyrir mig.
Ég á alla ævi eftir að sjá hann fyrir
mér spila „Hvert örstutt spor“, það
var dásamlegt. Svo heimtaði hann að
ég borgaði fyrir og spilaði eitthvað
fyrir sig. Og ég sem ekkert kunni
nema glamra part og part úr lagi eft-
ir eyranu, mátti setjast og glamra
fyrir kirkjuorganistann, fyrir meist-
arann! Og hann sagði, þegar ég var
búinn með nokkur brot úr lögum hér
og þar: „Mikið öfunda ég þig af að
geta spilað eftir eyranu, ég er alveg
bundinn við nóturnar.“ Já, nú er
hann búinn að ljúka sínu mikla ævi-
starfi. Þessi litli horaði og lítið eitt
hokni maður, sem árum saman smíð-
aði og teiknaði nánast öll hús á
Skeiðum, sem árum saman spilaði á
orgelið við hverja einustu messu á
Ólafsvöllum og svo var hann bóndi,
sem eitt og sér hefði verið nóg og svo
var svo margt annað, því alls staðar
sem hreyft var á verki var Eissi á
Votumýri nálægur. Það er lygilegt
starf sem eftir hann liggur.
Ég á eftir að sakna hans. Finna
fyrir tómleikanum í sálinni yfir því
sem vantar. Finna jafnframt fyrir
þessari gleði sem ég finn fyrir innra
með mér þegar ég hugsa um þennan
einstaka vin minn. Minningin kemur
sjálfsagt til með að mást smám sam-
an, það er líka eðlilegt, en ég get lof-
að því að ég á oft og lengi enn eftir að
vitna í og segja sögur af Eissa á Vot-
umýri.
Jón Bjarnason.
Ennþá fækkar vinum mínum sem
eðlilegt má teljast þegar aldurinn
færist yfir. Í þetta sinn er það Eirík-
ur á Votumýri sem yfirgefið hefur
þessa jarðvist, en hann lést á Landa-
kotsspítala aðfaranótt 15. þ.m. Ekki
kom það á óvart þar sem hann var
haldinn erfiðum sjúkdómi og búinn
að dvelja á sjúkrahúsum mikið í vet-
ur. Örugglega hefur hann verið bú-
inn að gera sér grein fyrir hvert
stefndi þótt aldrei talaði hann um
það, heldur ræddi um framtíðina
eins og tíminn væri ótakmarkaður.
Nýlega lét hann keyra sig austur að
Votumýri, þar leit hann yfir óðalið og
sá ævistarfið blasa við, tveimur dög-
um síðar var hann allur.
Á árunum 1940–1950 eða á svo-
kölluðum eftirstríðsárum urðu mikl-
ar breytingar hér í sveit og reyndar
víðar. Menn fóru að sjá peninga
streyma milli vasa, jörðum var skipt,
ungir bændasynir stofnuðu nýbýli og
hófu búskap. Eiríkur var einn þeirra,
hann byggði nýbýli á Votumýri,
reisti vandað íbúðarhús, fjós, hlöðu
og smíðahús og kom sér upp blönd-
uðu búi. Hann var þá nýgiftur
frænku sinni Elínu frá Löngumýri,
sem er látin fyrir nokkrum árum.
Ég er ekki viss um að Eiríkur hafi
verið svo mikið fyrir hefðbundinn
búskap, langanir hans stefndu ann-
að. Hann var smiður af Guðs náð og
fyrst og fremst var það hans ævi-
starf. Menn eins og Eiríkur eru kall-
aðir ,,völundar“ og hann bar það
heiti með sóma. Flestöll, kannske öll
heimili í sveitinni nutu handa hans í
einhverju verki. Hann var ævinlega
komin þar sem átti að byggja eða
lagfæra með sín tæki og tól. Seinni
árin lagði hann niður hefðbundinn
búskap og sneri sér að smíðum og sá
aldrei út úr verkefnunum. Hann
skapaði sér góða aðstöðu við smíð-
arnar, rúmgóð húsakynni og góðan
vélakost. Við vorum stundum að
grínast með það okkar á milli að
hann hefði þrjá sali. Í sal eitt var hef-
ilbekkurinn og öll handverkfæri, sal-
ur tvö var efnisgeymsla og í sal þrjú
var heljarmikil trésmíðavél, sem
hann eignaðist því miður allt of seint.
Ekki má gleyma þeim þætti í ævi
Eiríks sem tónlistin var. Hann gerð-
ist ungur organisti við Ólafsvalla-
kirkju og gegndi því starfi í áratugi
þar til hann lét af því starfi að eigin
ósk. Alltaf þegar æfa þurfti söng og
skemmtiatriði fyrir margs konar
samkomur var Eiríkur boðinn og bú-
inn. Hann lék undir, útvegaði nótur
og stjórnaði söng. Ekki var það
vegna þess að hann vildi trana sér
fram, en hann var hlédrægur maður
í eðli sínu, heldur þótti öllum það
sjálfsagt.
