Morgunblaðið - 29.06.2002, Qupperneq 58
DAGBÓK
58 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
er Kyndill væntanlegt
og út fara Fridtjof Nan-
sen, Hjalteyrin EA, Sör-
fold og Bjarmi BA.
Hafnarfjarðarhöfn: Á
morgun eru Florinda og
Radvila væntanleg.
Mannamót
Aflagrandi 40. Miðviku-
daginn 3. júlí verður far-
ið í heimsókn að Sól-
heimum í Grímsnesi.
Lagt af stað frá Afla-
granda 40 kl. 13, skrán-
ing í afgreiðslu,
sími 562 2571.
Aflagrandi 40 og
Hraunbær 105. Sameig-
inleg ævintýraferð á
Langjökul miðvikudag-
inn 10. júlí, farið frá
Aflagranda 40 kl. 9 og
Hraunbæ 9.30. Fólk er
beðið að hafa með sér
hlífðarfatnað og vera í
góðum skóm, hádegis-
matur við Jökulinn, hafið
með nesti fyrir eftirmið-
daginn. Boðið er upp á
sleðaferðir, vélsleða eða
hundasleða, upplýsingar
og skráning í af-
greiðslum, símar
562 2571 og 587 2888,
ath. 3 sæti laus.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Í dag,
laugardag, morgun-
gangan kl. 10 frá Hraun-
seli. Rúta frá Firðinum
kl. 9.50. Á mánudag
verður félagsvist kl.
13.30. Frjáls spila-
mennska þriðjudag kl.
13.30, pútt á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16. Vest-
mannaeyjaferð þriðju-
daginn 2l. júlí. Farið frá
Hraunseli kl. 10. Orlofs-
ferð að Hrafnagili við
Eyjafjörð 19.–23. ágúst,
4 nætur. Skoðunarferðir
til Húsavíkur, Mývatns,
Dalvíkur, Ólafsfjarðar
og Siglufjarðar. Skrán-
ing og allar upplýsingar í
Hraunseli og í síma
555 0142.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Sundleikfimin
hjá Lovísu í Sundlaug
Garðabæjar byrjar 25.
júní kl. 16 og verður á
þriðjud. og fimmtud. í 3
vikur. Allir velkomnir.
Golfnámskeiðið hjá
Sturlu verður á þriðjud.
og miðvikud. kl. 13
næstu 3 vikur í GKG í
Vetrarmýrinni.
Fótaaðgerðarstofan,
tímapantanir eftir sam-
komulagi, s. 899 4223.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan op-
in alla virka daga frá kl.
10–13. Kaffi – blöðin og
matur í hádegi.
Sunnudagur: Dansleikur
kl. 20, Caprí-tríó leikur
fyrir dansi.
Mánudagur: Brids kl. 13.
Danskennsla Sigvalda
fyrir framhald kl. 19 og
byrjendur kl. 20.30.
Miðvikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Ásgarði,
Glæsibæ, kl. 10.
Þórsmörk – Langidalur
4. júlí, Kaffihlaðborð á
Hvolsvelli. Leiðsögn
Þórunn Lárusdóttir.
Brottför frá Ásgarði,
Glæsibæ kl. 9. Þeir sem
hafa pantað far þurfa að
sækja farmiðann ekki
síðar en á mánudag á
skrifstofu FEB.
Hálendisferð 8.–14. júlí,
7 dagar. Ekið norður
Sprengisandsleið, fjöl-
margir áhugaverðir
staðir skoðaðir, t.d.
Herðubreiðarlindir,
Askja, Mývatn o.fl. Ekið
suður um Kjöl. Leiðsögn
Sigurður Kristinsson.
Ferð í Galtalæk á úti-
tónleika 14. júlí 2002
með Álftagerðis-
bræðrum, Diddú. Örn
Árna og Karl Ágúst slá á
létta strengi. Lagt af
stað kl. 15 frá Glæsibæ.
