Morgunblaðið - 13.12.2002, Page 4

Morgunblaðið - 13.12.2002, Page 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ „VIÐ eigum von á villtum háhyrn- ingum hérna rétt fyrir utan í febr- úar og vonum að Keikó nái sam- bandi við þá,“ segir Þorbjörg Kristjánsdóttir, líffræðingur og þjálfari háhyrningsins Keikós í Noregi. Keikó hefur verið í Taknesi í sveitarfélaginu Halsa í rúman mán- uð og segir Þorbjörg að þaðan sé stutt út á opið haf. „Þetta verður allt með mjög svipuðu sniði og það var í Vestmanneyjum,“ segir Þor- björg og leggur áherslu á að reynt verði að hafa Keikó í sem mestri nálægð við villta háhyrninga, þegar þar að komi. Fram að því verði tím- inn notaður til æfinga. „Við reynum að fara með hann daglega í stuttar göngur til að láta hann synda að- eins en þar sem síldin er ekki kom- in þurfum við að gefa honum.“ Þorbjörg segir að mikið sé lagt upp úr því að hafa enga tvo daga eins. „Við reynum að hafa þetta eins fjölbreytt og hægt er svo Keikó detti ekki inn í eitthvert mynstur. Við gerum orkufrekar æfingar með honum hérna í víkinni, förum með hann í göngur og fylgj- umst með líkamsástandi hans.“ Er í fínu formi Þegar Keikó var í Vestmanna- eyjum voru að jafnaði sex til sjö starfsmenn með honum og upp í 12 á sumrin en þau eru þrjú núna. Þorbjörg og Colin Baird frá Kan- ada, sem voru með honum í Eyjum og síðan er Norðmaður þeim til að- stoðar. „Það er gaman að fá tæki- færi til að halda áfram að taka þátt í þessu ævintýri,“ segir Þorbjörg og bætir við að Keikó virðist líða mjög vel. „Hann lítur vel út, er sterkur og það er mikið fjör í hon- um. Hérna er meira skjól en í Vest- mannaeyjum, Keikó er í fínu formi og við bíðum spennt eftir háhyrn- ingunum.“ Keikó bíð- ur eftir villtum há- hyrningum Ljósmynd/Hallur Hallsson Þorbjörg Kristjánsdóttir, líffræðingur og þjálfari Keikós í Noregi, gefur háhyrningnum að éta. NOKKRIR hestamenn í Vest- mannaeyjum hafa tekið sig saman um að koma upp skeiðvelli á landi þeirra í Lyngfelli. Framkvæmd- irnar hafa fyrst og fremst kostað vinnu og ánægju, að sögn eins þeirra, en lítinn pening. Völlurinn verður vígður á óvenjulegan hátt á laugardag með því að sóknarprest- urinn, sr. Kristján Björnsson, ríður fyrsta hringinn hempuklæddur. Það er gott hljóðið í Magnúsi Kristinssyni, útgerðarmanni í Eyj- um, þegar Morgunblaðið nær tali af honum. Enda ekki ástæða til annars því á laugardag verður skeiðvöllur hans og örfárra félaga hans vígður með pomp og prakt. „Þetta er ágæt- is völlur fyrir það að vera einka- skeiðvöllur fyrir hesthúsið í Lyng- felli,“ segir hann kampakátur og upplýsir að það séu fimm, sex hesta- menn sem hafi staðið að gerð vall- arins, sem er 225 metrar að lengd. „Við eigum myndarlegt og gott hesthús í Lyngfelli en þar var mikil lægð í jörðinni og við fengum vöru- bílstjóra bæjarins til að koma með alla möl sem þeir þurftu að fleygja frá sér og fylla þessa holu upp,“ heldur hann áfram. „Það er búið að vera að keyra í hana hægt og síg- andi síðustu þrjú árin og þegar far- ið var að líða á þetta ár sáum við fram á að þetta væri að fyllast upp og við gætum farið að gera völlinn kláran.“ Einn félaganna, sem býr svo vel að eiga hjólaskóflu, slétti svo úr mölinni og í framhaldinu voru spýt- ur negldar allan hringinn. „Svo eru rafvirkjar að splæsa á okkur raf- magni en við ætlum að hafa völlinn upplýstan þannig að það á að vera hægt að ríða þarna 24 tíma á sólar- hring!“ Magnús gefur lítið fyrir það að fáir hestamenn séu í Eyjum. „Ég hugsa að það séu 40 til 50 hestar hérna – það eru a.m.k. þrjú önnur hesthús,“ segir hann ákveðinn. Þeg- ar hann er spurður að því hvernig svona verkefni sé fjármagnað hefur hann svarið á reiðum höndum. „Þetta er bara fjármagnað með ánægjunni – eina sem við þurftum að kaupa voru spýturnar. Þannig að þetta kostaði okkur litla peninga en svolitla vinnu og ánægju.