Morgunblaðið - 23.10.2002, Síða 45

Morgunblaðið - 23.10.2002, Síða 45
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2002 45 HUGGUN mun vera önnur plata Kippa Kaninusar. Áður hefur hann gefið út heimaframleiddan disk und- ir nafninu Í síðdegiskaffinu sígild- hljómlist sem fáan- legur var í tak- mörkuðu upplagi. Kippi fæst við mel- ódíska en um leið tilraunakennda raftónlist sem er nokkuð móðins um þessar mundir. Hann og svipað þenkjandi listamenn eins og t.d. landar hans í múm, Boards of Can- ada og To Roccoco Rot eiga það sameiginlegt að reyna að brúa ákveðið bil í raftónlistinni; þá á milli tormeltari tilraunamennsku og mel- ódískari háttu. Útkoman er oft mjúk og sæt, þar sem einkennileg hljóð og rask skjóta óforvarandis upp kolli, og vélbúnaðurinn oftast forláta kjöltutölvur. Stundum nefnt trufl- tónlist eða „glitch“, raftónlist sem einkennist m.a. af tilviljanakenndum uppbrotum. Huggun er auðvelt að fella í flokk með raftónlistariðkendum eins og þeim sem hljóðrita fyrir Morr- merkið þýska (hvar hin íslenska múm hefur einmitt gefið út plötu) en múm og áðurtaldir listamenn koma ósjálfrátt upp í hugann þegar hlust- að er á Huggun enda Kippi vissu- lega dálítill sporfari þeirra, þar sem hann vafrar um í samskonar hljóð- heimi. Rölt Kippa er þó nokkru meira hikandi og stefnulausara – útfærsla Kippa á áðurnefndri raftónlistar- stefnu er einhvern veginn gleym- anlegri og festist miður vel við mann. Það er eins og einhvern frum- og ferskleika vanti, hvort sem vélbúnaði eða mannshuga er um að kenna. Lausnir eru a.m.k. oft fyr- irsjáanlegar og koma lítt á óvart. Hljóð- vinnsla öll er þó ágæt og bætir nokkuð upp meint hug- myndaleysi. Umslagshönn- unin er þá til mikillar prýði og samræmist inni- haldinu, þ.e. ein- faldri, sakleysis- legri raftónlist, smekklega. Platan er þokkalega heild- stæð sem slík og greinilegt að lista- maðurinn er með ágætlega mótaða sýn á það sem hann vill gera. Út- færsla hugmyndanna er þó því mið- ur í daufara lagi og betri brýningar þarf við, ef vel á að vera. Tónlist Harmi gegn Kippi Kaninus Huggun Kitchen Motors/Ómi Huggun, önnur plata Kippa Kaninusar. Tónlist eftir Guðmund Vigni Karlsson (Kippa Kaninus). Hljómjafnað af Axeli. Arnar Eggert Thoroddsen Kippi Kaninus á flugi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.