Mér finnst að Eiríkur hafi verið
gæfumaður, hann giftist góðri konu
og eignaðist með henni þrjú mann-
vænleg börn sem reynst hafa honum
vel, ekki síst í veikindum hans nú
seinni árin. Auðvitað varð hann fyrir
ýmsum áföllum í lífinu eins og svo
margir verða að þola. Eiríkur var
viðkvæmur maður og grunnt á kvik-
una, hann hafði sterka réttlætis-
kennd og enginn efaðist um heiðar-
leika hans, þannig upplifði maður
hann. Við Eiríkur vorum góðir kunn-
ingjar frá fyrstu tíð. Nú seinni árin
höfum við nálgast hvorn annan og úr
varð traust vinátta. Ég á góðar
minningar frá heimsóknum mínum
að Votumýri, við ræddum mikið
saman og ósjaldan enduðum við niðri
í kjallara, þá spilaði Eiríkur á orgelið
og ég söng. Þetta eru mér ógleyman-
legar stundir sem ég er þakklátur
fyrir. Ég votta fjölskyldunni dýpstu
samúð. Blessuð sé minning Eiríks á
Votumýri.
Ingvar Þórðarson.
Nú hefur Eiríkur á Votamýri skil-
að sínu ævistarfi, og er líklega hvíld-
inni feginn. Eftir sitjum við vinir
hans og sveitungar með eigingjarna
sorg í hjarta, og yljum okkur við ljúf-
ar minningar um þennan aldna heið-
ursmann.
Þegar ég flutti í þessa fallegu
sveit, Skeiðin, fyrir mörgum árum,
skorti ekkert á hlýtt viðmót Skeiða-
manna í minn garð. Fáir sýndu þó
viðlíka hjálpsemi og kærleika og Ei-
ríkur. Kynslóðabilið margumtalaða
er líklega heldur breiðara í þéttbýl-
inu en sveitum landsins, en þarna
var það alls ekki til. Ég var sautján
ára telpukorn úr höfuðborginni, og
hann var þá kominn á efri ár, og
hafði verið í sveit allt sitt líf. Á milli
okkar myndaðist vinátta sem aldrei
bar skugga á, og auðgaði líf mitt
meir en orð fá lýst. Það var notalegt
að koma að Votamýri og þiggja þar
kaffisopa og góð ráð hjá ykkur hjón-
um, og mér fannst ég fara þaðan
betri en ég kom.
Vertu sæll, kæri vinur. Sönn vin-
átta hirðir hvorki um gröf né dauða,
og þótt við spjöllum minna saman í
framtíðinni finn ég fyrir kærleika
þínum eins og áður, og ef til vill á ég
eftir að spyrja þig ráða einhverntíma
í einrúmi.
Ég veit þú hlustar.
Harpa Dís og allir
hinir í Björnskoti.
Eiríkur á Votamýri var einn fyrsti
Árnesingur sem ég kynntist á
organistanámskeiðum í Skálholti,
sem Haukur Guðlaugsson söngmála-
stjóri stóð fyrir frá 1974. Þangað
sótti Eiríkur af áhuga og samvisku-
semi, en orgelleikur hans í heima-
kirkjunni á Ólafsvöllum var rómað-
ur. Hann hafði þaulæft hvert verk
sem spila skyldi og allt líf hans var
mótað af heilindum þess sem skoðar,
metur og undirbýr.
Hann afrækti ekki búskap eða
smíðar vegna hljómlistarinnar,
grannar og frændur sóttu til hans og
þessi bóngóði ljúflingur hafði ráð
undir rifi hverju.
Votamýrarættin frá föðurforeldr-
um Eiríks, Höllu og Eiríki á Vota-
mýri, er fjölmenn á framhluta Skeið-
anna og það er ritara þessara lína
minnisstætt að taka þátt í ættarmóti,
sem þeir Votmýringar héldu fyrir
hálfum öðrum áratug í miklu votviðri
í Brautarholti en ekkert fékk haggað
ljúfmennsku og þrautseigju Eiríks
og margra frænda hans þótt móti
blési. Guð blessi Eirík Guðnason og
störf hans.
Ingi Heiðmar Jónsson.
Við sátum yfir síðbúnum morgun-
verði austur í Rangárvallasýslu laug-
ardagsmorguninn 15. júlí sl. þegar
síminn hringdi og okkur var tilkynnt
að Eiríkur á Votamýri hefði látist þá
um nóttina.
Alltaf koma andlátsfréttir óþægi-
lega við fólk, þó svo að okkur hafi
verið ljóst að hverju dró. Upp í hug-
ann koma ótal minningar frá dvöl
okkar á Votamýri, en þar höfum við
haft hestana okkar í sumarbeit mörg
undanfarin ár. Og þar sem hrossin
okkar eru, þar erum við flestar helg-
ar yfir sumartímann. Kyrrðarinnar á
bökkum Þjórsár, þar sem við tjöld-
uðum oft, verður lengi minnst, en
hana rauf ekkert nema fuglasöngur
og einstaka ferðamenn á hestum
sem áttu leið um bakkana. Á þessum
bökkum sem við riðum oft fram og
tilbaka og sögðum vera skemmtileg-
ustu reiðleið á landinu.