Nánari upplýsingar á
skrifstofunni.
Dagsferð 15. júlí, Flúðir,
Tungufellsdalur, Gull-
foss, Geysir, Haukadal-
ur, Laugarvatn, Þing-
vellir. Kaffihlaðborð í
Brattholti. Leiðsögn
Sigurður Kristinsson
Skráning hafin.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12 f.h. í síma 588 2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12,
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Gerðuberg, félagsstarf.
Lokað vegna sumarleyfa
frá mánudegi 1. júlí.
Opnað aftur þriðjudag-
inn 14. ágúst. Á vegum
Íþrótta- og tómstunda-
ráðs eru sund og leik-
fimiæfingar í Breiðholts-
laug kl. 9.30 mánudaga,
miðvikudaga og föstu-
daga. Umsjón Brynj-
ólfur Björnsson íþrótta-
kennari.
Gjábakki. Lagt verður
af stað í ferð um Norð-
austurland kl. 8.15 frá
Gullsmára og kl. 8.30 frá
Gjábakka mánudaginn
1. júlí. Nú er fullbókað í
Vestjfarðaferðina 15.–
19. júlí. Þeir sem ekki
hafa greitt staðfesting-
argjald fyrir 3. júlí fyr-
irgera rétti sínum til
þátttöku í ferðinni. Upp-
lýsingar í síma 554 3400.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Púttað verð-
ur á Listatúni í dag,
laugardag, kl. 10.30.
Mætum öll og reynum
með okkur. Suður-
nesjaferð.
Fimmtudaginn 4. júlí
verður farið um norð-
anverðan Reykjanes-
skaga, Voga, Garð og
Sandgerði. Söfn og sögu-
staðir skoðaðir undir
leiðsögn Nönnu Kaaber.
Kaffihlaðborð í Sand-
gerði. Farið frá Gjá-
bakka kl. 13.15 og Gull-
smára kl. 13.30.
Þátttakendur skrái sig
sem fyrst á þátttöku-
lista, sem liggja frammi í
félagsheimilunum. Mun-
ið félagsskírteinin.
Ferðanefndin.
Hraunbær 105, félags-
starf. Miðvikudaginn 3.
júlí verður farið í heim-
sókn að Sólheimum í
Grímsnesi. Að Sól-
heimum verður gengið
um með leiðsögn og
starfsemin kynnt en Sól-
heimar hafa hlotið við-
urkenningu sem vist-
vænt þorp.
Heimilismenn á Sól-
heimum verða þakklátir
ef við höfum með okkur
ónýt sængurver sem
þeir rífa niður og nota í
vefnað, einnig er má
koma með kertaafganga.
Lagt verður af stað frá
Hraunbæ kl. 13.30. Haf-
ið með ykkur nesti.
Skráning í síma
587 2888.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl. 10
frá Gjábakka í Kópavogi
laugardagsmorgna.
Krummakaffi kl. 9. Allir
velkomnir.
Háteigskirkja, eldri
borgarar. Vegna sum-
arleyfa fellur starf eldri
borgara niður í júlí-
mánuði. Púttvöllur verð-
ur í umsjá kirkjuvarða í
júlí frá kl. 9–17.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Árnesingafélagið í
Reykjavík. Tiltektar-
dagur og lautarkaffi að
Áshildarmýri á Skeiðum
sunnudaginn 30. júní kl.
13. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara á
Suðurnesjum. 4 daga
ferð verður farin á Vest-
firðina 22., 23., 24. og 25.
júlí. Vinsamlegast látið
vita fyrir 10. júlí. Ferða-
nefndin. Nánar auglýst í
Suðurnesjafréttum.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
GA-fundir spilafíkla, kl.
18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtudögum í fræðslu-
deild SÁA, Síðumúla
3–5, og í Kirkju Óháða
safnaðarins við Háteigs-
veg á laugardögum kl.
