Morgunblaðið - 08.08.2002, Side 48

Morgunblaðið - 08.08.2002, Side 48
FÓLK Í FRÉTTUM 48 FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ         4  , #)  .     )  . 4   "3>/"                        !   "  # $%&   '  % !""                                   Furstarnir í kvöld FRÍTT INN Vesturgötu 2 sími 551 8900 LESENDUR breska tímaritsins Total Guitar hafa úrskurðað að Bandaríkjamaðurinn Jimi Hendrix sé besti gítarleikari sem uppi hafi verið. Hendrix, sem lést árið 1970 aðeins 27 ára gamall, fékk flest at- kvæði í lesendakönnun blaðsins en Jimmy Page, sem lék á gítar í hljómsveitinni Led Zeppelin, og Eric Clapton, sem nýlega sótti björg í bú í Laxá á Ásum, komu næstir. „Það besta við þetta er að þetta er ekki álit einhverra gagnrýnenda á því hverjir séu bestu gítarleik- ararnir – þessir strákar falla sjálf- sagt ekki allir þar í kramið – en þeir eru án efa háværustu, fimustu og mest spennandi gítarleikarar sem spilað hafa rokk og ról,“ sagði Scott Rowley, ritsjóri Total Guit- ar, um þá sem skipuðu efstu sætin á listanum. Tímaritið tilnefndi sjálft 440 gít- arleikara sem lesendur gátu valið úr. Aðeins ein kona, Tracy Chap- man, var í þeim hópi. „Mér finnst það allt í lagi,“ sagði Rowley. „Konur eru ekki með eins mikil læti eða eins kappsfullar á þessu sviði og karlar. Í stað þess að vera með sýndarmennsku reyna þær að semja góð lög. Sem er sennilega miklu gáfulegra.“ Tuttugu efstu gítarleikararnir í kjörinu eru eftirfarandi: 1. Jimi Hendrix 2. Jimmy Page 3. Eric Clapton 4. Slash (Guns ’N Roses) 5. Brian May (Queen) 6. Joe Satriani 7. Eddie Van Halen (Van Halen) 8. Dave Gilmour (Pink Floyd) 9. Kirk Hammett (Metallica) 10. Steve Vai 11. Carlos Santana (Santana) 12. James Hetfield (Metallica) 13. Tom Morello (Rage Against The Machine) 14. Kurt Cobain (Nirvana) 15. Mark Knopfler (Dire Straits) 16. Zakk Wylde (Ozzy Osbourne) 17. Gary Moore (Thin Lizzy o.fl) 18. Jeff Beck (Yardbirds, Jeff Beck Group) 19. Stevie Ray Vaughan 20. Angus Young (AC/DC). Hendrix besti gítarleikarinn Jimi Hendrix – besti gítarleikari allra tíma? ÞAÐ ER alltaf ánægjulegt að heyra fregnir af löndum okkar sem standa sig vel á erlendri grund. Sævar Halldórsson er einn þessara einstaklinga, en hann vann á dögunum til fimm Telly- verðlauna, sem veitt eru í Banda- ríkjunum fyrir bestu sjónvarps- auglýsingarnar þar vestra. Verð- launin þykja mjög virðingarverð og er það því mikill heiður að verða þeirra aðnjótandi. Sævar er búsettur vestra og starfar hjá sjónvarpsstöðinni History Channel í New York, en það voru auglýsingar sem hann vann fyrir stöðina sem tryggðu honum verðlaunin. Sævar Halldórsson með verðlaunagripina fimm. Íslendingur vinnur til Telly-verðlauna á landi verða í kvöld í Nýja bíói á Siglufirði klukkan 21.30 en áfram- haldandi dagskrá sveitarinnar næstu daga er eftirfarandi: Kaffihúsið Bláa kannan á Ak- KLEZMER-hljómsveitin Schpilkas (Með maura í buxum) var stofnuð í Kaupmannahöfn í september í fyrra. Nú kunna nokkrir að hvá en klezmertónlistin er þjóðlagatónlist gyðinga og á rætur að rekja til Austur-Evrópu. Hún er stór þáttur í ýmsum hátíðlegum athöfnum gyð- inga, s.s. brúðkaupum og ferm- ingum. Við þessi tækifæri er ekki óalgengt að dansað sé fram á rauðanótt við hljóðfæraslátt og söng. Áhrif í tónlistinni má einnig rekja til Balkanskaga, Tyrklands og sígauna frá Austur-Evrópu. Schpilkas ætlar nú að taka sig til og leika fyrir landsmenn á næst- unni eftir vel heppnað spilerí í Dan- mörku. Sveitina skipa þeir Haukur Grön- dal klarínettleikari, Helgi Svavar Helgason trommuleikari, Nicholas Kingo harmóníkuleikari og Peter Jörgensen kontrabassaleikari. Fyrstu tónleikar sveitarinnar hér ureyri 9. ágúst, Reykjahlíðarkirkja og Hótel Reynihlíð við Mývatn 10. ágúst, Kaffihúsið Salka á Húsavík 11. ágúst og Stúdentakjallarinn í Reykjavík 14. ágúst. Hljómsveitin Schpilkas leikur þjóðlagatónlist gyðinga Með maura í buxum Haukur Gröndal, Nicholas Kingo, Helgi Helgason og Peter Jörgensen. SPÆNSK kvikmyndahátíð verður haldin í Regnboganum í haust þar sem sýndar verða um fimmtán ný- legar spænskar kvikmyndir, sem ekki hafa verið sýndar hér áður, auk nokkurra heimildamynda og stuttmynda sem notið hafa vin- sælda. Myndirnar eiga að varpa ljósi á þá þróun sem orðið hefur í spænskri kvikmyndagerð undan- farin ár. Á næstunni verður einnig stofnað nýtt menningarfélag áhugamanna um hinn spænsku- mælandi heim og verður kvik- myndahátíðin fyrsta verkefni hennar. Opnunarmynd hátíðarinnar er nýjasta mynd Pedrós Almodóvars, Hable con ella (Ræddu málin). Pedró Almodóvar er einn þekkt- asti kvikmyndaleikstjóri Spánar, hann gerði m.a. myndirnar Konur á barmi taugaáfalls og Allt um móður mína. Von er á aðalleik- urum myndarinnar, Leonor Waitl- ing og Javier Camara, til landsins til þess að vera viðstaddir sýn- inguna. Lokamynd hátíðarinnar er Hijo de la Novia (Gifstu mér loksins) eftir Juan José Campanellas. Hún er spænsk/argentínsk og var til- nefnd til Óskarsverðlauna árið 2002. Auk þeirra er áformað að sýna spennu- og hryllingsmyndina Tesis eftir Alejandro Amenábar, róman- tísku gamanmyndina Lluvia en los zapatos eftir Maria Ripoli, með Penélope Cruz í aðalhlutverki, og La lengua de la Mariposas eftir José Luis Cuerda. Spænsku dagarnir standa yfir 12. til 22. september næstkomandi. Spænsk kvik- mynda- hátíð Spænski leikstjórinn Pedró Almodóvar. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.