Morgunblaðið - 08.09.2002, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2002 19
Nú, þegar hillir undir lok aðildarvið-
ræðnanna, virðist aftur á móti sem
auknar vöflur séu að koma á suma.
Stuðningur hefur tekið dýfur í skoð-
anakönnunum; lýðskrumarar and-
snúnir aðildinni – svo sem Andrzej
Lepper, sem sækir fylgi sitt fyrst og
fremst til óánægðra dreifbýlisbúa –
njóta að því er virðist vaxandi stuðn-
ings. Hátt í 20% þeirra sem kjörnir
voru á pólska þingið í síðustu þing-
kosningum eru andsnúnir ESB-að-
ildinni. Þjóðaratkvæðagreiðsla verð-
ur haldin um aðildarsamninginn á
næsta ári og því von á hörðum áróð-
ursslag með og á móti.
Kallað á betri kynningu
Í eitt hundrað pólskum borgum
var fyrr í sumar efnt til táknrænnar
almenningsatkvæðagreiðslu um að-
ild Póllands að ESB. Að uppátækinu
stóð einn pólsku stjórnmálaflokk-
anna – hið frjálslynda Frelsisbanda-
lag, sem átti aðild að samsteypu-
stjórn Jerzys Buzeks sem fór frá
eftir kosningar í september í fyrra.
Þrátt fyrir að hafa misst alla fulltrúa
sína á þingi í kosningunum – sem
arftakar pólska kommúnistaflokks-
ins unnu – beitir Frelsisbandalagið
sér eftir sem áður eftir megni fyrir
því að innganga Póllands í ESB tak-
ist hratt og vel.
Það gefur að skilja að niðurstaða
þessarar táknrænu atkvæðagreiðslu
endurspeglaði ekki raunverulegan
þjóðarhug Pólverja í garð ESB.
Markmiðið með henni var enda fyrst
og fremst að vekja athygli pólsks al-
mennings á því hvað væri í húfi með
hinni væntanlegu ESB-aðild. Skoð-
anakannanir hafa sýnt að mikið
skortir á að Pólverjar séu sæmilega
vel upplýstir um hvað bíður þeirra
við inngönguna í Evrópusambandið.
Því gagnrýna pólskir Evrópusinnar
ríkisstjórnina fyrir að reka ekki
nægilega öflugt kynningarstarf.
Gott dæmi um slíka gagnrýni á
hendur pólskum stjórnvöldum eru
skoðanir Marek Sarjusz-Wolskis,
ritstjóra vikuritsins Unia & Polska,
sem gefið er út í Varsjá og helgar sig
að mestu málefnum sem tengjast
ESB-aðildarundirbúningi Póllands.
Í samtali við Morgunblaðið bendir
hann á, að á hinn ESB-fjandsamlega
áróður útvarpsstöðvarinnar Radio
Maria hlustuðu reglulega um fimm
milljónir Pólverja, flestir í sveitum
landsins. Þetta ylli því að bændur og
búalið – sem er að hans sögn einmitt
sá hluti þjóðarinnar sem hvað mest
þyrfti að taka sig á og kynna sér
hvað innganga Póllands í ESB muni í
raun hafa í för með sér fyrir per-
sónulega hagi fólks – gerði ekkert í
því að kynna sér þetta, heldur léti
viljugt mata sig á vafasamri súpu
strang-kaþólsks, þjóðernis-einangr-
unarsinnaðs áróðurs. Dæmigert fyr-
ir þennan áróður segir Sarjusz-
Wolski vera fullyrðingar um að með
því að fylgja ótrauð stefnunni inn í
ESB væri pólska ríkisstjórnin að
svíkja landið í hendur ríkra spekúl-
anta að vestan (einkum þýzkra!).
„Áróður einangrunarsinna er hættu-
legur – hann vinnur gegn möguleik-
um margra Pólverja á að njóta góðs
af því sem Evrópusambandsaðildin
mun bjóða upp á,“ segir ritstjórinn.
Aðildin efst á stefnuskrá
stjórnarinnar
En Danuta Hübner leggur á það
áherzlu að markmiðið um að koma
Póllandi sem fyrst inn í ESB sé efst á
stefnuskrá ríkisstjórnarinnar. Í
samtali sem Morgunblaðið átti við
hana í Berlín sagði hún ríkisstjórn-
ina gera sér góða grein fyrir mik-
ilvægi þess að sjá til þess að pólskir
borgarar verði nægilega vel upplýst-
ir um það sem í vændum sé. „Við
verðum að sannfæra okkar eigin
borgara um að rétt sé að greiða því
atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu að
*
#+,
&# ,-
.+-/
01
$#&
+!+-/
&!#2!