10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20 á
Sólvallagötu 12. Stuðst
er við 12 spora kerfi AA-
samtakanna.
Minningarkort
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félagsins
eru afgreidd í síma
540 1990 og á skrifstof-
unni í Skógarhlíð 8.
Hægt er að senda upp-
lýsingar í tölvupósti
(minning@krabb.is).
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu,
eru afgreidd í síma
551 7868 á skrifstofu-
tíma og í öllum helstu
apótekum. Gíró- og
kreditkortagreiðslur.
Í dag er laugardagur 29. júní, 180.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Hver sem heyrir þessi orð mín
og breytir eftir þeim, sá er líkur
hyggnum manni, er byggði
hús sitt á bjargi.
(Matt. 7, 24.)
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er enginn siðapostuliog seint verður hann gjaldgeng-
ur stúkumaður. Samt nær hann vart
upp í nefið á sér yfir þróun sem átt
hefur sér stað undanfarið og viðkem-
ur lymskulegum auglýsingum á
áfengi sem beint er að ungu fólki
fyrst og síðast.
Allt er þetta gert í hinu mesta sak-
leysi – að viðkomandi eflaust telja.
Meinlaus skilaboð, gegn því að standa
skil á kostnaði, en alls ekki hvetja til
drykkju. En fullorðið fólk á að vita
betur en svo að slíkar auglýsingar
hafi ekki áhrif. Annars væru áfeng-
issalar ekki að spreða fúlgum fjár og
dæla út vöru sinni ókeypis. Sem betur
fer hafa þessar lúmsku auglýsingar
ekki tengst sterkum drykkjum og
kannski þess vegna finnst hlutaðeig-
endum þetta ekkert tiltökumál – bara
bjór, næstum því gosdrykkur.
Æði margar af þessum óbeinu aug-
lýsingum einskorðast við ákveðna
fjölmiðla, einkum FM 957, PoppTíví
og Skjá einn - vettvang unga fólksins!
Nú er svo komið að þessir fjölmiðlar
standa vart fyrir viðburði eða þátta-
gerð öðruvísi en að þeir séu kostaðir
eða styrktir af bjórsölum. Og máli
Víkverja til sönnunar eru hér nokkur
sláandi dæmi. Í einum langlífasta
þætti Skjás eins, Djúpu lauginni, eru
gestir í sal sötrandi bjór – svo sýni-
legt sé og þá sérstaklega bjórtegund-
in – liðlangan þáttinn. Á gráu svæði
vissulega, því ekki er um eiginlega
auglýsingu að ræða en sú spurning
vekur ekki áhuga Víkverja heldur
miklu fremur sú staðreynd að áhorf-
endur í útsendingunni eru jafnan
ungt fólk, sem Víkverji efast um að
hafi allt náð löglegum áfengisaldri.
Og enn alvarlegra er að stærsti áhorf-
endahópurinn heima í stofu er ungt
fólk, undir tvítugu. Og sama gildir um
aðra viðlíka þætti, lífs eða liðna, sem
tengjast skemmtanalífinu. Bjórinn
flæddi í Hausverk um helgar sem var
á Sýn, sem og í öðrum sálugum þætti
á PoppTíví, SpritsTV, en þar var
meira að segja gengið svo langt að
auglýsa eftir krökkum sem væru til í
að fara á fyllerí í boði þáttarins (bjór-
salans). Arftakinn á sömu stöð, rugl-
.is, er náttúrlega ekkert annað en
nafnið gefur til kynna, lágkúra af
verstu tegund, rugl. Ungur fýr með
bjór í annarri og hljóðnema í hinni á
djamminu að þefa uppi krakka sem
eru nógu ölvaðir til að fást til að gera
sig að fífli fyrir framan alþjóð. Og
krakkarnir sitja heima í stofu og
halda að þeim eigi að finnast þetta
svalt og skondið. Svona þættir end-
urspegla ekkert annað en vítavert
ábyrgðar- og metnaðarleysi sjón-
varpsstjóra.