Það má segja að það hafi verið eins
og að koma heim eftir langa fjarveru
þegar við komum á vorin að Vota-
mýri, stundum ríðandi eftir þriggja
daga ferð úr bænum. Við vorum drif-
in beint til stofu að ríkulegu kaffi-
borði. Síkar voru móttökurnar hjá
Elínu og Eiríki að lengi verður
minnst og margan kaffibollann höf-
um við síðan þegið við eldhúsborðið
hjá Eiríki, eftir að Elínar naut ekki
lengur við.
Á slíkum stundum urðum við
margs vísari um lífið í sveitinni á ár-
um áður og hann sjálfan. Og svo
ræddum við lífið og tilveruna fram
og til baka.
Við urðum þess vísari, að hann var
fæddur og uppalinn á Skeiðunum, og
hafði verið þar alla tíð. Honum þótti
vænt um landið og sveitina sína og
ætlaði ekki að fara þaðan fyrr en yfir
lyki.
Á haustin var oft erfitt að ná
samningum um framhaldið á næsta
ári. Eina svarið sem við fengum var
oftast nær: „Við skulum sjá til. Það
er ekkert víst að ég verði hér ennþá á
næsta ári.“ Undanfarin ár hefur það
þó verið þannig að Eiríkur var ennþá
að vori þegar komið var að því að
sleppa. En einhvern tíma tekur allt
enda og nú er komið að leiðarlokum.
Við þökkum Eiríki þolinmæðina við
okkur og ánægjulegar stundir á
mörgum undanförnum árum.
Eiríki var margt til lista lagt.
Hann var listasmiður og dáðumst við
oft að gömlum munum, sem hann
hafði verið að gera upp fyrir kunn-
ingja sína eða sveitunga. Eitt vorið
sýndi hann okkur forláta klukku sem
hann hafði skorið út um veturinn.
Þannig léku allir hlutir í höndum
honum. Þess má einnig minnast að
hann teiknaði gangnamannahúsin
inni á afrétti, bæði í Kletti og Hall-
armúla.
Á yngri árum fór hann til Reykja-
víkur og lærði organleik og í fram-
haldi af því var hann organleikari í
kirkjum sóknarinnar um langt ára-
bil.
Við vottum börnum Eiríks og fjöl-
skyldum þeirra samúð okkar um leið
og við þökkum góða viðkynningu á
undanförnum árum.
María og Sturla, Gróa
og Kristmundur.
EIRÍKUR
GUÐNASON
5 "
1
1 &
!
7
*+*+, A 2 %BC
0('
#'
7&#!2
2 -
$
$
$ -+.D,-.. 8% 
/ &
&
6
"
/0$ "
#
'
/ 3-& "
%2%2%
/"
02# =
/
& 0 &&
/ 72% # "
0 -'")
'
&%2 &0
5
"
"
1
1 &
!
$
$ !
!
)*89
)+E38,-..+
"
$ 6
&
3
%& %%E "
%2
6 7'F' "
4 4"4 4 4 5
"
1
&
!
!
!
.3- ; 8%40''%G
= "
#
7
/ &%3 "
/ !"00"
/
;4
/" 958/%
/!
/" 0&
4 4"4 4 4
MORGUNBLAÐIÐ tekur af-
mælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Greinunum er veitt viðtaka á rit-
stjórn blaðsins í Kringlunni 1,
Reykjavík, og á skrifstofu blaðs-
ins í Kaupvangsstræti 1, Akur-
eyri. Þá er enn fremur unnt að
senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að
símanúmer höfundar/sendanda
fylgi.
Um hvern látinn einstakling
birtist formáli, ein uppistöðu-
grein af hæfilegri lengd, en aðrar
greinar um sama einstakling tak-
markast við eina örk, A-4, miðað
við meðallínubil og hæfilega línu-
lengd, - eða 2.200 slög (um 25
dálksentimetra í blaðinu). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmarkast
við eitt til þrjú erindi. Greinar-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru birt-
ar greinar um fólk sem er 70 ára
og eldra. Hins vegar eru birtar
afmælisfréttir ásamt mynd í
Dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að diskling-
ur fylgi útprentuninni. Það eykur
öryggi í textameðferð og kemur í
veg fyrir tvíverknað. Auðveldust
er móttaka svokallaðra ASCII-
skráa sem í daglegu tali eru
nefndar DOS-textaskrár. Þá eru
ritvinnslukerfin Word og Wor-
dperfect einnig auðveld í úr-
vinnslu.
Birting afmælis- og
minningargreina