Morgunblaðið - 08.09.2002, Side 37

Morgunblaðið - 08.09.2002, Side 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2002 37 ✝ Áskell Hannes-son Egilsson fæddist á Grenivík við Eyjafjörð 28. ágúst 1938. Hann lést á Akureyri 1. september síðastlið- inn. Foreldrar Ás- kels, faðir: Egill Ás- kelsson sjómaður á Grenivík, síðar bóndi í Hléskógum í Höfðahverfi, hrepp- stjóri og kennari. Egill var f. í Aust- ari-Krókum í Fnjóskadal 28.2. 1907, d. 25.1. 1975, sonur Áskels Hannessonar þaðan og Laufeyj- ar Jóhannsdóttur frá Skarði í Dalsmynni Bessasonar, Laufey f. 1877, d. 1927. Móðir: Sigurbjörg Guðmundsdóttir húsmóðir á Grenivík og í Hléskógum, f. 22.8. 1905 á Lómatjörn í Höfða- hverfi, d. 10.12. 1973, dóttir Guðmundar Sæmundssonar f. 1861, útvegsbónda á Grenivík, síðar bónda á Lómatjörn, og Valgerðar Jóhannesdóttur hús- freyju þar, f. 1875 á Þöngla- bakka í Fjörðum, Jónssonar Reykjalín. Systkin Áskels: 1) Sigurður f. 1934, skipasmiður, Reykjavík, 2) Lára f. 1935, sjúkraliði, Reykja- vík, 3) Bragi f. 1937, læknanemi, d. 1958, 4) Valgarður f. 1940, læknir og rithöfundur, Reykja- vík, 5) Egill f. 1942, eðlisfræð- ingur og rithöfundur, Reykjavík, 6) drengur f. 1944, d. s. á., 7) Laufey f. 1947, hjúkrunarfræð- ingur og söngkona, Reykjavík. Áskell kvæntist 21.8. 1960 Svölu Halldórsdóttur læknarit- ara, f. 13.6. 1942 á Seyðisfirði, dóttur Halldórs Lárussonar netagerðarmanns, f. 1915 í Nes- kaupstað, d. 1977, og Jósefínu Ágústsdóttur Blöndal, f. 1913 á Seyðisfirði. Börn Áskels og Svölu eru: 1) Hjördís verslunar- maður, f. 5.5. 1960, maki Stefán Traustason skipa- smiður. Börn þeirra: Monika, maki Ísleifur Örn Einarsson, eiga tvær dætur; Halldór Áskell og Svala Hrund. 2) Egill sölustjóri, f. 8.10. 1962, sambýliskona Sólrún Stefánsdótt- ir. Dætur þeirra: Ír- is, Alma, Lena og Vaka. 3) Halldór Ómar sölustjóri, f. 20.4. 1965, sam- býliskona Hulda S. Ringsted, skildu, þeirra dætur: Dagný Elísa og Sigrún Dóra. 4) Þórir Guðmundur sjúkraþjálfari, f. 4.3. 1971, kvæntur Hugrúnu Felixdóttur leiðbeinanda, þeirra synir: Sindri Vilmar, Nökkvi Þeyr og Þorri Mar. 5) Sævar Lárus sjómaður, f. 3.10. 1979, unnusta Dísa Hrönn Kolbeins- dóttir. Áskell nam skipasmíðar á Akureyri hjá Skapta Áskelssyni föðurbróður sínum, og vann við það lengst af ævi sinni. Um hríð rak hann með frændum sínum, skipasmiðum, bátasmíðastöðina Vör hf. á Akureyri. Fyrr á árum var Áskell mikið til sjós á skip- um Gjögurs hf., m.a. sem vél- stjóri; fór fyrst á vetrarvertíð 15 ára, þá frá Grindavík. Á síðari árum annaðist Áskell smíða- kennslu við grunnskóla á Ak- ureyri. Ungur var Áskell með öflugustu sundmönnum landsins og keppti oft í þeirri íþrótt. Hann söng í Karlakór Akureyr- ar Geysi um langt skeið sem ten- ór og tók mikinn þátt í félagslífi kórsins svo og íþróttafélagsins Þórs. Áskell var einnig áhuga- maður um hestamennsku og fjallaferðir. Áskell verður borinn til mold- ar frá Glerárkirkju á Akureyri á morgun, mánudaginn 9. septem- ber, og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku pabbi. Að setjast niður og skrifa minningargrein um þig, mann á besta aldri sem aldrei var veikur allt sitt líf þar til þú greind- ist með krabbamein fyrir tveimur árum er erfitt. Þú varst alltaf til staðar og kunnir allt, gast allt, t.d. það að hrista einn bílskúr fram úr erminni, ekkert mál. Hesthúsin bæði sem þú byggðir, æskuheim- ilið í Lönguhlíðinni, að ég tali nú ekki um alla fallegu bátana sem þú og þínir félagar byggðu í gegn um árin niðri í Vör. Þetta voru