Morgunblaðið - 29.06.2002, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2002 59
DAGBÓK
Opnun lögmannsstofu
Við höfum opnað lögmannsstofu á þriðju hæð
í Kirkjuhvoli, Kirkjutorgi 4, 101 Reykjavík.
Veitum alla almenna lögmannsþjónustu.
HÞ Lögmenn
Símar: 511 1812, 894 1813 og 892 1813.
Netfang: logafl@logafl.is
Þröstur Þórsson, héraðsdómslögmaður.
Hanna Sigurðardóttir, lögfræðingur.
HÞ
ÚTSALA - ÚTSALA
25-40% afsláttur
Sími 553 4060, Álfheimar 74, Glæsibæ - 104 Reykjavík.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Þú kannt að hafa gaman af
lífinu og ert fullur orku. Þú
varðveitir barnið í þér og átt
aldrei eftir að vaxa uppúr
barnslegum hlutum enda
þrífstu á ævintýrum og
draumum. Þrátt fyrir það
tekst þér að láta drauma
þína rætast.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Aðrir gera sitt besta til að
reyna að sannfæra þig um eitt-
hvað í dag. Þeir gera sér hins
vegar ekki grein fyrir því að
það er ekki hægt að stjórna
þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Möguleiki er á að upp komi
ósætti varðandi fjármál og
eignir í dag. Þú neitar að taka
ábyrgð á því sem kemur þér
ekki við.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ágreiningur milli þín og ann-
arrar manneskju gæti breyst í
alvarlegar deilur í dag. Einhver
á eftir að sýna raunverulegan
styrk sinn í þessum deilum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert ákveðinn að komast að
niðurstöðu í einhverju máli.
Hæfileikar þínir til að kanna
smáatriðin og rannsaka mál of-
an í kjölinn eru í hámarki í dag.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Átök við börn eru líkleg í dag.
Mundu að það er mikilvægt að
þau fái að vera sjálfstæð og
finna fyrir einhverri ábyrgð á
eigin lífi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þetta er ekki rétti dagurinn til
að rífast við yfirmann þinn. Það
er of auðvelt að fá hugmynd á
heilann og svífast einskis.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þér finnst þú verða að sann-
færa aðra um gildi einnar
ákveðinnar hugmyndar í dag.
Þú hefur rétt á því en ekki láta
það hafa áhrif á þig ef aðrir eru
ósammála þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Rifrildi um peningaeyðslu og
skerf í ákveðnum hlutum koma
líklega upp í dag. Reyndu að
blanda þér ekki í deilurnar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú færð hugmynd einum of
mikið á heilann í dag og verða
aðrir andsnúnir þér vegna
þessa. Þú vinnur orrustu en
tapar stríðinu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú verður miður þín vegna
valdabaráttu á vinnustað.
Reyndu að forðast deilur ef þú
getur og skiptu þér ekki af
skoðunum samstarfsfólks þíns.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Næstum ógerlegt er fyrir þig
að forðast misskilning í ástar-
málum í dag. Hafðu í huga að
það þarf tvo til að deila. Hver
er tilgangurinn með því að
vinna ef deilan hefur óham-
ingju í för með sér?
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Vertu þolinmóður við fjölskyld-
una í dag því allir eru frekar
taugastrekktir. Líklegasta
vandamálið tengist því að ein-
hver er hrifinn af hugmynd og
vill ekki hætta við framkvæmd
hennar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 29.
júní, er áttræður Þorkell
Kjartansson, Birkigrund 10,
Selfossi. Af því tilefni taka
Þorkell og eiginkona hans,
Inga Snæbjörnsdóttir, á
móti gestum í kvöld kl. 20–23
í Hliðskjálf, húsi hestamanna
við Langholt á Selfossi.
90 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 29.
júní, er níræð Svava Þor-
gerður Johansen, Sóltúni 2,
Reykjavík. Af því tilefni ætl-
ar hún að taka á móti fjöl-
skyldu sinni á afmælisdag-
inn í Sóltúni 2 milli kl. 14 og
17.
LJÓÐABROT
MORGUNBÆNIN
Nóttin hefur níðzt á mér,
nú eru augun þrútin,
snemma því á fætur fer
og flýti mér í kútinn.
Við það augun verða hörð,
við það batnar manni strax.
Það er betra en bænagjörð
brennivín að morgni dags.
Páll Ólafsson.
