Morgunblaðið - 08.08.2002, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 08.08.2002, Qupperneq 11
                              VEIÐIEFTIRLITSMAÐUR frá Selfossi flaug síðdegis í gær ásamt landseftirlitsmanni veiðimálastjóra yfir vatnasvæði Ölfusár og Hvítár til að kanna hvað hæft væri í þeim ásök- unum að net séu lögð með ólögmæt- um hætti. Eins og fram kom í Morg- unblaðinu í gær er lögreglan á Selfossi með kæru til rannsóknar vegna netalagna á svæðinu. Veiði- málastjóra og lögreglunni á Selfossi verður gefin skýrsla um þetta eft- irlitsflug, að öllum líkindum í dag, að sögn Þorfinns Snorrasonar veiðieft- irlitsmanns. Hreggviður Hermannsson í Lang- holti lagði kæruna fram og eins og fram kom í máli hans í Morgun- blaðinu í gær segir hann þolinmæði stangaveiðimanna gagnvart neta- veiðunum vera á þrotum. Hann telur ennfremur að lítið hafi verið aðhafst síðan mótmælum var skilað til land- búnaðarráðherra í október árið 1999. Þá skilaði hópur áhugamanna um laxveiði á vatnasvæði Hvítár og Ölf- usár undirskriftalistum með nöfnum 1.575 manna í hendur Guðna Ágústs- sonar þar sem m.a. var farið fram á hert eftirlit með netaveiði og veiði- vörslu á vatnasvæðinu. Ráðherra hafði samráð við veiðimálastjóra Aðspurður hvað gert hefði verið með þessi mótmæli sagði Guðni við Morgunblaðið í gær að hann hefði átt samráð við embætti veiðimálastjóra og farið yfir álitamálið. Flogið hefði verið yfir vatnasvæðið á sínum tíma og ekki hefði verið talin ástæða til að aðhafast frekar eða leggja fram kæru. Netalagnir hefðu þá verið taldar löglegar af veiðieftirlitsmönn- um og veiðimálastjóra. „Vegna óvissu og minnkandi fisk- gengdar um vatnasvæðin hafa rann- sóknir verið efldar og fleiri fiskar merktir en áður, ekki síst til að kanna hrygningarsvæði og göngu- feril fisksins. Í þeim efnum liggja fyrir ýmsar gagnlegar upplýsingar. Nú er málið komið upp aftur með þessari kæru. Ég er þeirrar skoð- unar að ekki verði búið við þá óvissu hvort farið sé að lögum eða ekki. Ég vona að eftirlitsferðin í dag [gær] skili einhverri niðurstöðu þannig að hægt verði að svara þessum ásök- unum. Auðvitað ber sýslumanni að fylgja kærunni eftir og tryggja að menn fari að lögum. Mikilvægt er að hafa þessi mál skýr og klár, sem ég vil trúa að sé þannig komið fyrir,“ sagði Guðni. Veiðieftirlitsmenn flugu yfir vatnasvæði Ölfusár og Hvítár í gærdag Skýrsla til lögreglu og veiðimálastjóra FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2002 11 K O R T E R allt að afsláttur STARFSEMI í flestum fiskvinnslu- húsum landsins er í lágmarki um þessar mundir vegna sumarorlofs starfsfólks. „Sumarleyfi í fisk- vinnslufyrirtækjum eru yfirleitt tek- in á tímabilinu frá síðari hluta júlí til loka ágúst og það er orðið miklu al- mennara en áður var,“ segir Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva. ,,Fyrir nokkrum árum voru gerð- ar þær breytingar á kjarasamning- um að það er orðið algengara en áð- ur að orlof í dagvinnu fiskvinnslu- fólks er greitt út í orlofsdögum og fyrir bragðið eru samræmd sum- arleyfi orðin mun almennari en áð- ur. Auðvitað eru alltaf einhverjir bátar á sjó og einhver starfsemi í gangi en hún er í lágmarki á þessu þriggja til fjögurra vikna tímabili,“ segir Arnar. Starfsemi í fisk- vinnslu í lágmarki vegna sumarleyfa ENGINN var með sex tölur réttar í Víkingalottóinu í gærkvöldi og gekk því fyrsti vinningur, að upphæð tæp- ar 97 milljónir króna, ekki út. Pott- urinn verður þrefaldur í lottóinu á miðvikudaginn kemur. Enginn var heldur með fimm rétt- ar tölur og bónustölu en einn var með fimm af sex tölum réttar og nam vinningur hans tæpum 475 þúsund krónum. Þrefaldur pottur næst í Víkingalottói ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.