Morgunblaðið - 24.10.2002, Page 21

Morgunblaðið - 24.10.2002, Page 21
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2002 21 LYKILDEILDIR í her Venezúela fóru í viðbragðsstöðu í gær eftir að fjórtán háttsettir foringjar úr hern- um hvöttu opinberlega til uppreisnar gegn Hugo Chavez forseta. Hleyptu orð herforingjanna af stað nýrri hrinu útifunda stuðningsmanna og andstæðinga Chavez. Þúsundir manna tóku þátt í mót- mælafundi í austurhluta höfuðborg- arinnar Caracas í fyrrakvöld, en á fundinum, sem teygðist fram á nótt, töluðu herforingjarnir um það hvers vegna þeir telja nauðsynlegt að koma Chavez frá völdum. Einn her- foringjanna, Nestor Gonzalez Gonzalez, sem er fyrrverandi yfir- maður herskóla landhersins, sakaði hinn vinstrisinnaða forseta um að stefna að því að koma upp „alræð- isstjórn að hætti [Fídel] Castrós [Kúbuleiðtoga]“ í Venezúela. Minni háttar götumótmæli áttu sér stað í nokkrum borgum landsins í kjölfarið. Og stuðningsmenn Chav- ez streymdu að forsetahöllinni í Caracas í því skyni að standa vörð um sinn mann. Stjórnin segir ástandið í landinu stöðugt Talsmenn ríkisstjórnar Chavez sögðu stjórnarandstæðingana í hernum hafa verið viðriðna upp- reisnartilraun gegn forsetanum sem gerð var í apríl og væru með örvænt- ingarfullum hætti að reyna að ná fram þeim vilja sínum nú. Fullyrtu stjórnarmenn að ástandið í landinu væri stöðugt og að heraflinn stæði óskiptur að baki forsetanum. Uppreisnarhvatning herforingj- anna jók á spennu í stjórnmálum Venezúela, sem enginn skortur hef- ur verið á það sem af er þessu ári, með blóðugri uppreisnartilraun í apríl, allsherjarverkfalli að frum- kvæði stjórnarandstöðunnar í byrj- un þessarar viku, viðvarandi efna- hagskreppu og þrátefli milli herbúða forsetans og stjórnarandstöðunnar um hvenær næst skuli halda kosn- ingar. Talsmenn ríkisstjórnarinnar halda því fram að henni hafi tekizt að koma í veg fyrir tvö morðtilræði sem áformuð hafi verið gegn forsetanum á síðustu dögum. Hugo Chavez, forseti Venezúela, aðþrengdur Herforingjar hvetja op- inberlega til uppreisnar Caracas. AP. AP Nestor Gonzalez hershöfðingi heilsar stuðningsmönnum á mótmælafundi gegn Hugo Chavez forseta og ríkisstjórn hans í Caracas í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.