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, laugardaginn 29. júní, eiga 50 ára
hjúskaparafmæli hjónin Sigríður Atladóttir og Vigfús
Bjarni Jónsson, bóndi á Laxamýri, Suður-Þingeyjarsýslu.
80 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 29.
júní, er áttræður Guðmund-
ur Kristján Jóhannsson við-
skiptafræðingur, Háagerði
2, Akureyri. Hann er stadd-
ur í Noregi ásamt konu
sinni, Ingibjörgu Dan Krist-
jánsdóttur.
70 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag-
inn 30. júní, verður sjötugur
Ragnar Jóhannesson, Hóla-
götu 34, Vestmannaeyjum.
Í tilefni dagsins taka hann
og eiginkona hans á móti
gestum í dag, laugardaginn
29. júní, kl. 17 í sumarbústað
sínum.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3
Bb4+ 4. Bd2 Bxd2+ 5.
Rbxd2 d6 6. g4 Rxg4 7.
Hg1 e5 8. h3 Rh6 9. dxe5
dxe5 10. Hxg7 Rf5 11.
Hg1 Rc6 12.
Da4 Bd7 13. 0-
0-0 De7 14. e3
0-0-0 15. Re4
Kb8 16. Db3 h6
17. Bd3 Bc8 18.
a3 Rd6 19.
Rxd6 Hxd6 20.
Be4 Hhd8
Staðan kom
upp á Stiga-
móti Hellis
sem lauk fyrir
nýverið. Bragi
Þorfinnsson
(2.355) hafði
hvítt gegn
Lenku Ptácní-
kovu (2.215). 21. Bxc6!
vinnur peð og skákina.
Framhaldið varð: 21.
...Hxc6 22. Hxd8 Dxd8 23.
Rxe5 Hb6 24. Dc2 f6 25.
Rf3 Bxh3 26. Rd4 Bc8 27.
Dh7 Dd6 28. Hg8 c5 29.
Df5 og svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
„Þegar enginn hliðarlitur
hefur verið nefndur biður
dobl um útspil í lengsta lit.“
Þessi regla Lightners um
slemmudobl stendur fyrir
sínu, en er hún nothæf gegn
geimsamningum líka?
Sjáum til:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ G65
♥ K103
♦ D974
♣K87
Vestur Austur
♠ Á7 ♠ 942
♥ Á95 ♥ G7642
♦ 1086532 ♦ –
♣94 ♣DG1053
Suður
♠ KD1083
♥ D8
♦ ÁKG
♣Á62
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Dobl ! Allir pass
Það stappar kannski geð-
veiki næst að dobla fjóra
spaða með spil austurs, en
skilaboðin ættu þó að vera
skýr. Austur á sama sem
engan háspilastyrk og veit
sem er að makker horfir á
1–3 varnarslagi og mun því
undrast doblið. En síðan
komast að réttri niðurstöðu
(vonandi) og túlka doblið
sem beiðni um útspil. Vestur
ætti að sjá af hyggjuviti sínu
að dobl makkers er byggt á
tíguleyðu og koma út með
tígul – raunar tíuna til að
biðja um hjarta til baka.
Kannski hefði vestur
komið út með tígul hvort
sem er, en það hefði ekki
veitt vörninni sömu gleði að
hnekkja spilinu þannig.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
LÍNUR eru orðnar nokkuð skýr-
ar á Evrópumótinu í brids. Íslend-
ingar hafa verið í 12. sætinu í opna
flokknum nokkra síðustu daga og
allar líkur eru á að þeir endi þar því
nokkuð bil var upp í 11. sætið og nið-
ur í það 13. þegar þremur leikjum
var ólokið. Íslendingar höfðu þá
m.a. unnið Liechtenstein 21:9, Fær-
eyinga 20:10 og Úkraínumenn 18:12
en tapað fyrir Dönum 8:22.
Ítalir gulltryggðu sér Evrópu-
meistaratitilinn þegar á fimmtu-
dagskvöld þegar fjórir leikir voru
eftir en þá höfðu þeir náð 98,5 stiga
forskoti á Spánverja. Staðan í gær-
dag eftir 34 umferðir af 37 var sú að
Ítalir höfðu 724 stig, Spánverjar
637,5, Búlgarar 627, Norðmenn 620,
Pólverjar 617, Svíar 603, Hollend-
ingar 589, Ísraelsmenn 583, Frakk-
ar 581, Englendingar og Tyrkir 580,
Íslendingar 556 og Þjóðverjar 536.