Steininn tekur þó úr þegar sjálf
átrúnaðargoð krakkanna, popp-
stjörnurnar, taka þátt í fylleríinu.
Þær eru vissulega soltnar í athygli til
að geta lifað á tónlistinni en „fyrr má
nú aldeilis fyrr vera“. Nýjasta dæmið
er sumarstuð FM957, sem vitanlega
er í boði ákveðins bjórframleiðanda.
Stöðin hefur gerst svo rausnarleg að
„bjóða“ upp á „fría“ tónleika á
fimmtudögum en auðvitað eru þeir
ekkert fríir því bjórframleiðandi
borgar glaður brúsann og fær á móti
að planta bjórnum sínum um allt,
meira að segja í nýtt myndband þar
sem sveitaballalandsliðið syngur ís-
lenskan djammtexta við gamalt Kiss-
lag á milli þess sem ungir krakkar
gamna sér með bjórflöskur í hendi, í
partíi, á ballinu eða bara í baði – bjór-
inn á náttúrlega alltaf við (er það
ekki)! Og fyrirmyndum krakkanna
virðist nokk sama, þær fá athyglina,
og jafnvel frían bjór líka?
Víkverji veit bara ekki hvert stefn-
ir, ef ekki verður tekið í taumana
(ábyrgðarmenn viðkomandi fjöl-
miðla, ekki yfirvöld takk!). Ætli þetta
endi ekki bara í einni allsherjar Tú-
borgíu eins og hjá unglingunum
hressu á veggauglýsingum bæjarins?
Opnunartími
skemmtistaða
Í MORGUNBLAÐINU
miðvikudaginn 26. júní er
grein eftir Elísabetu Þor-
geirsdóttur, „Kaffihús og
bari í svefnhverfin og
svefnbæina“. Ég er svo
hjartanlega sammála El-
ísabetu og því sem hún
fjallar um í þessari grein.
Elísabet fjallar m.a. um
breyttan opnunartíma
skemmtistaða og að frekar
hefði átt að dreifa skemmti-
stöðum en lengja opnunar-
tíma. Ég hef á undanförn-
um árum kynnst þessu af
eigin raun og eftir að opn-
unartíma skemmtistaða
var breytt hefur mynstrið
breyst, fólk fer bara seinna
af stað og er lengur að
frameftir morgni. Áður en
opnunartíma var breytt fór
fólk af stað á skemmtistaði
fyrir miðnætti og var komið
heim milli kl. 3 og 4 en nú
eru staðirnir hálftómir til
1–2 á næturnar og fólk að
skríða heim undir morgun.
Þetta getur ekki verið
hagkvæmt fyrir þessa
staði, t.d. hlýtur launa-
kostnaður að hafa aukist
með þessu. Mætti t.d. hafa
skemmtistaði opna til kl. 3
eins og áður var og 1–2
staði opna lengur fyrir þá
sem aldrei fá nóg. Tel ég
þetta ekki góða þróun og er
sammála Elísabetu að bet-
ur hefði verið að færa
skemmtistaðina í úthverfin
frekar en að hafa þá alla á
sama svæði, þ.e. í miðbæn-
um.
Ég vil nefna dæmi um vel
heppnaða skemmtistaði í
úthverfi, Gullöldina í Graf-
arvogi og Players í Kópa-
vogi, en sá staður er á mik-
illi uppleið og þangað sækir
fólk á öllum aldri. Víða er-
lendis er mikil hefð fyrir
„pöbbum“ í íbúðarhverfum
og þangað fer fólk á öllum
aldri, fær sér að borða,
spjallar og dansar.
Það sagði mér kona á
besta aldri að frekar en að
fara niður í miðbæ þá sækti
hún pöbb sem væri í henn-
ar hverfi því þangað gæti
hún gengið og með því
sparað sér leigubíl fram og
til baka í miðbæinn upp á
3.000 kr. Finnst mér það
umhugsunarefni.