-/
,-/&2!
3-#!
4-2#/
-+-/
4&!#-3-#& .-+
+2+!2&
*5-+2+
!
!
"# !
""!"#
!
!
$! "
%%!
%!%#
&'()*+
&
,-- .
/'0
'
--
1#
1 #
2
1# %2
!
!"#
$$$#!
%&!
&'
()
SJÁ SÍÐU 20
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700 • FAX: 562 3025
E-MAIL: holt@holt.is • http://www.holt.is
Ragnar Ómarsson,
6 rétta matseðill.
Villiandar-, dúfu og „foie gras“ terrína með
sætvínsferskjumauki og fimm krydda brauði.
Villt vatnableikju- og humar„ballontine“
með tómat- og ætiþistlatarti, sevruga kavíar
og humar-eggjasósu.
Sykursöltuð og reykt gæsabringa „pastrami“
með rabarbarasósu.
Villbráðar- og villisveppaseyði með
hörpuskelstartar og gráðostakexi.
Steiktur hreindýravöðvi með trufflu-
krókettum, kremuðum sveppum og sósu
Poivrade.
Volgur súkkulaði-núgattart með hrútaberja
„panna cotta“ og villiberja-timian sorbet.
Pantið borð tímanlega.
Takmarkaður gestafjöldi.
Upplýsingar og borðapantanir í síma 552 5700.
Ath. aðeins þessa einu helgi.
matreiðslumaður ársins 2002 og
Sigmar Örn Ingólfsson,
framreiðslumaður ársins 2002 ásamt
fagfólki Listasafnsins standa fyrir
villbráðarhelgi 13. og 14. september.
Verð: 7.900 kr.
FRÁ 40 MANNA HÓPI UM BORÐ Í GOLDEN PRINCESS:
„Kæri Ingólfur! Innileg kveðja og þakkir okkar allra fyrir stórkostlega ferð og vel skipulagða um.
Miðjarðarhaf 17.-31. ágúst 2002.“ Kristín og ÍSLENDINGARNIR Á GOLDEN PRINCESS.
Með sérsamningum okkar við flugfélög, farartæki og hótel
kosta þær ótrúlega lítið, eða aðeins um helming raunvirðis. Þær
ferðir, sem nefndar eru í ofangreindum kveðjum farþega, verða
endurteknar næsta ár.
NB! Enn eru 4 sæti laus í Baliferð 8. nóv.
FERÐALÖG ERU LÍFSFYLLING
ÓMETANLEGT KRYDD
Í TILVERUNA!
Listatöfrar Ítalíu í júlí:
„Ferðin var unaður frá upphafi til enda! Allt
stuðlaði að ánægju okkar og lífsnautn, hvílík-
ur auður fegurðar í formum, litum og línum
göfugrar listar, sem Ingólfur lauk upp fyrir
okkur af einstöku innsæi og snilld. Nær upp-
hafinni fullkomnun höfum við ekki áður kom-
ist á ferðalagi.“
(Úr ávarpi farþega í ferðalok)
Singapore, Malasíu, Bali:
„Ævintýraferðin til Bali með viðkomu í Singa-
pore og Malasíu verður okkur öllum ógleym-
anleg. Ég hef víða ferðast og með ýmsum
ferðaskrifstofum, bæði innlendum og erlend-
um, en þessi fyrsta ferð mín með Heimsklúbbi
Ingólfs toppar allt, sem ég hef áður upplifað.“
Jón Kjartansson, Vestm.
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is
Þakka frábærar undirtektir og ógleymanlegar samverustundir
í ferðum sumarsins. Kveðjur ykkar og góðar óskir eru dýrmætar,
þær bera vott um að tilgangurinn hafi náðst.
Ferðaþjónusta er vandasamt, sérhæft fag, einkum á fjarlægum slóðum. Það skilar
árangri að vanda til verks. Við reynum okkar besta til að láta ferðirnar heppn-
ast, og þær seljast flestar upp. Árangur okkar byggir á reynslu, þekkingu og
vandvirkni, sem tryggir farþegunum bestu kjör, miðað við lengd, gæði og þjónustu,
fyrst og fremst ómetanlega reynslu og ánægju.
VIÐ KEPPUM AÐ ÞVÍ AÐ GERA FERÐIR HEIMSKLÚBBSINS
AÐ LÍFSKÚNST FYRIR ÞIG!