Yfirburðir Ítala í Salsomaggiore
hafa á tíðum verið með hreinum
ólíkindum og það er eins og ítölsku
spilararnir geri varla mistök. Í
hverju spilinu á fætur öðru hitta
þeir á árangursríkustu spila-
mennskuna á sama tíma og and-
stæðingar þeirra velja aðrar leiðir
sem virðast jafngóðar eða betri en
ganga ekki upp. Sem dæmi um
þetta má til dæmis taka af handa-
hófi þetta spil sem kom fyrir í leik
Ítala og Norðmanna í 31. umferð
mótsins:
Norður
♠ 853
♥ ÁDG83
♦ 1062
♣109
Vestur Austur
♠ Á64 ♠ G1072
♥ 1074 ♥ K965
♦ D3 ♦ G74
♣DG853 ♣72
Suður
♠ KD9
♥ 2
♦ ÁK985
♣ÁK64
Lokasamningurinn var 3 grönd við
bæði borð eftir að suður hafði sýnt
sterka hönd með tígullit og norður
sýndi hjartalit.
Það blasir við með vesturspilin að
spila út laufi og flestir myndu sjálf-
sagt velja 4. hæsta laufið; það virðist
hættulegt að spila út drottningunni
þar sem millispilin eru frekar lág.
Við annað borðið spilaði Norð-
maðurinn Tor Helhess út lauf-
afimmunni. Norberto Bocchi fékk
fyrsta slaginn á tíuna í blindum og
nú var eftirleikurinn auðveldur.
Hann gat fríað tígullitinn og síðan 9.
slaginn á spaða og fékk raunar 10
slagi á endanum.
Við hitt borðið spilaði Lorenzo
Lauria hins vegar að sjálfsögðu út
laufadrottningunni. Erik Sælens-
minde gaf fyrsta slaginn en þá skipti
Lauria í hjartafjarka. Sælensminde
svínaði drottningunni en Alfredo
Versace tók með kóng og skipti í
spaðatvist. Sælensminde setti kóng-
inn en Lauria drap með ás og spilaði
meiri spaða. Það þarf ekki að rekja
spilið lengra en í þremur fyrstu
slögunum höfðu Ítalirnir hreinlega
rústað þessum samningi og Sæ-
lensminde fór að lokum tvo niður.
Þvingun leyndist í spilinu
Fjallað var í bridsþætti í gær um
slemmu sem Karl Sigurhjartarson
og Snorri Karlsson sögðu í leik Ís-
lands og Búlgaríu. Sagt var um spil-
ið að slemman myndi tapast ef út
kæmi lauf. Við nánari athugun kem-
ur hins vegar í ljós að þetta er ekki
rétt því þvingun leynist í spilinu.
Norður
♠ 10
♥ Á1087
♦ 108
♣ÁK10752
Vestur Austur
♠ G4 ♠ 987
♥ D54 ♥ G9632
♦ Á974 ♦ D53
♣DG63 ♣98
Suður
♠ ÁKD6532
♥ K
♦ KG62
♣4
Suður spilar 6 spaða og fær út laufa-
drottningu. Hann spilar nú tígultíu
og austur verður að leggja drottn-
inguna á. Drepi vestur tígulkóng
suðurs með ás verður hann að spila
spaðagosa svo sagnhafi geti ekki
trompað tígul í blindum. Sagnhafi
tekur þá öll trompin og vestur lend-
ir í þvingun í láglitunum þegar
sagnhafi spilar hjartakóng á ás í
borði.
Í fljótu bragði virðist vestur geta
hnekkt spilinu með því að taka ekki
strax á tígulás. En þá getur sagn-
hafi tekið alla spaðana og þegar
hann spilar hjartakóng á ás lendir
vestur í stiklusteinsþvingun, verður
að fara niður á tígulásinn einan.
Vestri er þá spilað inn á tígul og
hann verður að gefa tvo síðustu
slagina á K10 í laufi.
Yfirburðir Ítala
með ólíkindum
BRIDS
Salsomaggiore
Evrópumótið í brids er haldið í Salso-
maggiore á Ítalíu, dagana 16.–29. júní.
Ísland tekur þátt í opnum flokki og
kvennaflokki. Heimasíða mótsins er
http://www.eurobridge.org
Guðm. Sv. Hermannsson