engir smá skip fyrir okkur guttana að horfa á og það var stórkostlegt að fylgjast með á stundum tveimur þrjátíu tonna eikarbátum fæðast hægt og rólega hlið við hlið í stóru skemmunni. Allt saman glæsilegir bátar sem bera ykkur í Vör merki um vandvirkni og fagurt hand- bragð. Það voru miklir hátíðisdag- ar á þessum árum þegar til stóð að sjósetja, maður var ekkert smá grobbinn þegar maður sagði við strákana: „Nei, ég get ekki verið með, ég er að fara niður í Vör með pabba, við erum að fara að sjósetja Sjöfnina,“ eða einhvern annan af bátunum ykkar. Yfirleitt varst þú í vöðlum úti í sjó að redda hinu og þessu . Bátunum var rennt fram eins langt og kostur var, síðan beðið eftir flóði og þá flutu þeir upp. Þetta voru miklir dagar og að ég tali nú ekki um þegar bátarnir voru afhentir eigendum, þá höfðuð þið þann sið að margir aðstand- endur og börn fóru gjarnan með er siglt var út fjörðinn. Ekki laust við að maður hafi verið grobbinn af því að eiga pabba sem gat smíðað svona skip. Öllum var síðan skutl- að í land á Grenivík. Þetta voru engar smá siglingar fyrir okkur krakkana, allir karlarnir syngjandi með eitthvað í glösum og snittu- bakkar úti um allt. Einhvern veg- inn heyri ég það og sé í minning- unni þegar mamma var á bílnum á bryggjunni að ná í okkur og segir: „Keli minn, ertu ekki að koma?“ „Eigum við ekki að fara að drífa okkur?“ „Ertu ekki búinn að fá nóg, Keli minn?“ Ég held reyndar að hún hafi vitað það í mörg ár að það var ekki bara það að þú vildir ekki koma strax sjálfur. Heldur vildi fólkið hvar sem þú komst, al- veg sama hvað var um að vera, ekki sleppa þér í burtu vegna þess að þú varst svo skemmtilegur og það reyndi þess vegna með öllum ráðum að halda þér örlítið lengur. Enn í dag ef ég sé einhvern af bát- unum ykkar, þá segi ég með stolti við alla sem með mér eru: „Pabbi smíðaði þennan bát.“ Margar minningar koma upp í hugann úr réttunum þar sem þú ert að ræða við alla gömlu karlana hlæjandi og syngjandi með þeim. Þar varst þú í essinu þínu. Ég man alltaf þegar ég var lítill gutti hvað mér fannst skrýtið hvað pabbi varð þreyttur á leiðinni heim úr réttunum. Þessi sama þreyta sæk- ir reyndar á mig eftir réttir nú í seinni tíð. Skál. Ekki er hægt að minnast þín öðruvísi en að tala um hestana. Þeir voru þitt helsta áhugamál, ásamt því að syngja í Geysi. Við vorum búnir að fara í marga reið- túrana saman í gamla daga og ég held að það sé ekki vitlaust að vitna í Villa í Húsey og segja: „Þeir eru góðir þessir gráu,“ eins og hann sagði við okkur einhvern- tímann í stóðrekstri. Betri ferða- hesta held ég að sé erfitt að finna en þessa gráu þína tvo og þeir vissu líka alltaf hvar þeir höfðu þig. Þú þurftir alltaf að vera að brasa eitthvað og þér leið illa ef þú hafðir ekkert að gera. Erfitt var að skipta sér af því sem þú varst búinn að ákveða, eins og t.d. núna í vor þegar þú varst orðinn veikur sá ég um hestana fyrir þig. Þá hringdi mamma einu sinni í mig og sagðist ætla að skutla þér upp í hesthús, vegna þess að þú værir alveg friðlaus þarna heima. Ég sagðist koma eftir hálftíma og mamma tók af þér loforð um að þú myndir taka því rólega og bíða eft- ir mér með að gera í húsunum. Þegar ég kom varst þú búinn að öllu og ég sá að það hafði tekið verulega á þig. Ég svona hálfpart- inn skammaði þig fyrir en sé það núna að þetta var eitthvað sem þú varðst að fá að gera, en þetta reyndist vera í síðasta skiptið sem þú gafst klárunum þínum. Þú söngst í Karlakórnum Geysi, síðar Karlakór Akureyrar Geysi, í fjöldamörg ár og varst búinn að reyna að fá okkur bræðurna til að prófa að koma á æfingu. Alltaf var því borið við að við hefðum ekki tíma. Við værum í fótbolta, körfu eða skallablaki o.s.frv. og enginn tími væri í það að syngja. Í vetur komst þú upp í vinnu til mín og horfði mjög íbygginn á svip á mig, svo íbygginn að ég fékk í magann og hugsaði: „Guð, hvað ætlar hann að segja mér?