Morgunblaðið - 20.08.2002, Page 23

Morgunblaðið - 20.08.2002, Page 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2002 23 TALSMAÐUR George W. Bush Bandaríkjaforseta sagði í gær að ný- birt myndbönd, sem sýna þjálfun og tilraunir á vegum al-Qaeda samtak- anna, gæfu til kynna hve hættuleg hryðjuverkasamtök Osama bin Lad- ens væru. Fréttamaður CNN-sjón- varpsstöðvarinnar í Afganistan, Nic Robertson, komst yfir myndböndin, sem eru 64 og voru tekin upp á rúm- lega áratug. „Þetta er illt fólk og ásetningur þess er illur og þetta sýn- ir enn betur hve brýnt það er að upp- ræta alþjóðleg hryðjuverkasamtök,“ sagði Mike Anton, talsmaður Bush, en CNN birti upptökurnar í gær. Anton tók fram að embættismenn stjórnvalda hefðu ekki fengið eintök af myndböndunum til rannsókna en aðeins séð útsendingar CNN. Á böndunum, sem nær öll eru frá því fyrir atburðina 11. september, eru liðsmenn al-Qaeda, sem talið er að hafi staðið á bak við árásirnar á Bandaríkin, sýndir við ýmsar æfing- ar en einnig er sýnt er þrír hundar eru látnir anda að sér eiturgasi og dauðastríð þeirra í kjölfarið. Talið er að um sé að ræða taugagas. Sýnt er frá þjálfun í að berjast í borgum, morðum og mannránum en einnig eru myndir af bin Laden. Rohan Gunaratna, sem ritaði bókina „Innanbúðar hjá al-Qaeda“ og hefur borið vitni frammi fyrir bandarískri þingnefnd, hjá Sameinuðu þjóðunum og víðar um samtökin, álítur að myndböndin hafi eingöngu verið ætl- uð til nota hjá samtökunum sjálfum. Gefur vísbendingar um búnað al-Qaeda „Þetta er saga þeirra, þetta er heimildasafn Osama bin Ladens,“ sagði Gunaratna. Aðrir sérfræðingar sem CNN ræddi við segja að draga megi þá ályktun af myndböndunum að al-Qaeda ráði ef til vill yfir full- komnari búnaði og vopnum en áður hafi verið talið. Liðsmenn samtak- anna séu vel þjálfaðir í að meðhöndla efnavopn og ef til vill kunni þeir að búa þau til. Meðal þess sem er sýnt er hvernig hægt sé að búa til TNT- sprengiefni úr hráefnum sem auð- velt er að komast yfir. Að sögn Robertsons lét Afgani nokkur hann hafa myndböndin eftir 17 klukkustunda ökuferð frá höfuð- borginni Kabúl til afskekkts staðar. Sagði Afganinn að þau hefðu fundist í húsi þar sem bin Laden hefði dval- ist. Auk þess að sýna þjálfun eru áð- ur óbirtar myndir af bin Laden og helstu samstarfsmönnum hans á böndunum. Sýnt er hvernig örygg- isgæsla bin Ladens er skipulögð og á einu myndbandinu er sýnt þegar leiðtoginn og félagar hans skjóta upp í loftið áður en þeir lýsa yfir nýju, heilögu stríði, jihad, gegn Banda- ríkjamönnum árið 1998. Menn bin Ladens drápu hunda með gasi CNN-sjónvarps- stöðin komst yfir myndbönd úr „heim- ildasafni“ al-Qaeda Reuters Hér sést Osama bin Laden (fyrir miðju) á myndbandi sem sjónvarps- stöðin CNN birti í gær. Talið er að það hafi verið tekið upp árið 1998. ÍSLAMSKUR dómstóll í Níger- íu hafnaði í gær áfrýjun ungrar konu, sem dæmd hafði verið til dauða fyrir að eiga barn utan hjónabands. Skipaði hann svo fyrir, að hún skyldi grýtt í hel strax og hún hefði vanið barnið af brjósti. Úrskurðurinn er mikið áfall fyrir baráttumenn fyrir mann- réttindum og sjálft nígeríska al- ríkið, sem reynt hefur að berjast gegn upptöku íslamskra laga eða „sharia“ í norðurhluta landsins. Lögfræðingar konunnar, sem heitir Amina Lawal og er þrítug að aldri, ætla enn að áfrýja en þeir segja, að hún hafi upphaf- lega ekki skilið málsóknina gegn sér og ekki haft neinn verjanda í fyrstu réttarhöldunum. Dómar- arnir fjórir vitnuðu hins vegar í íslömsk fræðirit og voru á einu máli um, að hana ætti að grýta til dauða. Brast hún í grát er hún heyrði úrskurðinn en marg- ir aðrir í yfirfullum réttarsaln- um lofuðu Allah fyrir dauðadóm- inn. Réttlætið annað fyrir konur en karla Lawal, sem er fráskilin, átti barnið í janúar og var þá um- svifalaust kærð hjá lögreglunni í bænum Bakori. Við yfirheyrslur sagði hún, að faðir barnsins væri Yahaya Mahmud, unnusti henn- ar í tæpt ár, og hefði hann verið búinn að lofa sér eiginorði. Mah- mud viðurkenndi að hafa verið unnusti Lawal en sór við Kór- aninn, að hann væri ekki faðir barnsins. Þá var hann laus allra mála. Áður hefur kona, Safiya Huss- eini, verið dæmd til að vera grýtt í hel en dauðadómurinn yf- ir henni var ógiltur í mars sl. Samkvæmt íslömskum lögum þurfa að vera vitni að hórdómi karlmanna en ógift kona sakfell- ir sjálfa sig með því að verða ólétt. Verjendur Lawal bentu á, að hún hefði orðið ófrísk áður en sharia-lögin gengu í gildi heima- ríki hennar, Katsina, en á þau rök hlustuðu dómararnir ekki. Sharia-lög fyrir hæstarétt Óttast er, að dómurinn yfir Lawal geti opnað fyrir flóðgáttir sams konar dóma í Norður-Níg- eríu. Höfðu verjendur hennar og fulltrúar alríkisins vonast til að fá dómnum breytt en fyrir dyr- um stendur að reyna að fá sharia-lögunum hnekkt fyrir hæstarétti landsins. Íslamskur dómstóll í Nígeríu stað- festir dauðadóm yfir ungri konu Grýtt í hel fyrir að verða ófrísk Funtua. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.