“ Magnús upplýsir þó að heilmikið meira verði gert í kring um vígsl- una. Til að mynda muni hann opna málverkasýningu í hesthúsinu á föstudagskvöld þar sem 23 málverk eftir Stefán V. Jónsson frá Möðru- dal – Stórval – verða sýnd en þau eru öll úr einkasafni Magnúsar. Sýningin verður einnig opin á laug- ardag fram að vígslu skeiðvallarins. Eftir vígsluna verður eldri borg- urum í Eyjum boðið á hlöðuball. Það er ekki að heyra annað á Magnúsi en að stórhugur sé í mönn- um vegna nýja vallarins. „Við eig- um náttúrulega von á að við verðum beðnir um að halda landsmót fljót- lega og þá förum við að gera okkur klára í það. Það verður líka létt verk fyrir okkur; við eigum völlinn og höfum ballstaðinn og allt hvað eina þannig að við erum alveg til- búnir til að taka landsmótið hingað út,“ segir hann kokhraustur og seg- ir lítið mál að skella þarfasta þjón- inum um borð í Herjólf ef svo ber undir. Hann klykkir út með því að það séu engin vandamál til í Eyjum. „Ef þau eru til eru þau einfaldlega leyst!“ Ríður fyrsta hring- inn hempuklæddur Nýr einkaskeið- völlur í Eyjum vígður með pomp og prakt EF einhver á Selfossi saknar 30 sentimetra garðstyttu af strák með hjólbörur eða um 40 sentimetra hárrar styttu af lítilli stúlku í pilsi, er sá hinn sami vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögregluna á Selfossi. Stytturnar eru meðal þess sem fannst á heimili unglingspilts í bæn- um en hann hefur viðurkennt að hafa hnuplað þeim úr görðum bæjarbúa. Málið telst að mestu upplýst, þó lík- ur séu á að fleiri séu viðriðnir málið enda sumar stytturnar býsna þung- ar. Að sögn lögreglunnar á Selfossi bárust tilkynningar um stuld á fjór- um garðstyttum hinn 29. nóvember og leiddi rannsókn til þess að stytt- urnar fundust á heimili piltsins í síð- ustu viku. Reyndar voru stytturnar sjö talsins en eigendur fimm þeirra hafa náð í þær á lögreglustöðinni. Eftir eru tvær styttur sem enginn hefur vitjað. Stytturnar sjö eru af ýmsum toga, ein er t.d. af ljóni en önnur af hundi. Hundastyttan var þyngst, eða um 25–30 kíló að mati lögreglunnar. Pilturinn mun hafa gefið þær skýringar á hegðun sinni að um hrekkjabragð hafi verið að ræða og hann mun hafa verið undir áhrifum áfengis í einhverjum tilvikum. Garðstyttum hnuplað úr görðum Selfyssinga GÆSLUVARÐHALD yfir þremur pólskum ríkisborgurum, sem voru handteknir eftir innbrot í þjónustu- miðstöðina Vegamót á Snæfellsnesi í byrjun mánaðarins, var í gær fram- lengt til 9. janúar. Fjórði Pólverjinn er í gæsluvarð- haldi til 20. desember nk. en hann lá á spítala um tíma vegna meiðsla sem hann hlaut þegar hann kastaði sér út úr bifreið á flótta undan lögreglu. Mest af þýfinu komið í hendur réttra eigenda Mennirnir komu til landsins sem ferðamenn um 1½–2 mánuðum áður en þeir voru handteknir. Á dvalar- stað þeirra í Reykjavík fundust mun- ir úr ýmsum afbrotum á Suður- og Vesturlandi, einkum úr sumarbú- stöðum, auk þess sem þýfi fannst í bifreið þeirra þegar þeir voru hand- teknir. Tekist hefur að koma flestum mununum í hendur réttra eigenda, samkvæmt upplýsingum frá auðgun- arbrotadeild lögreglunnar í Reykja- vík sem rannsakar málið. Rannsókn málsins beinist m.a. að því hvort mennirnir eigi sér sakarferil í öðrum löndum. Gæsluvarð- hald fram- lengt vegna innbrota HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær tvo karlmenn á þrí- tugsaldri í fangelsi fyrir sérstak- lega hættulegar líkamsárásir. Annar ákærðu fékk 18 mánaða fangelsi, þar af 15 mánuði skilorðs- bundna, og hinn 12 mánaða fang- elsi, þar af 9 mánuði skilorðs- bundna. Málsatvik voru þau að tveimur hópum lenti saman við Trönuhóla í Breiðholti í fyrravor og var ýms- um bareflum beitt í átökum auk þess sem keðjusög eða vélsög var þar í gangi. Var annar mannanna fundinn sekur um að hafa stungið mann með hnífi í vinstri síðu svo af hlaust stungusár sem olli mikilli blæðingu í kviðarholi. Hinn maðurinn var fundinn sek- ur um að hafa barið mann með steypuskóflu með þeim afleiðing- um að hann hlaut mar á milta og síðan annan mann í bak, enni og hægri hönd, sem hann bar fyrir höfuð sér, með þeim afleiðingum að hann hlaut mar á neðanverðu baki og mjaðmagrind og sár á fingrum. Annar sakborningurinn var jafn- framt dæmdur til að greiða manni sem hann veitti áverka rúmar 419 þúsund krónur í miskabætur. Báð- ir rufu mennirnir skilorð með framferði sínu. Hjördís Hákonardóttir, héraðs- dómari, kvað upp dóminn. Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari hjá ríkissaksóknara, sótti málið. Fangelsi fyrir hættu- legar líkamsárásir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.