Helga.
Þakkir
sem gleymdust
Í UMSÖGN um ferð með
Bólstaðarhlíð 43, „Til fyrir-
myndar í alla staði“, var
ekki getið um góðar mót-
tökur og afbragðs veitingar
í Sævangi, 12 km sunnan
við Hólmavík. Kærar þakk-
ir hér með.
Eldri borgari og maki.
Dýrahald
Fílon er týndur
FÍLON, stór svartur fress,
týndis fyrir 2 vikum frá
Tindaseli 1a. Hann er með
rautt merkispjald. Heldur
sig í Selja- og Lindahverfi.
Þeir sem hafa orðið varir
við ferðir hans hafi sam-
band í síma: 587 1912 eða
694 6470.
Svartur labrador-
hundur í óskilum
SVARTUR labradorhund-
ur var tekinn í Gaulverja-
bæjarhrepp þar sem hann
var búinn að vera að þvæl-
ast um í heila viku. Er vist-
aður á Hundahótelinu Leir-
um. Þeir sem kannast við
hvutta hafi samband í síma
566 8366 eða 698 4967.
Kettlingar fást gefins
TVEIR 8 vikna kettlingar,
fallegir og kassavanir, fást
gefins. Upplýsingar í síma
565 1946 og 699 5146.
Snúður er týndur
SNÚÐUR sem er svartur
fress týndist sl. þriðjudag
frá Eskihlíð. Hann er ólar-
laus og var fótbrotinn á
framloppu og var í gifsi.
Þeir sem hafa orðið hans
varir hafi samband í síma
699 5446 eða 690 6937.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 frjóangi, 8 vefji í gönd-
ul, 9 talaði um, 10 guð, 11
byggja, 13 ójafnan, 15
hungruð, 18 ofstopa-
menn, 21 svefn, 22 særa,
23 tölum, 24 reisir skorð-
ur við.
LÓÐRÉTT:
2 sjúkdómur, 3 synja, 4
gabba, 5 snúið, 6 digur, 7
hef upp á, 12 fyrirburður,
14 bein, 15 heiður, 16
þröngina, 17 gleðskap, 18
maðkur, 19 drepa, 20
rekkju.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: - 1 golfs, 4 tukta, 7 mokar, 8 litum, 9 tík, 11
römm, 13 smár, 14 ósatt, 15 dólk, 17 órög, 20 odd, 22
magur, 23 ógift, 23 rúmba, 24 arinn.
Lóðrétt: - 1 gómur, 2 líkum, 3 surt, 4 túlk, 5 kýtum, 6
aumur, 10 íhald, 12 mók, 13 stó, 15 dómur, 16 lógum, 18
reipi, 19 gætin, 20 orga, 21 dóna.
EIN úr vesturbænum
skrifar að fólk skuli at-
huga hver ástæðan er ef
það hefur ekki fengið
Fréttablaðið og tek ég
undir það, tveir synir mín-
ir hafa ekki borið út blað-
ið í smátíma vegna
ógreiddra launa, annar á
Rauðalæknum og hinn á
Hraunteig og Sundlauga-
vegi og hefur verið marg-
sagt við þá að laun verði
greidd út daginn eftir
o.s.frv. Hennar sonur er
þó heppinn og er búinn að
fá apríl, hvorugur minna
hefur fengið laun fyrir
apríl og maí og að sjálf-
sögðu bætist júní núna
við, þar sem ekki hefur
verið staðið við það sem
sagt er hjá Fréttablaðinu
treysta þeir engu um að
launin komi og byrja því
ekki aftur að bera út fyrr
en allt hefur verið greitt
inn á reikninga þeirra.
Með kveðju.
Ein af Rauðalæknum.
Enn um blaðburðarbörn