Morgunblaðið - 29.06.2002, Side 53

Morgunblaðið - 29.06.2002, Side 53
MESSUR Á MORGUN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2002 53 ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa starfsfólks Áskirkju er bent á guðsþjónustur í ná- grannakirkjunum. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Organisti Stefán Þorleifsson. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11:00. Sr. Jak- ob Ág. Hjálmarsson prédikar. Dómkórinn syngur. Organisti Marteinn H. Friðriksson. GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Sr. Ólafur Jóhannsson. GRUND, dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðsþjónusta kl. 10:15. Prestur sr. Kjart- an Örn Sigurbjörnsson. Organisti Örn Falk- ner. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Félagar úr Mótettukór syngja. Organisti Hörður Áskelsson. Sr. Sigurður Pálsson. Ensk messa kl. 14:00. Prestur sr. Bragi Friðriksson. Organisti Guðný Einarsdóttir. Kristín María Hreinsdóttir syngur einsöng og leiðir safnaðarsöng. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Org- anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. LANDSPÍTALI, Hringbraut: Guðsþjónusta kl. 10:30. Sr. Gunnar R. Matthíasson. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Messa kl. 11:00. Í messunni verður þess minnst að 50 ár eru liðin frá stofnun Langholtssafnaðar. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stef- ánsson. Kór Langholtskirkju syngur. Kaffi- sopi eftir messu. LAUGARNESKIRKJA: Fullorðinsfræðsla kl. 19:00. Margrét Hróbjartsdóttir kristni- boði segir frá viðburðaríku lífi sínu í Afríku, trúnni á Guð og óvæntu móðurhlutverki. Sumarguðsþjónusta kl. 20:00. Sigurbjörn Þorkelsson leiðir guðsþjónustuna og pré- dikar. Nína Dóra Pétursdóttir segir frá lífi sínu og trú. Kór Laugarneskirkju syngur undir stjórn Gunnars Gunnarssonar. Barnagæslan er í höndum Geirlaugs Sig- urbjörnssonar og messukaffið annast Sigríður Finnbogadóttir. NESKIRKJA: Messa kl. 11:00. Kór Nes- kirkju syngur. Organisti Reynir Jónasson. Prestur sr. Frank M. Halldórsson. SELTJARNARNESKIRKJA:. Tíðagjörð kl. 11:00. Tíðagjörð er guðsþjónustuform þar sem textar Biblíunnar eru sungnir og íhug- aðir í bæn og lofgjörð til Drottins. Í upp- hafi stundarinnar verða helstu þættir þessa helgihalds kynntir og æfðir. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja. Arna Grétarsdóttir guðfræðingur leiðir stundina. Verið hjartanlega velkomin. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Kvöldmessa kl. 20.30. Anna Sigríður Helgadóttir og Karl Möller annast tónlistarflutning ásamt kór Fríkirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir. Hjörtur Magni Jóhannsson. Safnkirkjan í Árbæ: Messa nk. sunnudag kl. 14:00. Organisti Ingimar Pálsson, prestur sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson. Til- valið tækifæri fyrir börn og fullorðna að kynnast helgihaldi í kyrrð gamallar sveita- kirkju. Safnkirkjan í Árbæ er sveitarkirkja í borg. Kristinn Ág. Friðfinnsson. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Organisti: Björn Thorarensen. Kirkjukórinn syngur. Prestarnir. BREIÐHOLTSKIRKJA: Kirkjan verður lok- uð vegna sumarleyfa starfsfólks til 10. ágúst. Bent er á guðsþjónustur í öðrum kirkjum prófastsdæmisins. DIGRANESKIRKJA: Kvöldmessa kl. 20.30. Prestur sr. Magnús B. Björnsson. Organisti. Bjarni Þór Jónatansson. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 20:00. Umsjón hefur Elín Elísabet Jó- hannsdóttir. Organisti: Guðný Ein- arsdóttir. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir söng. GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti: Hörður Bragason. HJALLAKIRKJA: Guðsþjónustur falla nið- ur í júnímánuði vegna sumarleyfa starfs- fólks safnaðarins. Við bendum á guðs- þjónustur í öðrum kirkjum í Kópavogi. Sr. Íris Kristjánsdóttir. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti Julian Hewlett. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson. SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta í Skógarbæ kl. 16:00. Sr. Ágúst Einarsson prédikar. Organisti er Gróa Hreinsdóttir. Guðsþjón- usta í Seljakirkju kl. 20:00. Altarisganga. Sr. Ágúst Einarsson prédikar. Organisti er Gróa Hreinsdóttir. FRÍKIRKJAN VEGURINN: Opið hús kl. 20. Högni Valsson heldur áfram að fara í Efe- susbréfið. Allir hjartanlega velkomnir. Ath. að samkomurnar eru á fimmtudögum í sumar. Þá er einnig barnastarf í gangi fyrir 4-10 ára. FÍLADELFÍA: Almenn samkoma sunnudag kl. 20. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Lofgjörðarhópur Fíladelfíu syngur. Allir hjartanlega velkomnir. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur: Bænastund kl. 19.30. Kl. 20 hjálpræð- issamkoma í umsjón Áslaugar Haugland. KEFAS, Vatnsendabletti 601: Samkoma sunnudag kl. 14. Helga R. Ármannsdóttir talar. Bænastund fyrir samkomu kl. 13.30. Lofgjörð og fyrirbænir. Barna- gæsla fyrir 1-7 ára börn. Þriðjud.: Bæna- stund kl. 20.30. Miðvikud.: Sam- verustund unga fólksins kl. 20.30. Mikil lofgjörð og orð guðs rætt. Allir velkomnir. KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma kl. 17. Hið góða, fagra og fullkomna er yf- irskrift samkomunnar. Upphafsorð: Jón Hjartarson. Guðlaugur Gunnarsson talar. Allir hjartanlega velkomnir. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Reykjavík – Kristskirkja í Landakoti, dómkirkja og basilíka: Sunnudaga: Há- messa kl. 10.30. Messa á ensku kl. 18.00. Alla virka daga: Messa kl. 18.00. Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel: Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Laug- ardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30. Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16.00. Miðvikudaga kl. 20.00 Hafnarfjörður - Jósefskirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Frá júlí til september fellur messan á miðvikudögum kl. 18.30 niður. Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl. 8.30. Virka daga: Messa kl. 8.00. Keflavík – Barbörukapella: Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14.00. Fimmtu- daga: Skriftir kl. 19.30. Bænastund kl. 20.00. Stykkishólmur, Austurgötu 7: Laug- ardaga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga: Messa kl. 10.00. Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.00. Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.00. Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.00. Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa kl. 18.00. Sunnudaga: Messa kl. 11.00. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 11 guðsþjónusta. MOSFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjukór Lágafellssóknar. Organisti Guð- mundur Ómar Óskarsson. Jón Þor- steinsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Natalía Chow. Prestur sr. Þórhildur Ólafs. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Sum- arguðsþjónusta sunnudagskvöldið 30. júní kl. 20. Kirkjukór Víðistaðasóknar syngur létt sálmalög undir stjórn Úlriks Ólasonar. Allir velkomnir. Sóknarprestur. BESSASTAÐASÓKN: Kvöldguðsþjónusta í Bessastaðakirkju sunnudaginn 30. júní kl. 20:30. Tónlist á Tze-nótum, hugleiðing og bæn. Kór Bessastaðakirkju leiðir al- mennan safnaðarsöng. Organisti: Hrönn Helgadóttir. Við athöfnina þjónar sr. Hans Markús Hafsteinsson. Prestarnir. GARÐASÓKN: Guðsþjónusta í Vídal- ínskirkju sunnudaginn 30. júní kl. 11:00. Kór kirkjunnar leiðir almennan safn- aðarsöng. Organisti: Jóhann Baldvinsson. Við athöfnina þjónar sr. Hans Markús Haf- steinsson. Prestarnir. KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Sigfús Baldvin Ingvason. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng. Organisti Hákon Leifsson. SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag kl. 11. Léttur hádegisverður að messu lok- inni. Morguntíð sungin þriðjudag til föstu- dags kl. 10. Kaffisopi að henni lokinni. Foreldrasamvera miðvikudag kl. 11. Sóknarprestur. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu- dag kl. 17. Í messunni verða fluttir þættir úr tónlistardagskrá helgarinnar á sum- artónleikunum. Sóknarprestur. ÍSAFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. Sóknarprestur. MÖÐRUDALSKIRKJA: Messa sunnudag kl. 14. Barn borið til skírnar. Sóknarprest- urinn sr. Lára G. Oddsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Kristín Ax- elsdóttir. Sóknarprestur. AKUREYRARKIRKJA: Djassmessa kl. 11. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Sextettinn Jazzin Dukes frá Stokkhólmi sér um tón- listarflutning og félagar úr Kór Akureyr- arkirkju leiða almennan söng. Organisti er Arnór Vilbergsson. Guðsþjónusta á Hlíð kl. 16. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Tón- leikar kl. 17 í Akureyrarkirkju. Jazzin Du- kes með kór Dalvíkurkirkju. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Sunnu- dagur: Kl. 19.30 bæn. Kl. 20 almenn samkoma. Allir hjartanlega velkomnir. Guðspjall dagsins: Jesús kennir af skipi. (Lúk. 5.) Morgunblaðið/Ómar Ísafjarðarkirkja. STÓRMEISTARINN Helgi Ólafsson sigraði á sjötta minning- armótinu um Guðmund Arnlaugs- sonar sem fram fór 27. júní í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Þetta var þriðji sigur Helga á þessu móti frá upphafi. Jóhann Hjartarson, sigurvegari tveggja undanfarinna ára, varð annar, en í 3.–5. sæti urðu Stefán Kristjáns- son, Arnar E. Gunnarsson og Þröstur Þórhallsson. Baráttan í lokaumferðunum var afar spenn- andi og ungu mennirnir, Stefán og Arnar, veittu stórmeisturunum harða keppni. Þegar líða tók á lokaumferðina var ljóst að Jóhann einn átti möguleika á að ná Helga að vinningum, með því að sigra Þröst Þórhallsson. Þröstur, sem hafði svart, varðist hins vegar af öryggi og að lokum bauð Jóhann jafntefli þegar upp var komin endataflsstaða sem ekki bauð upp á annað. Helgi tryggði sér hins vegar efsta sætið með sigri í loka- umferðinni. Lokastaðan á mótinu varð þessi: 1. Helgi Ólafsson 12½ v. af 15 2. Jóhann Hjartarson 12 v. 3.–5. Arnar E. Gunnarsson, Stefán Kristjánsson og Þröstur Þórhallsson 11½ v. 6. Hannes Hlífar Stefánsson 9½ v. 7. Jón Viktor Gunnarsson 8½ v. 8. Davíð Kjartansson 7½ v. 9. Sigurbjörn J. Björnsson 7 v. 10. Björn Þorfinnsson 6½ v. 11.–13. Þorsteinn Þorsteinsson, Bragi Þorfinnsson og Ingvar Þór Jóhannesson 5 v. 14. Bragi Halldórsson 3½ v. 15. Ingvar Ásmundsson 2 v. 16. Guðmundur Kjartansson 1 v. Lárus H. Bjarnason, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, setti mótið. Skákstjóri var Rík- harður Sveinsson, en mótið var haldið á vegum Skáksambands Ís- lands. Bartlomiej Macieja Evr- ópumeistari Hinn 24 ára gamli pólski stór- meistari Bartlomiej Macieja (2.584) sigraði á þriðja meistara- móti Evrópu í skák sem lauk í Batumi nú í vikunni. Hann hlaut 9½ vinning í 13 skákum. Næstir urðu þeir Mikhael Gurevich, Sergei Volkov, Merab Gaguna- shvili og Gabriel Sargissian með 9 vinninga. Þátttakendur voru 101. TG vill halda Evrópumót ungmenna Taflfélag Garðabæjar er eitt framsæknasta félag landsins um þessar mundir og kannar nú möguleika á að halda Evrópumót ungmenna undir 14 og 16 ára aldri hér á landi í september á næsta ári. Ekki er að efa að það yrði mik- il lyftistöng fyrir þau taflfélög okkar sem halda úti unglinga- starfi. Bikarsyrpa Halló! á sunnu- dagskvöld Taflfélagið Hellir, Halló! og ICC standa sameiginlega að 10 skákmóta syrpu sem kallast Bik- arsyrpa Halló! Mótin verða öll haldin á ICC-skákklúbbnum á Netinu. Fjórða mótið fer fram 30. júní, en lokamótið, sem haldið verður í nóvember, verður jafn- framt Íslandsmótið í netskák. Vegleg verðlaun eru í boði Halló! eða tvær ADSL-tengingar í eitt ár auk frímánaða frá ICC. Þeir sem hafa teflt í þremur fyrstu mótum syrpunnar þurfa ekki að skrá sig sérstaklega í fjórða mótið, heldur er nægilegt að tengjast ICC fyrir klukkan 20. Aðrir þurfa að skrá sig á www.hellir.is. Tefldar verða níu umferðir. Umhugsunartími er fjórar mínút- ur á skák auk þess sem tvær sek- úndur bætast við eftir hvern leik. Röð efstu manna í Bikarsyrpunni eftir þrjú mót: 1. Björn Þorfinnsson 18½ v. 2. Hrannar Baldursson 16½ v. 3. Magnús Magnússon 16 v. 4. Snorri Guðjón Bergsson 13 v. 5.–7. Jóhann H. Ragnarsson, Rúnar Sigurpálsson og Sæberg Sigurðsson 12½ v. 8. Arnar Þorsteinsson 12 v. 9. Gunnar Björnsson 11½ v. 10. Sigurður Ingason 11 v. Hrannar Baldursson er efstur í flokki skákmanna undir 2.100 skákstigum, Sigurður Ingason er efstur undir 1.800 stigum og Hlynur Gylfason er efstur skák- manna án stiga. Nýjustu upplýs- ingar um Bikarsyrpuna er ávallt að finna á hellir.is. Helgi Ólafsson sigraði í þriðja sinn SKÁK Menntaskólinn við Hamrahlíð MINNINGARMÓT UM GUÐMUND ARNLAUGSSON 27. júní 2002 Arnar Gunnarsson (3.-5. sæti), Jóhann Hjartarson (2.), Helgi Ólafs- son, sem bar sigur úr býtum, og Stefán Kristjánsson (3.-5). Á mynd- ina vantar Þröst Þórhallsson (3.-5.) Daði Örn Jónsson meistar inn. is ÁBYRGÐ ÁREIÐANLEIKI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.