“ Þú sagðir: „Egill, þú verður eiginlega að koma núna og syngja með í smá skemmtun sem kórinn ætlar að setja upp með lögum eftir Jónas og Jón Múla. Það vantar svo mikið unga menn í þetta.“ Ég var svo feginn þegar að það var bara þetta sem þú vildir að ég samþykkti þetta strax og mætti með þér á næstu æfingu. Ég er búinn að mæta á allar æfingar og hef sungið með kórnum síðan. Ekki varð það langur tími sem við sungum saman í kórnum en ég held að það hafi ekki endilega ver- ið tilgangurinn hjá þér, heldur sá að koma mér af stað. Ég er viss um að þú ert sæll og ánægður með það að hafa komið „stráknum“ í kórinn fyrir rest. Takk fyrir það. Ég reyni halda verki þínu áfram og koma restinni af strákunum þínum í hann. Ég gæti eflaust haldið áfram endalaust að tala um þig vegna þess að ég hef jú átt þig að alla mína ævi en nú er komið að þátta- skilum í lífi mínu og ég vil bara að lokum þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur öll í gegn um tíðina og fyrir góða skapið þitt sem alltaf var til staðar, elsku pabbi minn. Þinn sonur Egill. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) Elsku frændi Áskell. Sárt er að sjá þér á bak, svo alltof, alltof snemma. Þú, sem varst enn á fullu í lífi og strarfi, alltaf til taks að styðja hið góða og farsæla, hvar sem þess var þörf. Nú koma ekki fleiri vísur frá þér vinur, þær voru ekki lengi að formast og fæðast í þínum huga til ómældrar skemmt- unar okkur öllum, því kveðskapur og söngur voru svo mikils ráðandi í þínum hugarheimi. Ég þakka þér af hjarta allar góðu stundirnar, sem þú fórnaðir af þínum dýrmæta tíma, að líta til frænku, í spjall um kóra og söng, eða um nýjar vísur, sem fæddust svo leikandi létt og streymdu fram af þínum vörum. Þær stundir voru fljótar að líða, bjart var yfir í okk- ar hugarheimum, engir skuggar finnanlegir. Oft barst talið þá að kórnum þínum. Þar var áhuginn fölskva- laus og umhyggjan á hæsta stigi. Þú varst vandaður maður til orðs og æðis, aldrei heyrðust aðfinnslur eða neikvætt tal um þína sam- ferðamenn. Slíkt var fjarri þínum göfuga og hreina hugsunarhætti. Ég kveð þig klökkum huga, kæri vinur og frændi. Farðu vel! Elsku Svala og börn, innilegar samúðarkveðjur. Sigríður Guðmundsd. Schiöth. ÁSKELL HANNES- SON EGILSSON  Fleiri minningargreinar um Ás- kel Hannesson Egilsson bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.                                               !"  # $!%    &'( !) *  + )      !) ,)& -  ./!)  ! (")"0)                                             ! "   #                 !"             # $ %   &'     ()*       +     (      #  ( ,     -. $      $ / -   '   %)*,0                                                  ! " #   $%&  " &'    " & &' (   ) !                                                   !   " !  #       $      %%   &    !"#$%  %& ##' (  %#$%  !() & #$%  )   *" ##'  !" & ##' )+!  ,'$%  -- ')---                   !" # $  %  &" ' $"                 ()* $+ " $,$+ +) " -#    -#  "   $+ +) " . ) #  "  ) $+ +) "   $+ "   / +) " .   #+ +() +) "    () " 0  010  0  01

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.